Hefnendurnir
Hefnendurnir
Podcast by Hefnendurnir
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hefnendurnir 51 - What The Who Do We Know 16.02.2015 1:24:46
Í fimmtugastaogfyrsta þætti halda Hefnendurnir uppá fimmtíuogeins árs afmæli Doctor Who með líflegri umræðu um þennan besta sjónvarpsþátt allra tíma. En umræða þessi reynist Hefnendunum ofviða og stefnir vináttu þeirra í hættu...
Hefnendurnir 50 - Shades Of Vei! 09.02.2015 1:48:57
Hefnendurnir fagna fimmtugsafmælinu með extra löngum þætti þar sem Hulkleikur og Ævorman ræða um pavlóvur Schrödingers, geimveruglannaskap og miðaldra laugardagsgrínista áður en söngkonan og kynjapælarinn Anna Tara Andrésdóttir mætir í heimsókn til að hirta þá og fræða um leyndardóma skuggana fimmtíu.
Hefnendurnir 49 - Diplómatísk friðhelgi 02.02.2015 1:18:00
Hefnendurnir hefna um gramm af Kanye, Marvelös lóafréttir og ris og fall Júpiters áður en þeir kynna til sögunnar nýjan dagskrárlið, spjalla um spjallþáttastjórnanda og kommenta á kommentakerfi. Hulkleikur lætur þó síðan ekki Berlínarútlegð sína stöðva sig og sendir angurvært sendibréf mitt úr hjarta meginlands Evrópu.
Hefnendurnir 48 - Ástin og bleyðumarkaðurinn 26.01.2015 1:26:42
Hefnendurnir gerast amorískir í tilefni verðandi Valentínusar og velta fyrir sér ástum ofurhetja, ástum vélmenna og ástum morgunverðarklúbbsins áður en þeir sæka sig upp og beina grænum og köldum hjörtum sínum inn á við og skoða abstrakt og veraldlegar upplifanir sínar í ástarmálum.
Hefnendurnir 47 - Fyndin er grimmdin 19.01.2015 1:08:56
Ragneto kemur óvænt í heimsókn til hetjanna okkar og þrenningin þráláta þræðir sig gegnum skeggtísku, spurningabombubombur, grimmd í gríni og innrásir á Gúbíter, áður þeir velta fyrir sér kvenkyns afturgöngumorðingjum og hvort að „Nei“ sé í raun og veru ekkert svar.
Hefnendurnir 46 - Tvöþúsund Og Furious 12.01.2015 1:16:32
Hefnendurnir tala um skólun Hulkleiks í HÍ, karlasmekk nineties ljóska og ofurhetjuofhlæði Hollywoods áður en þeir telja upp helstu tilhlakkanir hvað varðar kvikmyndir á komnu ári.
Hefnendurnir 45 - Je Suis Kamala Khan 05.01.2015 1:11:04
Hetjurnar hugumprúðu fá félaga Ragneto í heimsókn til að rabba um meistara algeimsins, þeldökkan þríbura og Frozen áráttu Hulkleiks áður en þeir hugleiða hroðalega atburði í París og þýðingarþrungna meiningu þeirra.
Hefnendurnir 44 - Aftur til framsóknar 29.12.2014 1:05:31
Í fyrsta þættinum á nýju ári horfa hetjurnar okkar til framtíðarinnar þar sem þeir takast á við tækniframfarir, pæla aðeins í nútímanum og horfa um öxl er þeir skoða Skaupskrif.
Hefnendurnir 43 - Tárin bakvið þrívíddargleraugun (Áramótaannáll Hefnendanna 2014) 22.12.2014 1:26:26
Hulkleikur þenur út tárkirtlana og Ævorman skellir sér í Hulkbuster brynjuna sína er þeir útkljá nördaárið sem er að líða með stæl í sérstökum áramótaannál Hefnendanna.
Hefnendurnir 42 - Meiningin bakvið jólin, alheiminn og allt 15.12.2014 2:07:00
Giljahulk og Ævorstaur fá Jarðarbúahöfðingjann Benjamín Sigurgeirsson í heimsókn og ræða baráttu kóngulóarkonunnar við jólaköttinn, þolanleika miðju-Malcolms, örlög Loka Laufeyjarsonar og afmælisdag frelsarans. Auk þess mætir Lóa hjálmtýs og gaggrýnir bók og allir eru glaðir og gleðileg jól.
Hefnendurnir 41 - Stjórnræningjarnir 08.12.2014 1:06:16
Hulkleikur og Ævorman spá í slímugum sniglum, þrasa um þunglyndar mörgæsir, skemmtigarð Skerláks og falla fyrir fúríuvegi óða Max áður en þeir gaggrýna nýja íslenska myndasögu og setja á sig sjóræningjahatta til að umbreytast í útibú frá Útvarpi Sögu.
Hefnendurnir 40 - Hin Heilaga Grýla 01.12.2014 1:10:41
Hetjurnar okkar ræða um ný andlit í röðum kvikmyndaðra ofurhetja, impra á norður kóreskum tölvuhryðjuverkum og spá aðeins í sérstökum jólaþáttum áður en þeir stinga sér á kaf í hafsjó af jólafróðleik.
hefnendurnir 39 - Tom Cruise fær ekki að ríða um jólin 24.11.2014 1:17:14
Hefnendurnir fá post-apocalyptic-norse-god-kung-fu-steampunk -trilógíuhöfundinn Emil hjörvar Petersen í heimsókn, ræða um nýjustu treilerana og búa til eitt stykki jólamyndadagatal handa jarðarbúum.
Hefnendurnir 38 - Úr að ofan 17.11.2014 1:01:34
Hefnendur spá og spekúlera í hugsanlegu sjónvarpi frá helvíti, látnum leikstjóra, ómerkilegum ofurhetjuþáttum og fáránlegu fatavali félagslega fatlaðra fróðleiksmanna.
Hefnendurnir 37 - Tinder á Coruscant 10.11.2014 1:10:23
Grímsævintýrið og Dagshugleiðingin taka snúning á aldraðri frænku Péturs Parker, kíkja á kynverund Hulks, reipsjeima Dr. Fuckstable og bera saman ímyndaðar fasteignir í þessum tímabærasta Hefnendaþætti ever.
Hefnendurnir 36 - Topp 20 mikilvægustu kvikmyndir í sögu tímans ever punktur bannað að breyta. 03.11.2014 1:19:42
Búið að loka kjörstöðum og setja gaddavír og jarðsprengjur og stóra hunda og menn með byssur og múrvegg og risaeðlur með þrjá hausa sem spyrja gátur eða rífa þig í sig og risastór kolkrabbi sem borðar skip og guði og þetta er sko ekki tungl...
Hefnendurnir 35 - Marvelaði 27.10.2014 1:19:34
Hefnendur missa nokkra lítra af munnvatni yfir nýrri áætlun Marvel risans, 35 ára afmæli Alien og popptónlist tileinkaðri g-unum þremur.
Hefnendurnir 34 - Ástin og óttinn 20.10.2014 1:13:36
Hulkleikur örvæntir á meðan Ævorman talar um skilnað ostamannsins, en síðan horfast hetjurnar okkar í augu við hrylling í sínum margvíslegu myndum og rifja upp nokkur af þeim atriðum sem þeim hrýs við hugur í tilefni hrekkjavöku.
Hefnendurnir 33 - Trúðaofstæki 13.10.2014 1:22:25
Hetjurnar okkar tvímenna drangana og kvengera draugabana ásamt því að ferðast í framtíðina með Súpermann og félögum áður en þeir ráðast gegn erkióvinum sínum, hinum hvítmáluðu og martraðavekjandi trúðum.
Hefnendurnir 32 - The Saga 06.10.2014 1:57:46
Í fjarveru Ævormanns fær Hulkeikur Sögu Garðars í þáttinn og þau horfa saman á Star Wars. Alla myndina. Frá upphafi til enda. In real time. That's right. Þessi þáttur er eitt stór Star Wars commentary. May the force be with you. (Taka skal fram að við erum að horfa á gömlu orginal theatrical release útgáfuna.)
Hefnendurnir 31 - Digital Hitler 29.09.2014 1:18:57
Í sínum þrítugasta og fyrsta þætti ræða hetjurnar okkar um krossaða sadista, miljón orð frá Alan Moore og feikaða pardusinn hans Steve Martin áður en þeir rýna í gagnrýni og spá í hugumstór hjörtu Skota.
Hefnendurnir 30 - State of the Union 22.09.2014 1:49:56
Hulkleikur snýr aftur í faðm Ævormans og saman halda þeir uppá þrítugsafmælið með nýju Hefnendastefi og heiftarlegu hugarangri um Doktorinn, Stallone og endinn á Contact. Allt fyrir Jarðarbúa.
Hefnendurnir 29 - Pilotpælingar 15.09.2014 1:10:10
Á meðan Hulkleikur heimsækir Finnland lítur Ragnar Rawkeye Hansson aftur í heimsókn til Ævormans og þeir hugleiða finnska fyndni, segja nektarsögur af sjálfum sér og fara á flug um pilot þætti.
Hefnendurnir 28 - Leikur Köngulóarkonunnar 08.09.2014 1:13:21
Á meðan Hulkleikur spókar sig í borg englanna fær Ævorman gestahefnandann Rawkeye í heimsókn til að ræða við sig um klúrar kápur, steðjaverksmiðju og ferskan doktor áður en þeir kafa ofaní kvenhetjur í tölvuleikjum.
Hefnendurnir 27 - De Palmasunnudagur 01.09.2014 1:32:19
Að þessu sinni pizza Hefnendur sig upp áður en Ævorman skreppur frá og Hulkleikur fær í heimsókn kvikmyndafræðinginn og De Palma ástríðumanninn Ara Gunnar Þorsteinsson sem færir alla góða jarðarbúa í sannleikann um það hvers vegna dýrka eigi Brian, meistara myndmálsins.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.