Hefnendurnir

Hefnendurnir

Tv IS ↓ 226 episodes

Podcast by Hefnendurnir

Author

Hefnendurnir

Category

Tv

Podcast website

hefnendurnir.castos.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hefnendurnir 151 - Critic Bashing Time 01.02.2018

Ævar er í Sví­þjóð að repres­enta land og þjóð þannig að Hulli ræður Lóu sem gesta­Hefn­enda og þau ræða Bobcat Goldthwait, fjar­læga brauðri­star­feður og bróður Búffans í Stand By Me.

Hefnendurnir 150 – Andabæjaraðdáendur 23.01.2018

Hlunk­ur­inn og Járn­mennið halda upp á óvæntan hund­raðasta­og­fimmtug­asta þátt sinn með ofhlæði af athygl­is­bresti, mál­villum og óákveðni. Sand­rés Önd kíkir í heim­sókn og þau ræða allt á milli Abbey og Abba.

Hefnendurnir 149 - General Meryl 15.01.2018

Ævorman og Hulkleikur vígja nýja aðstöðu í Hefnendaturninum með tuði um finnskar/írskar/íslenskar kveðjur, áfengiverslanir og barnaheimili í Enterprise, Berry-kisuna vs Leto-jókerinn og að lokum telja þeir upp besta sjónvarp 2017 Hefnendurnir eru í boði nexus. Nexus: Resistance is futile.

Hefnendurnir 148 - Fúkyrði Prófessorsins 01.01.2018

Ævar og Hulli tala um springfieldskan húðlit, upphafsstef stjörnuferða, dyramottu tímalávarða, kapteinasokka og telja svo upp uppáhalds kvikmyndir sínar 2017.

Hefnendurnir 147 - StarWarsHolidaySpecial 25.12.2017

Hefnendur eru á fullu við að borða alltof mikið af reyktu svínakjöti, opna gjafir og drekka jólaöl til að taka upp venjulegan þátt. Þess vegna ætla þeir að birta í staðinn áður óútgefna upptöku frá því í fyrra. The Star Wars Holiday Special er líklega ein versta mynd allra tíma. Mögulega sú versta. Hún er allavega langversta Star Warsið. Þess vegna ákváðu Hefnendur að horfa á lengstu þekktu útgáfu...

Hefnendurnir 146 - Bangsalundar V Kristalsrefir: Dawn of Nerdrage 18.12.2017

Hefnendárinu lýkur senn og því er viðeigandi að hetjurnar okkar líti um öxl á allt það stærsta sem hefur gengið á, í einum feitum áramótaannál! Þar verður imprað á öllu frá tortímingu og trekki, krípum og myrkraheimum og hæfilegum skammti af undrakonum og gömlum körlum að lesa vitlaus umslög. Að auki fer fram ítarleg umfjöllun um nýjasta kafla stjörnustríðsbálksins og örlög hinsta væringjans. Alwa...

Hefnendurnir 145 - Chrismas Special 11.12.2017

Hulli og Ævar tala um afar spennandi hluti eins og afar mikla ást Hulla á Ævari, afar spennandi prump, það sem Grant Morrison þykir afar gaman að horfa á, afar slæma skinkusamloku, afar óhugnanlega sólmyrkva og afar góðhjartaðar alvöru ofurhetjur.

Hefnendurnir 144 - Í myrkum bjánafjöllum 04.12.2017

Hetjurnar okkar koma seint til leiks þessa vikuna en bjóða upp á tregafulla umræðu um endalok hins myrka alheims, reffilegan refsanda, stjörnustæla Tarantino og líka hvort það sé í lagi að vera leiðinlegur ef maður er að gera list.

Hefnendurnir 143 - M-orðið 27.11.2017

Ævar og Hulli ræða samskiptaleiðir íslenskra dægurgoða, poppkúltúrreferensa framtíðarinnar, muninn á stroke og pool, misskilda mömmufordóma, dónakalla og ljóta brandara.

Hefnendurnir 142 - Gotham of the rings 20.11.2017

Hetjurnar okkar prúðu henda í umræðuveislu um tilvistarkreppu tölvutengja, tilvistarkreppu Hringadróttinssögu, tilvistarkreppu Batmans, tilvistarkreppu treilara og tísera, tilvistarkreppu vídeóleigunnar og tilvistarkreppu flokkanna á kvikmyndum og sjónvarpi. Sartre hvað? *Klíng*

Hefnendurnir 141 -Farðu Louie! Við erum að reyna að tala um Viggó Viðutan! 13.11.2017

Í nýjasta þætti Hefnenda ræða Hulkleikur og Ævorman um mögulegan stjörnuþríleik, dévítans Disneyvæðinguna, óskalistann sinn í myndasögusjónvarpi og ofurkonu að sparka í karlpung. Síðan þarf að ræða aðeins alvarlegri mál á alvarlegri nótum í nýja dagskrárliðnum Æi fokk, seriously? Þú líka?! Afhverju? Dísis fokking kræst hvað er að?!

Hefnendurnir 140 - Rotin Raddbönd (Live) 06.11.2017

Ævarúlfurinn og Hullvítið setjast á TwinPeaks-esque sviðið í hryllingsholunni Húrra og hljóðrita Live bloodcast fyrir framan áhorfendur sem eru fleiri en puttahnífar Freddys en færri en endurkomur Jasons. Þeir ræða byssuleysi grímuklæddra morðingja, sjálfstæð vélmenni og réttdræpar nasistazombíur. Ævar reynir að tala um örlög Corey Feldman en Hulla finnst það of hryllilegt fyrir þetta hryllings-sp...

Hefnendurnir 139 - Ég vild'ég væri orðin lítil fluga! 30.10.2017

Ævar mætir eldsnemma í Hullbunkerinn og þeir ræða lélegustu endurgerð ársins, sumé kosningarnar og stórasta land í heimi, sumsé Asgard (Ekki Ásgarð því það er munur á Asgard og Ásgarði). Svo reyna þeir að fatta hvort 2049 sé klámvætt eða feminískt ár og svo koma auglýsingar. Og hvílíkar auglýsingar! Og meira. Ágætur þáttur sko.

Hefnendurnir 138 - Pabbafliss 23.10.2017

Hulli er með of bilaðan heila til að podcasta en Ævar kveikir samt á upptökutækinu og þeir tala um bókasafnsbiturð skrípasöguskálds, skyggn augu með heyrn, rasisma og hvernig kvikasilfur getur bjargað heiminum.

Hefnendurnir 137 - How to get a head in Bransanum 16.10.2017

Hulli litli og Ævar mikli tjatta um snapp, geymslupláss í geimnum, óstartreklegt startrek og skáldað byssuofbeldi í byssuofbeldisveruleika.

Hefnendurnir 136 - Ekki kúl 09.10.2017

Hulkleikur er með flensu og Ævorman kemur í heimsókn til að hressa hann við með rabbi um tilgangsleysi slagorðagríns, öfugþýðingar og andstöðurangstæðu, en líka aðeins um alla þessa káfandi kúkalabba í Hollívúdd.

Hefnendurnir 135 - Yfirhefnsla : Andrea Björk Andrésdóttir 02.10.2017

Hulkleikur yfirhefnir Andreu Björk; Hönnuð, leikstjóra, animator og almennan flippara um glyðrulega fugla í Lumbruskógi, foreldrakynlíf og fimmta frumefnið.

Hefnendurnir 134 - Fanforum forarfen! 25.09.2017

Hefnendurnir babbla um danska hönnun í geimnum, stuðboltastelpu með mjaðmir, legsteinaletur og bestu kóngaræmurnar áður en þeir fara í spoileriffic greiningu á mömmumyndinni þarna sem er að gera allt vitlaust.

Hefnendurnir 133 - Jó(Pesci)kerinn 18.09.2017

Hulkleikur og ÆvorMan rökræða um allt sem skiptir máli. Þar á meðal Emmy verðlaunin, Scorsese Jókerinn, fráfallinn költ karakter, hrædda karlmenn í kvikmyndahúsum og margt fleira. Allt mjög marktækt og vestfirskt.

Hefnendurnir 132 - Allt sem þú vildir vita um Sous Vide, en þorðir ekki að spyrja um 11.09.2017

Hulkleikur og ÆvorMan skeggræða öryrkja-arkítektúr, 11/9, Del Toro prumpið, list í list, ítölsk kvennamorð, of ungan gamm og venjulegheit Howards, skálandi í vatni með útsýni yfir hallargarð ÆvorMans.

Hefnendurnir 131 Ó, Lou 04.09.2017

Hulkleikur og ÆvorMan taka þátt í umræðunni um umræðuna en snúa sér að miklvægari málefnum eins og tölvuleikja anime áNetflix, vaktmenn DC heimsins og hvað Hulli glápti á í góða veðrinu.

Hefnendurnir 130 - The Day The Clown Tried 10.07.2017

Hulkleikur og ÆvorMan tala um ófullnægjandi staðgengla mútanta, minnast fráfallina grínista, hryllingskokka og borgartraðkara og vangavelta hvað sé bestverst og hvað sé verstbest.

Hefnendurnir 129 - Drazzle! 03.07.2017

Hulkleikur og ÆvorMan koma ferskir úr fríinu til að ræða fasískar hliðarvíddir, meinta hræsni vampírubanaskaparans og fara svo yfir allt feita sjittið sem San Diego comic con lofaði þeim í treileraformi.

Hefnendurnir 128 - Smjörkubbsvafflan V Logagrettan: Dawn of Sumarfrí 26.06.2017

Hulkleikur og Ævorman fara saman í bíó og hljóðrita reynsluna. Þeir ræða nineties kóngulær, trumpaða kapteina, strákastelpur með fjólubláa lokka, ameríska guði og barnabílstjóra. Svo fara þeir í sumarfrí! Heyrumst aftur í haustmyrkrinu!

Hefnendurnir 127 - 20 bestu ekki-ofurhetju-myndasögumyndir ever 19.06.2017

Hulkleikur og Ævorman telja upp bestustu og sniðugustu og flottustustu myndasögubíómyndirnar sem eru ekki byggðar á ofurhetjumyndasögum.

Listen to the Hefnendurnir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.