Ritstjórn Morgunblaðsins
Hringferðin
Í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins leggjum við land undir fót og ræðum við 110 Íslendingahringinn um landið. Ferðin stendur yfir í heilt ár og í henni verður jafnt og þétt dregin upp spennandi mynd af lífinu í landinu frá sjónarhóli heimamanna á hverjum stað, með sögum af fólki, því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja til þess að efla samfélagið til framtíðar. Ferðin stendur yfir í heilt ár og mun jafnt og þétt draga upp spennandi mynd af því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja.
Author
Ritstjórn Morgunblaðsins
Category
Podcast website
Latest episode
May 15, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#42 - Villta vestrið með Steina Más 10.08.2024 42:07
Þorsteinn Másson er fæddur og uppalinn Ísfirðingur sem er búsettur í Bolungarvík. Þegar hann var ungur flutti hann frá Vestfjörðum og ætlaði aldrei að koma aftur. Þegar hann eignaðist börn breyttist það og er hann nú framkvæmdastjóri Bláma.
#41 - Úr forstjórastólnum í sögu þorsksins 03.08.2024 34:07
Gylfi Ólafsson lét af störfum sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða í september á síðasta ári og hefur síðan þá unnið að uppbyggingu upplifunarsýningu um hagsögu Íslands og Vestfjarða sem hverfist fyrst og fremst um þorskinn.
#40 - María Rún Þorsteinsdóttir 27.07.2024 32:51
Eftir farsælan rekstur í ellefu ár ákváðu María Rún Þorsteinsdóttir og Heiðar Ingi Heiðarsson að láta af rekstri Crossfit Hengill í Hveragerði. Ákvörðunin var erfið en María segir þau finna fyrir sátt í hjartanu.
#39 - Milljarður fyrir hver þúsund tonn 20.07.2024 36:36
Hallgrímur Steinsson, yfirmaður tæknimála hjá Laxey, og Daði Pálsson framkvæmdastjóri ræða umfangsmikla uppbyggingu félagsins í Vestmannaeyjum. Stefnt er að því að framleiða yfir 30 þúsund tonn af laxi þegar félagið hefur náð fullri starfsemi.
#38 - Midgard base camp 13.07.2024 45:53
Í gamalli sementsverksmiðju í útjaðri Hvolsvallar má nú finna reisulegt hostel og veitingastað sem ber heitið Midgard Base Camp. Starfsemin er þó fjölbreyttari en svo og teygir anga sína vítt og breitt um Suðurlandið.
#37 - Þjóðhátíð er handan við hornið 06.07.2024 33:44
Eyjamenn standa nú í stórræðum við undirbúning Þjóðhátíðar. Fyrstu helgina í ágúst breytir Heimaey um svip og þúsundir gesta sækja hana heim í þeim tilgangi að skemmta sér og öðrum. Í mörg horn er að líta og Morgunblaðsmenn tóku hús á mönnum sem eru öllum hnútum kunnugir við undirbúninginn - fyrr og nú.
#36 - Skúrinn undir Eyjafjöllum 28.06.2024 39:24
Fjölskyldan í Varmahlíð undir Eyjafjöllum opnaði gistiheimilið Skúrinn árið 2017 og segir Anna Birna Þráinsdóttir, eigandi Skúrsins, það hafa verið mikið heillaspor. Anna Birna og dóttir hennar Ingveldur Anna Sigurðardóttir, fulltrúi sýslumanns og 2. Varaþingmaður Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, tóku hlýlega á móti blaðamönnum í Skúrnum og ræddu um lífið undir Eyjafjöllum.
#35 - Bræðrabrugg í Eyjum 22.06.2024 40:00
Brothers Brewery hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem eitt áhugaverðasta brugghús landsins. Það er starfrækt í glæsilegu húsnæði í Vestmannaeyjum og nú hefur fyrirtækið opnað minnsta bar á Íslandi við höfnina í Eyjum. Þessu öllu fengu blaðamenn Morgunblaðsins að kynnast á ferð sinni út í Heimaey.
#34 - Eldheimar í Vestmannaeyjum 19.06.2024 25:31
Þegar hugmyndir um minjavörslu tengda Vestmannaeyjagosinu fóru að taka á sig mynd upp úr aldamótum óraði engan fyrir því hvers konar aðdráttarafl fælist í því að segja þessa sögu. Eldheimar hafa sannað sig sem mikilvægur áfangastaður fyrir erlenda ferðamenn jafnt sem Íslendinga þegar Heimaeyjar er vitjað.
#33 - Listamaður á Háaleitisbraut og í Den Haag 08.06.2024 36:47
Sigurður Sævar Magnúsarson hefur um nokkurra ára skeið verið mjög áberandi í íslensku myndlistarlífi. Hann hefur á sama tíma stundað nám við Konunglegu listaakademíuna í Den Haag í Hollandi. Hann heldur úti vinnustofu á Háaleitisbraut en stefnir á útrás með haustinu. Moggamenn tóku hús á listamanninum.
#32 - Heitar kappræður í Hádegismóum 30.05.2024 1:17:57
Fyrir svörum eru þeir fimm forsetaframbjóðendur sem hlotið hafa 10% fylgi í skoðanakönnunum eða meira: Þau Baldur Þórhallsson prófessor, Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri, Halla Tómasdóttir forstjóri, Jón Gnarr leikari og Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra. Í upphafi kappræðna eru kynntar glóðvolgar niðurstöður síðustu skoðanakönnunar sem Pr...
#31 - Reykjanesbær Halla Tómasdóttir 24.05.2024 1:19:08
Á þriðja hundrað manns mætti á forsetafund Morgunblaðsins og mbl.is með Höllu Tómasdóttur á Park Inn by Radisson í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Þetta var síðasti forsetafundurinn en í næstu viku verða haldnar forsetakappræður á vegum Morgunblaðsins og mbl.is. Halla hefur verið á flugi í skoðanakönnunum að undanförnu og munar núna innan við sex prósentustigum á henni og...
#30 - Akureyri Katrín Jakobsdóttir 21.05.2024 1:14:15
Forsetafundur Morgunblaðsins á Græna hattinum á Akureyri með Katrínu Jakobsdóttur var fjölsóttur, en á annað hundrað manns gerðu sér leið þangað. Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýrðu fundinum og spurðu Katrínu ýmissa spurninga um embætti forseta Íslands og hvernig hún hygðist haga setu sinni í embættinu.
#29 - Selfoss Baldur Þórhallsson 15.05.2024 1:23:17
Hátt í 200 manns sóttu forsetafund Morgunblaðsins með Baldri Þórhallssyni á Hótel Selfossi þar sem líflegar umræður sköpuðust um ýmis mál. Í upphafi fundar voru álitsgjafar fengnir til að ræða stöðuna og spá í spilin um forsetakosningarnar. Kjartan Björnsson, rakarameistari og forseti bæjarstjórnar Árborgar, og Aldís Hafsteinsdóttir sveitarstjóri Hrunamannahr...
#28 Patreksfjörður - Með heilan spítala í fanginu 11.05.2024 26:29
Rebekka Hilmarsdóttir og maður hennar, Örn Hermann Jónsson, tókust á hendur það verkefni árið 2014 að gera upp gamla spítalann á Patreksfirði sem reistur var á Geirseyrinni árið 1901. Þau standa enn í þeim stórræðum og halda því reyndar fram að verkefninu muni sennilega aldrei ljúka. Morgunblaðið tók hús á þeim á kyrrlátu kvöldi við fjörðinn.
#27 - Egilsstaðir Halla Hrund Logadóttir 07.05.2024 1:13:25
Hátt í tvö hundruð manns sóttu líflegan borgarafund Morgunblaðsins með Höllu Hrund Logadóttur forsetaframbjóðanda í félagsheimilinu Valaskjálf á Egilsstöðum. Halla Hrund sagði á fundinum að kannski væri sjaldan meiri þörf en nú að velja forseta sem myndi leggja sig fram við að sameina þjóðina. Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson spurðu Höllu Hrun...
#26 Hallormsstaðaskógur - Alltaf að baksa í moldinni 05.05.2024 34:19
Fyrir Bergrúnu Örnu Þorsteinsdóttur aðstoðarskógarvörð í Hallormsstaðaskógi kom fátt annað til greina en að vinna í umhverfi þar sem tengslin við náttúruna eru mikil. Það hefur hún gert síðan sumarið 1987 og unir hag sínum vel.
#25 Patreksfjörður - Sveitarstjórnarkosningar á miðju kjörtímabili 02.05.2024 57:24
Gengið er til sveitarstjórnarkosninga í nýju sveitarfélagi þann 4. maí, aðeins tveimur árum eftir síðustu kosningar. Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð renna nú saman í eina sæng. Oddvitar framboðanna tveggja sem bjóða fram ræða við Moggamenn um kosningarnar og stöðuna í sveitarfélaginu.
#24 Ísafjörður - Jón Gnarr 30.04.2024 1:04:34
Það var húsfyllir á borgarafundi Morgunblaðsins á Ísafirði með forsetaframbjóðandanum Jóni Gnarr í gærkvöldi. Jón sagði að eftir að hann lét af störfum sem borgarstjóri Reykjavíkur árið 2016 hefði fólk komið að máli við sig um að hann byði sig fram til forseta. Þá hefði verið gerð könnun sem leit vel út fyrir hann en Jón taldi þá ekki rétt að bjóða sig fram.
#23 Mývatn - Uppgötvaðist fyrir algjöra tilviljun 28.04.2024 23:22
120 metra langur hellir uppgötvaðist fyrir tilviljun við Jarðböðin við Mývatn þegar ákveðið var að stækka þjónustuhús sem nú er í byggingu. Guðmundur Þór Birgisson framkvæmdastjóri Jarðbaðanna hitti blaðamenn í menningarhúsinu Hofi á Akureyri og ræddi um lífið í Jarðböðunum, hinn dularfulla helli sem uppgötvaðist fyrir tilviljun og framtíðarhorfur í ferðamennskunni.
#22 Egilsstaðir - Gunnar Gunnarsson, ritstjóri Austurfrétta. 20.04.2024 38:42
Gunnar Gunnarsson hóf ferilinn á því að skrifa fyrir vefsíðu stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi en er í dag ritstjóri Austurfréttar og hefur verið í um áratug.
#21 Seyðisfjörður - Gleymir seint deginum sem skriðurnar féllu 13.04.2024 32:45
Sól skein í heiði er blaðamenn óku yfir Fjarðarheiði skömmu eftir páska, en dagana á undan hafði heiðin verið lokuð á fimmta dag. Á bæjarskrifstofunni á Seyðisfirði tók á móti okkur Dagný Erla Ómarsdóttir sem missti húsið sitt í aurskriðu árið 2020.
#20 Egilsstaðir - Aðgerðastjórnstöð löngu tímabær 06.04.2024 48:03
Það sýndi sig glöggt í snjóflóðunum í Neskaupsstað í mars 2023 að þörf væri á nýrri aðgerðastjórnstöð almannavarna á Austurlandi. Ný og velútbúin stjórnstöð var tekin í gagnið í janúar 2024. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, og Agnar Benediktsson, björgunarsveitarmaður í Jökli, ræða um nýja stjórnstöð og áföll síðustu ára í þætti vikunnar.
#19 Saurbær á Hvalfjarðarströnd - Hallgríms minnst 30.03.2024 53:25
Sr. Kristján Valur Ingólfsson biskup og kona hans, Margrét Bóasdóttir, búa á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Þau hafa tekist á hendur það verkefni í félagi við fleira fólk að efla staðinn og halda um leið nafni Hallgríms Péturssonar á lofti.
#18 Kirkjubæjarklaustur - Konungur þóðvegarins 17.03.2024 17:46
Uni Hrafn Karlsson hefur byggt upp öflugt bifreiðaverkstæði á mikilvægum stað við þjóðveginn. Hann segir verkefnin óþrjótandi og að eini flöskuhálsinn sé skortur á öflugum bifvélavirkjum.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.