Ritstjórn Morgunblaðsins
Hringferðin
Í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins leggjum við land undir fót og ræðum við 110 Íslendingahringinn um landið. Ferðin stendur yfir í heilt ár og í henni verður jafnt og þétt dregin upp spennandi mynd af lífinu í landinu frá sjónarhóli heimamanna á hverjum stað, með sögum af fólki, því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja til þess að efla samfélagið til framtíðar. Ferðin stendur yfir í heilt ár og mun jafnt og þétt draga upp spennandi mynd af því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja.
Author
Ritstjórn Morgunblaðsins
Category
Podcast website
Latest episode
May 15, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#17 Hnappavellir - Fosshótel Glacier Lagoon 09.03.2024 35:43
Mitt í Öræfunum, kippkorn frá Jökulsárlóni, er lúxushótel ekki langt ofan við þjóðveginn, óvenjuleg bygging en þó látlaus í þessu stórbrotna umhverfi. Hrafnhildur E. Karlsdóttir hótelstjóri var tekin tali um lífið undir Öræfajökli.
#16 Öræfi - Fjallsárlón dregur hundruð þúsunda til sín 02.03.2024 43:50
Steinþór Arnarson er alinn upp í Öræfum. Þegar hann sá nýtt lón myndast undir Fjallsárjökli fékk hann viðskiptahugmynd og í meira en áratug hefur hann siglt með ferðalanga að jökulsporðinum og breytt sýn þeirra á íslenska náttúru.
#15 Hornafjörður - Mikið líf í atvinnulífi svæðisins 24.02.2024 45:47
Sjávarútvegsfyrirtækið Skinney Þinganes er langstærsti vinnuveitandinn á Höfn, ef hið opinbera er undanskilið. Aðalsteinn Ingólfsson hefur stýrt fyrirtækinu í nærri þrjá áratugi og segir stöðuna á svæðinu góða þótt áskoranir séu margar, m.a. vegna loðnuleysis og hruni í humarstofninum.
#14 Hvolsvöllur - Myndasögugerð frá miðöldum 17.02.2024 41:08
Í sjö ár, sjö mánuði og sjö daga sátu þær við og saumuðu Njálssögu í 90 metra langan hördúk. Nú bíður þetta magnaða listaverk, sem sækir innblástur í miðaldalistir, þess að verða sett upp í nýjum húsakynnum á Hvolsvelli. Þær Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir og Kristín Ragnar Gunnarsdóttir leiða áheyrendur í allan sannleikann um Njálurefilinn svokallaða.
#13 Selfoss - Staðarsmiðurinn Sigfús Kristinsson 13.02.2024 38:42
Sigfús Kristinsson hefur fylgst með þorpinu við Sogið breytast úr sveit í bæ. Hann hefur lagt drjúgt til þeirrar uppbyggingar, m.a. með því að reisa sjúkrahúsið og fjölbrautaskólann í bænum. Sigfús hefur sterkar skoðanir á hlutunum.
#12 Suðurnesjabær - Magnús Stefánsson 03.02.2024 51:05
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ, ræðir um lífið í bænum og helstu atvinnuvegi, hvort hugað sé að frekari sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum og margt fleira. Þá rifjar hann upp þingferil sinn og óvænta endurkomu á þingið.
#11 Reykjanesbær – Kjartan Kjartansson og Páll Ketilsson. 27.01.2024 1:02:37
Æskuvinirnir Kjartan Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, og Páll Ketilsson, ritstjóri og eigandi Víkurfrétta, fjalla um lífið á Suðurnesjum, þær miklu breytingar sem hafa orðið á svæðinu, áhrifin af veru bandaríska hersins og síðar brotthvarf hans og margt annað í nýju hlaðvarpi Hringferðarinnar.
#10 Siglufjörður – Bergþór Morthens í Tynesarhúsi 20.01.2024 40:02
Bergþór Morthens býr á Siglufirði og í Gautaborg í Svíþjóð. Fyrir 18 árum keypti hann ásamt konu sinni Tynesarhús í miðju þorpinu fyrir norðan og hefur breytt því í undraveröld. Kannski ekki ósvipaða þeirri sem hann skapar með ótrúlega björtum litum í málverkum sínum. Hann segir litina pólitíska.
#9 Grindavík - Halla María Svansdóttir og Pétur Hafsteinn Pálsson. 13.01.2024 48:05
Blaðamenn Morgunblaðsins settust niður með tveimur atvinnurekendum í Grindavíkurbæ og ræddu um fortíð, nútíð og framtíð Grindavíkur. Grindvíkingar hafa mátt þola margt á undanförnum mánuðum og framtíðin er óráðin.
#8 Árskógssandur - Arctic Heli Skiing, Bjórböðin og Kaldi. 06.01.2024 1:01:00
Agnes Anna Sigurðardóttir stofnaði brugghúsið Kalda í kjölfar ótrúlegs hugboðs. Jökull Bergmann hefur þvælst um öll svakalegustu fjöll heims og stundað og sinnt fjallaskíðaleiðsögn. Þau eru burðarásar í ferðaþjónustu á Árskógsströnd og segja tækifærin á svæðinu óþrjótandi.
#7 Borgarnes - Svava Víglundsdóttir og kaffi kyrrð 30.12.2023 41:02
Svava Víglundsdóttir, eigandi Kaffi Kyrrðar og Blómasetursins í Borgarnesi, var búin að missa allt eftir að hótel sem hún rak á Vopnafirði varð gjaldþrota. Ástin dró hana í Borgarnes þegar hún kynntist Unnsteini Árnasyni. Síðan eru liðin 22 ár.
#6 Ólafsfjörður - Eyþór Eyjólfsson og styrjueldið 23.12.2023 40:00
Á leið okkar um landið er næsti áfangastaður Ólafsfjörður. Við ökum gegnum Héðinsfjarðargöngin eftir stutt stopp á Siglufirði og beint niður á kajann. Þar tekur á móti okkur Eyþór Eyjólfsson sem fyrir margt löngu festi kaup á innstu jörðinni í Ólafsfirði – Bakka. Hann býður okkur inn fyrir dyrnar á húsi sem lengst af hýsti saltfiskverkun á staðnum en hefur nú skipt um hlutverk og búning, að minnst...
#5 Hvanneyri - Bryndís Geirsdóttir 16.12.2023 45:40
Bryndís Geirsdóttir hefur áhuga á því hvernig maðurinn mætir náttúrunni og hvernig hægt er að nýta gjafir jarðar betur. Það var þess vegna sem hún hóf nám í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarskóla Íslands á Hvanneyri eftir að hafa lært bókmenntafræði í Háskóla Íslands. Bryndís er alin upp í Reykholti en foreldrar hennar fluttu þangað 1978 þegar faðir hennar varð prestur á staðnum. Fyrir 11 árum f...
#4 Hótel Húsafell - Unnar Bergþórsson. 12.12.2023 55:31
Stefnt er á frekari stækkun Hótels Húsafells á komandi misserum. Þetta upplýsir Unnar Bergþórsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar á Húsafelli um í nýjasta þætti Hringferðarinnar sem efnt er til í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins. Viðtalið er aðgengilegt á mbl.is og öllum helstu hlaðvarpsveitum.
#3 - Jólagarðurinn - Benedikt og Ragnheiður 09.12.2023 28:41
Stefán Einar og Hólmfríður María hittu hjónin sem eiga Jólagarðinn. Þátturinn var tekinn upp undir berum himni í þrettán stiga frosti í jólafíling.
#2 Stykkishólmur - Sturla Böðvarsson & Erla Friðriksdóttir 01.12.2023 54:35
Morgunblaðið tekur hús á Íslendingum vítt og breitt um landið í tilefni af 110 ára afmælis blaðsins. Sturla Böðvarsson og Erla Friðriksdóttir eru viðmælendur á Hringferð Morgunblaðsins en þau eiga samanlagt rúman aldarfjórðung að baki í stóli bæjarstjóra í Stykkishólmi. Þau ræddu stöðuna í bænum og á Snæfellsnesi en þau hafa bæði langvarandi tengsl við svæðið. Sturla er úr Ólafsvík en rifjar upp h...
#1 Hótel Holt - Ólafur Ragnar Grímsson. 24.11.2023 1:51:37
Morgunblaðið tekur hús á Íslendingum vítt og breitt um landið í tilefni 110 ára afmælis blaðsins. Fyrsti viðmælandi okkar er Ólafur Ragnar Grímsson sem gegndi embætti forseta Íslands á árunum 1996-2016. Í viðtalinu er farið vítt og breitt yfir sviðið, bæði skyggnst yfir liðna tíð en ekki síður horft til framtíðar.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.