Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Kjaftæðið - Amorim og Slot í alvöru brekku 25.11.2025

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur.

Enski boltinn - Hrein hörmung hjá Liverpool, Man Utd og Tottenham 24.11.2025

Umferðin var erfið fyrir Liverpool og Manchester United en þessi félög koma ekki vel undan landsleikjahléi. Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Pepsi Max stúdíóinu með nöfnunum Magnúsi Hauki Harðarsyni og Magnúsi Þór Jónssyni. Farið var vel yfir Liverpool sérstaklega. Einnig var mikið rætt um stórleik umferðarinnar þar sem Arsenal valtaði yfir ömurlegt Tottenham lið og þá var snert á öllum öðrum...

Útvarpsþátturinn - Einkunnir Íslands og hringt út 22.11.2025

Það er hátíðarstemning í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars í hljóðverinu. Landsliðið er áberandi og undankeppnin gerð upp. Hvaða leikmenn voru bestir hjá Íslandi yfir undankeppnina í heild? Freyr Alexandersson er í beinni frá Molde og Magnús Már Einarsson frá London. Fréttir vikunnar í Bestu deildinni og enski boltinn rúllar af stað að...

Kjaftæðið - Jason Daði á heimleið? 21.11.2025

Baldvin Borgars, Alli hundur og Öddi fótboltanördi kom óvænt. El Jóhann, Jeppakallinn og Siggi Höskulds á línunni yfir Enska og svo tók Steinke tólið og fór yfir fréttir vikunnar.

Kjaftæðið - Viðbjóður í Varsjá 16.11.2025

Baldvin Borgars, Viktor Unnar og Nonni Kristjáns fóru yfir viðbjóðinn í Varsjá, landsliðsgluggann og fréttir vikunnar.

Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur í Varsjá og Heimir gegn Ronaldo 15.11.2025

Íslenska landsliðið er að sjálfsögðu stórt umfjöllunarefni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þessa vikuna. Tómas Þór og Benedikt Bóas eru í hljóðveri. Hallgrímur Heimisson, yfirþjálfari hjá Val, er gestur þáttarins en hann er sonur Heimis Hallgrímssonar sem lenti upp á kant við Cristiano Ronaldo í vikunni. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hringt til Varsjár þar sem Úkraína og Ísland m...

Kjaftæðið - Ísland í lykilstöðu fyrir umspilssæti 14.11.2025

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Davors fóru yfir landsleikinn gegn Aserum!

Hugarburðarbolti GW 11 Úr skúrk, yfir í hetju á einni viku! 10.11.2025

Man City kjöldrógu Liverpool í risaslag helgarinnar. Svörtu kettirnir náðu í stig gegn toppliði Arsenal. Tottenham og Man Utd gerðu 2-2 jafntefli í London. Er orðið heitt undir Eddie Howe eftir 3-1 tap gegn Brentford? Aston Villa komust aftur á sigurbraut um helgina. Everton unnu sterkan heimasigur gegn Fulham. West Ham unnu lífsnauðsynlegan 3-2 sigur gegn Burnley og leikur Crystal Palace og Brigh...

Enski boltinn - Var tímabilið að sveiflast þarna? 09.11.2025

Manchester City vann sannfærandi sigur á Liverpool í stærsta leik tímabilsins til þessa. Mögulega var tímabilið að sveiflast þarna þar sem við sáum gamla góða Man City. Núna eru aðeins fjögur stig á milli Arsenal og City en fyrir viku síðan var orðið líklegt að Arsenal myndi stinga af. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Herði Ágústssyni í Pepsi Max stúdíó...

Kjaftæðið - City valtaði yfir Liverpool og Amorim drullaði á sig 09.11.2025

Baldvin Borgars, Alli Davors og Frankarinn hittust og gerðu upp helgina í Enska.

Útvarpsþátturinn - Davíð Smári, kapallinn og ensk verðlaun 08.11.2025

Davíð Smári Lamude er sérstakur gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Davíð, sem gerði Vestra að bikarmeisturum í ár, var á dögunum kynntur sem nýr þjálfari Njarðvíkur. Farið er yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Benedikt Bóas er í beinni frá Glasgow og Daníel Geir Moritz velur úrvalslið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni hinga...

Kjaftæðið - Frankarinn kominn heim og lét til sín taka! 07.11.2025

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Hundur fóru yfir Meistaradeildina, landsliðsvalið og slúðrið í Íslenska boltanum.

Hugarburðarbolti GW 10 Hver er hinn fullkomni fantasy leikmaður? 04.11.2025

Arsenal með 6 stiga forskot á Man City á toppnum eftir 0-2 sigur gegn nýliðum Burnley. Loksins vann Liverpool sigur þegar Aston Villa kom í heimsókn. Chelsea lagði Tottenham á útivelli þar sem að Joaõ Pedro skoraði sigurmarkið. West Ham með langþráðan sigur á Newcastle. Man Utd tókst ekki að halda sigurgöngu sinni áfram í Skírisskógi. Brighton og Crystal Palace með góða sigra og Erling Haaland hel...

Enski boltinn - Klippingin bíður betri tíma 02.11.2025

Stuðningsmaður Manchester United kemst ekki alveg strax í klippingu, Liverpool vann leik og Arsenal er að hóta því sterklega að stinga af. Þá var stjóri rekinn, Tottenham skeit upp á bak gegn Chelsea og West Ham tókst að vinna óvæntan sigur. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum en með honum eru ÍR-ingarnir Ágúst Unnar Kristinsson og Sölvi Haraldsson.

Kjaftæðið - Aron Sig og Matti Villa ræddu Enska, sumarið og ferilinn! 02.11.2025

Baldvin Borgars, Aron Sigurðarson leikmaður KR og Matthías Vilhjálmsson sem var að leggja skóna á hilluna settust saman og ræddu ýmislegt áhugavert.

Útvarpsþátturinn - KR, Liverpool og Kjærnested 01.11.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 1. nóvember. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas. Farið er yfir helstu fréttir og slúður úr íslenska boltanum og val á bestu leikmönnum. Svo mætir Kristinn Kjærnested í heimsókn og ræðir um KR, stöðu mála hjá Liverpool og fleira.

Kjaftæðið - Stóra uppgjörið úr Bestu með Viktori Unnari 31.10.2025

Baldvin Borgars, Alli Davors og Viktor Unnar tóku stóra Bestu-deildar uppgjörið og hituðu svo aðeins upp fyrir Enska um helgina.

Hugarburðarbolti GW 9 Er orðið heitt undir Arne Slot ? 27.10.2025

Englandsmeistararnir töpuðu sínum fjórða leik í röð í deildinni. Arsenal með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Man City og Chelsea töpuðu bæði sínum leikjum um helgina. Man Utd spiluðu sinn besta leik á tímabilinu. Nýliðarnir unnu sína leiki og Bournemouth eru í 2.sæti deildarinnar eftir 9.umferðir.

Uppbótartíminn - Nik kveður og félög skera niður 27.10.2025

Það er alvöru þáttur af Uppbótartímanum í dag þegar tímabilið er gert upp. Nik Chamberlain, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks, mætir í þáttinn og ræðir stórkostlegan árangur og næsta skref sem er í Svíþjóð. Hann er að kveðja íslenskan fótbolta eftir mörg ár hér á landi. Þá mætir Adda Baldursdóttir í seinni hlutann og gerir upp tímabilið með Guðmundi Aðalsteini og Magnúsi Hauki. Einnig...

Enski boltinn - Man Utd stakk sér fram úr Liverpool 27.10.2025

Hlutirnir eru fljótir að breytast í fótboltanum en Manchester United er komið fram úr Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. United vann sinn þriðja sigur í röð um helgina á meðan Liverpool tapaði sínum fjórða deildarleik í röð. Arsenal er með fjögurra stiga forskot á toppnum en Einar Guðnason mætti í Pepsi Max stúdíóið í dag og fór yfir gott gengi sinna manna. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Magnú...

Kjaftæðið - KR ætlar að taka yfir Bestu deildina 26.10.2025

Baldvin Borgars, Alli Davors og Nonni Kristjáns mættu í settið og fóru yfir sviðið.

Innkastið - KR eignaði sér Ísafjörð og sláin lék Blika grátt 26.10.2025

Lokaþáttur Innkastsins þetta tímabilið! Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke. KR hélt sér í deildinni eftir að hafa farið hamförum á Ísafirði, Vestri og Afturelding voru í efri hlutanum eftir tólf umferðir en féllu. Víkingar fögnuðu við litla hrifningu lögreglunnar og það var nóg af áhugaverðum viðtölum. Steinke var svo með annál tímabilsins að lokum. Takk fyrir hlustunina!

Útvarpsþátturinn - Dómsdagur rennur upp í Bestu 24.10.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Haldið er sérstakt lokahóf í Pepsi Max hljóðverinu og opinberað val á liði ársins, leikmanni ársins, þjálfara ársins, besta unga leikmanninum og dómara ársins. Hitað er upp fyrir lokaumferðina í Bestu deildinni. Hvaða lið munu falla? Mun Breiðablik stela Evrópusætinu af Stjörnunni? Einnig er rætt...

Kjaftæðið - United menn enn á bleiku skýi og hvað gerist í Bestu? 23.10.2025

Baldvin Borgars, Alli Davors og Andri Júl tækluðu Evrópuboltann í vikunni og hituðu vel upp fyrir Enska og Bestu deildina.

Hugarburðarbolti GW 8 Fyrsti sigur Man Utd í tæp 10 ár á Anfield! 21.10.2025

Man Utd lagði Liverpool á Anfield 1-2 í hörkuleik. Arsenal lagði Fulham í kotinu 0-1 á lau kvöldið. Aston Villa sigraði Tottenham á Tottenham Hotspur Stadium 1-2. Sunderland halda áfram að gera góða hluti. Brighton lagði Newcastle á Amex og Erling Haaland er áfram á eldi hjá ljósblá liðum Man City.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.