Hefnendurnir
Hefnendurnir
Podcast by Hefnendurnir
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hefnendurnir 126 - Nananananananana Adam 12.06.2017 1:11:22
Hulkleikur og Ævorman setjast í Einarsgarð og ræða pardusaplaköt, nasistanýríki og brotthvarf besta blökumanns bítnikkatímans.
Hefnendurnir 125 - Hashtag feminism 22.05.2017 1:25:27
Hulkleikur og Ævorman ræða um períódur í geimnum, elliæra riddara, sokkaskikkjur og stærsta gamechanger þessa árs, Ungfrú Undur. Hjarta hjarta ex ex.
Hefnendurnir 124 - Rauðhærð og útlæg 15.05.2017 1:08:32
Hulkleikur og Ævorman ræða um hvað er að gerast, hvað þeir eru að glápa á, hvað þeir eru að spila á og minnast moore og boothe.
Hefnendurnir 123 - Doktorsþríleikurinn þrjú : Doktor Allt bú! 08.05.2017 54:53
Sandra Barilli situr með Hullinu og Ævörinni í þriðju lotu epískrar Doctor Who umræðu. Nú er seglum snúið að sitjandi og fráfarandi Doktor: Peter Capaldi. Tímalávarðurinn með hvassa skapið. Klárum þetta! Shut up!
Hefnendurnir 122 - Doktorsþríleikurinn II : Doktor nú þú! 01.05.2017 1:06:15
Sandra, Ævar og Hulli ræða ellefta doktorinn í öðrum hluta doktor who þríleiksins í þessum hundraðtuttugastaogöðrum þætti hefnenda. Frumfluttur á sextánda degi fimmta mánaðar sautjánda árs tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Nei bíddu er þetta ekki átjánda árið? hvernig virka aftur aldamót? Allavega Matt Smith og hans tímaflækjur eru spónaðar í atóm! Geronimo!
Hefnendurnir 121 - Doktorsþríleikurinn I : Doktor Hú? 24.04.2017 1:08:30
Ævarinn, Hullinn og Sandran setjast niður og hljóðrita fyrsta kafla í epískri Doctor Who trilógíu. Í þessum þætti ræða þau hinn skammlífa Eccleston og hinn langlífa Tennant. Fantastic! Allons-y!
Hefnendurnir 120 - Sandrés Önd í yfirhefnslu 17.04.2017 1:13:43
Hulkleikur yfirhefnir Söndru Barilli, lífskúnstner, umboðsmann og Pad Thai aðdáenda. Þau ræða um hvað The Sweetest Thing er vanmetin snilld, hvað litla hafmeyjan kann að gera flotta hársveiflu og hvað garðyrkju-ofurkraftar geta verið gagnlegir.
Hefnendurnir 119 - Brúna Eldingin 10.04.2017 1:06:20
Hulkleikur og Ævorman semja heila bíómynd! Eða réttara sagt semja sögu fyrir heila bíómynd! Eða réttara sagt byrjun að sögu fyrir heila bíómynd. Brúna Eldingin er action ævintýri fyrir alla fjölskylduna ef að öll fjölskyldan er eldri en sextán ára. VRÚMM! VRÚMMM!!
Hefnendurnir 118 - Gwyneth gufan 03.04.2017 1:12:44
Hulkleikur heimsækir Dídí í Lalalandi á meðan Ævorman húkir flensuhokinn heima á klakanum. Með aðstoð framtíðartækni tókst þeim þó að taka upp þátt þar sem rætt er um Nælon og sundlaugarpartí, ömurlega umboðsmenn, poppmenningu draumaborgarinnar og svo er síðasti kapítulinn af Lalasápunni skrifaður af Dröfn á englaryki.
Hefnendurnir 117 - Dottið upp 27.03.2017 1:07:52
Hugleikur og Jóhann Ævar setjast á sviðið á myrkum bar og tjá sig um myrka hluti eins og tuðandi trúða, dútlandi drauga, skápasköp og skrímslasprella og flytja lengstu auglýsingu í sögu Hefnendanna sem by the way eru í boði Nexus. Sem er besta búð í heimi.
Hefnendurnir 116 - Konráðs Saga Barbara 20.03.2017 1:13:55
Hulkleikur og Ævorman spjalla um synglýsingar, myrkraprinsa, mömmur á mars, skítaþorp, svarta sjálfselskendur, gluggaveðursbíómyndir, finnskan typpamassa, íslenskar leðurblökur, áru ofurmenna, uppáhalds ósýnilingar og hefndarklám gegn vondum forsetum.
Hefnendurnir 115 - Frussuprumpið 13.03.2017 49:46
Sökum græjuleysis grípa Hullóan og Ævorið til neyðarúrræðis í upptökutækni og æða síðan með litaleiðréttingarspjaldið sitt í Réttlætisdeildarkitluna, ræða það sem er ofur og van í Désaheimum, áður en þeir rabba bara lúnir um Orkuleysi og hamra á heitum Járnhnefa.
Hefnendurnir 114 - Hlátrinum fórnað 06.03.2017 1:13:42
Hugarangrið og Ævupestin ausa úr passívaggressívum skálum sína á hvimleiðan Járnhnefa, vafasamt Spiderman spinoff og endurjórtrað Matrix. En fljúga þeir að vit hýpóþetískra spurninga um hvort sé mikilvægara; yfirnáttúruleg hugarorka eða túlkun tilfinninga.
Hefnendurnir 113 - BuffyLove Soldiers 27.02.2017 1:14:07
Huffy og Ævgel ræða feit mútantabörn, vondar löggur á íslandi og auðvitað afmælisbarnið sjálft, drottningu drísladrápsins, skrímslaslátrarann frá Sunnydale; Buffy the fokking Vampire Slayer.
Hefnendurnir 112 - Game Over, Man! 20.02.2017 1:12:20
Piltarnir okkar prúðu reka síðasta líkkistunaglalann í Lalalöndunina áður en þeir jarma aðeins um Jarfa, reyna að skilgreina hvaða ofurhetjur eru eiginlega ofurhetjur og pexa síðan um Paxton sem kvaddi okkur alltof snemma nú fyrir skömmu.
Hefnendurnir 111 - Gamli kallinn með umslagið 13.02.2017 1:13:12
Ævor Man skríður niður í Hulkbunkerinn og þeir Hulkleikur horfa á óskarinn ásamt góðum gestum. Nánar tiltekið þeim God of Thránder (Þrándur Þórarinsson) og Kill Billgju (Bylgja Babýlons). Tilfinningar eru tjáðar, taugar kitlaðar og snakkskálar tæmdar.
Hefnendurnir 110 - Hulli 4-ævar 06.02.2017 1:08:59
Hulli og Ævar fara í sjálfhverfasta trúnó allra tíma og tala einungis um Hulla og Ævar. Ævar yfirheyrir Hulla um Hulla og Hulli yfirheyrir Ævar um Ævar. Æ var það ekki? Hull yeah!
Hefnendurnir 109 - Ben Off-leck… heh heh… ekki? 30.01.2017 1:11:26
Drengirnir dágóðu dútla við hvorn annan í drykklanga stund og þræta um hvort er betra, meyja eða ljón? Hvor sé verri, Batman Forever eða Batman & Robin? Hvor er meira sexist, myndasögubransinn eða tískubransinn? Þetta og margt fleira í Hebb! Nenn! Dumm!
Hefnendurnir 108 - Doktor hver nú? 23.01.2017 1:31:21
Krútturassarnir fá Sandrés Önd í heimsókn og þau spyrja hvort annað spurninga eins og: Hvernig fljúga risaskjaldbökur? Afhverju hunsar akademían mútanta? Hver verður næsti doktor? Og í alvöru, hvað er svona gott við La La Land? Ég meina í alvöru? HVAÐ?! Ó vorum við búnir að tala um þetta?
Hefnendurnir 107 - La La Rant 09.01.2017 1:11:06
Hullsubrauðið og Ævarosturinn ræða ljósmyndir af limum, skilning á skaupinu og pönkleysi Potusar áður en þeir rökræða hina ultimate spurningu: hvort er betra, risaeðlur eða dans?
Hefnendurnir 106 - Öskrandi sjálfhverfa grínistans 02.01.2017 1:49:24
Hulkleikur og Ævorman hittast til að kryfja uppáhalds sjónvarpsþætti sína á síðasta ári en fara fjallabaksleið að því eftir eigin höfði, með stuttum stoppum í Razzievík, Hvíta Forn-Egyptalandi og MonkeySpankfirði.
Hefnendurnir 105 - Djöfullinn klæðist normcore 26.12.2016 1:01:38
Drengirnir okkar hugprúðu gera sitt best til að afsaka fjarveru sína síðustu viku en tekst það ekki alveg en í staðinn tala þeir um barnagirnd Súpermanns, bessaleyfi Bryans Singer og sex ég meina níu bestu kvikmyndir síðasta árs.
Hefnendurnir 104 - Hjálpaðu okkur 2017, þú ert okkar eina von 19.12.2016 1:02:58
Hulkleikur og Ævorman reyna að díla við sviplegt fráfall íkonsins Carrie Fisher með veruleikaflótta og hugleiðingum um tímans þunga gang. Þátturinn er seinna á ferð en vanalega. Það var eins og hann tafðist til þess eins að Hefnendurnir gætu kvatt Carrie sem hefur gefið okkur...
Hefnendurnir 103 - Hinn Rjóði Ás 12.12.2016 1:42:55
Hulkleikur og Ævorman ræða eigin sköpunarverk ofurhetjubækur og fangelsisþætti, óskir sínar hvað gjafir varðar og stærstu kvikmynd ársins, Rogue One.
Hefnendurnir 102 - Koss Kapteinsins 12.12.2016 1:42:48
Til að fagna því að uppáhaldsbúðin þeirra í heiminum, Nexus, er nýr styrktaraðili Hefnendanna rifja Hulkleikur og Ævorman upp Nexus sýningar á árinu, tala aðeins um trailera og vafra síðan yfir á jarðsprengjusvæði ofursamkynhneigðar og ástir á stríðslínum á sinn klunnalega en einlæga máta.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.