Hefnendurnir

Hefnendurnir

Tv IS ↓ 226 episodes

Podcast by Hefnendurnir

Author

Hefnendurnir

Category

Tv

Podcast website

hefnendurnir.castos.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hefnendurnir 176 - Látum þá deyja eina 07.11.2018

Hulli hinn hvíti kíkir í heim­sókn til Ævars hins gráa og þeir fara yfir sam­þykki Egils Ólafs, písl­ar­göngu Ofur­hug­ans og hlut­lausa kjúklinga­vængi. Hefn­end­urnir eru í boði Nex­us. Nexus er aðal.

Hefnendurnir 175 - Díónýsus Kræst og Sigh Guy 31.10.2018

Hetj­urnar okkar hitt­ast á ný í hefn­enda­höf­uð­stöðv­unum eftir helj­ar­ferða­lag um heims­ins lendur og henda í hug­leið­ingar um hrekkja­vöku, Hicks og Hetjur til leigu, ásamt almennu húll­um­hæi. Hefn­end­urn­irnir eru í boði Nex­us, auð­vit­að.

Hefnendurnir 174 - Mandalórinn Tormelti 24.10.2018

Hulli og Ævar eru í sitt­hvorri heims­álf­unni og ná engu sam­bandi við hvorn ann­ann. En ótt­ist eigi, Jarð­ar­búar fríð­ir, því Hefn­end­urnir luma nebblilega á ýmsu óáð­ur­birtu góð­gæti. Þar á meðal bubblandi bíó­ferð á "rán­dýr"a mynd og babbl um Boba með Andreu Björk. Hefn­end­urnir eru í boði Nex­us. Nexus > Allt.

Hefnendurnir 173 - Doktor Bacon 17.10.2018

Hug­leikur heim­sækir Andreu Björk og kött­inn hennar í Berlín og þau ræða Saurugan Dexter, Sprungna eit­ur­lyfja­smokka og Bún­ing Blöku­kon­unn­ar. Hefn­end­urnir eru í boði Nexus og Nexus er næs to the max.

Hefnendurnir 172 - Prancing Pony Part Deux 09.10.2018

Þið eruð ennþá stödd á bar. Hul­k­leik­ur­inn og Ævor­mann­inn eru komnir í Irish Cof­fee og hætta ekki að láta gamm­inn geysa um sín hjart­ans mál. Og panta fleiri drykki.

Hefnendurnir 171 - The Prancing Pony 02.10.2018

Þið eruð stödd á bar. Ævar “Dean Mart­in” Gríms­son og Hug­leikur “Scor­sese” Dags­son sitja í einu horn­inu, sötra svart öl og ræða um til­finn­inga­gáfur í dýflissum, klám­mynda­gláp á stefnu­mótum og kosti þess að vera með fram­heilaskaða.

Hefnendurnir 170 – Miðgarðsormarnir 25.09.2018

Ævorman og Hul­k­leikur voru með live podcast á Midgard 2018 þar sem þeir ræddu um dag leð­ur­blök­unn­ar, und­ar­legar ofur­hetjur og auð­vitað hvort að Súperman sé með rass­gat.

Hefnendurnir 169 - Thanos í Sumarhúsum 18.09.2018

Hulli og Ævar bregða sér saman í bíó til að ná Mission Impossi­ble 6 áður en hún hættir í bíó. Á leið­inni þangað og til baka ræða þeir um tengsl Central Perk og Etern­íu, skort á dúfna­dauða í Woo myndum og radd­missi James Bond.

Hefnendurnir 168 - Slæmur Slaufu Slæmer 11.09.2018

Hull­inn og Ævar­inn hita upp fyrir midgard með masi um fréttir frá síð­asta sum­ri, staf­rænan spæder­mann, burt­reiðar og enda­lok ævin­týra­tím­ans.

Hefnendurnir 167 - Glápur og Skrápur 06.09.2018

Hetj­urnar okkar halda áfram end­ur­kom­unni með spá­nýjum þætti þar sem farið verður yfir allt glápið sem gerð­ist og það sem að gerð­ist en aðal­lega glápið sem gerð­ist.

Hefnendurnir 166 - Antmansstígur 30.08.2018

Sumarfríð er búið! Hefnendur snúa aftur til jarðar! Ævar hinn myndarlegi og Hulli minnast sumarsins sem var að líða. Sem var basically bara Antman og Rigning. Við biðjumst velvirðingar á leininlegu hljóði sem er Hulla-megin þegar þeir eru að tala netleiðis við hvorn annan. Auðvitað Hulla-megin. Týpískt Hulli.

Hefnendurnir 165 - Mátturinn og slímið 06.06.2018

Hetj­urnar okkar syngja sig inn í sum­ar­frí með söngvum sínum um ímynd­aða vini, Har­vey hor­r­or­myndir og frægð­ar­bond, ásamt því að koma að töff skóm og mun­inum á guði og mætt­inum og stóra plan­inu. Hefn­end­urnir eru í boði Nexus

Hefnendurnir 164 - Infinity Pool: A Star Wars Story 30.05.2018

Ævar hinn sann­gjarni og Hulli hinn súri fara aftur í bíó og taka upp ger­sam­lega skammar­laust og drullu­spillt spjall um sprengj­urnar sem skullu á strendur skyn­færa þeirra síð­ustu vik­urn­ar. Nánar til­tekið Aven­gers: Infinty War, Dead­pool 2 og Solo: A Star Wars Story. ARÚÚÚGAH SPOLER ALERT.Hefn­end­urnir eru í boði nex­us. Nex­us: Það er aðeins einn guð.

Hefnendurnir 163 – Laminn í talfærin 15.05.2018

Hulli og Ævar nú hitt­ast á ný. Komnir loks saman eftir smá­ræðis frí. Þeir ræða um hitt og ræða um þetta, Rambó hinn fimmta og Billa og Tedda. og auð­vitað eitt­hvað sem rímar við ný.

Hefnendurnir 162 - Drax í dag 02.05.2018

Í óvenju stuttum en að venju skemmti­legum þætti fara Hul­k­leikur og Ævorman í bíó með Thand­rosi og Nebóla, reyna að muna hver þessi Dra­kúla er aft­ur, spyrja reykj­andi nörda útí tví­vídd, og meta með­limi Star Wars heims­ins út frá hæð og með­limi mar­vel­heims­ins út frá kyn­þokka.

Hefnendurnir 161 – Miðgarðsormapytturinn 24.04.2018

Gest ber að garði í Hefnendaturninum þar sem Svenni í Nexus kemur til að kynna hvað er á döfinni á næstunni í musterinu. Að auki er komið inná lagaflækjur óða Max, kynlífskölti vinkonu ofurmennisins, illan dauða öskukallsins og komandi ráðstefnu njarðahjarðarinnar, Midgard!

Hefnendurnir 160 – Gaurinn sem drap Mozart 17.04.2018

Hetj­urnar okkar knáu sam­ein­ast á ný í Hefn­enda­turn­inum til að tjá sig um ofsótta elli­goð­ið, Nor­bit­inn Pana­ma­prins, Billy eitt­hvað og ógild­ingu gór­illu­apa­mets­ins hans og sprengju­hótun steik­ar­inn­ar. Og svo er fán­inn dreg­inn í hálfa stöng fyrir tvo nýfallna meist­ara

Hefnendurnir 159 - Vampíruzombíur Vs Zombíuvampírur 11.04.2018

Ævorman í borg ótt­ans og Hul­k­leikur í frið­ar­dalnum ræða sím­leiðis um bit krútt­hnífs­ins, rödd leð­ur­blök­unn­ar, harm­leik svart­höfða, tán­ingsár úlfs­ins og spi­el­berg­mynd­ina sem spi­el­berg spi­el­berg­aði í feitt spi­el­berg. Hefn­end­urnir eru í boði nex­us. Nex­us: Það er aðeins einn guð.

Hefnendurnir 158 - Kanil Spice 27.03.2018

Í Hefn­enda­turn­inum hitt­ast hetj­urnar Hul­k­leikur og Ævorman til kjafta í kaffi­pásu um heima og geima. Þar á meðal frænda­lista­sam­fé­lag­ið, fjór­gó, krydd­legnar ofur­hetj­ur, húlíg­ana og dóms­dokt­ora, áður en allt endar svo á suðu­punkti í sundr­andi söng­leikja­spjalli.

Hefnendurnir 157 – Öfundarréttur 21.03.2018

Hetjurnar okkar taka fyrir Ríkharðlífi Harmon, endalok Ævintýratímans, endurgerðan brjálaðan búálf og útvíkkaða Draumaheima ásamt umræðum um viljandi og óviljandi dónaskap og meistarmánaðagláprestarnar hans Hulkleiks

Hefnendurnir 156 - He-Man Íslands 13.03.2018

Ævorman og Hul­k­­leikur ræða um risa í heim­ilda­­myndum og tölvu­­leikj­um, þrumuguði í froska- og kven­­líki og eft­ir­­sjá­r­verða and­­ar­­gogga í Mar­vel og Star Wars. Hey bara enn einn drulluslaki dag­ur­inn í Hefn­enda­t­urn­in­­um. Hefn­end­­urnir eru í boði Nex­us. Nex­us: Res­istance is futile.

Hefnendurnir 155 – Marbendlaður við Óskarinn 06.03.2018

Ævar og Hulli ræða náms­feril Eriks Kill­mon­gers, tíma­ferða­lög Kobba Kviðristu, Besta hlut­verk Rockwells, gleymda minn­ingu West og ást­ar­ljóð Del Toros.

Hefnendurnir 154 – Þagnarræðan 01.03.2018

Hulli snýr aftur frá Berlín og hann og Ævar ræða um úrslit Edd­unn­ar, allt þetta dót sem er búið að vera að ger­ast síðan þeir hitt­ust síð­ast, leið­rétta sjálfa sig og hlusta síðan á þakk­ar­ræð­una sem heyrð­ist ekki. Svo halda þeir í myrkviði Pardus­dýrs­ins.

Hefnendurnir 153 - Þetta Eddast! 13.02.2018

Hetj­urnar okkar hitt­ast á ný eftir langa fjar­veru frá hvorum öðrum, fall­ast í faðma og ræða um víð­feðmt umfjöll­un­ar­efni eins og kodda­lausar flug­far­ir, meint fánýti fag­verð­launa, illa hirta þús­ald­ar­fálka, brynju­klædda brjóst­vöðva og auð­vitað Lobay.

Hefnendurnir 152 - Ásgeir Kolberbatch 06.02.2018

Ævar er með Stokk­hólms­heil­kenni þannig að Hulli fær Lóu Hjálmtýs aftur sem gesta­Hefn­enda og þau ræða dverg­vaxna Íslands­vini sem borða fólk, nineties leikkonur sem trufla tíma­línur og upp­stökka ung­linga sem engj­ast í und­ir­með­vit­undum upp­kom­inna ein­stak­linga.

Listen to the Hefnendurnir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.