Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Enski boltinn - Loksins vinnur United á Anfield og Postecoglu rekinn 21.10.2025

Manchester United vann Liverpool á Anfield í fyrsta skipti síðan 2016. Þetta var fjórði tapleikur Liverpool í röð eftir sterka byrjun þeirra á mótinu. Chelsea vann Nottingham Forest 3-0 þar sem þeim tókst að næla sér í rautt spjald fjórða leikinn í röð. Aðal fréttin eftir þann leik var hins vegar að Ange Postecoglu var rekinn frá félaginu og Sean Dyche mun taka við. Haraldur Örn Haraldsson fór yfi...

Kjaftæðið - Hvaða kjaftæði er í gangi í Bestu deildinni? 21.10.2025

Baldvin Borgarsson fékk til sín Víkinginn Tómas Guðmundsson og Blikann Hilmar Jökul til þess að tækla stóru málefnin í boltanum í dag, Tómas er einmitt vinur Sigurðar Egils sem stendur í stappi við Val þar sem yfirlýsingar fljúga á milli innan stuðningsmannasíðu Vals á Facebook og gaf Tómas okkur ákveðna innsýn í það, þá fór Hilmar Jökull yfir tíðindi dagsins úr Smáranum þar sem Halldór Árnason va...

Innkastið - Brottrekstur Blika og yfirlýsingar á Hlíðarenda 20.10.2025

Innkastið úr Pepsi Max hljóðverinu. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er sagnfræðingurinn og Framarinn Stefán Pálsson. Umferðinni lauk með leik Fram og Stjörnunnar, þjálfaraskipti urðu í Kópavoginum, Valsmenn sáu sig knúna til að senda yfirlýsingu og það er lífsbaráttu-laugardagur framundan!

Gunnar Vatnhamar - Færeyjar á flugi og annar Íslandsmeistaratitill 18.10.2025

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Sæbjörn Steinke ræðir við Gunnar Vatnhamar sem hefur heldur betur sett lit á íslenskan fótbolta. Hann er lykilmaður hjá Íslandsmeisturum Víkings og færeyska landsliðinu. Og það gengur vel!

Kjaftæðið: Upphitun fyrir stóra helgi í boltanum! 17.10.2025

Baldvin Borgars, BigBo og Alli Hundur settust í settið og hituðu upp fyrir helgina!

Siggi Höskulds - Besta deildin kallar 17.10.2025

Þórsarar unnu Lengjudeildina í ár og verða í Bestu deildinni á næsta tímabili í fyrsta sinn í tólf ár. Sigurður Heiðar Höskuldsson er þjálfari Þórsara og fór Sæbjörn Steinke ítarlega yfir tímabilið með þjálfaranum. Af hverju var spilað í Boganum? Hvað þurfti að gera á milli tímabila? Snert á nokkrum vendipunktum og farið yfir það helsta sem gerðist síðasta árið hjá Þór. Hér má nálgast samskonar vi...

Útvarpsþátturinn - Lokabardagar Bestu deildarinnar 16.10.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke í Pepsi Max stúdíóinu. Besta deildin er burðarefni þáttarins en tvær umferðir eru eftir og KR gæti fallið á sunnudaginn. Valið er lið ársins úr liðunum í neðri hluta deildarinnar. Í lokin gerum við upp landsleikjagluggann en það stefnir í úrslitaleik gegn Úkraínu í Póllandi í nóvembe...

Kjaftæðið - Landsliðsuppgjör með Kjartani Henry og fyrrum aðstoðarmanni Arnars Gunnlaugs 14.10.2025

Kjaftæðið kom saman og tók uppgjör á landsliðsglugganum sem var að ljúka á A-landsliði karla. Gestir þáttarins voru Kjartan Henry, aðstoðarþjálfari FH og "kóari" Gumma Ben í leiklýsingum landsleikjanna á Sýn Sport ásamt Aron Baldvini aðstoðarþjálfara Víkings sem var aðstoðarmaður Arnars hjá Víkingum áður en hann færði sig um set.

Útvarpsþátturinn - Landsliðið og Besta með Baldri og Sölva 11.10.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. október. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Baldur Sigurðsson er með þeim félögum í umræðu um landsliðið og tapið fyrir Úkraínu og einnig er rætt um Bestu deildina. Svo er Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Íslandsmeistara Víkings, sérstakur gestur í seinni hluta þáttarins og fer yfir leiðina að titlinum.

Kjaftæðið - Jeppakallinn og Bjöggi Stef í gír! 09.10.2025

Baldvin Borgars, Jeppakallinn (Bjarki Valur) og BigBoStevens (Bjöggi Stef) settust niður og fóru yfir sviði á mjög léttum nótum í þetta skiptið og hituðu aðeins upp fyrir komandi landsleiki.

Hugarburðarbolti GW 7 Arsenal komnir á toppinn! 07.10.2025

Arsenal komnir á toppinn í deildinni eftir helgina. Semenyo áfram á eldi. Chelsea vann Liverpool á Brúnni. Manchester liðin unnu bæði sína leiki um helgina. Everton með rosalegan endurkomusigur gegn Crystal Palace. Nottingham Forest í brasi eftir enn eitt tapið og núna gegn Newcastle í norðrinu.

Kjaftæðið - Liverpool í bullinu og Víkingar Íslandsmeistarar! 06.10.2025

Baldvin Borgars, Frankarinn og El Jóhann gerðu upp helgina á léttu nótunum.

Uppbótartíminn - Til hamingju Blikar! 05.10.2025

Breiðablik er Íslandsmeistari annað árið í röð, þær voru einfaldlega langbesta liðið í Bestu deild kvenna í sumar. Það tók smá tíma fyrir Blika að innsigla titilinn en það tókst gegn Víkingi síðasta föstudagskvöld. Ásta Eir Árnadóttir, fyrrum fyrirliði Breiðabliks, er með Guðmundi Aðalsteini og Magnúsi Hauki í þættinum að þessu sinni en einnig er rætt um ráðningu á nýjum aðstoðarlandsliðsþjálfara...

Enski boltinn - Er Liverpool í krísu? 05.10.2025

Liverpool tapaði sínum þriðja leik í röð er þeir fóru í heimsókn á Stamford Bridge í gær. Englandsmeistararnir hafa ekki verið sannfærandi í upphafi tímabils en eru þó í öðru sæti. Arsenal skellti sér á toppinn og United tókst að vinna með nýjan markvörð á milli stanganna. Antoine Semenyo er magnaður leikmaður og Ange Postecoglou... hvað er hægt að segja? Guðmundur Aðalsteinn fór yfir allt það hel...

Innkastið - Stóru málin með Bjössa Hreiðars 05.10.2025

Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Sigurbjörn Hreiðarsson. Víkingar eru verðskuldaðir meistarar og í neðri hlutanum var allt pakkfullt af dramatík í leik KR og Aftureldingar. Þetta og svo mikið meira.

Útvarpsþátturinn - Skjótt skipast veður í lofti 04.10.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 4. október. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum. - Aron Guðmundsson íþróttafréttamaður um þjálfaraskiptin á Ísafirði. - Farið yfir næstu umferð í Bestu deildinni, helstu fréttir og þjálfaraslúður. - Hver hefur verið bestur í hverju liði í Bestu deildinni? Hverjir hafa verið mestu vonbrigðin? - Tómas Meyer ræðir um þjálfar...

Turnar Segja Sögur: Graeme Souness 03.10.2025

Graeme Souness var leikmaður, þjálfari og sjónvarpsmaður og var sigursæll en einnig afar umdeildur. Saga Liverpool FC, söguleg endurkoma Glasgow Rangers, Rod Stewart að drekka bjór með Sigga Jóns í Reykjavík, borgarastyrjöld í Istanbul, sögur af ofbeldi og frændi George Weah koma við sögu í þætti dagsins. Turnar segja sögur ætla að ræða Graeme Souness í þætti dagsins.

Kjaftæðið - Hákon Haralds með sigurmark gegn Roma og stór helgi framundan! 02.10.2025

Baldvin Borgars, Frankarinn og Bjöggi Stef tóku maraþonþátt, uppgjör á Meistaradeildinni, Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni, upphitun fyrir stóra helgi bæði í Enska og Íslenska boltanum auk landsliðsumræðu.

Hugarburðarbolti GW 6 Verður Amorim stjóri Man Utd næstu helgi? 30.09.2025

Crystal Palace eina ósigraða liðið í deildinni gerðu sér lítið fyrir og skelltu meisturum Liverpool 2-1 á Selhurst Park. Arsenal með svakalegan endurkomusigur gegn sterku Newcastle liði á St. James's Park. Brentford vann Man Utd 3-1. Aston Villa vann loks sigur 3-1 gegn Fulham. Sunderland ævintýrið heldur bara áfram. Úlfarnir komust loksins á blað og Brighton skelltu Chelsea á Brúnni 1-3.

Innkastið - Þjálfarakapall og Víkingar meistarar 29.09.2025

Innkastið eftir 24. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Magnús Haukur. Davíð Smári hætti með Vestra eftir skell gegn ÍBV. Víkingar syngja um að þeir séu Íslandsmeistarar en KR-ingar syngja um fall. Hvaða þjálfarahræringar verða á næsta tímabili? Lengjudeildarhorn og ýmislegt fleira!

Leiðin úr Lengjunni: Umspilið gert upp og verðlaun fyrir tímabilið 29.09.2025

Síðasti þáttur Leiðin úr Lengjunni þetta árið þar sem farið er yfir úrslitaleik umspilsins. Einnig er farið í hin allskyns verðlaun og lið tímabilsins að mati þáttarins. Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Haraldur Örn Haraldsson sáu um þennan loka þátt.

Tveggja Turna Tal - Milan Stefán Jankovic 29.09.2025

Milan Stefán Jankovic er lifandi goðsögn í fótboltanum á Íslandi. Janko, líkt og hann er kallaður, kom til Íslands árið 1992 og hefur hann svo sannarlega skilað sýnu til fótboltasamfélagsins á Íslandi. Við fórum yfir ferilinn hans, bæði hérlendis og erlendis. Samstarfsaðilar okkar Turnanna eru Visitor, Lengjan, Hafið, World Class og Budvar félagi okkar!

Kjaftæðið - Enskir dómarar til skammar og KR á botninum! 29.09.2025

Baldvin, Frankarinn og Alli Davors fóru yfir sviðið á sunnudagskvöldi. Enski boltinn, Íslendingar í Evrópu, Besta deildin, Lengjudeildin og fótbolti.net-bikarinn.

Enski boltinn - Menn að tala um meistarasigur 28.09.2025

Það voru mörg áhugaverð úrslit í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Hvenær ætlar Manchester United eiginlega að reka Rúben Amorim? Arsenal vann dramatískan sigur á Newcastle en á meðan tapaði Liverpool sínum fyrstu stigum gegn sterku Crystal Palace liði. Manchester United spilaði hörmulega og Chelsea tapaði gegn Brighton. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur Harðarson og Orri Fannar Þórisson fóru yf...

Útvarpsþátturinn - Heimsókn frá Húsavík við Skjálfanda 27.09.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérstakur gestur er Aðalsteinn Jóhann, Alli Jói, þjálfari Völsungs. Farið er yfir íslenska boltann og aðeins komið inn á þann enska líka.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.