Þorsteinn V. Einarsson
Karlmennskan
[ATH. Þú getur hlustað á vikulega þætti af Hjónvarpinu með áskrift á patreon.com/hjonvarpid] Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.
Author
Þorsteinn V. Einarsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 14, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#22 „Kviknar er ekki ég, Kviknar er samfélag“ - Andrea Eyland 12.03.2021 1:03:55
„Pabbar þurfa að stíga upp og taka ábyrgð“ segir Andrea Eyland sem hefur tileinkað tíma sínum og starfskröftum í umfjöllun um barneignir og foreldra. Andrea gaf út bókina Kviknar, sjónvarpsseríurnar Líf kviknar og Líf dafnar auk þess að sjá um hlaðvarpið Kviknar og samnefnt Instagram sem er með tæplega 11 þúsund fylgjendur en aðeins 2% af þeim eru karlar. Þorsteinn spjallar við Andreu Eyland í 22....
#21 Líkamsvirðing og fitufordómar - Tara Margrét Vilhjálmsdóttir 05.03.2021 53:31
„Fitufordómarnir, mismununin, skömmin og smánunin sem feitt fólk þarf að þola [...] er sjálfstæður áhættuþáttur fyrir öllum kvillum sem við tengjum venjulega við fituvefinn,“ segir Tara Margrét Vilhjálmsdóttir formaður Samtaka um líkamsvirðingu. Vilja samtökin sjá skaðminni nálgun í heilbrigðisþjónustu því stríð við offitu endar alltaf á að vera stríð við feitt fólk. Tara Margrét útskýrir í hverju...
#20 Kennslukarl og femínisti - Þórður Kristinsson 26.02.2021 1:03:34
„Þótt við gefum okkur út fyrir að vera framsækin þá erum við fáránlega föst í hugmyndum um kynhlutverkin, sérstaklega þegar kemur að körlum.“ segir Þórður Kristinsson kennslukarl, doktorsnemi og femínisti. Í 20. þætti í hlaðvarpinu Karlmennskan ræðir Þorsteinn við Þórð um hlutverk karla innan femínisma, hver munurinn á pro-femínista og femínista er, hvernig karlar eigi til að gusslast áfram og ste...
#19 Peningar, karlmennska og heilbrigðisþjónusta í karlaveldi - Finnborg Salome Steinþórsdóttir 19.02.2021 1:09:15
„Það er engin spurning hverjir fá peningana“ segir Finnborg Salome Steinþórsdóttir doktor í kynjafræði en doktorsrannsókn hennar fjallaði um kynjuð fjármál gegn kynjaslagsíðu háskóla í kjölfar markaðsvæðingar. Finnborg kynjagreindi efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna COVID með félaginu Femínísk fjármál og hefja þær vitundavakningu í næstu viku. Finnborg hefur ansi breiðan bakgrunn í rannsókn...
#18 Kynskiptur vinnumarkaður og kynbundinn launamunur - Víðir Ragnarsson 12.02.2021 55:24
„Munur á launum karla og kvenna á Íslandi er 14% í dag og það er út af því að karlar hafa meiri ábyrgð og eru í störfum sem við metum verðmætari en störf kvenna.“ segir Víðir Ragnarsson verkefnastjóri í jafnréttis- og mannauðsmálum hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Árangur Orkuveitunnar í jafnréttismálum hefur vakið athygli, þá einkum erlendis en þó líka hérlendis. Leiðréttur launamunur milli karla og kv...
#17 Kynjafræði, drengjaorðræða og femínismi - Þorgerður Einarsdóttir 05.02.2021 1:07:34
„Við erum alltaf að endurskapa þessar hugmyndir [um karlmennsku og kvenleika] [...] það eru valdatengsl í þessum samskiptum og við erum alltaf að endurskapa kynin og valdatengslin í nýjum búningum. Við sjáum eina hindrun, ryðjum henni úr vegi en þá spretta upp aðrar hindranir.“ segir Þorgerður Einarsdóttir prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands í samtali við Þorstein V. EInarsson í 17. podcast...
#16 Parasambönd, triggerar og djöflatal - Hrefna Hrund Pétursdóttir 29.01.2021 1:30:13
Hjónin Þorsteinn og Hulda ræða við parameðferðar sálfræðinginn sinn, Hrefnu Hrund Pétursdóttur, um parasambönd, samskipti og algeng vandamál í nánum samböndum í 16. hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar.
#15 Hvít forréttindi, rasismi og fordómar - Sara Mansour 22.01.2021 48:56
„Ég held að rót allra vandamála sé skortur á gagnrýnni hugsun. Að geta litið í eigin barm og séð samfélagið og ósýnilegar hindranir sem liggja ekki í augum uppi. Það er ekkert nema gagnrýnin hugsun.“ segir Sara Mansour laganemi og aktívisti fyrir mannréttindum og aukinni lýðræðisvitund. Sara hefur talað fyrir mannréttindum, málefnum flóttafólks og femínisma frá 13 ára aldri. Í þessum 15. podcast þ...
#14 TikTok og gamer menningin - Dagný Halla 15.01.2021 46:36
„Tölvuleikjaheimurinn er eins og sjúklega ýkt týpa af feðraveldinu.“ segir Dagný Halla Ágústdóttir læknanemi, tölvuleikjaspilari og TikTok-femínisti. Dagný hefur upplifað mikla fordóma sem „gamer“ fyrir það eitt að vera kvenkyns spilari og segir menninguna í tölvuleikjaheiminum vera litaða kvenfyrirlitningu, rasisma og ableisma. Unnið sé markvisst gegn stelpum, þær áreittar, krafðar um að vera lét...
#13 Sólborg kveður Fávita 08.01.2021 1:09:04
„Aktívismi er ekki að spyrja hvernig líður þér núna. Þú þarft bara að fara af stað. Let´s fokking go! [...] Ég held að þetta hafi bara allt farið eins og það átti að fara,“ segir Sólborg Guðbrandsdóttir laganemi, formaður starfshóps menntamálaráðherra um endurskoðun á kynfræðslu og fyrrverandi umsjónarkona Fávitar á Instagram sem er enn með rúmlega 32 þúsund fylgjendur. Í þættinum ræðum við ferðal...
#12 Meðganga og fæðingarorlof - Hjónin tala saman 18.12.2020 1:10:30
„Þú gast bara lifað þínu lífi áfram á meðan ég var bara ein heima með barnið og kalt kaffi“. Hjónin Hulda Jónsdóttir Tölgyes og Þorsteinn V. Einarsson ræða saman í þessum þætti um reynslu þeirra og upplifun af meðgöngu og fæðingarorlofi. Hvað þau hefðu viljað vita fyrirfram, hverju þau hefðu viljað breyta og það sem heppnaðist ágætlega.
#11 Umgengnis- og forsjármál - Líf án ofbeldis 11.12.2020 53:16
„Nei, börn eru ekki vernduð fyrir ofbeldi á Íslandi,“ segir Sigrún Sif Jóelsdóttir talskona Lífs án ofbeldis. Umgengnis- og forsjármál eru oft lituð andstæðum sjónarmiðum í opinberri umræðu þar sem feður og mæður virðast takast á og við, dómstóll götunnar, erum krafin um afstöðu. Sigrún Sif vill aðgreina mál þar sem um ofbeldi er að ræða frá öðrum umgengnis- og forsjármálum og segir að feður þurfi...
#10 Alkóhólismi og edrúmennska karla 04.12.2020 1:19:30
„Gagnvart áfengi hef ég alltaf fúnkerað eins og bíll sem er bremsulaus, gleymdist að setja bremsurnar í mig?“ segir karlmaður á sextugsaldri sem hefur barist við alkóhólisma í 40 ár. Sá hefur núna verið edrú í 9 mánuði og lýsir baráttu sinni við edrúmennskuna. Auk þess heyrum við í karlmanni sem einnig er alkóhólisti en hefur haldið sér edrú í tæp 18 ár. Reynsla þeirra, edrúganga og lífssýn er umf...
#9 Mental load: Hjónin Hulda og Þorsteinn 27.11.2020 56:27
„Það eru hundrað þúsund hlutir sem þarf að hugsa um [...] og ég held að menn átti sig oft ekki á því“ segir Hulda og vísar til fyrirbærisins mental load. Mental load er umfjöllunarefni þessa þáttar þar sem hjónin, Þorsteinn V. Einarsson og Hulda Jónsdóttir Tölgyes, spjalla saman um það hvernig mental loadið hefur birst í þeirra lífi og hvaða leiðir þau hafa farið til að jafna byrðina sem til fellu...
I aukaþáttur: Femínistafélag MH og Versló 23.11.2020 48:19
„Rauðhærður vegan femínisti, hann myndi ekki fá lim [...] Já, MH-inga“ sagði viðmælandi í fyrirhuguðum podcast-þætti á vegum nemendafélags Verslunarskóla Íslands. Femínistafélag MH og femínistafélag Versló gagnrýndu þetta orðfæri, réttilega, og útskýra hér hvers vegna og hvaða áskoranir femínistar í framhaldsskólunum eru að takast á við. Typpa- og píkufýla eru hugtök sem koma fyrir og lýsa menning...
#8 Narsisismi 20.11.2020 39:27
„Ef að einstaklingar eru ekki til í að gera neitt í sínum málum, þá er bara best að sætta sig við það og halda áfram með líf sitt“ segir nafnlaus kona sem bjó við ofbeldi narsisísks manns í 5 ár. Nafnlausa konan deilir reynslu sinni af ofbeldistaktík narsisista og Anna Kristín Newton sálfræðingur skýrir þessa persónuleikaröskun sem leggst frekar á karla en aðra einstaklinga.
#7 Sóley Tómasdóttir - Aktívismi 13.11.2020 57:14
„Að passa sig er samofið femínískum aktívisma [...] útskýra að við hötum ekki karla og ég elski alveg son minn“. Sóley Tómasdóttir femínisti og fyrrverandi forseti borgarstjórnar í Reykjavík ræðir um það hvernig er að vera femínískur brautryðjandi og hafa verið gerð að holdgervingi femínismans á Íslandi. Förum yfir femíníska aktívismann, andspyrnuna og hvernig hún er að beita sér í dag.
#6 Bjarni Snæbjörnsson - Heterósexismi 06.11.2020 41:11
„Ég bað til Guðs á hverju kvöldi um að ég væri ekki hommi“. Bjarni Snæbjörnsson leikari lýsir upplifun sinni af því að vera samkynhneigður karlmaður í samfélagi sem er gegnsýrt af gagnkynhneigðum viðmiðum. Í gegnum spjall við Bjarna verður leitast við að að svara hvað er homophobia og hvernig heterósexismi getur skýrt þöggun, útilokun og vanlíðan (ó)gagnkynhneigðra karla og hinsegin fólks.
#5 Klám 30.10.2020 56:42
Klám fyrir sumum er ekki endilega það sama og klám er fyrir öðrum. Kynferðislega örvandi efni hefur þróast á síðustu árum og áratugum frá óaðgengilegum erótískum klámblöðum og rándýrum rauðum símalínum yfir í ókeypis og aðgengilegt internet klám. Sigga Dögg kynfræðingur, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir verkefnastýra hjá Stígamótum og Þórður Kristinsson doktorsnemi og framhaldsskólakennari útskýra...
#4 Hlaðvarp: Nafnlausu skrímslin 23.10.2020 1:04:01
Gerendur ofbeldis ganga huldu höfði í íslensku samfélagi í skjóli mýta um fólk sem beitir ofbeldi. Sérfræðingar í málefnum brotaþola og gerenda telja að nauðgunarmenningu og ofbeldi verði ekki útrýmt nema með því að varpa ljósi á gerendur og skapa menningu þar sem þeir geta og þurfa að axla ábyrgð.
#3 Feður og jafnrétti 16.10.2020 54:37
Ísland mælist með mesta jafnrétti í heiminum, samkvæmt alþjóðlegum samanburði World Economic Forum, þrátt fyrir að hér ríki íhaldssöm viðhorf, meðal annars gagnvart foreldrahlutverkinu, sem hindra jafnrétti. Í þessum þætti er leitast svara við því hvernig foreldrahlutverkið er fyrirstaða jafnréttis og hver ábyrgð karla er í því samhengi? Viðmælendur eru Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir kynjafræðingur...
#2 Karlar og tilfinningar 09.10.2020 49:59
Karlar upplifa skömm og bæla og fela tilfinningar sínar fyrir öðrum. Sálfræðingar segja að karlar leiti sér síður aðstoðar vegna tilfinningavanda og þeir þurfi að sýna hugrekki til að gangast við tilfinningum sínum.
#1 Eðli karla 02.10.2020 48:20
Klínískur sálfræðingur bendir á að heilinn þróast stöðugt og breytist í takt við lífsreynslu, en hún, sagnfræðingur og heimspekingur sammælast um að allt sem skipti máli hvað varðar kyn sé félagslega ákvarðað.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.