Hefnendurnir
Hefnendurnir
Podcast by Hefnendurnir
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hefnendurnir 26 - Bless Boy Wonder 25.08.2014 1:05:49
Í sínum tuttugusta og sjötta þætti hallmæla Hefnendurnir meintum leðurblökuskapara og minningargreina tvær dívur hvíta tjaldsins áður en þeir rifja upp góðu stundirnar með hefnendaheimilisvininum Robin Williams.
Hefnendurnir 25 - Glerdýraborgin 18.08.2014 1:23:48
Hefnendurnir smella í sig steinastaupum, ræða flóttamenn úr æskuparadís og rifja upp minnistæðar bíófarir áður en þeir taka á móti dröfningunni DD Rozas sem leiðir þá í allan sannleikann um það sem gerist bakvið tjöldin í draumaborginni L.A.
Hefnendurnir 24 - Anna í Sveittuhlíð 11.08.2014 1:03:41
Hefnendurnar ræða manngerðar endur, takmarkaða múltíversa og rostungahorror áður en þeir fara í bíó með Önnu Svövu Knútsdóttur. Inniheldur mjög minor spoilera um Guardians of the Galaxy.
Hefnendurnir 23 - Með sand í egóinu 04.08.2014 1:43:32
Hetjurnar hugumprúðu eygja alklæðnað Amazóngyðju, sækja syndaborgina svarthvítu heim, mæna á minnkaðan mauratamningamann og halda hamingjusamir niður Heiftarveginn, er þeir verja heilum þætti í að gera upp nýafstaðna nördaveislu mega-myndasöguráðstefnunnar í San Diego.
Hefnendurnir 22 - Úr Leðurblökuskápnum 28.07.2014 1:57:53
Heilagar Halakörtur Jarðarbúar! Haldiði ekki að Hefnendurnir hafi hent í heljarstóran hátíðarþátt um Leðurblökumanninn sjálfan. Dýnamíska dúóið okkar heldur upp á 75 ára afmæli hempuklædda krossfarans með löngu og íburðarmiklu spjalli um Batman. Tíu Bill Finger upp til guðs!
Hefnendurnir 21 - Litla Líkkistan 21.07.2014 52:04
Ævör og Hulda hella uppá jurtate og ræða kynskipti ofurhetja, kynþáttaskipti ofurhetja og afstæði apavæmninnar. Örvar Eusébio lýsir úrslitaleik Hefnendadeildarinnar og limir fljúga.
Hefnendurnir 20 - Mirönduheilkennið 14.07.2014 2:02:07
Járnmennið og Grænmetið ákveða bragðbestu brúðuna, kvikindislegustu kvikmyndina og öndverðustu ofurkonuna, auk þess sem þeir fá fróma og fantasíska fótboltafræðslu frá Örvari Eusebio í þessum tvöfalda og tuttugasta tímamótaþætti Hefnenda.
Hefnendurnir 19 - Gulrótarblekkingin 07.07.2014 1:13:14
Hefnendur ræða um keppnisskap, kaiju-konur og karþasis í ofbeldisóperum áður en Ævor Man kemur með fagrar fabúleringar um Franquin sem Hulkleikur þurfti endilega að breyta í íhugun um Andrésar erótík. Við biðjumst velvirðingar á suðinu í þessari upptöku. Það er Doctor Doom að kenna.
Hefnendurnir 18 - Vampýr Áskell vs. Zombie Brown 30.06.2014 1:14:25
Fullhugarnir fílelfdu fagna aldarfjórðungs afmæli Burton blökunnar, agnúast um ódauða uppvakninga og reyna rauðeygðir að réttlæta og verja væskilslegu vinnuna sína.
Hefnendurnir 17 - Snöffbolti 23.06.2014 1:25:46
Hetjurnar okkar díla við drottinssvik, horfa á nokkrar hermikrákumyndir, minnast fallins B'starðs og reyna að fóta sig í boltaheimum.
Hefnendurnir 16 - Dalur doppelgängeranna 16.06.2014 1:24:16
Hulkleikur og Ævor man velta fyrir sér dystópískum útópíum, spá í kúrekageimverubönum og skreppa síðan í heimsókn í dal tvífarakvikmyndanna.
Hefnendurnir 15 - Son of Han 09.06.2014 1:23:51
Hulkleikur og Ævor Man fá Ragga 'Rawkeye' Hansson í heimsókn til sín til að ræða stjörnustjórnarkosningar, tímaflakkandi kynlífsbandíta og mauramann í sköpunarkrísu.
Hefnendurnir 14 - Gremja Górilluhvalsins 02.06.2014 1:12:23
Ævor Man og Hulkleikur ræða um dularfulla ofurkrafta Kitty Pryde, skoða kosningar með sínum augum og fá Kaiju áhugamanninn Ómar Swarez til að uppfræða þá um leyndardóma Godzilla.
Hefnendurnir 13 - Bítladróttinssaga 26.05.2014 1:17:17
Hetjurnar okkar ræða um nýjasta búning Leðurblökumannsins, minnast skrímslasmiðsins H.R. Giger og spekúlera í kvikmyndum sem aldrei urðu.
Hefnendurnir 12 - Jesúsvision 19.05.2014 1:31:43
Hetjurnar okkar syrgja samfélaga sína í Community, rifja upp samfélagsfælni sína á gaggóárunum og kynna nýjan dagskrárlið sem þeir vita ekki hvað heitir en inniheldur syngjandi fabjúlöss ofurhetjujesú.
Hefnendurnir 11 - Öll vötn falla til Tatooine 12.05.2014 1:13:05
Hulkleikur og Ævor man heimsækja uppeldisstöðvar sínar í Nexus á ókeypis myndasögudeginum og kryfja síðan samband sitt við Stjörnustríð í tilefni May the fourth.
Hefnendurnir 10 - X-mendurnir 05.05.2014 2:10:16
Í sérstökum tvöföldum hátíðarþætti Hefnendanna kafa Hulkleikur og Ævor Man ofaní sögu hinna stökkbreyttu X-manna gegnum kvikmyndir og myndasögur. Xtra blaður! Xtra gleði! Xtra enskuslettur!
hefnendurnir 9 - Ómar Fordsins 28.04.2014 1:12:06
Hetjurnar okkar takast á við nördakvíða og fordóma, komast að því að George R.R. Martin á sér óvænt leyndarmál og að Affleck er mjög góður douchebag.
hefnendurnir 8 - Tár Tortímandans 21.04.2014 1:06:35
Hetjurnar okkar gægjast á glæstan feril Gutenbergs, gæla við gamla Goonies og skammast sín ekkert fyrir það.
Hefnendurnir 7 - Skrímsli fyrir stelpur 14.04.2014 1:16:34
Ævor man vill senda skjaldbökur í nefaðgerð og Hulkleikur vill senda vampírur í ennisaðgerð.
hefnendurnir 6 - Mauramaðurinn í unaðsreitnum 07.04.2014 58:59
Hetjurnar okkar kveikja á ilmkertunum og affrysta ostrurnar er þeir ræða um sjálfsfróun Súpermanns, vergirni Wolveríns og einkamál Elektru í sérstökum kynlífsþætti Hefnenda.
hefnendurnir 5 - Spoiler blús 31.03.2014 55:19
Hetjurnar spá í æxlunarkerfi litlu hafmeyjunnar og fatta að ekki er hægt að ræða spoileralaust um spoilera.
hefnendurnir 4 - Jesús frá Nasaret, konungur torture porns. 24.03.2014 1:03:42
Hulkleikur fattar að það er ennþá erfitt að tala um Woody Allen og fer þess í stað að grenja yfir að vinna ekki Edduverðlaun. Ævor Man fægir Eddurnar sínar með tárum Hulkleiks.
hefnendurnir 3 - The Dawn of the Planet of The Endurgerð 17.03.2014 1:00:41
Hefnendurnir syrgja Harold Ramis og læra að Hollywood er eitt stórt Groundhog Day.
hefnendurnir 2 - Hatrið undir hvolfinu 10.03.2014 1:14:24
Ævor Man og Hulkleikur ræða dauða ástarinnar og sameinast í hrifningu sinni á fljúgandi ellilífeyrisþega.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.