RÚV Hlaðvörp

Hold

History IS ↓ 29 episodes

Einu sinni þótti fallegt að vera feit. Síðastliðna áratugi hefur feitt fólk mætt fordómum, sýnileg líkamsfita þótt útlitsgalli og mælikvarði á skapgerð, sjálfsaga, æskileika og færni. Persónulegt vandamál einstaklinga sem þeir hafi valið með því að velja óheilsusamlegt líferni og ættu að vilja leysa. Milljónaiðnaður hefur haldið fólki í baráttu við líkamann sinn með ýmsum lausnum sem oftar en ekki skilja fólk eftir enn feitara en fyrr. Fjöldi feitra lifir þó heilbrigðu og hamingjusömu lífi, óháð holdafari sínu. Offita er nú skilgreind sem alvarlegur og víðfemur sjúkdómur. Við þeim sjúkdómi haf...

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: shows.acast.com

Author

RÚV Hlaðvörp

Category

History

Podcast website

shows.acast.com

Latest episode

Nov 14, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Hjartans mál 3/3: Í hjartastað 14.11.2026

Í þessum þætti er fjallað um hjartað út frá sjónarhóli dulspekinnar og það sett í samhengi við breytilegar heimsmyndir ólíkra tíma. Einnig er hjartastöðin skoðuð með augum jógafræðanna. Viðmælendur: Guðmundur Ingi Markússon og Ingibjörg Stefánsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hjartans mál 2/3: Af öllu hjarta 07.11.2026

Í þessum þætti er fjallað um hjartað sem líffæri og hlutverk þess skoðað með augum læknisfræðinnar. Einnig er kafað ofan í hjartað sem miðlægt tákn í kristinni trú. Viðmælendur: Karl Andersen og Sigríður Guðmarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hjartans mál 1/3: Hjartalag 31.10.2026

Í þessum þætti er fallað um hjartað út frá læknahugvísindalegu sjónarhorni og táknrænar rætur þess raktar til Egyptalands til forna, kínverskrar heimspeki og evrópskra miðalda. Viðmælendur: Sif Ríkharðsdóttir og Geir Sigurðsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Geðveik mamma 3/3 05.09.2026

Hvernig höldum við að geðveikar mæður séu? Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur mæðra úr samtímanum: Sögur um fordóma og ótta en líka hreinskilni og von. Geta nýjar raddir breytt gömlum viðhorfum? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Geðveik mamma 2/3 29.08.2026

Hvernig tölum við um veikindi sem við viljum helst ekki tala um? Í þessum þætti skoðar Hera hvernig þagnir, orð og fordómar móta skilning okkar á geðsjúkdómum. Við heyrum sögur annarra geðveikra mæðra og Hera heldur áfram að reyna að fylla í eyðurnar í sögu langömmu sinnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Geðveik mamma 1/3 22.08.2026

Líf lítillar fjölskyldu á Akureyri umturnaðist einn daginn þegar ung móðir var send suður – suður á Klepp. Þegar langamma Heru var send suður á Klepp árið 1946 var amma hennar bara fjögurra ára. 80 árum síðar reyna þær í sameiningu að skilja hvað gerðist og hvers vegna enginn talaði um þetta. Í þessum fyrsta þætti tvinnast saman fjölskyldusaga, eigin reynsla Heru og spurningar um hvaða merkingu Kl...

Í upphafi var myndin 4/4: Kunnugleg kona á bókarkápu 15.08.2026

Hver var danska konan sem var um tíma gift þeim sem af mörgum er talinn merkasti myndlistarmaður íslensku þjóðarinnar? Áður en þau fluttu til Íslands hafði hún haslað sér völl sem rithöfundur í Danmörku. Eftir að þau skildu flutti hún frá Íslandi, ferðaðist víða um lönd, varð fyrirmynd þekktrar skáldsagnapersónu, lenti í málaferlum vegna skottulækninga og átti umfangsmikinn feril á ritlistarsviðin...

Í upphafi var myndin 3/4: Maðurinn með hauskúpuna 08.08.2026

Hvernig var hægt að finna út hver var pípureykjandi maðurinn sem geymdi mannabein í herberginu sínu? Sögð er saga af reykvískum strák úr Skólastræti sem menntaðist í læknisfræði og tungumálum og gerðist héraðslæknir í Vestur-Indíum. Viðmælandi í þættinum er Inga Lára Baldvinsdóttir, sagnfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Í upphafi var myndin 2/4: Ljósmóðirin og listamennirnir 01.08.2026

Hvers vegna fór ung kona úr Vesturbænum, sem starfaði við bókhald hjá heildverslun, skyndilega til Kaupmannahafnar sumarið 1917? Hver urðu örlög hennar og hvers vegna fluttu tveir danskir listamenn til Íslands skömmu eftir seinni heimsstyrjöld? Viðmælandi í þættinum er Ari Karlsson, lögfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Í upphafi var myndin 1/4: Dæmd í vændishús 25.07.2026

Rakin er saga hótelstjóradóttur sem fæddist í Hafnarstrætinu í Reykjavík. Á unglingsárum sigldi hún til Kaupmannahafnar og lenti þar á refilstigum í strætum sem mörgum þóttu býsna vafasöm. Frá Danmörku flakkaði hún til fleiri landa, tókst á við leynilegt verkefni og komst ítrekað í kast við lögin. Viðmælandi í þættinum er Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/pri...

Hold 3/3 06.06.2026

Í þriðja þættinum af Holdi skoðar Brynhildur nokkrar auglýsingar um offitulausnir og ræðir við sérfræðinga með ólík sjónarhorn, þær Erlu Gerði Sveinsdóttur, sérfræðilækni í offitumeðferð, Töru Margréti Vilhjálmsdóttur félagsráðgjafa og líkamsvirðingarsinna og Elínu Vigdísi Guðmundsdóttur, formann SÁTTar, samtaka um átröskun og aðrar tengdar raskanir. Lesari í þættinum er Ævar Örn Jósepsson. Hosted...

Hold 2/3 30.05.2026

Sápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og - aðgerðum. Ennfremur er fjallað um fitufordóma. ATH að í þættinum er komið inn á ýmislegt sem gæti reynst flókið fyrir þau sem hafa glímt við átröskun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy...

Hold 1/3 26.05.2026

Brynhildur tekur stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í baráttunni við ofþyngd og leitar ráða hjá konu með reynslu. Rætt er við Ragnheiði Bjarman Eiríksdóttur og lesari í þættinum er Helgi Seljan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more infor...

Vinur minn Germani 15.05.2026

Þegar Jón Magni Ólafsson var ungur maður kolféll hann af einhverjum ástæðum, fyrir orgeltónlist og töfrum hennar sem minnti hann á gilin og fossana í sveitinni í Mýrdalnum. Hann hélt sérstaklega upp á plötu sem hann eignaðist 17 ára gamall með Fernando Germani, sem var organisti Péturskirkjunnar í Róm á tímum Píusar páfa (1939-1958). Þegar Germani heimsótti Ísland á áttunda áratugnum, tókst með þe...

Land og sonur 3/3: Svo mælir Svarthöfði 09.05.2026

Indriði G. Þorsteinsson var ekki aðeins rithöfundur. Hann starfaði lengi sem blaðamaður og ritstjóri og tók virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, beitti sér í fyrirtækjarekstri og framleiðslu kvikmynda og var einn helsti skipuleggjandi hátíðarhaldanna í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Umdeildastur var hann þó sem pistlahöfundurinn Svathöfði. Hosted on Acast. See acast.com...

Land og sonur 2/3: Norðan við stríð 02.05.2026

Skáldsögur Indriða G. Þorsteinssonar gerast í samfélagi þar sem hið gamla víkur fyrir nýjum vonum og nýjum siðum. Indriða voru þessar miklu breytingar á íslensku þjóðfélagi um miðja 20. öld hugleiknar og hann speglaði þær iðulega í því samfélagi sem hann hafði sjálfur kynnst á yngri árum, sveitasamfélaginu. En hann benti líka stöðugt á að margt var bogið við það og að þrátt fyrir fegurð og yndisle...

Land og sonur 1/3: Vegir liggja til allra átta 24.04.2026

Indriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og unglingsár voru mörkuð af sífelldum flutningum, mögnuðum ættingjum, hersetu og nýju lífi mölinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Ljóslæknirinn 1/1: Hinn íslenski Nóbelshafinn 17.04.2026

Árið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og vegna sérsviðs síns var hann gjarnan kallaður ljóslæknirinn. Uppruni Finsens teygir sig þó líka til Færeyja, þar sem hann fæddist, og til Íslands en á hann rætur að rekja til Íslands í föðurætt...

Mundi: Seinni þáttur 10.04.2026

Guðmundur Arnfinnsson var bráðkvaddur bíðandi eftir strætó í Hamraborginni með poka fullan af bókum sem hann hafði keypt í Bónus. Örfáum mínútum áður hafði hann verið í viðtali hjá umsjónarmanni Lestarinnar á Rás 1 sem var að ræða við farþega í strætó. Þessi ótrúlega tilviljun er upphafið að ferðalagi þar sem Kristján Guðjónsson reynir að kynnast Munda, fyrrum sakarskrárritara, sérstæðum og hlédræ...

Mundi: Fyrri þáttur 10.04.2026

Umsjónarmenn Lestarinnar vörðu heilum föstudegi í desember 2023 um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í þættinum heyrast sögur fólks sem ferðaðist með vagninum þann daginn. Strákur á leið að fá sér drekatattú, venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings, danskur kökuskreytingameistari og hagmælti bókasafnarinn Mundi. Á páskadag fór í loftið nýr útvarpsþáttur á...

Bein 3/3: Um kærleikann í beinunum 04.04.2026

Í miðri leit að uppruna lærleggjanna, berast Sigrúnu nýjar upplýsingar um uppruna sinn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Bein 2/3: ...nema ekki fyrir mömmu 28.03.2026

Allt leitar yfirborðsins. Lærleggirnir una sér ekki í moldu og sögur úr æsku systkinanna af Lækjarbakka brjótast fram. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Bein 1/3: Lærleggurinn verndar okkur... 20.03.2026

Hafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið að rannsaka það með tilkomu nútíma tækni? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Aukaþáttur: Tollararnir 07.07.2024

Guðrún Hálfdánardóttir ræðir við Brynjólf Karlsson og Jónas Hall sem kynntust þegar þeir voru 12 ára og störfuðu sem tollverðir um árabil. Tónlist: Stolin stef - Gunnar Gunnarsson Speak softly - Haukur Heiðar Ingólfsson Catching Lightning - Alex Mastronardi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Eldflaugaförin 5. þáttur: Komu aldrei til hafnar 06.07.2024

Birgir Þór Helgason var boðaður á fund í höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins haustið 1986 og fenginn til að stýra leiðangri hringinn í kringum jörðina; leynilegum siglingarleiðangri sem tók á annað ár í þeim tilgangi að flytja mikilvægan farm. Þessi farmur kom aldrei til hafnar samkvæmt opinberum gögnum. Samt, átti hann eftir að setja mark sitt á hernaðarsögu heimsins.   Viðm...

Listen to the Hold podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.