Hefnendurnir

Hefnendurnir

Tv IS ↓ 226 episodes

Podcast by Hefnendurnir

Author

Hefnendurnir

Category

Tv

Podcast website

hefnendurnir.castos.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hefnendurnir 101 - Resurrection 05.12.2016

Strákarnir snúa aftur til að verma skammdegishjörtu jarðarbúa með léttu hjali um allskonar skemmtilegt dót. Hvaða dót? Nú til dæmis nútímanasista, hina stöðugu baráttu óreiðu og skipulags, hvað Dr. Strange er flott mynd og svo lesa þeir langan lista um sci-fi þætti. Er það ekki bara fínt? Jú.

Hefnendurnir 100 - Hefnendirinn - The Death Of Hefnendurnir 07.03.2016

Í tilefni af sínum hundraðasta þætti ætla Hefnendur að gera það sem þeir gera best… tala… bara það… tala… um allskonar… ekkert gimmick, engir dagskrárliðir, bara tveir hefnendur að tala um hluti. Tali tali tali. Í hundraðasta veldi. Knús og kram! Hulkleikur og Ævorman. Þormóður Dagsson sá um flutning á intróinu að þessu sinni.

Hefnendurnir 99 - Réttarhöldin yfir Hefnendunum 29.02.2016

Réttarhöld eru haldin yfir hetjunum okkar þar sem Ævorman og Hulkleikur þurfa að verja sig gegn ásökunum saksóknarans Erik The Viking og svara fyrir glæpi sína gegn jarðarbúum. Allt er lagt að veði, njósnir, feðraveldið, hár og hunsun í æsispennandi réttardrama og nítugasta og níunda þætti Hefnendanna.

Hefnendurnir 98 - Trek Wars (Live! á Húrra) 22.02.2016

Hefnendurnir stigu upp á svið á Húrra um daginn ásamt Fílalagsbræðrum og fluttu þátt fyrir framan “live studio audience”. Sú taumlausa gleði var tekin upp og nú geta jarðarbúar hlustað á Hulkleik og Ævorman velta fyrir sér verðleikum Jobsanna, hvað Hulli og pabbi hans horfa á saman á kvöldin; og hvort vinnur í slag, Star Trek eða Star Wars? Njótið heil!

Hefnendurnir 97 - Eins og eldgömul sápa 15.02.2016

Eftir hressandi hundasund í Dauðalauginni pæla Hullinn og Ævarinn í pésé húmor, Stebba steik, nýjum Refsara og hetjunum í sviðsljósinu, áður en þeir skella sér í eitt verulega feitt maraþonáhvaðertuaðglápa.

Hefnendurnir 96 - Rödd Rudds 08.02.2016

Hefnendurnir ræða um hvort sé merkilegra umræðuefni, Óskarsverðlaun eða klósettpappír. Svo tala þeir um auglýsingar í súpuskál og fjarlægt fyrirbæri sem kallast ást.

hefnendurnir 95 - Fyndnari á frönsku! 21.12.2015

Ævorman snýr aftur í fang Hulkleiks og þeir tala með munnunum sínum um athyglisbresti, hvítasta óskarinn og fæðingu þjóðar, Kisuna Kevin og ómeðvitaðan brandaraþjófnað.

Hefnendurnir 94 - Ógn Og Scheving 14.12.2015

ÆvorMan er upptekinn við að bjarga heiminum Þannig að Hulkleikur fær Lobo Hjálmtýsdóttur til að halda rassafari hans volgu á meðan. Þau ræða um gagnsleysi giftinga, andlát Alans, orðaleiki Arnolds og einelti gegn elítunni í þessum athyglisverða og athyglislausa þætti.

Hefnendurnir 93 Kommittað Að Koma Með Komment Á Comic Con 07.12.2015

Hetjurnar okkar vafra vammlausar inn í nýja árið og umvafnir vafasömum brókartöfrum púkakóngsins syrgja þeir fallna geimhetju, tala smá um veðrið, taka smá dansútúrdúr og taka síðan á sig rögg til að ræða um gúrmelaði nördahlaðborðs komandi árs

Hefnendurnir 92 - Börnin eru búin, allir eru gamlir (Áramótaannáll Hefnenda 2015) 30.11.2015

Heimsumhullinn og Jólhann Ævar taka fyrir átján af helstu menningarþrekvirkjum ársins sem var að líða í þessum glimrandi skemmtilega, árvissa áramótaannáli hefnenda og halda ennfremar upp á afmæli frelsarans frá Manhattan.

hefnendurnir 91 - Það er auðvelt að fótbrjóta engil 23.11.2015

Hullaskellir og Ævasleikir heyrast símleiðis frá sitthvoru jólaævintýrinu og skeggræða jólasveina, jesú, star wars og önnur trúarbrögð í þessum viðburðarríka vetrasólstöðuþætti.

Hefnendurnir 90 - Það var svo sem auðvitað! 16.11.2015

Gætið ykkar! Nú byrja Hefnendurnir! Í dag fjalla þeir um hvað það er erfitt að vera frægur, bera saman nasista og daleka, óska sér fleiri jólagjafa frá uppáhaldsbúðinni sinni Nexus – áður en þeir halda á vit ævintýranna með epísku spjalli við sveppagreifann Stefán Pálsson um Sval og Val.

Hefnendurnir 89 - Brækur Sean Connery 09.11.2015

Hefnendum gengur brösuglega að hefja nýjan þátt í storminum, en þegar þeir komast af stað fara þeir á flug um kínverska drauga, ó-óviðeigandi framtíðarfatnað og öldrunaráhrif leikstjóra áður en þeir demba sér í kassann með nakta kallinum og gera sér Nexusjólagjafaóskalista. Munið síðan að kíkja...

Hefnendurnir 88 - Ekki borða rauðan snjó 02.11.2015

Hefnendurnir mæta fílelfdir til leiks með flottustu byrjun ever á podcasti. Sem þeir tóku reyndar ekki upp því græjan varð batteríslaus. Oh well. Þetta er samt góður þáttur. Jessica Jones, Hildur Knúts, ofvirkar draumastelpur og töfranegrar.

Hefnendurnir 87 - Later Slater 26.10.2015

Heffararnir gjeffa og gjaffa um bardagalistir Bigga Löggu, þunglyndar kvenhetjur, ómerkilega járnhnefa og mottunet í austurlandahraðlestum áður en þeir gerast stjörnufræðingar í þessum þakkargjörðarþætti þar sem þakkað er fyrir að vita varla um hvað þakkargjörðarhátíð gengur útá. Eitthvað með fótbolta.

Hefnendurnir 86 - Innsetning njósnarans 19.10.2015

Hulli skilur ekki afhverju heimurinn er svona slæmur og Ævar reynir að útskýra það. Þegar þeir eru búnir að fatta hvernig á að bjarga heiminum ræða þeir um tíkarplánetu og Jason Bourne ég meina Jack Bauer ég meina James Bond.

Hefnendurnir 85 - Aldrei er góð China of oft China 12.10.2015

Hulkimons og Ævordúll líta í eigin barm er þeir athuga karlmennsku-einkenni sín, hvaða kvikmyndir kúra skal með kærustum yfir og hvernig þeir geta almennt orðið betri manneskjur og það sem mikilvægara er; betri Hefnendur. China China China China China China China China China China China…

Hefnendurnir 84 - Mó standöpp mó hekklíng 05.10.2015

Hetjurnar okkar skríða undan hrekkjavökuhelginni með fréttir af fleiri ótrúlegum sögum, mítladýrkun sinni og hvernig nasistarnir gerðu allt betra áður en þeir ávarpa ris hinna feykileiðinlegu frammíkalla.

Hefnendurnir 83 - 20 Hryllilegustu Hrollvekjur Sem Við Munum Eftir Í Augnablikinu 28.09.2015

Þjakaðir af valkvíða telja Hulloween og Ævarúlfurinn saman sínar eftirlætis hryllingsmyndir í tilefni af Hrekkjavökunni. Ef þú vilt horfa á eitthvað spúkí eða gorí eða krípí eða bloddí um helgina þá færðu bestu uppástungurnar hér.

Hefnendurnir 82 - Kaldhæðna Salatblandan 21.09.2015

Hugleiðingin og Grímsævintýrið vesenast út í vonda folkið á útvarpi Sögu, pæla í hverjir passa rassa í Ásgarði, fetast útí framtíðarloforð Zemeckis og reyna að ákveða í hverju þeir eiga að vera næstu mánaðarmót.

Hefnendurnir 81 - Betra Er Að Gefa En Adam Sandler 14.09.2015

Hetjurnar okkar knáu ræða glataða gjafmildi, aðdáunarverða ómennsku og myndamyndasögur myrkrahesta áður en þeir dýfa sér á kaf í síðustu söludaga og hina eilífu spurningu; „af hverju Adam Sandler?“

Hefnendurnir 80 - Dýrin Í Latabæ 07.09.2015

Hinn Hugljúfi og Sá Ævislegi setjast niður í alrýmið og gubba úr sér vangaveltum um ofhlæði legósins, fráfall drumbkvendisins og fræðinga markaðsins. En setja svo á sig gáfuhjálminn er þeir gefa forsjárhyggjufasistum og anarkískum terroristum í Latabæ góðan gaum.

Hefnendurnir 79 - Tvö Typpi Og Milljón Mömmur 31.08.2015

Hullsubrauðið og Ævahnúturinn smjatta yfir smávægilegum forgangsatriðum á borð við heilsuvandamál Don Kíkóta, svarta spegilmynd Camerons og Íslenska skrímslamenn í erlendum stiklum en það er aðeinsforrétturinn því í aðalrétt er NOOOOOOOOOOOO!!!!!!

Hefnendurnir 78 - Furryinn í hænsnakofanum 24.08.2015

Hulkleikur er á myndasöguráðstefnu í Noregi þannig að Ævorman sló á þráðinn til hans yfir heimshöfin til að rabba um skyggnar mangastelpur, koddablæti karatemeistara og skilnaðarkrísu geðþekka grínistans Peta Holmes, áður en þeir félagar flytja greinargóða gamanhrollvekjuhugvekju.

Hefnendurnir 77 - Hinn eilífi hvolpur 17.08.2015

Hetjurnar okkar háfleygu sameinast á ný yfir spjalli um Batmanhlutfallið í Súperman mynd, reifa innanhússendurinnréttingar Marvelheima og Ævorman innhverfuprófar Hulkleik – áður en þeir setja upp eldingarvarana og fara að ræða um uppáhaldstrúarbrögðin sín.

Listen to the Hefnendurnir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.