Krabbameinsfélagið
Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins
Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: krabb.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Slökun - Þakklæti 08.04.2025 23:04
Að þakka fyrir það sem maður hefur getur verið gagnlegt en það er ekki síður mikilvægt að fara inn á við og gefa líkamanum þakklæti, kærleik og skilning. Meginverkefni líkamans er að koma jafnvægi á öll kerfi líkamans. Leyfðu þér að fara inn á við og fylgja flæðinu og tala persónulega við sjálfan þig með mildi og kærleik. Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir sl...
Yoga Nidra djúpslökun 11.07.2024 37:14
Velkomin í Yoga Nidra, leidda djúpslökun. Tilgangur hugleiðslunar er að vinna með slökun líkamans og fara inn í djúpa kyrrð og ró. Ólafur Yoga Nidra kennari hjá Míró/Svefn Jóga leiðir þessa hugleiðslu sem virkjar heilunnarmátt líkamans, losar um venjur og viðbrögð líkama og huga. Þú sleppir tökum á hugsunum og hverfur til bakgrunnsins þar sem þú hvílir í eigin vitund. Þú opnar á orkuflæði líkamans...
Slökun - Núvitund og sjálfsmildi 02.05.2024 18:51
Í þessari hugleiðslu ætlum við að vinna með núvitund og mildi í eigin garð. Að læra að sýna sér mildi með aðferðum núvitundar snýst meðal annars um að geta brugðist við á styðjandi hátt gagnvart sér sjálfum líkt og þú myndir gera þegar vinur eða vinkona á í hlut. Aðferðir núvitundar og sjálfsmildi hjálpa þér líka að læra að sitja með erfiðum tilfinningum eða hugsunum og veita þeim einskonar hlýja...
Slökun - Öruggi griðarstaðurinn 24.04.2024 12:49
Að skapa sér stað í huganum sem gefur tilfinningu um öryggi og ró getur verið gott bjargráð til að nota í ýmsum aðstæðum. Til dæmis þegar þú upplifir kvíða, óvissu eða vilt auka vellíðan. Það er gott að gera þessa hugleiðslu eins oft og þarf til að móta staðinn þinn vel svo að það sé auðvelt að hverfa á hann hvenær sem þú þarft á að halda. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfé...
Slökun - Tenging við náttúru II 30.11.2023 15:53
Að tengja sig við móðir jörð og biðja um vernd er falleg byrjun á deginum. Að staldra við og leiða hugann inn á við og byrja hægt og rólega að treysta flæði lífsins hvernig sem lífið leikur við mann. Að biðja kærleiksljósið að umvefja þig með þakklæti og vernd. Megi þú ganga með ljósinu til allra góðra verka kæra fallega sál. Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiði...
Slökun - Tenging við náttúru I 09.01.2023 13:14
Komdu þér vel fyrir þannig að líkaminn nái að vera slakur. Gefðu þér leyfi til að taka nokkrar mínútur frá, eingöngu fyrir þig og tengjast móðir jörð. Slökun þarf gjarnan að ástunda reglulega til að ná árangri og dýpt. Gangi þér vel. Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með kr...
Slökun - Sofðu rótt II 29.11.2022 27:25
Búðu þig undir að slaka á og svífa inn í svefninn. Slökun er gott tæki til að draga úr streitu, bæta svefngæði og auka almenna vellíðan. Slökun þarf gjarnan að ástunda reglulega til að ná árangri og dýpt. Æfingin skapar meistarann! Passaðu að vel fari um líkamann og að hljóðið sé mátulega stillt. Sofðu vel. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbame...
Jóga Nidra 29.11.2022 25:09
Hér getur þú hlustað á leidda djúpslökun með aðferðum Jóga Nidra. Komdu þér vel fyrir í liggjandi stöðu þar sem þú verður fyrir sem minnstri truflun. Láttu fara eins þægilega um þig og mögulegt er og notaðu ábreiðu ef þú þarft. Það er gott að stilla hljóðið þannig að það sé mátulegt. Slökun er gott tæki til að draga úr streitu, bæta svefngæði og auka almenna vellíðan. Slökun þarf gjarnan að ástun...
Slökun - Sofðu rótt I 23.11.2022 20:23
Búðu þig undir að slaka á og svífa inn í svefninn. Slökun er gott tæki til að draga úr streitu, bæta svefngæði og auka almenna vellíðan. Slökun þarf gjarnan að ástunda reglulega til að ná árangri og dýpt. Æfingin skapar meistarann! Passaðu að vel fari um líkamann og að hljóðið sé mátulega stillt. Sofðu vel. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbame...
Ástin, sorgin, samtöl og hugrekki - Að ræða við börn um alvarleg veikindi 22.06.2021 42:52
Þær Katrín Ösp Jónsdóttir og Regína Ólafsdóttir störfuðu saman að ýmsum verkefnum hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis og Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins. Hér ræða þær á einlægan hátt um samstarfið og þau fjölbreyttu verkefni sem þær tókust á við sem ráðgjafar hjá félaginu. Þær ræða einnig um fræðslu sem þær þróuðu fyrir börn sem eru aðstandendur krabbameinsgreindra og hvernig þær st...
Slökun fyrir aðgerð 11.01.2021 22:27
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagins bíður þér að hlusta á “slökun fyrir aðgerð” þér að kostnaðarlausu. „Það skiptir ekki máli hvort þú sért að fara í aðgerð á spítala eða á stofu úti í bæ, hugurinn breytir þessu sjálfkrafa að þínum aðstæðum” segir Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur sem er höfundur þessa verkefnis. Niðurstöður rannsókna benda til þess að kvíði geti haft áhrif á innle...
Morgunhugleiðsla 15.06.2020 14:23
Hugleiðsla í upphafi dags er gott veganesti hjálpar okkur að takast á við verkefni dagsins
Núvitund fyrir ungmenni sem hafa misst ástvin 11.02.2020 21:34
Hvernig er að missa ástvin þegar maður er ungur að árum og á yfirleitt nóg með að taka þeim áskorunum sem fylgja daglegu lífi? Hulda Pálmadóttir segir okkur frá því hvernig námskeið sem hún sótti hjá Eddu Guðmundsdóttur, sálfræðingi, hjálpaði henni að takast á við hversdaginn með aðferðum núvitundar. Edda Margrét segir okkur einnig frá námskeiðinu.
Er Flexitarian besta mataræðið fyrir mig og umhverfið? 21.01.2020 18:35
Flexitarian gæti dregið úr krabbameinsáhættu, segir Jóhanna Eyrún Torfadóttir, næringarfræðingur og sérfræðingur í forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu. Hún er einn höfunda greinar í Fréttablaðinu í dag sem ber yfirskriftina Mataræði sem stuðlar að sjálfbærni vistkerfisins og fækkar ótímærum dauðsföllum. Hún ræðir við Sigríði Sólan um hvernig Flexitarian getur stuðlað að sjálfbærni vistkerfisins...
Fysio Flow - gegn verkjum, streitu og stífleika 15.01.2020 23:30
Sjúkraþjálfarinn Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir talar við Birnu Þórisdóttur um Fysio flow, eða hreyfiflæði, sem hentar meðal annars þeim sem glíma við verki, streitu og stífleika. Fysio flow er æfingakerfi þróað af sjúkraþjálfaranum Pernille Thomsen út frá vísindalegri þekkingu á taugalífeðlisfræði, öðrum hreyfiformum og reynslu sem sjúkraþjálfari. Í Fysio Flow heru bandvefir líkamans hreyfðir með...
Markmiðasetning, tímastjórnun og jákvæð hugsun 06.01.2020 19:41
Draumar, markmið, þakklæti og skipulag með jákvæðu hugarfari er lykillinn að árangri þegar kemur að því að setja sér markmið - og fögnum mistökum því af þeim lærum við. Erla Björnsdóttir sálfræðingur og Þóra Hrund Guðbrandsdóttir viðskipta- og markaðsfræðingur standa að dagbókinni MUNUM og ræða meðal annars mikilvægi þess að skrifa niður markmið sín. Þær halda námskeið hjá Krabbameinsfélaginu miðv...
Mataræði og breyttur lífsstíll 21.12.2019 23:29
Heilbrigt líf og mataræði helst gjarnan í hendur og í hlaðvarpi dagsins fjöllum við um mat og einstaklinga sem hafa breytt um mataræði. Jóhanna Eyrún Torfadóttir, næringarfræingur og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu, og Bragi Guðmundsson, matreiðslumaður, tala um að breyta mataræði og taka út rautt kjöt. Bragi deilir gómsætum uppskriftum á Karlaklefanum, sem er lífsstíls...
Hamingjan á erfiðum tímum 12.12.2019 25:19
Í þessum fyrsta þætti Hlaðvarps Krabbameinsfélagsins ætlum við að fjalla um hamingjuna á erfiðum tímum. Það getur verið erfitt að fara í gegnum hátíðarnar eftir að hafa misst einhvern nákominn, greinst með sjúkdóm eða gengið í gegnum önnur áföll. Anna Lóa Ólafsdóttir, sérfræðingur og atvinnutengill hjá Virk, spjallar við Sigríði Sólan, en hún er einnig með diploma í sálgæslu og heldur fyrirlestra...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.