Ritstjórn Morgunblaðsins
Hringferðin
Í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins leggjum við land undir fót og ræðum við 110 Íslendingahringinn um landið. Ferðin stendur yfir í heilt ár og í henni verður jafnt og þétt dregin upp spennandi mynd af lífinu í landinu frá sjónarhóli heimamanna á hverjum stað, með sögum af fólki, því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja til þess að efla samfélagið til framtíðar. Ferðin stendur yfir í heilt ár og mun jafnt og þétt draga upp spennandi mynd af því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja.
Author
Ritstjórn Morgunblaðsins
Category
Podcast website
Latest episode
May 15, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
X:26 - Höfnin, húsnæðið og fjárhagurinn vega þungt í Bolungarvík 27.04.2026 45:57
Hafnarmál, húsnæðisuppbygging og ábyrg fjármálastjórn eru meðal stærstu viðfangsefna Bolungarvíkur fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, ef marka má viðtal við oddvita framboðanna tveggja í bænum. Þeir Guðfinnur Ragnar Jónsson, oddviti K-lista Máttar meyja og manna, og Kristján Jón Guðmundsson, oddviti O-lista Betri Bolungarvíkur, eru sammála um margt sem snýr að grunninnviðum og framtíð bæjarin...
X26 - Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli á Ísafirði 24.04.2026 1:44:02
Skólamál, húsnæðisuppbygging og samgöngur voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is í Ísafjarðarbæ vegna sveitarstjórnarkosninganna. Fimm oddvitar framboðanna í bænum komu þar saman og kynntu áherslur sínar fyrir komandi kjörtímabil. Frambjóðendur voru almennt sammála um að sveitarfélagið stæði frammi fyrir miklum vaxtarverkefnum, ekki síst í skólamálum, þar sem bæði lei...
X26 - Listakosning í Árneshreppi í fyrsta sinn í nær sjö áratugi 23.04.2026 20:19
Árneshreppur á Ströndum stendur frammi fyrir tímamótum þegar gengið verður til sveitarstjórnarkosninga í vor. Í fyrsta sinn síðan árið 1958 verður kosið milli framboðslista í þessu nyrsta sveitarfélagi Strandasýslu, þar sem íbúarnir eru aðeins 63 talsins. Tveir listar eru í framboði, Á-listi Framtíðar Árneshrepps og S-listi Sólstaða, og virðist ljóst að ólík sjónarmið um sameiningu sveitarfélaga h...
X26 - Hólmarar hugsa um skuldastöðu, uppbyggingu og sjávarútveg 23.04.2026 27:34
Sveitarstjórnarkosningarnar í Stykkishólmi snúast að verulegu leyti um jafnvægið milli áframhaldandi uppbyggingar og aðhalds í rekstri. Það kom fram í viðtali við oddvita H-lista framfarasinnaðra Hólmara, Björn Ásgeir Sumarliðason, og oddvita Í-lista Íbúalistans, Sigurð Grétar Jónasson, þar sem farið var yfir stöðu bæjarins, helstu áskoranir og áherslur fyrir komandi kjörtímabil. Stykkishólmur, se...
X26 - Vesturbyggð á krossgötum 23.04.2026 1:04:04
Vesturbyggð stendur á tímamótum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Sveitarfélagið, sem varð formlega til í núverandi mynd 1. júní 2024 við sameiningu við Tálknafjarðarhrepp, hefur á síðustu árum tekið miklum breytingum. Atvinnulíf hefur styrkst, ekki síst með uppbyggingu fiskeldis, en um leið glímir sveitarfélagið við skuldastöðu, brothætta innviði, húsnæðisskort og ágreining um hvernig tryggja...
X26 - Ólík sjónarmið í Hvalfjarðarsveit 22.04.2026 47:27
Tekjustofnar, Grundartangi og samfélagið í forgrunni í Hvalfjarðarsveit Kosningabaráttan í Hvalfjarðarsveit mótast af stórum spurningum um sjálfstæði sveitarfélagsins, tekjustofna þess, atvinnuuppbyggingu og hvernig íbúar komi að ákvörðunum um framtíðarskipan svæðisins. Það kom skýrt fram í viðtali við oddvita A-lista Samhentrar sveitar, Harald Benediktsson, og oddvita Íbúahreyfingarinnar, Þóru Ma...
X26 - Tekist á um uppbyggingu og framtíðarsýn í Ölfusi 21.04.2026 1:02:17
Kosningabaráttan í Ölfusi mótast mjög af örum vexti sveitarfélagsins, mikilli uppbyggingu og ágreiningi um það hvernig best sé að stýra samfélagi sem er að taka stakkaskiptum. Það kom skýrt fram í samtali við oddvita tveggja framboða sem nú bjóða fram í sveitarfélaginu, þá Grétar Inga Erlendsson fyrir D-lista Sjálfstæðisflokksins og Gunnstein R. Ómarsson fyrir lista Samfylkingarinnar og óháðra. Öl...
X26 - Tvísýnt slagverk í Rangárþingi ytra 20.04.2026 35:44
Rangárþing ytra gengur til sveitarstjórnarkosninga í vor með stór verkefni í farangrinum, traustan rekstur að mati meirihlutans og skýran áherslumun milli framboðanna um forgangsröðun næstu ára. Sveitarfélagið, sem varð til 9. júní 2002 við sameiningu Rangárvallahrepps, Holta- og Landssveitar og Djúpárhrepps, er eitt af tíu stærstu sveitarfélögum landsins að flatarmáli, en íbúar eru þó aðeins rífl...
X26 - Tímamót í Rangárþingi eystra 18.04.2026 49:19
Rangárþing eystra stendur á miklum tímamótum. Sveitarfélagið vex hratt, ferðaþjónustan sækir fram af krafti og fjárfestingar eru miklar, en um leið kalla vöxturinn og breytingarnar á nýjar áherslur í skipulagi, innviðauppbyggingu og rekstri. Þetta kemur skýrt fram í samtali við sveitarstjórnarmenn í Rangárþingi eystra, þar sem rætt er um stöðu mála og verkefnin fram undan í aðdraganda sveitarstjór...
X26 - Vestmannaeyjar: Samgöngur og vatnsöryggi stóru hitamálin 16.04.2026 1:35:20
Samgöngumál, vatnsöryggi, skipulag og þjónusta við íbúa voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is sem haldinn var í Vestmannaeyjum í gærkvöld í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga. Þar tókust á Sæunn Magnúsdóttir fyrir Miðflokkinn, Eyþór Harðarson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Arndís María Kjartansdóttir fyrir Eyjalistann og kynntu áherslur sínar í líflegum umræðum...
X26 - Lágar álögur, leikskólamál og vöxtur í Hrunamannahreppi 16.04.2026 42:00
Sveitarstjórnarkosningarnar í Hrunamannahreppi 16. maí fara fram í sveitarfélagi sem hefur vaxið hratt á síðustu árum og stendur nú frammi fyrir nýjum verkefnum í takt við aukna íbúafjölgun og breyttar þarfir samfélagsins. Þetta kom skýrt fram í samtali við oddvita framboðanna tveggja í hreppnum, þá Jón Bjarnason, bónda og oddvita D-lista Sjálfstæðisflokksins, og Daða Geir Samúelsson, verkfræðing...
X26 - Sérstaða sveitarfélagsins í forgrunni í Bláskógabyggð 15.04.2026 34:32
Sveitarstjórnarmál í Bláskógabyggð einkennast um þessar mundir af örum vexti, auknum kröfum til innviða og umræðu um hvernig sveitarfélagið geti haldið í sérstöðu sína á sama tíma og því vex fiskur um hrygg. Þetta kom skýrt fram í samtali við oddvita T-lista og Þ-lista, þau Helga Kjartansson og Önnu Grétu Ólafsdóttur, þar sem farið var yfir stöðu sveitarfélagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosni...
X26 - Uppbygging í brennidepli á Höfn 14.04.2026 55:06
Yfirvofandi kosningar á Hornafirði bera þess skýr merki að sveitarfélagið stendur á krossgötum. Á fundi með Morgunblaðinu á Höfn tókust oddvitar fjögurra framboða á um rekstur sveitarfélagsins, álögur á íbúa, innviðauppbyggingu og framtíð stórra þróunarverkefna í ferðaþjónustu og miðbæjarins á Höfn. Framboðin sem um ræðir eru KEX-framboð með Eyrúnu Fríðu Árnadóttur í broddi fylkingar, Sjálfstæðisf...
#54 - Hótel Holt - Guðni Th. Jóhannesson 02.11.2024 1:06:03
Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands er síðasti, en alls ekki sísti, gestur Hringferðar Morgunblaðsins sem farið var í af tilefni af 110 ára afmæli blaðsins. Morgunblaðið fagnar 111 ára afmæli í dag. Andrés Magnússon og Marta María Winkel Jónasdóttir settust niður með Guðna á Hótel Holti við Bergstaðastræti í Reykjavík.
#53 - Ásbrandsstaðir í Vopnafirði 26.10.2024 27:38
Ferðaþjónusta hefur tekið við af mjólkurframleiðslu á stórbýlinu Ásbrandsstöðum í Vopnafirði. Þar er minningu hinna mögnuðu landpósta einnig gert hátt undir höfði.
#52 - Kaupfélagsbærinn Fáskrúðsfjörður 20.10.2024 39:22
Það er líf og fjör í atvinnulífinu á Fáskrúðsfirði. Þar skipta umsvif Loðnuvinnslunnar mestu en fyrirtækið er í eigu kaupfélagsins, sem aftur er sameign stórs hluta bæjarbúa. Mogginn tók hús á tveimur meðlimum kaupfélagsins. Þau standa vaktina á vettvangi þess, en koma úr ólíkum áttum.
#51 - Hollywood og Húsavík 12.10.2024 30:38
Magnaðar tilviljanir valda því að Húsavík hefur komist á heimskortið. Þar spila Netflix og Eurovision mikla rullu. Ferðaþjónustan er á góðri siglingu í bænum og þar er í fararbroddi hvalaskoðun sem vaxið hefur mikið á síðustu árum.
#50 - Skógarböðin á Akureyri 05.10.2024 36:12
Hringferðin kíkti í heimsókn í Skógarböðin
#49 - Undraveröld í anddyri á Akureyri 28.09.2024 34:06
Hótel Akureyri vex nú hröðum skrefum og nýtt anddyri þess er eins og sena frá New York árið 1928. Mæðginin Daníel Smárason og Þuríður Þórðardóttir ráða ríkjum í þessum heimi sem tekur hlýlega á móti ferðamönnum sem drífur að úr öllum áttum. Þau hafa mikla trú á ferðaþjónustunni í Eyjafirði.
#48 - Krúnudjásn ferðaþjónustannar að Deplum 21.09.2024 37:23
Lúxushótelið að Deplum í Fljótum í Skagafirði hefur verið á margra vörum síðustu árin enda starfsemin orðlögð fyrir mikinn lúxus. Þangað hafa hins vegar ekki margir komið, enda ekki á allra færi að greiða fyrir herlegheit af þessu tagi. Moggamenn litu við og ræddu við Hauk Sigmarsson sem ræður ríkjum á Deplum.
#47 - Fjölbreyttur búskapur á Brúnastöðum 14.09.2024 41:43
Hjónin Stefanía Hjördís Leifsdóttir og Jóhannes Helgi Ríkharðsson hafa, ásamt fjórum börnum sínum, byggt upp myndarlegt bú á Brúnastöðum í Fljótunum. Þar er þó ekki bara um hefðbundinn sveitarbæ að ræða og verkefnin eru fjölbreytt.
#46 - Ari Gísli Bragason fornbókasali í Bókinni 07.09.2024 47:48
Á horni Hverfisgötu og Klapparstígs er fornbókabúðin Bókin, 60 ára gömul menningarmiðstöð í hjarta Reykjavíkur. Þar er sagan í hverjum krók og kima, en Ari Gísli Bragason bóksali hefur ófáar sögur að segja af öllu því menníngarástandi.
#45 - Vildi veitingastað en endaði með hótel 31.08.2024 48:09
Friðrik Pálsson hefur rekið Hótel Rangá í rúma tvo áratugi. Í viðtali við hlaðvarp hringferðar Morgunblaðsins fjallar hann meðal annars um þau atriði sem helst ber að huga að við rekstur á hóteli í umhverfi sem oft á tíðum er krefjandi.
#44 - Þjóðfáninn táknar allt það besta 🇮🇸 24.08.2024 48:32
Fyrir einum og hálfum áratug leit Hörður Lárusson, hönnuður, við hjá Braga í Bókavörðunni. Hann vantaði bók. Eina skilyrðið var að hún væri gatslitin. Innihaldið skipti minna máli, eða það var það sem hann hélt. Bókin átti eftir að leiða hann út á nýjar brautir og spennandi.
#43 - Hvað ef íbúum fjölgar? 17.08.2024 38:13
Fólksfjölgun hefur orðið á Vestfjörðum síðastliðin ár og við mótun nýrrar sóknaráætlunar hefur fólk leyft sér, í fyrsta sinn í langan tíma, að velta því fyrir sér hvernig skuli sækja fram ef fólksfjölgunin heldur áfram.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.