RÚV
Geðbrigði
Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Notendastýrð þjónusta og skjólshús 22.12.2024 41:41
Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Geðþjónusta Landspítalans er að innleiða þjónustu við fólk með geðræn veikindi þannig að sjúklingarnir sjálfir meti þörf sína fyrir innlögn á spítalann. Með því á að fyrirbyggja alvarlegri veikindi og fækka komum fólks á bráðamóttöku. Í 10. þætti Geðbrigða er fjallað um þessa nýju þjónustu og skjólshús þar sem áherslan er líka á notendastýrðar lausnir. Viðmælendur er...
Átraskanir 26.01.2024 50:50
Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Í níunda þætti er fjallað um átraskanir sem eru alvarlegir langvinnir geðsjúkdómar sem einkennast af miklum truflunum á mataræði. Viðmælendur eru: Angela Haydarly, Elín Vigdís Guðmundsdóttir, Heiða Rut Guðmundsdóttir og Sigríður Elín Jónsdóttir. Dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson. Umsjón og handritsgerð: Guðrún Hál...
Jaðarpersónuleikaraskanir 19.01.2024 50:01
Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Í áttunda þætti er fjallað um jaðarpersónuleikaraskanir. Jaðarpersónuleikaröskun (border line) er geðrænn vandi sem einkennist af slakri tilfinningastjórn, breytilegri sjálfsmynd, hvatvísi og samskiptavanda. Viðmælendur eru: Dröfn Árnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir, Inga Wessman og Nína Eck. Dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Á...
Málefni trans fólks 12.01.2024 52:36
Þáttaröð um geðheilbrigðismál. Í sjöunda þætti er fjallað um málefni trans fólks. Þó svo transteymin séu hýst á geðsviði Landspítalans þá er það ekki geðsjúkdómur, eða sjúkdómur yfirleitt, að vera trans eða kynsegin og allur vafi var tekinn af um það í lögum um kynrænt sjálfræði. Viðmælendur eru: Alexander Björn Gunnarsson, Björn Hjálmarsson, Marta Jóns Hjördísardóttir, Ólöf Bjarki Antons og Sigrí...
Breyttar áherslur í geðheilbrigðiskerfinu 27.01.2023 57:16
Í sjötta þætti er fjallað um breyttar áherslur í geðheilbrigðiskerfinu og hverju bæði sérfræðingar og fulltrúar notenda telja mikilvægt að breyta þegar að kemur að þjónustu við fólk sem er með geðsjúkdóma. Viðmælendur í þættinum eru Elín Ebba Ásmundsdóttir framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs og varaformaður Geðhjálpar, Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun, Nanna Briem framkvæmdastjóri g...
Áföll og afleiðingar þeirra 20.01.2023 55:11
Í fimmta þætti er fjallað um áföll og afleiðingar þeirra í lífi fólks. Viðmælendur eru Berglind Guðmundsdóttir yfirsálfræðingur á geðsviði Landspítalans, Jokka G. Birnudóttir ráðgjafi, Karl Kristján Davíðsson myndlistarmaður, Sigrún Sigurðardóttir dósent við Háskólann á Akureyri og Vigfús Bjarni Albertsson, forstöðumaður sálgæslu og fjölskylduþjónustu kirkjunnar. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir, Ma...
Fjórði þáttur 13.01.2023 52:57
Í fjórða þætti er fjallað um nauðungarvistanir, bæði frá sjónarhorni þeirra sem starfa á geðdeildum og þeirra sem hafa verið nauðungarvistaðir. Viðmælendur í þættinum eru Elín Atim sem situr í stjórn Geðhjálpar, Guðrún Dóra Bjarnadóttir yfirlæknir á meðferðardeild geðrofssjúkdóma, Jóhanna Þórisdóttir hjúkrunardeildarstjóri á bráðageðdeild og Páll Matthíasson geðlæknir. Umsjón: Guðrún Hálfdánardótt...
Þriðji þáttur 06.01.2023 57:22
Í þriðja þætti er fjallað um geðrof og geðrofssjúkdóma. Viðmælendur eru Ágústa Ísleifsdóttir sem er með geðrofssjúkdóm, Halldóra Jónsdóttir yfirlæknir á meðferðareiningu geðrofssjúkdóma, Halldóra Víðisdóttir, deildarstjóri göngudeildar geðrofssjúdóma, og Styrkár Hallsson sálfræðingur á geðsviði Landspítalans. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir, Margrét Manda Jónsdóttir og Tómas Hrafn Ágústsson.
Annar þáttur 16.12.2022 53:05
Í öðrum þætti er fjallað um þjónustu við aðstandendur þeirra sem fást við geðræn veikindi og hversu mikilvæg hún er fyrir alla aðstandendur, hvort sem er börn eða fullorðna. Viðmælendur eru Eydís Sveinbjarnardóttir, dósent við Háskóla Íslands, Gunnlaug Thorlacius, yfirfélagsráðgjafi á Landspítalanum, Sigríður Gísladóttir framkvæmdastjóri Okkar heims og Sigurveig Sigurjónsdóttir Mýrdal hjúkrunardei...
Fyrsti þáttur 09.12.2022 55:56
Í fyrsta þætti er fjallað um þunglyndi, hvaða meðferðir og úrræði eru í boði og hvaða árangri þau skila. Viðmælendur eru Dagur Bjarnason geðlæknir í geðheilsuteymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Engilbert Sigurðsson, yfirlæknir geðþjónustu Landspítalans, Erla Björg Birgisdóttir sálfræðingur og teymisstjóri þunglyndis- og kvíðateymis Landspítalans, Guðrún Edda Hauksdóttir deildarstjóri móttökuge...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.