Hefnendurnir

Hefnendurnir

Tv IS ↓ 226 episodes

Podcast by Hefnendurnir

Author

Hefnendurnir

Category

Tv

Podcast website

hefnendurnir.castos.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hefnendurnir 76 - Tælingar Gúmmívenusar 10.08.2015

Ævorman fór í helgarfrí þannig að Hulkleikur fékk gestahefnandann Lóbó (Lóu Hjálmtýs) til að gæða með sér á bláberjum og gaspra með sér um nördaleikfimi, ofurhetjuskriffinsku, þrívíddarklám og hvað það er erfitt að elska teiknimyndir eftir drullusokka.

Hefnendurnir 75 - We get it 03.08.2015

Drengirnir úrræðagóðu hnakkrífast um árstíðir Westeros, skapbresti Bruce Willis, spænskar skopmyndir en bregða svo undir sig leiðari fætinum er þeir minnast látins hryllingsfrumkvöðuls.

Hefnendurnir 74 - Blúndur Blökuhjólsins 27.07.2015

Hulkleikur og Ævorman vígja nýja upptökugræju með mórölskum vangaveltum um kjúklinga, kynjakvóta og krúsarann. Ævorman reynir að útskýra metafýsikina á bakvið meta og Hulkleikur segir eitthvað vafasamt um nasista.

Hefnendurnir 73 - Þúsund andlit Tildu Swinton 20.07.2015

Ofurhetjurnar ódrepandi rísa skeinulausir úr gröfinni til að ræða Súperman með sítt að aftan og muninn á Jackson og Depp áður en þeir gera aðra atlögu að Fantastic Four. Því við vorum ekki búnir að klára að ræða Fantastic Four. Not by a long shot.

Hefnendurnir 72 - Dark Reign 13.07.2015

Í sínum nýjasta þætti reyna hetjurnar okkar að leysa leyndarmál tilvistarinnar, Ævorman opinberar uppljómun sína um lífið, tilveruna og allt og Hulkleikur fer að gráta er hann reynir að skilja ástina í þessum tilfinningaþrungnasta hefnKKZZZCCHHRRZZ … hvaða hljóð var þetta?

Hefnendurnir 71 - Meyfæðingar framtíðarinnar 06.07.2015

Félagarnir fræðast um mauramann yfir meðallagi, hin floppuðu fjögur og skeggsnyrtingar á tuttugustuogfjórðu öldinni áður en þeir afsaka hvað þessi þáttur kom seint.

Hefnendurnir 70 - Júgragarðurinn 29.06.2015

Hulkleikur hringir til höfuðborgarinnar í þynnkuvímu eftir Eistnaflug þar sem hann skemmti sér við að skemmta öðrum og rabbar við Ævorman um ofbeldisleysi á þungarokkssveitaböllum, toppana á nýafstaðinni myndasöguhátíð San Diego og fallvaltleika frægðarinnar, áður en Ævorman lýsir yfir áhyggjum sínum varðandi líkindin milli Júraveraldarinnar og Stálmannsins.

Hefnendurnir 69 - Vélmenna apartheid 22.06.2015

Í nýjasta þætti Hefnendanna Hulkleiks og Ævormanns koma við sögu spanskar eistnaflugur, nýr æðstiprestur þungamálmsins, frekari hugleiðingar um rangleika Cars, sóló Solo og umhverfisvæn steypa. Síðan fabúlera þeir um spinoff af Vöktunum og reyna að gervigreina gervigreind.

Hefnendurnir 68 - Krísa í hundraðlandi 15.06.2015

Hulkleikur og Ævorman láta af innipúkatendensum og taka upp sinn hundraðasta klukkutíma í sól og vindi. Þar ræða þeir óundirbúnir mjög um nýja köngulóardrenginn, látna stórleikarahetju, ömurlega véllöggu og illa þefjandi íkornastúlku, áður en þeir taka fyrir samkynhneigð í ofurheimum.

Hefnendurnir 67 - Þá er ég alinn upp í Gaggó Oz 08.06.2015

Hefnendurnir ljúka lengstu upptöku lífs síns með því að náða Simon Pegg, opinbera verstu kvikmynd íslandssögunnar og minnast þess hvernig það var að vera ekki kúl. Minnast nútímans sumsé.

Hefnendurnir 66 - Hamstrageddon 01.06.2015

Hetjurnar okkar þreyta lengstu upptöku ferils síns með vangaveltum um samband dýra og manna, allar myndir sem eru betri en English Patient og hvort að aðrir en Hefnendurnir eigi rétt á skoðunum sínum um hvað sé flott og hvað sé nott.

Hefnendurnir 65 - March of the Legó typpi. 25.05.2015

Ævorman og Hulkleikur missa tímaskynið og tala of lengi um tilfinningalíf Grettis, húðlit Emmu Steins, stór vandamál í litlu Kína, endurkomu aðalsmannaliðsins og endalok raðmorðingjamömmunar.

Hefnendurnir 64 - Topp 20 bestu myndasögur sem eru ekki ofurhetjumyndasögur 18.05.2015

Í dag þylja Hefnendurnir upp topp 20 bestu myndasögur sem eru ekki ofurhetjumyndasögur í engri sérstakri röð og nei, Sandman er ekki ofurhetja.

Hefnendurnir 63 - We don't need another Heroes 11.05.2015

Hulkleikur heldur framhjá Ævormanni með Ragneto á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg á Patreksfirði. Þeir ræða væntalegt sjónvarpshaust, andsetna kónguló og sannleikann um sannleikann í þessari óleiknu og óskrifuðu heimild um það hámark nördismans sem við köllum Hefnendur.

Hefnendurnir 62 - F-Bomban 04.05.2015

Hellaði Hulli og Æri Ævar bera saman varúlfa og vampýru brækur sínar, hneykslast yfir almyndastiklu og yfirheyra Ollu um HBO Hásætið áður en þeir taka fyrir stelpumynd ársins; Mad Max fjögur.

Hefnendurnir 61 - Mamma þín 27.04.2015

Hefnendur rabba um reiða svörtuekkjuaðdáendur og hvað þeir eru orðnir ruglaðir í flóknum heimi myndasagna áður en þeir kryfja mömmur í myndasögum, sjónvarpsþáttum og bíómyndum til mergjar.

Hefnendurnir 60 - Engifer Reglan 20.04.2015

Hefnendurnir eyða sínum sextugasta þætti í að ræða heitmeyjar Hulks, húðflúr háðfuglsins og heimsku hommahatarans OG ÞEIR VORU AÐ FATTA NÚNA AÐ ÞAÐ ER MAY THE FOURTH OG ÞEIR TALA NÆSTUM EKKERT UM STAR WARS! Goddemmit.

Hefnendurnir 59 - Always Ultron 13.04.2015

Hefnendurnir tveir fara á Hefnendurna tvö og gubba af gleði yfir ástarmálum ekkjunar, betrun bogmannsins og veseni vonda vélmennisins. Olla kíkir í heimsókn og segir skoðanir sínar á stólaleiknum mikla. Excelsior!

Hefnendurnir 58 - Babb Í Brandarann 06.04.2015

Hulkleikur er orðinn gamall. Hann skilur ekki neitt lengur. En sem betur fer skilur Ævorman Hulkleik. Í þessum fullorðinslegasta hefnendaþætti ever, ræða hetjurnar um hiphop, nauðgunarbrandara og flugvelli. Mazeltov!

Hefnendurnir 57 - Kartöflur og salat 30.03.2015

Í nýjasta þætti takast Hulkleikur og Ævorman á um endalok Simpsons söfnunaráráttunnar, hriplekan stólaleik og kíkja í heimsókn til Ólafíu Erlu vinkonu þeirra áður en þeir raðhylla djöfuls djörfungina í nýju Daredevil seríu Netflix og Marvel.

Hefnendurnir 56 - Karlar Sem Hata Nörda 23.03.2015

Hefnendur bana þynnkunni á ísfirsku bístrói með brösulegum árangri er þeir láta dæluna ganga um kirkju vísindanna, fruss prumpsins og flug kraftgallans. Við biðjumst velvirðingar á hljóðinu en þessi þáttur var tekinn upp meðal fólks. Fokking fólk.

Hefnendurnir 55 - Hinsta flug skjaldbökunnar 16.03.2015

Að þessu sinni er þátturinn allur tileinkaður meistara Terry Pratchett, þar sem Ævorman fær til sín góða gesti til að ræða um helstu verk Pratchett, persónur og arfleið sem spannar allan diskinn, allt frá Klatch til Ankh-Morpork, and that’s cutting me own throat!

Hefnendurnir 54 - Who Wants To Liv Forever 09.03.2015

Hugleiðingin og Ævintýrið settu sig í sitthvora útlegðina í sitthvorum landshlutanum að skrifa hugleiðingar og ævintýri. En þeir létu það ekki stöðva sig og hljóðrituðu sitt fyrsta símvarp. Umræðuefnið? Nú auðvitað Liv Tyler.

Hefnendurnir 53 - Pling the ging 02.03.2015

Í extra löngum þætti kíkja hetjurnar keiku í kaffi og velta fyrir sér óþörfum framhöldum, borgarstjórabrölti og myndasögum Millars áður en þeir plinga the ging og halda upp á átján ára afmæli Buffy með pomp og prakt.

Hefnendurnir 52 - They live! (upptaka af live þætti Hefnenda) 23.02.2015

Hulkleikur og Ævorman þurfa að gera upp sakirnar eftir dramatískar vendingar í síðasta þætti og gera það með stæl í fyrstu live upptöku á hefnendaþætti. Að auki koma góðir gestir eins og jarðarbúinn Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og lífskúnstnerinn Jón Mýrdal sem og skemmtiatriði frá Uglu og Sögu úr Ástinni og leigumarkaðinum.

Listen to the Hefnendurnir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.