Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Leiðin úr Lengjunni: Siggi Höskulds fer yfir sviðið og upphitun fyrir úrslitin 25.09.2025

Aðeins einn leikur er eftir af Lengjudeildinni, sjálfur úrslitaleikur umspilsins þar sem Keflavík og HK munu mætast á Laugardalsvelli. Haraldur Örn og Sverrir Örn fóru vel yfir sviðið ásam Sigurði Höskuldssyni þjálfara Þórs. Fyrri hlutið þáttarins var einmitt alfarið tileinkað Þór og Sigurður fór vel yfir tímabilið.

Kjaftæðið - Liðið sem þorir vinnur 50 milljóna leikinn, hlaupa Víkingar með titilinn? 25.09.2025

Fyrsti þáttur af Kjaftæðinu. Baldvin Borgarsson, Ásgeir Frank og Alli Davors fara yfir sviðið í fótboltanum. Kjaftæðið er nýtt fótboltahlaðvarp sem er á dagskrá 2x í viku á Fótbolti.net þar sem farið er yfir fótboltasviðið á léttu nótunum. - Hver er maðurinn? - Enski boltinn - Evrópudeildin Íslenski boltinn - Spurningakeppni milli Frank og Alla Samstarfsaðilar Kjaftæðisins eru: Pepsi Max, Ice koff...

Uppbótartíminn - Besta lið Íslandssögunnar? 23.09.2025

Núna skiptist Besta deild kvenna en það er margt óráðið þrátt fyrir að Breiðablik verði að öllum líkindum tvöfaldur meistari. Breiðablik hefur verið á ótrúlegu skriði að undanförnu og óhætt að tala um eitt besta lið Íslandssögunnar. Það er enn barátta um Meistaradeildarsæti og við falldrauginn. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fara yfir allt það helsta í íslenska kvennaboltanum í Uppbótartíma...

Innkastið - Vafasamir vítadómar og KR í fallsæti 22.09.2025

Innkastið eftir 23. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Óskar Smári. Góð umferð fyrir Víking, dómararnir eru í sviðsljósinu og KR-ingar komnir í fallsæti. Lengjudeildarhorn og ýmislegt fleira!

Enski boltinn - Hvað var maðurinn að hugsa? 22.09.2025

Mjög svo áhugaverð umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni en Liverpool er strax að stinga af. Arsenal og Manchester City gerðu dramatísk jafntefli þar sem Pep Guardiola var ólíkur sjálfum sér og Manchester United vann sigur á Chelsea þar sem Enzo Maresca tók ótrúlegar ákvarðanir. Aston Villa eru mestu vonbrigðin hingað til og nýliðarnir eru mjög flottir. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Kári...

Hugarburðarbolti GW 5 3 RISA leikir voru um helgina! 22.09.2025

Liverpool eru með 5 stiga forskot í deildinni eftir 2-1 sigur í Bítlaborgarslagnum gegn Everton. Arsenal og Man City gerðu 1-1 jafntefli á Emirates. Man Utd unnu mikilvægan sigur á Chelsea 2-1 á Old Trafford. Allir nýliðarnir náðu í stig um helgina. Brighton og Tottenham gerðu 2-2 jafntefli á Amex og Bournemouth og Newcastle skildu markalaus 0-0 á suðurströndinni.

Betkastið - Uppgjör Lengjudeildar 22.09.2025

Baddi Borgars hinn eini sanni Lengjusérfræðingur mætti í settið! - Afhverju hætti hann með FC Árbæ? - Fórum yfir hvert lið fyrir sig! - Baddi tilkynnti lið ársins að hans mati - Hvernig fer 50milljón króna leikurinn og hver sigrar .net bikarinn?

Útvarpsþátturinn - Frá ólgunni í Bestu niður í ástríðuna 20.09.2025

Elvar Geir, Benedikt Bóas og Baldvin Borgars fara yfir íslenska boltann í útvarpsþætti vikunnar. Byrja á Bestu deildinni og vinna sig svo niður stigann. Fyrsta umferðin eftir tvískiptingu er framundan og verulega áhugaverðir leikir á dagskrá. Víða er dramatík í gangi, þar á meðal í Kópavoginum. Það er þrumustuð í umspili Lengjudeildarinnar og Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, er á línunn...

Leiðin úr Lengjunni: Tvöfalt hrun, umdeilt víti og viljandi rautt? 19.09.2025

Fyrri leikirnir í undanúrslitum umspilsins eru loknir og HK og Njarðvík eru bæði með eins marks forskot fyrir seinni leikinn. Stefán Marteinn, Sverrir Örn og Haraldur Örn mættu að vana til að fara yfir leikina og sérstakur gestur var Kári Snorrason.

Hugarburðarbolti GW 4 Risa Manchester slagur 16.09.2025

Man City sigraði Man Utd í slagnum um Manchester borg. Tottenham og Arsenal sigruðu bæði sína andstæðinga með sömu markatölunni. Bournemouth skelltu Brighton á Suðurströndinni. Nokkrir 0-0 leikir og Brentford og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli á G-Tech vellinum í London.

Betkastið - Uppgjör og lið ársins í 2&3. deild 16.09.2025

- Tilkynnum sterkustu 11 leikmenn í hvorri deild ásamt bekk og þjálfar - Tippleikur .net bikarsins - Ótímabæra spáin - Síðasti neðri deildarþátturinn í bili!

Innkastið - KR niðurlægt og Blikar í svaka brasi 15.09.2025

Innkastið eftir 22. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Almarr Ormarsson. Ljóst er hvernig deildin skiptist upp. Víkingar eru á toppnum eftir 7-0 sigur gegn KR og í fallbaráttunni er ÍA skyndilega með lífsmarki! Stjarnan hefur unnið fimm í röð en spilamennska Blika er áhyggjuefni í Kópavogi. Lengjudeildarhornið á sínum stað.

Enski boltinn - Með annan fótinn inn á vinnumálastofnun 14.09.2025

Manchester United átti ekki mikinn möguleika í nágrannaslagnum gegn Manchester City í dag. Rúben Amorim er með að meðaltali eitt stig í leik sem stjóri United og spurning hvort hann fari að leita til vinnumálastofnunnar fljótlega. Það var dramatík á Turf Moor þar sem Liverpool skoraði í blálokin og það var líka drama hjá Brentford og Chelsea. Tottenham svaraði slæmu tapi vel og Arsenal var sannfær...

Leiðin úr Lengjunni: Til hamingju Þórsarar 14.09.2025

Þórsarar unnu úrslitaleikinn gegn Þrótturum og vinna því Lengjudeildina. Keflavík vann Selfoss og felldi þá niður í 2. deildina og um leið fóru bakdyraleiðina upp í umspilið. ÍR missti af umspilinu í loka leik þar sem þeir töpuðu fyrir Fylki. Stefán Marteinn Ólafsson mætti aftur að stýra þættinum og með honum voru Sverrir Örn og Haraldur Örn.

Útvarpsþátturinn - Mikil spenna rétt fyrir tvískiptinguna 14.09.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Tómas Þór, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke fara yfir allt það helsta í boltanum. Meðal annars er hitað upp fyrir lokaumferðina í Bestu fyrir tvískiptinguna.

Leiðin úr Lengjunni: Upphitun fyrir lokaumferðina með Jóni Ólafssyni 10.09.2025

Loka umferð Lengjudeildarinnar fer fram á Laugardaginn klukkan 14:00 þar sem þrjú lið geta unnið deildina. Þrjú lið eru í hættu á að missa af umspili, og fjögur lið geta endað í fallsæti. Haraldur Örn og Sverrir Örn fóru yfir þetta ásamt Þróttaranum Jóni Ólafssyni sem var sérstakur gestur í þættinum. Einnig var hringt í Sæbjörn Steinke og Stefán Martein.

Hugarburðarbolti EXTRA! 08.09.2025

Villi Neto kíkti til okkar í Hugarburðarbolta Extra og við fórum yfir það helsta. Völdum topp 5 bestu fantasy pikkin það sem af er tímabili. Kaup og sölur liðanna voru rædd og við rýndum í framhaldið eftir þetta landsleikjahlé. Fórum yfir liðin okkar og hverjar fyrirætlanir okkar eru í næstu umferðum.

Innkastið - Rafmögnuð lokaumferð í Lengjunni 07.09.2025

Hér er sérstakur aukaþáttur af Innkastinu, þar sem Lengjudeildin er í aðalhlutverki. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars fara yfir málin. Taugarnar voru þandar í 21. umferðinni og í lokaumferðinni verður hreinn úrslitaleikur þegar Þróttur mætir Þór og bæði lið þurfa að sækja til sigurs því Njarðvíkingar eru tilbúnir að stela toppsætinu. Fjölnismenn eru fallnir en lífsbaráttulaugardagur fr...

Útvarpsþátturinn - Skemmdarverk á íþrótt 06.09.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. september. Í upphafi þáttar heyrir Elvar Geir í Frey Alexanderssyni, þjálfara Brann í Noregi en liðið er á leiðinni í Evrópudeildina. Svo fær landsliðið sviðið eftir flottan 5-0 sigur gegn Aserbaídsjan. Ungir leikmenn létu til sín taka en hversu lélegir eru Aserar? Elvar, Tómas Þór og Valur Gunnars gera upp leikinn. Vont tap U21 landsliðsins og komandi...

Uppgjör og lið ársins í 4&5. deild 05.09.2025

- Tilkynnum sterkustu 11 leikmenn í hvorri deild ásamt bekk - Hvað sögðu fans? - Tippleikur lokaumferða í 2&3.deild

Leiðin úr Lengjunni: Þróttarar að toppa á réttum tíma og glórulaus ákvörðun hjá Grindavík 03.09.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson.

Hugarburðarbolti GW 3 Sturlaður loka gluggi í enska ! 02.09.2025

Draumamark Dominiks Szobozlai skildi lið Liverpool og Arsenal að um helgina. Man Utd kreisti fram sigur á elleftu stundu. Brighton skellti Man City. West Ham létti pressunni af stjóra sínum með 0-3 sigri í Notthingham. Chelsea sigraði Fulham 2-0 í Lundúna slag á Brúnni og Tottenham lá á heimavelli 0-1 gegn spræku liði Bournemouth.

Enski boltinn - Öflugir Ungverjar, taugahrúgan Amorim og gluggadagur 31.08.2025

Mjög svo áhugaverð umferð í ensku úrvalsdeildinni að baki. Ungverjarnir hjá Liverpool voru öflugir á móti Arsenal með Ungverja í stúkunni, Manchester United náði í kærkominn sigur með taugahrúguna Rúben Amorim á hliðarlínunni og Tottenham gerði eins og Tottenham gerir vanalega. Þá er gluggadagur í dag en þetta væri einhver áhugaverðasti gluggadagur seinni tíma. Guðmundur Aðalsteinn ræddi við Baldv...

Innkastið - Besti leikur tímabilsins og allt í járnum á toppnum 31.08.2025

Innkast vikunnar og Valur Gunnarsson stýrir þættinum í fjarveru Elvars Geir. Haraldur Örn og sérstakur gestur Gunnlaugur Jónsson fóru yfir umferðina. Víkingur og Breiðablik gerðu jafntefli í frábærum leik, Stjarnan kom til baka gegn KA, ÍA féll á sínum síðasta séns, Afturelding líklegastir að falla með þeim, Valsmenn rændir og KR vinna enn ekki.

Uppbótartíminn - Ræðst allt saman á fimmtudaginn 31.08.2025

Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum á þessu sólríka sunnudagskvöldi. Úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna var hin mesta skemmtun og þá voru Breiðablik og Valur að spila í Evrópu. Svo eru bara þrjár umferðir eftir fram að skiptingu í Bestu deild kvenna. Næstkomandi fimmtudagur verður svakalegur en nánar var rætt um það í þættinum. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fara yfir allt það helsta í kv...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.