Hemmi Frændi

Hemmi frændi

Comedy IS ↓ 82 episodes

Hefur þú áhuga á bulli, vitleysu og áhugaverðum gestum? Þá ert þú á réttum stað. Hemmi frændi býður upp á spjall um allt milli himins og jarðar, gesti sem vita hluti, og grín og gys. Er hægt að biðja um meira?

Author

Hemmi Frændi

Category

Comedy

Podcast website

hemmifraendi.podbean.com

Latest episode

Oct 20, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

32 - Hemmi fær Munda í te 02.12.2019

Guðmundur „Mundi“ Hauksson virðir neysluhyggjuna að vettugi. Hann gaf allar eigur sínar og ferðaðist erlendis til að finna sjálfan sig. Við fáum að heyra sögu Munda og spjöllum um hugleiðslu, jóga og sjökrur.

31 - Hemmi fær Þorgerði í orkudrykk 25.11.2019

Þorgerður María Þorbjarnardóttir hefur engan tíma til að gera neitt því hún eyðir honum öllum í að gera eitthvað annað. Hún gaf Hemmunum þó fórnfúslega hluta af degi sínum til að segja þeim frá umhverfismálum nútímans og einhverju fleira skemmtilegu. Í þessum þætti er einhver leikur í gangi þar sem þú þarft að giska á hljóðið. Allt voða spennandi.

30 - Hemmi hjarta Arnar 18.11.2019

Arnar leikaravinur Hauksson kíkir í orkudrykkjasmökkun til Hemmanna. Það er ekkert sérstakt til umræðu í þættinum eins og venjulega en hlustendur ættu að vera búnir að komast að því núna hvað þetta eru allt samhengis- og stefnulausir þættir. Njótið.

29 - Hemmi kynnist Ásrúnu 11.11.2019

Ásrún Mjöll er gestur okkar í allra besta þætti Hemma frænda hingað til. Hún hefur áhuga á klifri, ferðalögum og sjálfbærum lífstíl. Ásrún hefur ferðast einsömul á mótorhjóli þvert yfir Evrópu, sótt tantra námskeið í Noregi og safnar frímerkjum. Áhugaverðari manneskju er vart hægt að finna norðan Alpafjalla.

28 - Hemmi Me Gusta 04.11.2019

Þegar heimspekingurinn Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson kemur í heimsókn til Hemma frænda veit maður að hlaðvarpið er komið á hærra stig. Gústi ræðir við Hemmana um hvernig skal tækla öll þau vandamál sem plaga íslensku þjóðina sem og önnur mikilvæg málefni.

27 - Hemmi fær í magann 28.10.2019

Double dragon, pabbabrandarar, kampavín opnað með stæl, saumakennsla, Búdapest, björgunarsveitarferð og margt annað æðisgengið er rætt í þættinum. Beðist er velvirðingar á geispi sem kann að heyrast í Hemmunum.

26 - Hemmi hittir Ævar 21.10.2019

Gestur þáttarins er lífskúnstnerinn Ævar Már Ágústsson sem er búinn að halda titilnum þriðji fyndnasti maður Íslands síðan 2012. Ævar gekkst undir hnífinn í apríl á þessu ári í hjáveituaðgerð í Lettlandi. Síðan þá hefur hann misst um þriðjung af líkamsþyngd sinni en ekki örðu af kímnigáfunni. Ævar segir okkur frá lífi sínu og ferðalögum sem eru mun skemmtilegri en ykkar hlustenda.

25 - Hemmi í háskerpu 14.10.2019

Nýju hljóðnemarnir eru loksins tengdir og til að prófa nýju uppsetninguna er rætt björgunarsveitina, vinnuvélablæti, B-12 skort, Costco verslunarferð, ljónapíkur og margt fleira. Leynigestur með sexy rödd hringir óvænt í Hemmana. Þátturinn hljómar eins og silki.

24 - Hemmi afsakar hvað hann kemur seint 08.10.2019

Einar er kominn aftur til landsins með hversdagslegar sögur frá Bandaríkjunum. Bjarni er búinn að kaupa ný föt sem hann gleymdi alfarið að ræða í þættinum. TSA, Jókerinn, Sturgill Simpson, þorsti, þvaglosun í sturtu og Ellen verða rædd í þættinum. Beðist er velvirðingar á seinkomu þáttarins sem er alfarið Einari að kenna.

23 - Hemmi kíkir til Arnars 30.09.2019

Á meðan Einar er í Bandaríkjunum hefur Arnar „leikaravinur“ Hauksson leyst hann af hólmi. Arnar fær lítið að koma orðum að í þættinum vegna munnræpu úr Bjarna en þeir ná þó að ræða draumaspuna, Rambo, tyrkneska sjónvarpsþætti, Stewart Lee og heimspekilegar tilvistarpælingar. Restin af þættinum fer í leikina „Arnar giskar“ og „Bjarni! Hvort myndirðu frekar?“ sem voru nánast fundnir upp á staðnum.

22 - Hemmi fær Bergdísi í te 23.09.2019

Sjúkrahústrúðurinn Bergdís Júlía Jóhannsdóttir er gestur Hemma frænda að þessu sinni. Hún er menntuð í leiklist úr Rose Bruford í Bretlandi og einnig sem leiklistakennari úr Háskóla Íslands. Nýjir hljóðnemar eru á leiðinni og Einar hyggst halda ræðu í Bandaríkjunum. Fjörið endar ekki.

21 - Hemmi fær Kristján í heimsókn 16.09.2019

Að þessu sinni fær Hemmi frændi Kristján "Heimsfara" Kristjánsson í heimsókn þar sem meðal annars er rætt ferðalag hans til Norður-Kóreu fyrr á þessu ári. Kristján hefur áhuga á að ferðast til vafasamra landa og kynnast þar menningu og staðháttum og lætur það hljóma eins og það sé minnsta mál. Áhugasamir geta lesið bloggfærslur og séð myndbönd frá ferðalögum Kristjáns í gegnum tíðina á  www.intere...

20 - Hemmi tautar 09.09.2019

Í þessum þætti er mikið um taut. Kommentakerfi fjölmiðlanna eru tekin fyrir og er það í raun eina sem er boðið upp á í þessum tuttugasta þætti Hemma frænda. Gæti það verið betra? Já alveg pottþétt.

19 - Hemmi fær Aron í heimsókn 02.09.2019

Eftir gott spjall um daginn, veginn og mannann kemur heljarmennið Aron Friðrik Georgsson í heimsókn til Hemma frænda. Í þessum nær tveggja tíma langa þætti er rætt um lyftingar, mataræði, bifreiðar, bíómyndir og allt þar á milli.

18 - Hemmi fær Arnar í heimsókn 26.08.2019

Arnar Hauksson leikaravinur Hemma frænda kemur í heimsókn í seinni hluta hlaðvarpsins og ræðir listir, leik og lífið. Í fyrri hlutanum má heyra opið bréf Hemma frænda til Neytendastofu og ýmislegt annað tuðlegt.

17 - Hemmi fer í bíó 19.08.2019

Lykilorð þessa þáttar eru hinsegin dagar, frolf, Tarantino og gönguskór. Einar ropar í þættinum.

16 - Hemmi kommentar 12.08.2019

Það styttist í jólin greinilega. Einar segir okkur frá ferðalagi sínu efst vinstra megin á landinu og filsan er rædd sem viðskiptahugmynd. Allur seinni helmingur þáttarins fer í að gera grín af athugasemdum fólks í athugasemdakerfum íslenskra fréttamiðla.

15 - Hemmi verður hress 05.08.2019

Einar sagði að Hemmarnir yrðu að vera aðeins hressari í þættinum, þannig þeir ræddu Chihuahua niðurgang, týndan tónlistarmann frá Danmörku, útihátiðir, Ginnzfest og fylleríssögur. Það gerist ekki hressara en það.

14 - Hemmi fær sér KFC 29.07.2019

Erfitt er að njörva niður nákvæmlega hvað rætt er í þættinum án þess að telja upp svona 300 mismunandi umræðuefni en fyrir utan tuð og taut kynnir Hemmi nýjan dagskrárlið sem fjallar um að borða mat og spjalla á sama tíma. Að þessu sinni snæddu Hemmarnir KFC máltíð. Varað er við smjatthljóðum í þættinum.

13 - Hemmi fær Elfar í kaffi 22.07.2019

Þrettándi þátturinn byrjar á röfli að venju með smá spúkí ívafi. Gestur þáttarins er Elfar Þór grínisti, hlaðvarpari og kvikmyndaböff. Elfar segir okkur frá lífi sínu í leik og starfi sem hann reynir eftir fremsta megni að lifa með kærleik gagnvart náunganum. Þið getið fundið hlaðvarp Elfars: Endalaus óviska á iTunes, Spotify og Stitcher eða séð það í myndbandsformi á Facebook: www.facebook.com/En...

12 - Hemmi fær Árna í heimsókn 15.07.2019

Hefðbundið smjatt í þessum þætti að viðbættum nýja dagskrárliðnum: falsfréttir. Árni Jóhannsson skjalavörður kíkir í heimsókn og ræðir meðal annars ævintýrin sem gerast á þjóðskjalasafni Íslands. Fjórðungur, hlaðvarp Árna um íslenskan körfubolta, má finna á: https://www.buzzsprout.com/226644/  og twitter nafnið hans er: @arnijo. Í lok þáttarins syngur Einar fyrir okkur With arms wide open með Cree...

11 - Hemmi finnur ástina 08.07.2019

Í þessum þætti er hefðbundið vikuspjall og nýji dagskrárliðurinn „Sönn íslensk ástarmál“ er kynntur til leiks. Þá gera Hemmarnir tilraun til að kryfja íslenska ástarlagatexta til að finna út hvað ást er í raun og veru. Í bláendann flytur Bjarni "blint karaoke" á Robbie Williams laginu Angels.

10 - Hemmi fær Ella í heimsókn 01.07.2019

Elías Örn Friðfinnsson kokkur og sprelligosi kemur í heimsókn til Hemma frænda. Hann er að fara af stað með matvagninn Taco Bless í Reykjanesbæ sem er að verða klár í slaginn von bráðar fyrir svanga taco-unnendur.

Hemmi kafar dýpra 24.06.2019

Bólstruð herðatré, samsæriskenning um einn ástsælasta söngvara þjóðarinnar og þriðji hluti útvarpsleikritsins vinsæla eru á dagskrá Hemma frænda að þessu sinni. Í blálokin fá hlustendur að heyra dubstep útgáfu af Eventyr eftir raftónlistarmanninn Tæknijens ft. SkífuÞeytir SkransX.

Hemmi haldinn hátíðlegur 17.06.2019

Í þjóðhátíðarþætti Hemma frænda er rædd áhugaverð púttferð, þrítugsafmælisgjöf Búffa Pulsu og hvers vegna Íslendingar halda upp á 17. júní. Spurningunni um af hverju nef á hundum eru alltaf blaut er loksins svarað og þátturinn endar með fallegu Karaoke í tilefni dagsins.

Listen to the Hemmi frændi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.