Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Útvarpsþátturinn - Lag fyrir Blika og landsliðið strax í úrslitaleik 29.08.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir sviðið. Ljóst er hverjir andstæðingar Breiðabliks verða í Sambandsdeildinni, æsispennandi umferð í Bestu deildinni á sunnudag, Arnar valdi landsliðshóp, enski boltinn og fleira til umræðu.
Turnar Segja Sögur: Danmörk 1992 29.08.2025
Sumarið 1992 skrifuðu Danir sig í sögubækurnar. Þeir mættu til Evrópumótsins í Svíþjóð án þess að hafa unnið sér rétt til þess að spila í mótinu og enduðu sem Evrópumeistarar. Sigurinn var einstakur og eftir mótið var reglum fótboltans breytt. En þessi ótrúlegi árangur kom ekki úr lausu lofti. Hann átti sér langan og áhugaverðan aðdraganda sem við rákum í þessum þætti þar sem við rýnum í sögu...
Innkastið - Stundum hata ég fótbolta 27.08.2025
Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Valsmenn sýndu vígtennurnar eftir hlé, Víkingar með öruggan sigur gegn bikarþunnum Vestramönnum, Óskar Hrafn hatar stundum fótbolta, Árni Snær bjargaði Stjörnunni, gæðalaust í Krikanum, KA á skriði en Fram heldur áfram að færast nær vandræðum.
Leiðin úr Lengjunni: Þórsarar stigu stórt skref og barátta um öll sæti 26.08.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson.
Hugarburðarbolti - Man Utd er í veseni 26.08.2025
Tottenham lögðu Man City á Etihad sannfærandi. Arsenal löbbuðu yfir Leeds á heimavelli. Brentford sigraði Aston Villa 1-0. Everton með glæstan heimasigur í fyrsta leiknum á nýja stórglæsilega Hill Dickenson stadium. Chelsea kjöldrógu West Ham 1-5 á Ólympíu leikvanginum í London. Man Utd náðu í sterkt stig gegn Fulham í London. Hjálmar Örn skemmtikraftur og Spursari var gestur þáttarins og við fóru...
Enski boltinn - Bíómyndahandrit 26.08.2025
Það var stórkostlegur leikur í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Newcastle og Liverpool áttust við. Þessi leikur kórónaði skemmtilega aðra umferð deildarinnar þar sem Tottenham lagði Manchester City, Arsenal sýndi flotta takta, Manchester United fór í sama gamla farið og Graham Potter virtist sigraður. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson ræddu um umferðina að þessu sinni og tóku helstu...
Spenna í 2. deild, línur nokkuð skýrar í 4. deild og playoffs klár í 5. deild 26.08.2025
Vogarnir komnir á toppinn, alltaf sama sagan með Augnablik og Árborg, ÍH í brunarústum og Úlfarnir með magnað Remontada. - 2-5.deild - Úrslit fyrri umferða - Spurningar frá fans - Tippleikur næstu umferða
Útvarpsþátturinn - Himnaríki Vestra og helvíti Vals 23.08.2025
Vestri er bikarmeistari 2025! Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í styttra lagi þennan laugardaginn en sigur Vestra á Val fær þó gott pláss. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. - Bikarúrslitaleikurinn - Evrópuleikur Breiðabliks - Komandi leikir í Bestu deildinni og Lengjudeildinni - Og aðeins um enska boltann
Ítalski boltinn - Upphitun fyrir tímabilið 21.08.2025
Hverjir verða Ítalíumeistarar? Hér er sérstakur upphitunarþáttur fyrir tímabilið í ítölsku A-deildinni sem fer af stað á laugardaginn. Elvar Geir og sérfræðingarnir Björn Már Ólafsson og Árni Þórður Randversson skoða hvað er framundan. Ítalski boltinn er sýndur hjá Livey á Íslandi og ef þú tekur þátt í skemmtilegum leik getur þú unnið AC Milan treyju og kassa af Peroni.
Turnar Segja Sögur: Fc Risar vs Fc Dvergar 21.08.2025
Ómar Freyr Rafnsson, Bangsinn, kom í heimsókn til okkar og við skiptum í tvö lið. Risarvaxnir leikmenn gegn stórum egóum með færri sentimetra í vegabréfinu. Getur De La Pena dekkað Duncan Ferguson í föstum leikatriðum? Góða skemmtun!
Hugarburðarbolti GW 1 Ballið er byrjað! 19.08.2025
Fyrsta umferðin fór af stað með látum á föstudagskvöld með Liverpool sigri á Bournemouth. Við Hreimur Örn Heimisson sem var gestur þáttarins fórum yfir þann leik ásamt öllu öðru sem gerðist í þessari fyrstu leikviku tímabilsins 2025/26. Top 3 á sínum stað ásamt rauða spjaldinu og svo er það nýr liður sem er fantasy pick umferðarinnar. Write to Vignir Már Eiðsson
Innkastið - Gamlir draugar hjá Val, ÍA fallið og deilt um dóm 18.08.2025
Besta deildin verður bara áhugaverðari og áhugaverðari. Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór. Skipin hafa verið sett í slipp, Framarar stimpla sig í fallbaráttuna, ÍA er fallið, frábær umferð fyrir Víkinga, hörmulegur varnarleikur í Kópavogi, gamlir draugar gera vart við sig hjá Val og umdeildur dómur í Garðabæ. Einnig rætt um bikarúrslitaleikinn fr...
Enski boltinn - Arsenal með mark úr horni 18.08.2025
Enska úrvalsdeildin er hafin að nýju! Arsenal vann torsóttan sigur gegn Manchester United með mark úr horni, Liverpool byrjaði titilvörnina á sigri, Manchester City virka mjög sannfærandi, og Chelsea eru heimsmeistarar en geta ekki skorað. Haraldur Örn Haraldsson stýrir þættinum í fjarveru Guðmundar Aðalsteins. Jökull Andrésson markvörður Aftureldingar og Manchester United stuðningsmaður mætti í h...
Leiðin úr Lengjunni: Þór í kjörstöðu og toppsætið innan seilingar hjá Þrótti 18.08.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson.
Staðan tekin fyrir endasprettinn í neðri deildunum! 18.08.2025
Yfir neðri deilda - 2-5.deild - Úrslit fyrri umferða - Spurningar frá fans - Tippleikur næstu umferða
Útvarpsþátturinn - Afhroð í Kóngsins og spáin fyrir enska 16.08.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 16. ágúst. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir allt það helsta í boltanum. Evrópuskellur Víkings, tap Blika, glugganum var lokað, heil umferð í Bestu er framundan, áhugaverðir leikir í Lengjudeildinni og enski boltinn er byrjaður að rúlla. Farið er yfir spá okkar fyrir ensku úrvalsdeildina.
Turnar Segja Sögur: Pizzagate 15.08.2025
Sir Alex Ferguson og Arsène Wenger eru tveir goðsagnakenndir knattspyrnustjórar sem gerðu Manchester United og Arsenal að risum í ensku úrvalsdeildinni. Þeir börðust á banaspjótum í meira en áratug, skiptust á að vinna titla og kveiktu í áhorfendum með ógleymanlegum leikjum. En úr eldi hatursins kviknaði virðing og úr virðingunni óvænt vinátta.“Seems a little quiet over hereBe the first to comment...
Leiðin úr Lengjunni: Fylkir á botninum og Þróttarar stimpla sig í toppbaráttu 15.08.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.
Uppbótartíminn - Landsliðsspekúleringar, markaflóð og stærsti leikur ársins 14.08.2025
Það var nóg að fara yfir í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann að venju. Það verður breytt þjálfarateymi hjá A-landsliði kvenna og voru spekúleringar um það, markaflóð í síðustu leikjum í Bestu deild kvenna, FHL er komið á blað í deildinni og stærsti leikur ársins, bikarúrslitaleikurinn, er framundan. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson settust niður í Pepsi Max stúdíóinu með M...
Enski boltinn - Oasis sneri aftur en mun City gera það líka? 13.08.2025
Fótbolti.net hefur síðustu daga hitað upp fyrir ensku úrvalsdeildina með hlaðvörpum við stuðningsmenn stærstu félaganna. Núna er komið að síðasta liðinu sem er Manchester City. City vann ekki neinn stóran titil á síðasta tímabili og það voru vonbrigði eftir árangurinn síðasta áratug. Pep Guardiola hefur farið í að endurbyggja liðið og spurningin er hvort City komist aftur á toppinn. Oasis, sem eru...
Enski boltinn - Án ofdekraðra aumingja aftur í Meistaradeildina 12.08.2025
Manchester United átti mjög slæmt tímabil í fyrra og endaði í 15. sæti. Það eru teikn á lofti að mun bjartari tímar séu framundan, öflugur gluggi í sumar og tiltekt í gangi. Benjamin Sesko, Bryan Mbeumo og Matheus Cunha eru mættir og vonir um að Gigi Donnarumma og Carlos Baleba komi einnig. Enski boltinn fór alla leið til Akureyrar í dag og var því ekki tekinn upp í Pepsi Max stúdíóinu. Þeir Hallg...
Innkastið - Setti enni í enni og kveikti í sínu liði 11.08.2025
Innkastið eftir gríðarlega fjöruga 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Benni Bóas. Þjálfurunum er heitt í hamsi, KR-ingar fengu urmul færa og náðu sigri, Valur vann stórleikinn gegn Breiðabliki og Víkingar töpuðu gegn tíu Stjörnumönnum.
Leiðin úr Lengjunni: Njarðvíkingar fara á toppinn og falldraugurinn svífur yfir Árbænum 10.08.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
Útvarpsþátturinn - Boltabullur, markamet og enski boltinn 09.08.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 9. ágúst 2025. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Rætt er um Evrópuleiki vikunnar og Sverrir Geirdal framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Víkings ræðir um boltabullulæti stuðningsmanna Bröndby. Sigurbjörn Hreiðarsson er á línunni og ræðir um markamet Patrick Pedersen. Magnús Þór Jónsson mætir í settið og ræðir um Lengjudeildina, Liverpool og enska boltann.
Turnar Segja Sögur: Gullit&Rijkaard 09.08.2025
Félagarnir Hermann Rijkaard og George Gullit fóru með skipi frá Surinam til Hollands árið 1957. Í septembermánuði fimm árum seinna áttu þessir félagar báðir eftir að eignast syni, Frank Rijkaard og Ruud Gullit, sem áttu eftir að breyta fótboltanum í Hollandi og víðar. Við fórum yfir ótrúlega áhugaverðan ferill þessara æskuvina, sem leikmenn undir Sacchi og Berlusconi og sem þjálfarar sem vinna mei...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.