Hemmi Frændi

Hemmi frændi

Comedy IS ↓ 82 episodes

Hefur þú áhuga á bulli, vitleysu og áhugaverðum gestum? Þá ert þú á réttum stað. Hemmi frændi býður upp á spjall um allt milli himins og jarðar, gesti sem vita hluti, og grín og gys. Er hægt að biðja um meira?

Author

Hemmi Frændi

Category

Comedy

Podcast website

hemmifraendi.podbean.com

Latest episode

Oct 20, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

57 - Hemmi grillar í Agli 25.05.2020

Egill Karel Logason kemur í annað sinn til Hemma frænda vopnaður nákvæmlega einni spurningu sem er ekki stolin frá Hemmunum í stað þess að spyrja þá spjörunum úr líkt og planið var upprunalega. Þátturinn reddast samt alveg því Egill er hress gæji og flottur strákur.

56 - Hemmi Óskar sér 18.05.2020

Einn helsti meðlimur fellgönguhópsins Fellingarnar, Óskar Logi Ágústsson, er svo rausnarlegur að koma í heimsókn til Hemma frænda. Hann talar lítið um fellgöngur en alveg slatta um hljómsveit sína The Vintage Caravan í hverri hann leikur á gítar, syngur og semur lög fyrir. Óskar er með geggjaðan fatasmekk og er rauðhærður.

55 - Hemmi hittir Móu 11.05.2020

Móeiður Sif Skúladóttir er að reyna að komast í ræktina, keppa í fitness og verða flugfreyja en staðan í heiminum er ekki henni í hag. Þess í stað útbýr hún sína eigin rækt í bílskúrnum, viðheldur mataræðinu af mikilli yfirvegun þangað til fitnesskeppnin verður haldin og bíður þolinmóð eftir atvinnutækifæri. Hún á sætan hund og bros sem drepur.

54 - Hemmi Gunn-ar sig í gang 04.05.2020

Hvað hefur þú farið á marga tónlistar- og/eða skemmtanaviðburði erlendis? Ekki jafn marga og orkuboltinn Gunnar Hjörtur Baldvinsson sem hefur ferðast um víðan völl og prófað ein villtustu partý sem jörðin hefur upp á að bjóða. Hann tók veiruvánna í nösina og skipulagði dagskrá fram í tímann svo hann hefði eitthvað skemmtilegt að gera hvern dag í þessu skítaástandi. Flottur strákur sem fýlar Viking...

53 - Hemmi bragðar á sósu 27.04.2020

Í þessum þætti svamla Hemmarnir í gegnum ýmsar pælingar eftir að hafa smakkað sterka sósu sem var svo ekkert svo sterk. Annars bara eitthvað raus um kúk og dauðann. Þið vitið alveg hvað þið eruð að fá þegar þið veljið Hemma frænda sem áhlustunarefni.

52 - Hemmi afmælar sig 20.04.2020

Þá er komið ár frá því að Hemmi frændi rann fyrst í hlað og vegna fjölmargra eftirspurna mun koma í ljós hvers vegna þátturinn ber það nafn. Arnar „Leikaravinur“ Hauksson kemur í spjall og hver veit nema Hemmarnir hleypi honum að í samtalið að þessu sinni. Goðsagnakennda atvikið á Ship Anson í starfsmannaferð Isavia til Portsmouth árið 2018 verður reifað í þættinum og Davíð Þór „Toolshed“ Logason,...

51 - Hemmi í einangrun 13.04.2020

Í þessum gestalausa þætti Hemma frænda ræða Bjarni og Einar um typpalækna, atvinnumál og samfélagið á þessari ögurstundu þar sem Covid-19 heldur öllum í heljargreipum. 

50 - Hemmi hittir Konna Gotta 06.04.2020

Ertu í atvinnuleit en enginn vill ráða þig til starfa? Ert jafnvel með flekklausa ferilskrá, hefur sótt Dale Carnegie námskeið og með meðmæli frá Forsetanum? Þá viltu heyra sögu Konráðs Gunnars Gottliebssonar sem varð einn eftirsóttasti starfskraftur landsins vegna örlagaríks myndbands. Konni Gotta sækir ekki um störf heldur sækja störfin um Konna Gotta. Tjekkið á honum á samfélagsmiðlum undir naf...

49 - Hemmi hótar Arnóri 30.03.2020

Arnór Daði Gunnarsson er frá Hauganesi. Hann er kannski ekki færasti uppistandarinn samkvæmt dómnefndinni á Íslandsmótinu í uppistandi 2020 en hann er að minnsta kosti flottur strákur.

48 - Hemmi Mixar Magga 23.03.2020

Þegar maður leitar ráða sækir maður í reynslu. Maggi Mix, ein reyndasta og langlífasta samfélagsmiðlastjarna Íslands, heiðrar Hemmana með nærveru sinni og segir þeim sögur um líf sitt og störf í þágu þjóðarinnar.

47 - Hemmi spennir Greip 16.03.2020

Greipur Hjaltason vann Íslandsmótið í uppistandi árið 2020. Hann er næstum tveir metrar á hæð, vinnur á frístundaheimili (ekki leikskóla) og er stundum fyndinn. Beðist er velvirðingar á öskurhlátri í þættinum.

46 - Hemmi Helgar sig Ástu 09.03.2020

Þau koma færandi hendi í þáttinn með Durian konfekt og Kopi Luwak kaffi sem fær misgóðar undirtektir Hemmanna. Ásta Rós Árnadóttir og Helgi Arason hafa marga fjöruna sopið víðs vegar um hnöttinn og segja okkur meðal annars frá Asíureisunni sem þau fóru í ásamt 7 mánaða dóttur þeirra fyrir skömmu. Ef þú finnur lykt af blautum sokkum er það bara daunninn af Durian konfektinu að smitast í gegnum hljó...

45 - Hemmi fær Telmu í sögur 02.03.2020

Hvernig er að leika berbrjósta í bíómynd, missa fullorðins framtennurnar og fá boð frá áströlskum hlutabréfabraskara um að koma hinumegin á hnöttinn í rómantíska heimsókn? Leikkonan Telma Huld Jóhannesdóttir segir okkur frá nokkrum af þeim fjölmörgu ævintýrum sem hún hefur lent í á lífsleiðinni. Þið finnið meira um Telmu á vefsíðu hennar https://www.telmajoa.com.

44 - Hemmi hremmir Holy Hrafn 24.02.2020

Hann er tónlistarmaður, pin númerið hans er einhver útgáfa af 7-9-13 og honum finnst Einar vera hnyttinn. Farðu á Spotify eða Youtube til að heyra mergjaða tónlist Holy Hrafns en hlustaðu samt fyrst á þáttinn. Þess vegna ertu hérna auðvitað. Nema þú lesir alltaf bara lýsinguna á þættinum og ferð síðan einhvert annað. Það væri virkilega furðulegt bara svo þú vitir.

43 - Hemmi fer með Sólimann í siglingu 17.02.2020

Ágúst Thór Sólimann er skipstjórinn á skútunni Jón Guðmundsson. Undanfarin ár hefur hann verið á siglingu um Atlants-, Miðjarðar- og Eyjahaf þar sem hann hefur boðið fólki að slást í för með sér til að læra að sigla skútu eða einfaldlega njóta lífsins á fallegum stöðum. Gústi segir okkur frá ferðalögum sínum og hvernig hann fékk þá hugmynd að leggja í þetta ævintýri. Áhugasamir geta pantað ferðir...

42 - Hemmi fær Inga í heimsókn 10.02.2020

Ingi Eggert Ásbjarnarson er einn fremsti söngnemi Reykjanesbæjar um þessar mundir. Hann hefur leikið í stórverkum á borð við Benjamín dúfa, Flags of our fathers og nú nýlega Fiðlarinn á þakinu í útsetningu tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Ef þið nennið að hlusta fram að miðju eru smáuglýsingar að finna þar. Getið líka spólað bara. Hlustið samt endilega á allan þáttinn.

41 - Hemmi Helgar sig bardagaíþróttum 03.02.2020

Þegar Helgi „Flex“ Rafn Guðmundsson er á svæðinu er alltaf mikil orka í loftinu. Jafnvel latasta fólkið finnur fyrir lífskraft þegar hann er nálægt enda er hann með viðkunnanlegustu, jákvæðustu og afkastamestu mannverum jarðarinnar. Hemmi frændi sóar viðtalinu auðvitað í einhverja vitleysu eins og venjulega enda hefur hún verið einn helsti burðarbiti þáttarins frá upphafi.

40 - Hemmi fær Turbo í chat 27.01.2020

Þórir „TurboDrake“ Viðarsson segir Hemmunum frá heimi rafíþrótta og starfi sínu sem formaður rafíþróttadeildar KR. Þórir hefur lengi verið viðriðinn rafíþróttabransann á Íslandi og þekkir inn á alla helstu tölvuleikina sem keppt er í. Í lok þáttarins fá hlustendur að heyra lagið bangsapabbi eftir Þórir sem er án efa besta lag sem hefur verið spilað í Hemma frænda á árinu 2020.

39 - Hemmi fær Rakel í sögur 20.01.2020

Ólátabelgurinn Rakel Ólöf Andrésdóttir kemur til Hemma frænda og segir sögur úr æsku sinni sem líkjast frekar skáldsögubútum eftir Astrid Lindgren en raunverulegu lífi. Smáuglýsingarnar eru komnar aftur eftir fjölmargar eftirspurnir og þátturinn byrjar á þvaðri hjá Bjarna og Einari um lasertag og hvor þeirra ætti að vera krýndur skyndihjálparmaður ársins.

38 - Hemmi fær Ellen í heimsókn 13.01.2020

Loksins loksins! Ellen Austmann, aðdáandi og auglýsandi Hemma frænda númer eitt, er mætt til að ræða mikilvæg málefni líðandi stundar og gleðjast með Hemmunum á nýju ári. Ekki missa af þessum. Eða þúrst, gerðu bara það sem þú vilt en það væri frábært ef þú myndir hlusta á þennan. Takk.

37 - Hemmi fær köttinn í kaffi 06.01.2020

Flugvirkinn og fréttahaukurinn Guðmundur Hallur „kötturinn“ Hallsson kemur í nýjárskaffi til Hemma frænda. Deiglan, flugvirkjun, trommusláttur og margt fleira er til umræðu í þættinum.

36 - Hemmi áramótar Magga 30.12.2019

Magnús Bjarni Gröndal er gestur í áramótaþætti Hemma frænda 2019-2020. Hann er með sólóverkefnið Mighty Bear og er einnig söngvari/gítarleikari post-metal bandsins We Made God. Maggi er talinn af mörgum vera hressasti gestur Hemma frænda ársins 2019.

35 - Hemmi fær Gunna í jólapeysu 23.12.2019

Gunnar Þór Böðvarsson er gestur í jólaþætti Hemma frænda. Hann segir okkur frá íkornum, Kínverjum og tölvuleikjanámi í Noregi. Óstaðfestar heimildir um Jesú Krist koma fram í þættinum sem eru að öllum líkindum fleipur og málræpa.

34 - Hemmi fær Tönyu í jólaöl 16.12.2019

Tanya Lind Pollock ræðir við Hemma frænda um seiðlist, tónlist, jólin, páskana og líf sitt. Mosi sonur hennar og Gunnar Ragnar Sveinbjörnsson kærasti fá að segja nokkur orð líka.

33 - Hemmi fær Egil í heimsókn 09.12.2019

Egill Karel Logason er gestur Hemma frænda að þessu sinni. Hann er einn af fáum aðdáendum þáttarins sem fær að koma og sjá undir huluna hjá Hemma frænda og spyrja þáttastjórnendurna spjörunum úr en Bjarni fer einmitt úr buxunum í þættinum.

Listen to the Hemmi frændi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.