Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR 28.12.2025

Önnur sería Fótbolta Nördans er farin af stað, og í ár eru þættirnir í mynd. Í fyrsta þætti mætti Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og tókst á við Halldór Snær Georgsson frá KR.

Útvarpsþátturinn - Kæfan 2025 27.12.2025

Haldið er í hefðina og Kæfan er á dagskrá í síðasta þætti ársins en þar er gleðin við völd þegar fótboltaárið er gert upp og veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í beinni frá fiskabúrinu á Suðurlandsbrautinni. Gestir þáttarins eru Stefán Pálsson og Orri á X-inu.

Tveggja Turna Tal - Björn Daníel Sverrisson 25.12.2025

Fyrsti gestur annarar seríu er einn af bestu sonum Hafnfirðinga, Björn Daníel Sverrisson. Þessum jólaþætti er skipt í tvennt, svo mikið er efnið. Unglingalandsliðsmaður í handbolta og líklegur til að verða atvinnumaður í íþróttinni. Ljónin og gírafarnir í S-Afríku með Viking Stv, ávöxtun sektarsjóða, óvæntur áhrifavaldur í lífi Björns, Heimir og Eiður Smári, þjálfun og miklu meira er tekið fyrir í...

Hugarburðarbolti GW 17 Þegar Trölli stal jólunum! 23.12.2025

Fórum yfir GW17 í aðdraganda jóla og spáðum í leikina sem fóru fram. Í fyrsta skipti í sögu Hugarburðarbolta krýndum við Drottningu umferðarinnar. Gleðileg jól!

Kjaftæðið - Sérstakir gestir í jólaþætti 22.12.2025

Baldvin Borgars, Óskar Borgþórs, Aron Baldvin og Haraldur Örn settust í settið og ræddu boltann.

Enski boltinn - Slakt lið vann ömurlegt lið og Yoro horror show 21.12.2025

Það er margt að ræða eftir síðustu leiki í enska boltanum. Guðmundur Aðalsteinn kom sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu ásamt bræðrunum Magnúsi Hauki og Hinriki Harðarsonum núna þegar þrír dagar eru til jóla. Hinrik er atvinnumaður í Noregi en er mættur heim í jólafrí og fékk að láta gamminn geysa um sína menn í Liverpool. Liverpool lagði Tottenham í tíðindamiklum leik og þrjú efstu lið deildarinn...

Útvarpsþátturinn - Ólafur Ingi, fréttir úr Bestu og Davíð Snorri á línunni 20.12.2025

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, er gestur þáttarins. Rætt er um Blikana og leikmannaferil Ólafs. Farið er yfir fréttir vikunnar, skúbb úr körfuboltanum og þá er Davíð Snorri Jónasson á línunni. Age Hareide er minnst og rætt um landsliðið. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gleðileg jól!

Kjaftæðið - Föstudagsgír og Tufa tekur við Varnamo 19.12.2025

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur voru léttir á föstudegi.

Kjaftæðið - Alvöru hiti í Pepsi Max studio-inu! 16.12.2025

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur settust í settið og fóru yfir stóru málin.

Hugarburðarbolti GW 16 Mr.Handsome 16.12.2025

Fengum góða gesti í stúdíóið til að fara yfir leiki umferðarinnar. Úlfarnir skoruðu öll þrjú mörk leiksins á Emirates en töpuðu samt gegn Arsenal. Man City eru komnir í gang og setja pressu á Arsenal með 0-3 sigri á Crystal Palace. Liverpool sigraði Brighton 2-0 þar sem Mo Salah kom inn á strax í fyrri hálfleik við mikinn fögnuð stuðningsmanna. Aston Villa heldur áfram frábæru gengi og unnu glæsta...

Enski boltinn - Hvað ertu eiginlega að tala um? 15.12.2025

Farið er yfir leiki helgarinnar í enska boltanum og helstu sögulínur núna þegar jólin fara að detta í garð. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir málin í Pepsi Max stúdíóinu og svo átti Kári Snorrason sterka innáskiptingu. Kári var fenginn til að ræða vægast sagt athyglisverð ummæli Enzo Maresca, stjóra Chelsea. Svo sneri Mohamed Salah aftur hjá Liverpool en Hugo Ekitike er stj...

Uppbótartíminn - Ein sú besta kveður sviðið, kraftröðun og slúður 15.12.2025

Það er komið að sérstökum jólaþætti af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur komu sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu og ræddu við Fanndísi Friðriksdóttur, eina öflugustu fótboltakonu sem Ísland hefur átt, en hún lagði skóna á hilluna á dögunum. Fanndís fór yfir ferilinn og ákvörðun sína að hætta. Í lokin á þættinum var liðunum í Bestu deild kvenna kraf...

Útvarpsþátturinn - Óli Jó og er hægt að bæta Bestu? 13.12.2025

Útvarpsþáttur vikunnar. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum mætir Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri Íslensks toppfótbolta (ÍTF), og ræðir ýmis mál. Er hægt að bæta Bestu deildina? Í seinni hlutanum er það svo hinn sigursæli Ólafur Jóhannesson en nýlega kom út bókin Óli Jó – fótboltasaga, sem er rituð af Ingva Þór Sæmundssyni íþróttafréttamanni. Útvarpsþátturinn mælir með þ...

Kolbeinn Þórðar: Algjört heillaskref og nánast fullkomið fyrir mig 11.12.2025

Kolbeinn Þórðarson átti mjög gott tímabil með Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni. Hann kom frá belgíska félaginu Lommel sumarið 2023 og hefur stimplað sig vel inn í sænska boltann. Miðjumaðurinn skoraði átta mörk og lagði upp þrjú á tímabilinu. Frammistaða hans skilaði því að hann var að banka á landsliðsdyrnar en kallið í hópinn þarf að bíða betri tíma.

Enski boltinn - Salah fór í viðtal og ótrúleg upprisa Aston Villa 09.12.2025

Það var margt um að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Jóni Hauki Baldvinssyni, stuðningsmanni Aston Villa, í Pepsi Max stúdíóinu. Viðtal sem Mohamed Salah fór í um liðna helgi var auðvitað mikið til umræðu en einnig var talsvert rætt um ótrúlega upprisu Aston Villa eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Þá var snert á ýmsu öðru...

Hugarburðarbolti GW 15 Mo Salah fékk rauða spjaldið ! 09.12.2025

Fórum yfir 15 umferð deildarinnar og byrjuðum á að skauta yfir þá fjórtándu. Það var af nógu að taka þegar jólamánuðurinn er genginn í garð. Annar þáttastjórnenda fór og skellti sér á Emirates og sá sigurleik undir ljósunum 2-0 sigur Arsenal gegn Brentford.

Kjaftæðið - Salah má fara, Slot má fara en Jónatan fer ekkert! 09.12.2025

Baldvin Borgars, Frankarinn og Jeppinn fóru yfir helgina.

Útvarpsþátturinn - Óvænt tíðindi úr Eyjum og Hlíðarendafundur 06.12.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. desember. Gestur þáttarins er Krisinn Ingi Lárusson, stjórnarmaður hjá Val. Valsmenn hafa heldur betur verið mikið í umræðunni og stjórnin verið gagnrýnd en þeir héldu félagsfund á dögunum og fóru yfir stefnu sína og áform. Sparkspekingurinn Baldur Sigurðsson ræðir stórtíðindin úr Vesmannaeyjum en Þorlákur Árnason sagði upp í vikunni. Þá er farið yfir...

Kjaftæðið - Amorim veit ekkert hvað hann er að gera 05.12.2025

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Hundur.

Kjaftæðið - Slot henti Salah á bekkinn og Chelsea frábærir! 02.12.2025

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Hundur fóru yfir helgina.

Hugarburðarbolti GW 13 Norska stórslysið ! 01.12.2025

Hreimur Örn tónlistarmaður og harður Liverpool stuðningsmaður hefur ennþá trú á sínum mönnum. Við ræddum allt um GW13 í enska boltanum og það var jólastemmning í stúdíó 1.

Enski boltinn - Jafnt á Brúnni, ruglað rautt og yfirlýsing í fyrramálið? 30.11.2025

Það var jafnt í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar Chelsea og Arsenal áttust við. Arne Slot og Rúben Amorim tóku sigra en Thomas Frank er í miklu veseni þessa dagana. Mögulega fær hann bara sparkið. Svo fór eitt ruglaðasta rauða spjald í sögu ensku úrvalsdeildarinnar á loft fyrr í dag. Það var rætt um þetta og margt fleira í þættinum í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn stýrði en með honu...

Útvarpsþátturinn - Væntingar í Krikanum og Rúnar Kristins 29.11.2025

Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 29. nóvember. Farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og rætt um Blika í Sambandsdeildinni. Orri Freyr stuðningsmaður FH er á línunni og ræðir um vonir og væntingar í Kaplakrika eftir ráðningu Jóa Kalla. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, og þá er sérstakt fjármálahorn þar sem Sævar Þór Sveinsson í Ut...

Kjaftæðið - Albert Hafsteins fékk að lofsama Arsenal 27.11.2025

Baldvin Borgars, Albert Hafsteins og Alli Hundur fóru yfir vikuna í boltanum.

Hugarburðarbolti GW 12 47 ára bið lokið og versta free hit sögunnar! 25.11.2025

Arsenal valtaði yfir Tottenham 4-1 í Norður Lundúna slagnum. Liverpool steinlá á heimavelli gegn Nottingham Forest 0-3. Newcastle vann Man City 2-1 í frábærum leik á St. James's Park. Chelsea sigraði Burnley 0-2 á útivelli. Brighton vann endurkomusigur gegn Brentford. Crystal Palace lagði Úlfana sannfærandi á útivelli og Everton lagði Man Utd 0-1 á Old Trafford.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.