Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Uppbótartíminn - Lífið heldur áfram 15.07.2025

Í Uppbótartímanum að þessu sinni var farið yfir árangur Íslands á Evrópumótinu í Sviss. Gylfi Tryggvason og Elíza Gígja Ómarsdóttir komu í heimsókn í Pepsi Max stúdíóið og fóru yfir þetta vonbrigðamót. Ísland tapaði öllum leikjum sínum og var úr leik áður en kom að síðasta leiknum á mótinu.

Innkastið - Fúlir KR-ingar keyra Hvalfjörðinn 14.07.2025

Innkastið þessa vikuna er tekið upp á Akranesi, beint eftir 1-0 sigur ÍA gegn KR í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson. Það er allt í keng í neðri hlutanum, Vestri er einum leik frá Evrópu og Árni Guðna var látinn taka pokann sinn í Árbænum.

Turnar segja sögur: The Crazy Gang 14.07.2025

Wimbledon FC á einhverja merkilegustu "öskubuskuævintýr" í sögu ensku fótboltans. Við fórum yfir sögu the Crazy Gang, þar sem eigandinn, þjálfararnir, leikmennirnir og meira að segja búningastjórinn voru allir kolruglaðir !

Betkastið: Leikmenn neðri deilda mæta í sett 14.07.2025

Bjarki Sigurjónsson úr KÁ (4.deild), Eysteinn Þorri Björgvinsson úr Augnablik (3.deild) og Ingólfur Sigurðsson úr Víking Ó (2.deild) mættu í settið! - Farið yfir úrslit síðustu umferðar í öllum neðri deildunum - Hvernig er tímabilið búið að vera hjá þeim og þeirra liðum - Spurningar frá fans - Tippeikur næstu umferðar!

Útvarpsþátturinn - Úrvalslið Lengjudeildar og vonbrigði Íslands 12.07.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. júlí Umsjón: Elvar Geir. Farið er yfir Evrópuleiki vikunnar, tíðindi úr Bestu deildinni og næstu leikir skoðaðir. Baldvin Már Borgarsson er í fiskabúrinu og Sæbjörn Steinke í beinni frá Akureyri. Baldvin skoðar Lengjudeildina og opinberar val á liði umferða 1-11. Þá er Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson á línunni og ræðir um kvennalandsliðið.

Grasrótin - 11. Umferð, Fyrri umferðin gerð upp. Bestir, verstir og fleira 11.07.2025

Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 11. umferð í 2. og 3. deild karla, 9. umferð í 4. deild og 8. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það. Fylgið okkur á Instagram, @grasrotin. Við setjum inn mörk, félagaskipti og margt fleira.2. deild, 3:05, 3. deild, 36:40, 4. deild, 1:10:20, 5.deild, 1:39:30.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem f...

Leiðin úr Lengjunni: Verðlaunum fyrri hlutann og línur aðeins að skýrast 09.07.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Anton Freyr Jónsson.

Draumalið fyrri umferð í hverri deild (2-5. deild) 09.07.2025

- Farið yfir úrslit síðustu umferðar í öllum neðri deildunum - Lið fyrri hluta tímabils í öllum deildum - Spurningar frá fans - Tippeikur næstu umferðar!

Innkastið - Verður Valur Íslandsmeistari? 07.07.2025

Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Óskar Smári fara yfir allt það helsta. Þetta var góð umferð fyrir Val á meðan Breiðablik og Víkingur gerðu jafntefli í sínum leikjum. Vont tap hjá KR gegn KA í fallbaráttunni. Auk Bestu deildarinnar er rætt um Evrópuleikina, Lengjudeildina og EM kvenna.

EMvarpið - Tómleikatilfinning í Thun 07.07.2025

Ísland er úr leik á Evrópumótinu eftir tvö töp í tveimur leikjum. Við eigum ekki lengur möguleika á því að komast áfram sem er gífurlega sárt. Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá leikmönnum, starfsfólki og stuðningsmönnum Íslands í gær enda voru markmiðin stærri en þetta. Ísland er úr leik þegar einn leikur er eftir í riðlinum og er hægt að segja að maður finni fyrir ákveðinni tómleikatilfinningu út af...

Turnar segja sögur: Gullmörk, bikarævintýri og fallslagur í Noregi! 04.07.2025

Við Turnarnir bjóðum upp á pálínuboð í þætti dagsins. Fannar Freyr Guðmundsson, einn af bestu sonum Hafnarfjarðar, FH-ingur, Liverpoolmaður og þjálfarari Hrottanna á Litla Hrauni kom til okkar. Fáranleg saga af gullmarkinu, bikarævintýri á Íslandi og einkennileg fallbarátta í Noregi koma við sögu! Turnarnir eru í boði Lengjunnar, World Class og okkar besta Budvar!

Útvarpsþátturinn - Fjör í Mosó og markaðurinn kominn í gang 03.07.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Afturelding og Breiðablik gerðu jafntefli í fjörugum leik, Valsmenn fara á Laugardalsvöll, áhugaverð félagaskipti í íslenska boltanum, viðtal við Jón Daða Böðvarsson, Diogo Jota lést í bílslysi og stelpurn...

EMvarpið - Grautfúlt að byrja mótið með þessum hætti 03.07.2025

Ísland fékk ekkert úr úr leiknum sínum gegn Finnlandi í fyrsta leik Evrópumótsins í gær. Niðurstaðan var 1-0 sigur Finnland. Frammistaða Íslands var ekki góð í leiknum og sérstaklega var það raunin í fyrri hálfleik. Það virtist vera mikið stress í liðinu. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Aroni Guðmundssyni hjá Sýn og Helga Fannari Sigurðssyni, fréttamanni 433, í dag og var leikurinn gerður u...

Leiðin úr Lengjunni - Njarðvíkingar brjóta blað og Árbæingar að vakna? 02.07.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.

Grasrótin - 10. umferð, Mosóbrósar jarðtengdir af mögnuðum Magnamönnum 02.07.2025

Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 10. umferð í 2. og 3. deild karla, 8. umferð í 4. deild og 7. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 6:05, 3. deild, 35:05, 4. deild, 1:02:20, 5.deild, 1:28:05, Utandeild, 1:36:20.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

EMvarpið - Fylgdarmaður, fallegur bær og fyrsti leikur 01.07.2025

Íslenska kvennalandsliðið hefur á morgun leik á Evrópumótinu er þær spila við Finnland í fyrsta leik. Guðmundur Aðalsteinn er staddur í Thun í Sviss þar sem hann er að fjalla um liðið. Hann settist niður í kvöld með þeim Bjarna Helgasyni og Ágústi Beinteini, betur þekktum sem Gústa B, af Morgunblaðinu. Ræddu þeir um fyrstu dagana í Thun, leikinn á morgun og möguleika Íslands.

Tímabilið nánast hálfnað í neðri deildunum! 30.06.2025

- Förum yfir allar neðri deildirnar - Úrslit síðustu umferðar - Fyrsta umferð Fótbolta.net bikarsins - Spurningar frá fans - Tippeikur næstu umferðar!

Innkastið - Mótlæti og mætir ekki í viðtöl 29.06.2025

Innkastið eftir 13. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke. KR með nauðsynlegan sigur, Víkingur vann Aftureldingu naumlega, það hallar undan fæti hjá Vestra og ÍBV og Lárus Orri átti óskabyrjun sem þjálfari ÍA.

Útvarpsþátturinn - Besta deildin, TG9 og EM 28.06.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. júní. Umsjón: Elvar Geir og Valur Gunnars. Besta deildin er í aðalhlutverki og leikir gærdagsins gerðir upp. Lárus Orri Sigurðsson, nýr þjálfari ÍA, er á línunni og Tryggvi Guðmunds skoðar komandi leiki. Lengjudeildin er á sínum stað og Guðmundur Aðalsteinn er í beinni frá Sviss þar sem EM kvenna fer í gang á miðvikudag.

Tveggja barna móðirin sem leikur á sínu fjórða stórmóti fyrir Ísland 27.06.2025

Dagný Brynjarsdóttir er ein besta fótboltakona sem Ísland hefur átt. Á því liggur enginn vafi. Hún er núna á leiðinni á sitt fjórða stórmót eftir að hafa eignast sitt annað barn. Dagný er elsti leikmaður íslenska liðsins og mesti reynsluboltinn en hún hefur spilað 118 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 38 mörk. Dagný settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Serbíu og ræddi um feril...

Diljá og Karólína: Úr Krikanum á Evrópumótið með Íslandi 26.06.2025

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Diljá Ýr Zomers eru tvær af þeim 23 sem valdar voru í EM-hóp Íslands. Þær eru á leið til Sviss um helgina og mótið hefst í næstu viku. Þær eru jafnaldrar og léku upp alla yngri flokkana saman með FH. Báðar stigu þær sín fyrstu skref í meistaraflokki með Fimleikafélaginu áður en þær fóru mismunandi leið. Núna eru þær saman í landsliðinu sem er á leið á stórmót; Karól...

Turnar segja sögur: Ísland og Júgóslavía 26.06.2025

Á níunda áratug síðustu aldar voru erlendir leikmenn enn fáir í íslenskum fótbolta. Með átökunum á Balkanskaganum fylgdi þó mikil breyting, þegar fjölmargir leikmenn og þjálfarar frá fyrrum Júgóslavíu leituðu hingað og hófu að leggja sitt af mörkum. Þeir færðu með sér djúpa þekkingu, fagmennsku og ástríðu sem hafði djúpstæð áhrif á íslenskan fótbolta. Margir þeirra áttu glæsilegan feril hér á land...

Grasrótin - 9. umferð, línurnar farnar að skýrast í neðri deildum 25.06.2025

Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 9. umferð í 2. og 3. deild karla, 7. umferð í 4. deild og 6. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 12:00, 3. deild, 40:20, 4. deild, 1:05:35, 5.deild, 1:23:50, Utandeild, 1:34:25.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

Leiðin úr Lengjunni - Fjölnismenn sóttu langþráðan sigur 24.06.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.

Innkastið - Stuðningsmenn KR bauluðu á Hlíðarenda 23.06.2025

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Haraldur Örn í Innkastinu eftir 12. umferð Bestu deildarinnar. KR fékk skell gegn Val og stuðningsmenn KR létu óánægju sína í ljós, það voru læti í Kópavogi, Afturelding skoraði og vann á útivelli, Stjarnan á flugi, ekkert virðist geta bjargað ÍA og Gylfi átti góðan leik fyrir norðan.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.