Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Innkastið - Þjálfarar að gera dýrkeypt mistök 06.08.2025
Innkastið eftir 17. umferð Bestu deildarinnar. Þar sem allir leikirnir nema einn enduðu með jafntefli. Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd. ÍBV vann Þjóðhátíðarleikinn og KR er líklegt til að falla, markametið var slegið en Valsmenn fóru illa að ráði sínu, umdeilt atvik á ögurstundu í Kópavogi og margt fleira.
Enski boltinn - Núna ætlar Arsenal að elda 06.08.2025
Arsenal hefur endað í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar þrjú ár í röð en núna eru öll hráefnin til staðar til þess að Mikel Arteta, stjóri liðsins, fari að elda. Sóknarmaðurinn Viktor Gyökeres er mættur og breiddin er orðin meiri en áður. Gunnar Birgisson og Jón Kári Eldon, stuðningsmenn Arsenal, eru gestir í Pepsi Max stúdíóinu í dag og taka stöðuna fyrir tímabilið hjá Lundúnafélaginu.
Tveggja Turna Tal - Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir 04.08.2025
Andrea Rán Snæfeld hefur átt ótrúlega áhugaverðan fótboltaferil! Hún lék sinn fyrsta leik í efstu deild aðeins 15 ára og hefur síðan spilað í tveimur efstu deildum Bandaríkjanna, í Frakklandi og í Mexíkó ásamt því hafa spilaði í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Í dag stjórnar Andrea umferðinni á miðjunni hjá FH sem nýlega komst í bikarúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins. Við ræddum um...
Turnar segja sögur: El Fenomeno 01.08.2025
Ronaldo Nasário var með ljótustu hágreiðslu knattspyrnusögunnar á HM 2002 í undanúrslitum gegn Tyrkjum og í úrslitum gegn Þjóðverjum. Afhverju skartaði hann þessari sjónmengun. Við fórum yfir sögu þessar hágreiðslu í þætti dagsins. Ronaldo - El Fenomeno
Útvarpsþátturinn - Verslunarmannahelgin með Túfa 01.08.2025
Útvarpsþátturinn er frumfluttur á föstudegi í tilefni Verslunarmannahelgarinnar. Tómas Þór, Elvar Geir og Benedikt Bóas. Farið er yfir fréttir vikunnar, Evrópuleikina, félagaskipti, komandi leiki í Bestu, Lengjudeildina, breytingar hjá kvennalandsliðinu og fleira. Í seinni hlutanum kemur Túfa, Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals í viðtal.
Leiðin úr Lengjunni - Ekkert batnar í Árbænum og HK féll á stóra prófinu 31.07.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
Enski boltinn - Vægast sagt athyglisvert sumar hjá Newcastle 31.07.2025
Síðustu ár höfum við á Fótbolti.net tekið upp hlaðvörp með stuðningsmönnum 'stóru sex' félaganna á Englandi fyrir hvert tímabil, en núna bætum við Newcastle inn í flóruna. Newcastle er svo sannarlega stórt félag á Englandi og mun á komandi tímabili taka þátt í Meistaradeildinni í annað sinn á þremur árum. Newcastle á nokkuð stóran hóp stuðningsmanna hér á Íslandi og komu tveir þeirra, Magnús Tindr...
Enski boltinn - Liverpool að smíða ofurlið 30.07.2025
Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina en það styttist í það að hún fari að rúlla. Í dag er komið að því að ræða sjálfa Englandsmeistarana í Liverpool. Magnús Haukur Harðarson og Arnar Laufdal komu í heimsókn í Pepsi Max stúdíóið og fóru yfir stöðu mála. Það hefur mikið verið að frétta í kringum Liverpool í sumar.
Hugarburðarbolti Upphitun > Allt um Enska og Fantasy 29.07.2025
Hugarburðarbolti fór aftur af stað. Fengum góða gesti en þeir Villi Neto og Hreimur Örn komu til okkar og ræddu við okkur allt sem þú þarft að vita um enska boltann og fantasy leikinn.
Enski boltinn - Tottenham verður besta liðið í Evrópu 29.07.2025
Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina en það styttist í það að hún fari að rúlla. Í dag er komið að því að ræða Tottenham og það eru fáir betri í því en félagarnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson. Þeir ræddu Evróputitilinn, Thomas Frank og misheppnuð skipti Morgan Gibbs-White svo fátt eitt sé nefnt. Tottenham ætlar að verða besta lið Evrópu með því að vinna PSG í...
Innkastið - Skúrkur, vondur veggur og vonbrigði 28.07.2025
Innkastið eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Valsmenn eru einir á toppnum og vilja einn besta leikmann Víkings, varnarveggur Víkings gegn Fram var sjokkerandi dapur, jafntefli í fyrsta leik á gervigraslögðum Meistaravöllum og Ágúst Hlyns byrjar vel fyrir vestan. Í þættinum eru valdir þeir leikmenn sem hafa komið mest á óvart og þeir sem hafa verið mestu...
Uppbótartíminn - Lygilegt hjá Ljónynjum, Blikar í toppmálum og fallbaráttan harðnar 28.07.2025
Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum í dag þar sem Besta deild kvenna sneri aftur eftir langa EM pásu. Í þættinum í dag ræddu þeir Magnús Haukur og Guðmundur Aðalsteinn um sigur Englands á Evrópumótinu og árangur Íslands í Sviss, sigur Breiðabliks á Þrótti í toppslag, framtíðarlandsliðskonur á Sauðárkróki og margt fleira. Einnig var snert á Lengjudeildinni og 2. deild kvenna í lok þáttar.
Lokakaflinn nálgast í neðri deildum 28.07.2025
- Förum yfir allar neðri deildirnar - Úrslit síðustu umferða - Spurningar frá fans - Tippeikur næstu umferðar!
Enski boltinn - Chelsea eina liðið með allt galleríið 28.07.2025
Chelsea varð á dögunum heimsmeistari félagsliða og fyrir komandi tímabil eru væntingarnar þær að liðið verði í titilbaráttu. Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson eru fárveikir Chelsea menn og þeir komu í heimsókn í Pepsi Max stúdíóið í dag til að fara yfir stöðuna hjá Lundúnafélaginu. Ræddu þeir meðal annars um HM félagsliða, nýja leikmenn, sambandið við Arsenal og margt fleira.
Tveggja Turna Tal - Jónas Grani Garðarsson 28.07.2025
Jónas Grani á ótrúlega áhugaverða sögu að baki! Hann er sá elsti til að þreyta frumraun sína í efstu deild og er líka sá elsti til að vinna sér inn gullskó. Ferillinn hófst á Húsavík en við fórum líka yfir árin í Kaplakrika, hvernig var að vera þjálfaður af Ásgeiri El áður en við brugðum okkur til Katar, Belgíu og AC Milan! Sögur Jónasar Grana frá þessum stöðum eru stórmerkilegar. Allegri stakk ha...
Leiðin úr Lengjunni: Völsungur með stórsigur á mærudögum og HK færist nær toppnum 27.07.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
Útvarpsþátturinn - Niko, glugginn opinn og umdeilt VAR 26.07.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 26. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum og með þeim er Valur Gunnarsson. Gestur þáttarins er Nikolaj Hansen, sóknarmaður Víkings, en Víkingar eru nýkomnir frá Albaníu þar sem þeir töpuðu 2-1 í fyrri leik sínum gegn Vllaznia í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Farið er yfir Evrópuleiki vikunnar, fréttir og slúður úr íslenska boltanum, Bestu deildina og Lengjudei...
Enski boltinn - Staðan tekin þegar stutt er í veisluna 25.07.2025
Það styttist í að nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni fari af stað. Það eru aðeins tæpar þrjár vikur í að Liverpool mæti Bournemouth í upphafsleik deildarinnar. Guðmundur Aðalsteinn settist í Pepsi Max stúdíóið í dag með Sölva Haraldssyni og Kára Snorrasyni og tóku þeir stöðuna þegar stutt er í mót. Rætt var um félagaskipti sumarsins, hvaða lið séu líklegust til að taka titilinn og hvaða lið séu...
Grasrótin - 13. Umferð, "Þrotur" Vogum sofna í gasmengun 21.07.2025
Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 13. umferð í 2. og 3. deild karla, 11. umferð í 4. deild og 9. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það. Fylgið okkur á Instagram, @grasrotin. Við setjum inn mörk, félagaskipti og margt fleira.2. deild, 11:25, 3. deild, 35:20, 4. deild, 1:06:15, 5.deild, 1:28:25.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem...
Leiðin úr Lengjunni: Amin Cosic kveður með stæl og deildin tekur á sig mynd 21.07.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
Turnar Segja Sögur: Dómari, skipting 21.07.2025
Varamaður eða leikbreytir? Það er ekki öllum í lófa lagt að koma inn af bekknum og breyta gangi knattspyrnuleikja en það eru þó til mörg dæmi um slíkt. Við settumst niður og fórum yfir reglur knattspyrnusögunnar er varðar varamenn og fundum til sögur hérlendis og erlendis af mönnum sem skrifuðu nöfn sín í sögubækurnar af bekknum!
Innkastið - Valur fékk toppsætið á silfurfati 20.07.2025
Innkastið heldur áfram að ferðast um landið og er sent út frá Akureyri að þessu sinni! Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og sérstakur gestur er Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs. Í raun var hann reyndar gestgjafi þáttarins frekar en gestur en það er önnur saga. Farið var yfir stórleik Víkings og Vals og aðra leiki Bestu deildarinnar síðustu daga, Evrópuleiki, gluggann og Lengjudeildina.
Útvarpsþátturinn - Bent nálgast og fyrstur í sjö gul svarar fyrir sig 19.07.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 19. júlí. Elvar Geir og Benedikt Bóas skoða allar helstu fréttirnar úr íslenska boltanum; Evrópuleikirnir, Besta deildin, Lengjudeildin og félagaskipti. Tómas Bent Magnússon, Eyjamaðurinn á miðju Vals, er gestur þáttarins og Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, er á línunni.
Leiðin úr Lengjunni: Fylkir reif í gikkinn og það er víst hægt að vinna ÍR 16.07.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
Grasrótin - 12. Umferð, Hellaðir Haukamenn og klikkaðir KÁ menn 15.07.2025
Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 12. umferð í 2. og 3. deild karla, 10. umferð í 4. deild og 9. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það. Fylgið okkur á Instagram, @grasrotin. Við setjum inn mörk, félagaskipti og margt fleira.2. deild, 2:50, 3. deild, 34:10, 4. deild, 1:00:20, 5.deild, 1:20:30.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.