Hemmi Frændi

Hemmi frændi

Comedy IS ↓ 82 episodes

Hefur þú áhuga á bulli, vitleysu og áhugaverðum gestum? Þá ert þú á réttum stað. Hemmi frændi býður upp á spjall um allt milli himins og jarðar, gesti sem vita hluti, og grín og gys. Er hægt að biðja um meira?

Author

Hemmi Frændi

Category

Comedy

Podcast website

hemmifraendi.podbean.com

Latest episode

Oct 20, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

82 - Hemmi ræðir gervigreind 20.10.2025

Arnar Hauks og Gunni Bö mæta í spjall um gervigreind og tengd málefni. Bjarni ræðir mjöðmina sína og Einar er í málaferlum.

81 - Hemmi Bjarnar Gaut 20.11.2023

Bjarni Gautur boðberi dánarfregna, kvikmyndagerðarmaður, leikari, rappari, ritstjóri, sófaeigandi og uppistandari var gestur Hemma frænda að þessu sinni. Íslenska tungan er hægt og rólega að deyja út en Bjarni hyggst bjarga henni með útgáfu Hetjumyndasagna á móðurmálinu. Boðið var upp á kaffi og egg með spjallinu sem hverri hetju sæmir sem gott kann að meta.

80 - Hemmi endurkemur 06.11.2023

Fyrsti snjórinn fallinn, jólabjórinn kominn í bæ og Airwaves í fullum gangi. Þetta og margt fleira var ekki rætt í þessum endurkomu þætti Hemma frænda eftir langa bið ástkærra hlustenda. Sperrið eyrun og leyfið Hemmanum að flæða.

79 - Látt’ekki Svona Hemmi frændi - Jólaþáttur 26.12.2022

Gleðileg jól kæru hlustendur! - Þessi þáttur er einnig í boði í MYND á Hemma frænda síðunni á Youtube ! - Þessi einstaki jólaþáttur var gerður í samvinnu með uppistöndurunum góðkunnu Arnóri Daða Gunnarssyni og Þórhalli Þórhallssyni í Látt'ekki Svona . Um tuttugu mínútur inn í þáttinn verður allt rafmagnslaust af því við gerðum grín að frelsaranum. Það er auðvitað bannað og við hættum því umsvifala...

78 - Hemmi fær heilablóðfall með Arnóri 21.11.2022

Arnór Daði Gunnarsson kom í þáttinn með litlum fyrirvara því Þórhallur Þórhallsson skrópaði. Takk Arnór. Horfið á allt stöffið hans Arnórs á VOD-inu einhversstaðar og bara gúgglið hann og eitthvað. Ekki gúggla Þórhall. Arnór kom með kerti.

77 - Hemmi leigir barnavörur af Ástu 07.11.2022

Frábæra manneskjan og frumkvöðullinn Ásta Rós Árnadóttir kom og sagði Hemmunum frá fyrstu íslensku barnavöruleigunni MiniRent.is sem hún og vinkonur hennar: Ragnhildur Inga og María Sigurborg hentu í framkvæmd á aðeins þremur mánuðum! Ásta hefur reynslu af því að ferðast erlendis með ung börn og þekkir því brasið við að ferðast með barnavörur erlendis. Hún vil gera barnafólki lífið auðveldara, hvo...

76 - Hemmi fær Evu í sigtið 24.10.2022

Jussutussumelluhóra hvað framtíðin er björt í rafíþróttum nú þegar Eva Margrét Guðnadóttir er orðin formaður Rafíþróttasamtaka Íslands . Að auki er hún viðburðastjóri í Arena í Kópavogi og meistaranemi í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði í HR (sem hún ætlar sér aldrei að vinna við). Þegar hún er að plaffa fólk í sundur heitir hún EvaSniper69 og þið getið séð hana og sveittu BabePatrol vinkonur hen...

75 - Hemmi skorar sjálfsmarkþjálfun með Önnu 10.10.2022

Kulnunarmarkþjálfinn og skemmtikrafturinn Anna Claessen heiðraði Hemmana með ráðum sínum og dáðum. Hún er orkumikil, veraldarvön og hefur afhent Tom Hanks Diet Pepsi. Anna og kollegi hennar Friðrik Agni eru til staðar fyrir þig í Happy Studio þar sem þau bjóða upp á leiðir til að takast á við kulnun, finna gleðina á ný og ná árangri í lífinu. Lögfræðingar Hemma frænda eru enn að ræða við lögfræðin...

74 - Hemmi fær Arnór 2.0 26.09.2022

Arnór Daði Gunnarsson er töluvert betri manneskja en alnafni hans sem kom síðast í heimsókn. Hann hefur verið afreksmaður frá unga aldri, snertir ekki sukk og er kominn faglega mun lengra í lífinu. Þegar hann tók rétta beygju í lífinu tók hinn Arnór ranga beygju og þær beygjur voru margar og flestar út af brautinni. Dæmi hver fyrir sig en þessi Arnór hefur greinilega fengið öll góðu genin við nafn...

73 - Hemmi fær Arnór - Hann bara fær hann 12.09.2022

Arnór Daði Gunnarsson grínmanneskja er næs og ligeglad gestur. Honum var boðið aftur í þáttinn því hann hagaði sér vel síðast. Aðrir eldri gestir fá jafnvel ekki boð aftur. Gúgglið big, small town kid það er gott stöff.

72 - Hemmi kemur úr vetrarfríi 04.02.2022

Arnar „leikaravinur“ Hauksson kemur í heimsókn til Hemma frænda og lætur grípa fram í fyrir sér. Strákarnir íhuga að taka upp vegan lífstíl eftir að hafa smakkað dýrindis smákökur sem maður prumpar ekki mikið af. Bjarni er að fara að missa íbúðina, Einar býr í hjólhýsi og Arnar er bara að leika sér.

71 - Hemmi Hugar að Katli 15.02.2021

Ketill Hugi Hafdal Halldórsson heimsækir Hemma í hátíðlegu hlaðvarpi hæstánægður með hetjudáð, hárið, og hestana sína. Hressari mann í verkfræðinámi er ekki hægt að finna enda alveg með á hreinu hvað krítískur hiti og þrýstingur eru. Svo spilar hann á risavaxna fiðlu í þokkabót. Selt!

70 - Hemmi fær sér MC Bjór 01.02.2021

Annar þáttur Hemma frænda árið 2021 er kominn í loftið og einhverra hluta vegna er hljóðið komið í lag. Rapparinn MC Bjór, Róbert Sveinn Lárusson, heiðrar Hemmana með nærveru sinni, ræðir tónlistarferil sinn og komandi verkefni. Ef þið kunnið að meta rapp, jólin og fermingar þá er það alveg frábært en þátturinn fjallar eitthvað smá um það. Splæsið „MC Bjór“ í leitarreitinn á Spotify, Youtube eða S...

69 - Hemmi kemur úr sumarfríi 11.01.2021

Eftir langa bið er Hemmi frændi loksins kominn úr sumarfríi. Ekkert sérstakt var undirbúið við endurkomuna heldur er einungis að finna sama gamla röflið. Græjurnar í Hemma frænda eru orðnar eitthvað ryðgaðar eins og heyrist á pirrandi aukahljóðunum í upptökunni. Athugið að ekki er verið að vinna að því að bæta gæðin á hljóðinu.

68 - Hemmi fær Kristófer í kaffi 10.08.2020

Vegna tæknilegra örðugleika í mixernum hjá Hemma frænda þurfti töluverða klippingu fyrir þennan þátt. Þess vegna kemur Kristófer Þorri Haraldsson (Klipptófer) í þáttinn til að snyrta Hemmana til og segja þeim sögur úr sveitinni þar sem hann hefur gripið í margan spenann. Hemmi frændi er nú kominn í smá sumarfrí og hlakkar til að kvelja eyru ástkærra hlustenda aftur von bráðar. Gleðilegt sumar og h...

67 - Hemmi fær Davíð í sögur 03.08.2020

Davíð Már Gunnarson, hinn nýjungagjarni lífskúnstner, heiðrar Hemma frænda með viðveru sinni í þessum þætti. Hann er einn hressasti og jákvæðasti maður sem hægt er að finna á árinu 2020 og geislar af vinsemd og virðingu. Athugasemdir í þættinum gætu fengið þig til að brosa.

66 - Hemmi fær Almar í kaffi 27.07.2020

Listamaðurinn Almar Steinn Atlason er gestur Hemma frænda í einum mest sextugasta og sjötta þætti sem gerður hefur verið. Almar ræðir við Hemmana um listina, tímann og Íslandspóst en á mörgu þarf að taka innan veggja skriffinskubáknsins ógurlega sem heltekið hefur sál þjóðarinnar. Þess má geta að Bjarni og Almar eru skyldir í fimmta og fjórða ættlið. Ættliði að trúa þessu?

65 - Hemmi fær skoðun hjá Valgerði 20.07.2020

Af einskærri manngæsku heimsækir Valgerður Briem Magnúsdóttir Hemma frænda og segir frá ævintýrum sínum um heim allan. Valgerður er hrædd um að barnaverndarstofa taki af henni son sinn vegna viðtalsins og er hún því flutt til Noregs þar sem þau mæðgin eru óhult fyrir oti þeirra og poti.

64 - Hemmi fær lánaðan súpupott 13.07.2020

Hann er kominn aftur til Hemma frænda. Grallarinn, brallarinn og súpumallarinn Gunnar Þór Böðvarsson. Ævintýrin sem einn maður getur lent í eru með ólíkindum og fá Hemmarnir að heyra allt um þau. Verði ykkur að góðu.

63 - Hemmi ferðalangar í sumarfrí 06.07.2020

Ferðalangurinn Elísabet Ýr Guðjónsdóttir kemur aftur í heimsókn til Hemma frænda en hún er betri helmingur víðförla dúósins @twotravellingidiots. Hlutir, fólk og staðir verða ræddir í þættinum og er því lítið frá brugðið fyrir elskulega aðdáendur þáttarins.

62 - Hemmi fær Gná í spjall 29.06.2020

Í forsvari fyrir unga fólkið í landinu er Gná Elíasdóttir Tik Tok stjarna. Hún kann að olla á bretti, kann alls konar skammstafanir og segist hafa verið markvörður FC Barcelona á yngri árum sem er helber lygi. Við bjóðum hana samt velkomna og heyrum hvað unga fólkið er að gera þessa dagana.

61 - Hemmi Ólar Arnar 22.06.2020

Tónlistarmaðurinn Holy Hrafn er við það að gefa út nýja plötu og leyfir okkur að fá smakk af henni í seinni hluta þáttarins. Arnar "leikaravinur" Hauksson fær að vera með og segir já og einmitt allan þáttinn. Annars erum við bara að tala um allt og ekkert eins og venjulega hjá Hemma frænda.

60 - Hemmi sextugur 22.06.2020

Þegar Hemmi frændi hleypur á tug má alltaf vænta þess að minnsta mögulega orka fór í gerð þáttarins enda eru Hemmarnir að þessu sinni bara að tuða við hvorn annan um allt og ekkert að venju. Bjarni fær vinnu hjá Reykjavíkurborg og getur ekki haldið kjafti á meðan Einar hefur voða lítið að segja.

59 - Hemmi spjallar við Sólborgu 08.06.2020

Hún er að læra lögfræði, gefa út bók og tónlist með hægri hendinni á meðan hún tekur á móti verðlaunum og berst fyrir réttlátara samfélagi með vinstri hendinni. Svo situr þú og tuðar af því þér finnst árið 2020 vera aflýst. Sólborg Guðbrandsdóttir fórnaði smá tíma úr lífi sínu til að koma í létt spjall og heiðraði Hemma frænda með nærveru sinni.

58 - Hemmi hlustar á Isaac 01.06.2020

Isaac Jameson er gestur Hemma frænda að þessu sinni og ræðir hann m.a. hvernig tónlistin hefur hjálpað honum í gegnum erfiðleika lífsins. Síðasta föstudag gaf hann út sína fyrstu hljómplötu á Spotify: Forest, undir sínu nafni þar sem hann spreytir guðdómlega söngrödd sína og fagran gítarleik.

Listen to the Hemmi frændi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.