Hefnendurnir
Hefnendurnir
Podcast by Hefnendurnir
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hefnendurnir 202 - Suck my fat one 16.01.2026 1:28:28
Hetjurnar okkar láta sig dreyma um útópískt rækjugúmbó, telja saman fjóra fræknustu fjarkana, melta möguleg marvelísk memberber og segja sjáumst við skrítnari hluti.
Hefnendurnir 201 - Gullna Glápan 2025 09.01.2026 1:18:10
ÆvorMan og Hulkleikur veita bíómyndum og sjónvarpsþáttum síðasta árs virtustu ímynduðu bransaverðlaunin landsins.
Hefnendurnir 200 - Close Encounters of the 200th Kind 12.12.2025 2:27:47
ÆvorMan og Hulkleikur halda uppá 200 þátta afmæli með jarðarbúum! Þeir ræða leðurblökur verkalýðsins, slaufuð sagnaskáld, gikkjagleði Hans Óla, partý á öðrum plánetum, sundhallarakyttur, disneydýrablöndur, þrífætta fimmtudaga, leiðinlegar ljósmyndadúkkur, greddu Svals, mennskar sjálfshjálpargeimverur, húðflúraða jólasveina, bennatvennur, sverð, sandala, seiðkarla og íþróttir.
Hefnendurnir 199 - Gormur Ex Machina 05.12.2025 1:29:22
Hetjurnar okkar jafna sig á spurningakeppnis-tráma, fara yfir best of lista sem einhver leikstjóri útí bæ gerði og undirbúa sig undir 200 þátta afmæli.
Hefnendurnir 198 - Udo er ævintýri 28.11.2025 1:30:26
Hetjurnar okkar syrgja Udo og Larry, skrifa ímyndað bréf til Tarantino og spyrja hvorn annan ofurhetjuspjörunum úr.
Hefnendurnir 197 - Klikkaðar beitur 21.11.2025 1:18:16
Hulkleikur og Ævorman kryfja kveðju Indjána Jóns, brjálast yfir internetbrjáli, eru down with the Downton og mæla með morð-róbótum og róbóta-risaeðlum.
Hefnendurnir 196 - Muna að brjóta nabbann 14.11.2025 1:32:47
Hulli og Ævar baða sig í fortíðarþrá. Fyrst í fjarlægri VHS nostalgíu og svo í nýlegri gláps-upprifjun og komast að óvæntri niðurstöðu um besta marvel þáttinn.
HEFNENDURNIR 195 - The Return of the Saga Continues: The Next Chapter 07.11.2025 1:10:39
Ævor Man og Hulkleikur hafa engu gleymt og snúa aftur eins og ekkert hafi í skorist og tala um framtíð Star Wars, tilvistarkreppu Doctor Who og smekk Marge Simpson.
Hefnendurnir 194 - Hefndurminningar, þriðji hluti 02.12.2020 1:21:13
Hetjurnar okkar halda ótrauðar áfram í upprifjun sinni á tímans rás til að hita upp fyrir spánýja þætti á Storytel.
Hefnendurnir 193 - Hefndurminningar, annar hluti 20.11.2020 1:41:50
Hulkleikur og Ævorman halda áfram niður braut hefndurminninganna í undirbúningi fyrir hefndurkomu Hefnenda á Storytel. Hvað ætli þeir muni í þessum þætti?
Hefnendurnir 192 - Hefndurminningar, fyrsti hluti 17.11.2020 1:23:18
Reboot Hefnenda er handan hornsins og í tilefni þess minnast Hulli og Ævar sinna fyrstu ævintýra sem gerðust fyrir alveg aðeins meira en hálfum áratug síðan.
Hefnendurnir 191 - Kardebombubærinn 23.10.2020 1:09:30
Hulkleikur snýr aftur á klakann og Ævorman treður í hann hamborgurum og bláberjum. Þeir gera sitt besta til að sigrast á kjötsvimanum á meðan þeir ræða um skáskot Jada Pinkett-Smith, Rómarveldið Abrams og mögulegar stafsetningarvillur í víkingaleikjum, áður en Hulli egnir til slagsmála með feitri bombu um Kardemommubæinn.
Hefnendurnir 190 - Átótjúnað bíósuss 25.08.2020 1:03:37
Ævormann býður Hullann velkominn frá plánetunni Ber-Lin yfir í Stark Tower, þar sem þeir taka fyrir mikilvægustu málefnin, nemlig: Battinson, Sjálfsmorðsliðana og annað désadæmi… og tala síðan aðeins um eina af dauðasyndum bíógláps: að tala meðan ÉG ER AÐ REYNA AÐ HORFA!
Hefnendurnir 189 - Tóm Knús 29.06.2020 1:23:36
Hetjurnar okkar hittast yfir frelsisöli til að ræða um póstkví, blakkfeisoff, smitfaðmlög og Dale Carnegie handabönd og þessa óþolandi áráttu sumra til að vera stöðugt að gefa manni óumbeðin power move kreistuknús!
Hefnendurnir 188 - 28 dögum síðar 10.04.2020 58:37
Strákarnir tuða um sitthvora innipúkaiðjuna úr sitthvorri sóttkvínni. Báðir öruggir og óbreyttir sökum þess að félagsfælin einvera er ekki beint ótroðin slóð hjá þessum sjóuðu njarðaprinsum sem kalla sig Hefnendurna. Stay safe, Jarðarbúar!
Hefnendurnir 187 - Þegar allt lék í lyndí hopp 10.04.2020 44:53
Í þessari ævafornu en samt bara 28 daga gamalli upptöku, ræða Hefnendurnir okkar um hva þessi vírus er sooo not all that. Svo tala þeir líka um hvað þeir hlakka til júróvision og hvað Outbreak er ómerkileg mynd. It was a different time.
Hefnendurnir 186 - Paradís lost 30.01.2020 1:02:18
Feigðin hangir yfir Bíó Paradís og hræfuglar eru byrjaðir að hringsóla í kringum það eins og einhvers konar leigusalar. Hulkleikur og Ævorman taka svona fréttum ekki þegjandi, enda velunnarar og klappstýrur menningarjötunnar sem Bíó Paradís er. Nema Ævorman hljómar töluvert verr en Hulkleikur, vegna þess að hann er veikur og svo var einhver gaur að bora í næstu íbúð og allskonar.
Hefnendurnir 185 - Haltá Ketti 08.01.2020 58:05
Ævorman langaði eiginlega bara að gera eitt í Berlín. Hann án djóks talaði eiginlega ekki um annað; Fara í bíó með Hulkleiki til að horfa á Cats. Og síðan að tala um það. Tala rosalega mikið um það vegna þess að það er furðulega mikið til að tala um. Þessi mynd? Þessi mynd!
Hefnendurnir 184 - Star Wars, maður 08.01.2020 47:41
Skywalker sagan skráði sinn hinsta kafla samkvæmt Disney um jólin og Hefnendurnir okkar kíktu í bíó eins og öllum sönnum lærisveinum máttarins er ljúft og skylt. En hvað þýða ljúfsár endalokin um framhaldið? The force is dead and no one cares. If there is a mustafar I’ll see you there.
Hefnendurnir 183 - Party like it's neunzehnhuntertneunundneunzig 08.01.2020 1:42:38
Hulli flutti til Berlínar, en Ævorman er ekki af baki dottinn heldur lagði land undir fót og mætti heim til hullsubrauðsins til að gefa jarðarbúum góða byrjun fyrir Cyberpunk árið sem gengið er í garð. Afraksturinn er 3! (þrír) sjóðheitir þættir til að hámheyra, Netflix style! Hulkleikur og Ævorman eru búnir að vera seinir allt ár. Svo seinir að þeir koma með uppáhaldsmyndirnar sínar á síðasta ári...
Hefnendurnir 182 - Annie Lennox prófið 04.09.2019 1:24:12
Hulkleikur og ÆvorMan eiga fund í Grímsson Tower og velta vöngum yfir ímynduðum boltaleikjum í ódæmigerðu lögregluríki, velja topp 2 kvikmyndir sem batna við mute takkann og veðja uppá flottann kall. Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus. Það er svo best sko.
Hefnendurnir 181 - Manhattan ójafnvægið 27.08.2019 1:15:32
Hulli hinn hvíti og Ævar hinn grái hafa ekki fært á sér bossana síðan í síðasta þætti því þeir hafa bara og mikið að segja. Þar á meðal sitthvað um eigið sköpunarferli, emo ofurhetjur með daddy issues og leiðarlok Luke Perry. Við biðjumst velvirðingar á skruðningunum sem heyrast í þessari upptöku. Það er líklega bara draugur.
Hefnendurnir 180 - Bavíaninn sem át móður sína 21.08.2019 1:22:57
Eftir allt of langan dvala skríða tveir stírublindir Hefnendabangsar úr hýði sínu og ræða húmorsleysi Svía og sáðlát Aquamans og að sjálfsögðu rýna þeir eldfast í endalok mikilvægasta nördafyrirbæris síðari ára: Big Bang Theory.
Hefnendurnir 178 - Neandercool 13.12.2018 1:06:23
Hefnendurnir fara tvisvar í bíó! Fyrst á garlakallamynd og svo á hjólhúsamynd! Það var nú aldeilis gaman. Í bílferðum sínum ræða þeir meðal annars um magíska munnkossa, ferðir Ted Dansons og örvar kúbids. Hefnendurnir eru í boði Himnaríkis… ég meina Nexus. Same thing.
Hefnendurnir 177 - Stan Lee er dáinn og þetta er þátturinn um það 28.11.2018 1:28:42
Hulli og Ævar minnast nýfráfallins skapara skaparanna og ná samt eitthvað að tuða um aðra hluti sem skipta minna máli. En það er náttúrulega bara eins og þeir eru.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.