gurrytorfa
Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa
Samtal við konur um heilsu og lífið sjálft. Konur búa yfir mikilli visku og við ætlum læra af hvor annarri með því að deila sögum og reynslu af því sem lífið hefur boðið uppá. Ekki halda þetta verði allt voða formlegt því það er ekki minn stíll. Auk verða heilsuráð og slökunaræfingar frá Gurrý.
Author
gurrytorfa
Category
Podcast website
Latest episode
Mar 22, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fimm atriði sem hjálpa þér að borða betur. 22.03.2026 5:20
Í þessum stutta þætti fer ég yfir 5 einföld atriði sem geta hjálpað þér að borða betur. Ekki flókið mataræði eða reglur sem er erfitt að fylgja – heldur hlutir sem ég hef séð virka aftur og aftur hjá konum sem vilja líða betur í líkamanum sínum. Við förum yfir hvernig litlar breytingar, eins og að borða reglulega, fá nægilegt prótein og undirbúa sig aðeins fram í tímann, geta haft meiri áhrif en v...
þegar heilbrigður lífstíll býr til streitu 15.03.2026 19:42
Í þessum þætti langar mig að tala um eitthvað sem ég sé stundum hjá konum í dag. Við vitum meira um heilsu en nokkru sinni fyrr. Við vitum hvað við eigum að borða, við vitum að við eigum að hreyfa okkur og passa svefninn – en stundum verður heilbrigður lífsstíll líka að pressu. Hvernig gerðist það að eitthvað sem átti að láta okkur líða betur varð stundum að öðru verkefni á to-do listanum? Í þætti...
líkaminn fer ekki í uppnám af ástæðulausu. 07.03.2026 18:01
Við reynum oft að halda áfram þó líkaminn sé að senda merki. Við vinnum meira. Hugsum um aðra. Reynum að vera sterkar. En líkaminn safnar öllu sem við upplifum – streitu, álagi og tilfinningum sem fá ekki rými. Í þessum þætti ræðum við hvernig líkaminn talar við okkur þegar eitthvað þarf að breytast, og hvernig heilun byrjar oft ekki í huganum heldur í líkamanum sjálfum. Við getum hjálpað líkamanu...
Emilía og Gurrý: Sumarkveðja frá Tene með tengdadótturinni 23.06.2025 25:25
Ég er farin í sumarfrí og við Emilía sendum ykkur kveðju frá Tene, stay strong and healthy og hafðu gaman ❤️❤️
Þáttur 3: Ayurveda Kapha Dosha 26.05.2025 15:27
Kapha dosha er uppáhalds fólkið okkar 😍 Hlýjasta og traustasta fólkið er með ríkjandi Kapha. Enn þær þurfa að passa rosalega vel uppá mataræðið og svefninn 🙏
Gurrý: þáttur tvö af þremur um Ayurveda. Annað Doshuspjall er um Pittudoshu 16.05.2025 13:08
Þessi þáttur er um Pittu doshu sem er eldurinn í okkur.
Gurrý: Þáttur eitt af þremur um Ayurveda. Fyrsta Doshuspjall er um Vötudoshu. 03.05.2025 16:51
Öll höfum við allar þrjár Doshur í okkur en oft er ein ríkjandi, þá getur verið gagnlegt að vita af hverju við erum einsog við erum og hvers vegna eitthvað sem hentar vinkonu okkar í mataræði hentar okkur alls ekki. Skilningur á þessu efni hefur hjálpað mér mikið síðustu 10 árin ég reyni að útskýra þetta á einfaldan og gagnlegan hátt. Hvaða matur getur hjálpað okkur að halda jafnvægi, hvaða matur...
Inga Kristjáns og Gurrý: Um vorhreinsun líkamans, hvers vegna væri það sniðugt og hvernig er best að gera það? 26.04.2025 29:05
Í þessum þætti spjöllum við Inga um endurræsingu líkamans. Hvaða leið er best að fara og hvenær væri það góð hugmynd eða er líkaminn kannski bara fullfær um að sjá um þetta sjálfur eða getur verið gott að endurræsa kerfið okkar reglulega. Ef þú upplifir orkuleysi, svefnvandamál, bjúg, meltingartruflanir, þanin kvið eða ofþyngd þá gæti verið að þú þyrftir að hlusta á þennan þátt. Alltaf í uppáhald...
Ingunn Guðbrandsdóttir:Um mataræðið frá plöntufæði í dýraríkið, lyftingarnar, ultahlaupin og yogað. 19.04.2025 1:02:45
Ingunn Guðbrands er svo ótrúlega skemmtileg og fróð um heilsutengd málefni og hér förum við í hennar sögu og ferðalag í gegnum breytingar í mataræði og hreyfingu. Í dag lyftir hún þungum lóðum, hleypur og hennar fókus í mataræði er að ná inn nóg af próteinum til að næra líkamann en það hefur ekki alltaf verið þannig. Hún tók stóra U-beygju fyrir rúmum tveimur árum og hefur orkan og árangurinn hel...
Gurrý: Skotheld ráð til ykkar sem eigið erfitt með að koma hreyfingunni í rútínu og ef mataræðið er ruglinu. 12.04.2025 8:10
Skilaboð til þeirra sem hafa ekki hreyft sig í einhvern tíma eða eru í vandræðum með mataræðið og eða bæði. Gef einföld ráð til að byrja vegferðina en oft hindrar það okkur að hefja hana því það er oft sem við höldum að við þurfum að breyta öllu í einu til að ná árangri en það er bara rangt. tvær venjur sem ætti að vera auðveldar, en gætu gert kraftaverk eða allavega betri líðan og heilsu. Stut...
María Krista Hreiðarsdóttir: Um Ketó upphafið, Carnivore og allan drifkraftinn. 05.04.2025 48:15
Það var svo gaman að spjalla við Kristu um upphafið af KristaKetó vinsældunum á instagram þar sem hún deilir með okkur ýmsu um mataræðið en hún er á Carnivore með hennar útfærslu, framkvæmdum heima fyrir og ýmsu öðru. Ótrúlega hvetjandi hún Krista með einlægri framkomu og það besta er að hún kemur bara dyranna nákvæmlega eins og hún er klædd. Það er best að hlusta á þáttinn og fá smá innblástur...
Gurrý: Þrjú mjög hagnýt ráð til að gera lífið betra og einfaldara. 29.03.2025 18:36
Í þessum þætti fer ég yfir þrjú hagnýt ráð eða leiðir sem hafa hjálpað mér mikið að líða betur og einfalda líf mitt. Þessi ráð koma frá mínum frábæru yogakennurum og yoganáminu mínu hjá Kristbjörgu Elí. 1: Gera daglegt skipulag, hér erum við að skipuleggja svefn, matmálstima, hreyfinguna og það sem við þurfum að gera á hverjum degi. Skyldur okkar í vinnu og gagnvart fjölskyldu en líka fyrir okkur...
Inga Kristjánsdóttir: Allt um prótein, hvað gera þau fyrir okkur, hvaða prótein eigum við að velja og hvað þurfum við mikið. 22.03.2025 41:14
Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti er algjör snillingur í öllu varðandi mataræðið og það sem er best að útskýra á einfaldan og gagnlegan hátt fyrir okkur. Við ræðum um: Prótein og hvað þau gera fyrir okkur konur. Hvaða prótein eigum við að velja úr mat. Inga útskýrir próteinduft, mismunandi tegundir og hvað ber að varast. Hvað við þurfum mikið af próteinum á dag. Gagnlegt fyrir allar konur se...
Særún Lúðvíksdóttir: Um Ölla, son hennar sem lést 18 ára gamall, sorgina sem fylgir því að missa barn og Minningarsjóð Ölla sem hún stofnaði. 15.03.2025 1:06:51
Særún Lúðvíksdóttir er ein af mínum uppáhalds konum en hún æfði hjá mér í mörg ár og við kynntumst vel, en hún steig upp og hjálpaði mér á erfiðum tímum í rekstri líkamsræktarstöðvar sem ég rak Yama Heilsurækt og fyrir það verð ég henni alltaf þakklát. Særún segir okkur frá sjálfri sér sem ung einstæð móðir í Keflavík og Njarðvík með tvo syni, Örlyg Aron Sturluson og Elvar Sturluson. Örlygur var...
Auður Harpa og Dagbjört Pálsdóttir: Um dating lífið og samskiptin við hitt kynið. 08.03.2025 44:56
Fórum yfir spurningar frá hlustendum sem voru flestar um dating lífið og samskipti við hitt kynið.
Dagbjört Pálsdóttir: Um lífið eftir skilnað. 01.03.2025 46:50
Dæja vinkona mín er ein skemmtilegasta kona sem ég þekki. Í þessum þætti ræðum við um vináttuna sem styrktist svo mikið þegar við fórum á sama tíma í gegnum skilnað og hvernig við fórum í gegnum þetta og vandamálin sem við þurftum að takast á við.
Inga næringaþerapisti um bætiefni fyrir heilsuna. 21.02.2025 38:40
Ræddum um bætiefnin, hvað þarf að taka og er nauðsynlegt að taka inn bætiefni. Það sem við fórum yfir: Þessi fimm frænku: Magnesíum, omega 3, gerla, D-vítamín og fjölvítamín. Bætiefni fyrir streituna: B-vítamín, magnesíum og fleiri Bætiefni fyrir líkamsræktina: Kreatín og Glutamine. Bætiefni fyrir breytingaskeiðið.
Helga Björk Jónsdóttir: Um hugrekkið til að skipta um skoðun í lífinu. 15.02.2025 1:06:38
Helga Björk er góð vinkona mín og við spjöllum um að það má skipta um skoðun hvað maður ætlar að verða þegar maður er orðin stór, og ræddum stórt skref sem hún tók þegar hún fór í meðferð á Vogi og eftirmeðferð á Vík.
Auður Harpa: Stefnumóta lífið og að finna mojo-ið sitt aftur 08.02.2025 59:40
Auður Harpa og Gurrý ræða um stefnumóta lífið og hvernig það er að missa mojo-ið sitt og finna það aftur á miðjum aldri.
Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti um mataræði, hreyfingu og streitu. 01.02.2025 1:08:22
Inga fræðir okkur á einfaldan hátt um mataræði, hvað við eigum að borða og hvenær en líka hvernig óregla í fæðu hefur áhrif á streitu, líkamsrækt ofl. Fyrsti þátturinn okkar Ingu saman en alls ekki sá síðasti.
Kynning á hlaðvarpinu Fyrir konur 27.01.2025 5:59
Hér fer ég yfir af hverju ég er að byrja með þetta hlaðvarp, létt kynning og spjall. Mátt endilega senda mér skilaboð ef þú veist um áhugaverðar konur sem væru til að deila með okkur sögum, fræðslu eða öðru sem gæti gagnast okkur öllum. Senda á gurrytorfa@gmail.com
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.