Hugrænn styrkur

Hugrænn styrkur

Health IS ↓ 14 episodes

Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fær til sín afreks- og fagfólk með það markmið að heyra áhugaverðar sögur, fræðslu og opna umræðu á andlegu hlið afrekssviðsins. 

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com

Author

Hugrænn styrkur

Category

Health

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Nov 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

#13 - Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir 03.11.2026

Í þættinum ræðum við við Ólínu Guðbjörgu Viðarsdóttur fyrrum landsliðskonu í knattspyrnu og doktor í sálfræði.  Í þættinum er fjallað um vegferð Ólínu í fótboltanum, átök í landsliðinu, kvíða sem hún var að fást við, heilahristing af eigin reynslu og sem fagaðili ásamt öðru áhugaverðu

#12 - Vignir Vatnar Stefánsson 29.10.2026

Í þessum þætti ræðum við við Vigni Vatnar Stefánsson, einn fremsta skákmann þjóðarinnar og nýkrýndan stórmeistara. Í þættinum talar hann um mikilvægi líkamlegs og andlegs heilbrigðis. Einnig kemur hann inn á erfið tímabil, þunglyndi, sjálfsvígshugsanir, bróðurmissir og hvernig hann tókst á við þær áskoranir

#11 - Lára Kristín Pedersen 06.10.2026

Í þættinum er rætt við Láru Kristínu Pedersen, fyrrum landsliðskonu í knattspyrnu. Lára opnar sig um reynslu sína af atvinnumennskunni og þeim andlegu áskorunum sem fylgja afreksíþróttum. Þá ræddum við um matarfíkn og pressuna sem fylgir því að spila á hæsta stigi. 

#10 - Arnar Pétursson 25.08.2026

Í þessum þætti er rætt við Arnar Pétursson, einn sigursælasta hlaupara í sögu Íslands. Arnar er sjötíu og þrefaldur Íslandsmeistari, hefur sigrað Laugaveginn tvisvar, sett Íslandsmet í 100 kílómetra hlaupi og keppt fjórum sinnum á HM í hálfmaraþoni og einu sinni á HM í utanvegahlaupum. Arnar ræðir um mikilvægi sterks hugarfars og hvernig maður fær það mesta úr sjálfum sér í keppni. 

#9 - Agnar Smári Jónsson 06.11.2024

Agnar Smári Jónsson, handknattleiksmaður, var gestur í níunda þætti. Agnar Smári á farsælan feril á bakinu. Hann talar um baráttu sína við átröskun og afleiðingar hennar, þ.á.m. sjálfsvígshugsanir, og pressuna á að halda andliti og frammistöðu undir pressu. Áhugaverður þáttur um mikilvægt málefni. 

#8 - Arnór Sveinn Aðalsteinsson 13.10.2024

Arnór Sveinn Aðalsteinsson, knattspyrnumaður, heimspekingur og kennari, var gestur í áttunda þætti. Arnór Sveinn á langan feril í knattspyrnu. Hann segir frá sinni nálgun á hugarfari bæði innan knattspyrnunnar sem og í lífinu. Þá fer hann yfir hvernig hann fann ástríðuna aftur eftir að hafa misst hana um tíma. Arnór Sveinn útskýrir dyggðarsiðfræði og lýsir hvernig hann nýtir sér þau fræði til að v...

#7 - Anton Sveinn McKee 18.09.2024

Anton Sveinn McKee, afreksmaður í sundi og Ólympíufari, var gestur í sjöunda þætti. Anton fer yfir feril sinn og segir frá hinum ýmsu verkfærum sem hann nýtti til að ná sínum árangri. Anton fór inn á sín gildi sem íþróttamaður og bað okkur um að bæta hér í textann þriðja gildinu sem hann gleymdi að nefna í viðtalinu. Gildin hans eru þrjú; óttalaus, vera í núvitund og óbrjótanlegur.  Hann kemur ein...

#6 - Guðlaug Edda Hannesdóttir 03.09.2024

Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarkona og Ólympíufari, var gestur í þætti sex. Guðlaug Edda fer yfir Ólympíuleikana í París, mótlæti og meiðsli sem hún hefur gengur í gegnum og segir frá þróun hennar sem íþróttakonu. Þá fer hún yfir hvernig hún þjálfaði líkama og huga fyrir íþróttina og sitt daglega líf. 

#5 - Kristófer Acox 20.08.2024

Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta og leikmaður Vals, var gestur í þætti 5. Farið var yfir sögu hans og Kristófer gaf góð dæmi um hvernig hugurinn getur reynt að leika gegn manni innan sem utan vallar. Hann lýsir því hvernig hann vann sérstaklega í að þjálfa sig að mæta huganum. 

#4 - Hildur Antonsdóttir 13.08.2024

Hildur Antonsdóttir, landsliðs- og atvinnukona í knattspyrnu, var gestur í fjórða þætti. Farið var yfir meiðsli og mótlæti sem hafa haft áhrif á feril Hildar. Hún ræðir mikilvægi þess að þjálfa hugann líkt og líkamann. Hildur lýsir hvernig hún þjálfar hugann, meðal annars með sjónmyndaþjálfun, og ræðir áhrif sjálfstrausts á frammistöðu. 

#3 - Höskuldur Gunnlaugsson 06.08.2024

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks í knattspyrnu, var gestur í þriðja þætti Hugræns Styrks. Höskuldur segir frá erfiðleikum sem hann hefur gengið í gegnum, bæði á knattspyrnuferlinum sem og í lífinu. Hann segir frá tímanum eftir að eldri bróðir hans féll frá, þá hvernig hans upplifun var og hvernig hann vann með það áfall. 

#2 - Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé) 30.07.2024

Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé), tónlistamaður og handknattleiksmaður, var gestur í öðrum þætti Hugræns Styrks. Jói sagði frá sínum kvíða og erfiðu hugsunum sem fylgja tónlistinni og handknattleiknum. Hann fór yfir sína upplifun af tónlistarheiminum og hver hans framtíðarplön eru á sínum tónlistarferli.

#1 - Sara Björk Gunnarsdóttir 24.07.2024

Sara Björk Gunnarsdóttir, atvinnukona í knattspyrnu, fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins, var gestur í fyrsta þætti Hugræns Styrks. Sara Björk fór yfir góðu og erfiðu stundirnar á ferlinum. Rætt var um andlegu hlið knattspyrnunnar. 

Kynningarþáttur 24.07.2024

Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fær íþrótta- og annað afreksfólk, fagfólk og fleiri til að ræða áhugaverðar sögur og andlegu hliðina.  Hér er stutt kynning á því.

Listen to the Hugrænn styrkur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.