Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Miðjan - Birkir um ferilinn, Barcelona og fangelsisvist 31.03.2020
Markvörðurinn Birkir Kristinsson á merkilegan feril. Hann spilaði í meistaraflokki í rúmlega 20 ár, spilaði fjórum sinnum við Barcelona, og stórleikina við Frakka fyrir aldamótin auk þess að kveðja fyrir framan rúmlega 20 þúsund áhorfendur á Laugardalsvelli. Hann fagnaði líka Evrópumeistaratitli með Barcelona liðinu árið 2009 og sat svo í fangelsi hér á landi og lauk endanlega afplánun í lok síðas...
Útvarpsþátturinn - Boltahringborðið 26.03.2020
Boltahringborðið var dregið fram í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Þátturinn er í hlaðvarpsformi á meðan á samkomubanni stendur. Elvar Geir og Tómas Þór fengu liðsstyrk en Magnús Már og Benedikt Bóas voru með þeim í þætti dagsins. Hver og einn kemur með sitt umræðuefni að hringborðinu, umræðuefni sem tengjast íslenska boltanum, enska boltanum og Evrópuboltanum.
Fótbolta Quiz Þorkels - Keppni númer tvö 25.03.2020
Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Í síðustu viku setti hann saman 30 spurninga keppni í Podcast formi og voru viðbrögðin afskaplega gó...
Miðjan - Jónsi var frábær í fótbolta en ástríðan í viðskiptum 24.03.2020
Flestir sem lýsa Jóni Þorgrími Stefánssyni segja að hann hafi verið fáránlega góður fótboltamaður en þrátt fyrir það spilaði hann bara á Íslandi og fékk aldrei sénsinn í landsliðsbúning. Eftir ferilinn hefur hann náð miklum frama í viðskiptum og lent í ótrúlegum uppákomum á ferðalögum. Hann er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjan. Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með lausnum frá Boðleið er...
Fantabrögð - Aukaþáttur - Veira og fleira 23.03.2020
Stjórnendur Fantabragða hittust í boði World Class og Nemía og fóru yfir stöðuna, nú þegar ekkert Fantasy er í gangi. Ótrúlegt en satt þá heldur Fantasy Premier League sig samt við upphaflega dagskrá umferða og því fá flestir spilarar 0 stig í hverri umferðinni á fætur annarri. Aron og Gylfi hentu í léttan leik og völdu sín draumalið í ensku úrvalsdeildinni, Aron frá 2000-2009 og Gylfi 2010-2019....
Útvarpsþátturinn - Krísufundur íslenska boltans 20.03.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net þessa vikuna ræðir um áhrif heimsfaraldursins á íslenska boltann. Elvar Geir og Tómas Þór fengu til sín góða gesti. Haraldur Haraldsson formaður ÍTF, Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar og Arnar Sveinn Geirsson forset...
Heimavöllurinn - Harpa Þorsteins, U23 og apakettir í USA 20.03.2020
Það er engin önnur en landsliðskonan og markamaskínan Harpa Þorsteinsdóttir sem er gestur Heimavallarins að þessu sinni. Hún fer yfir allt það helsta í boltanum í dag ásamt vallarstýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Því er fagnað að U23 ára landslið verði sett í gang á árinu og Harpa velur sitt U23 ára lið. Landsliðið er svo áfram til umræðu og það er erfitt að horfa framhjá þeirri óvissu s...
Fótbolta Quiz Þorkels 18.03.2020
Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Hann setti saman 30 spurninga keppni í Podcast formi.
Miðjan - Lárus Guðmunds um bikartitla, mútugreiðslur og fleira 18.03.2020
Lárus Guðmundsson var á sínum tíma eldfljótur og brögðóttur markahrókur sem fékk mikið lof hjá mönnum eins og Sir Alex Ferguson. Hann var sigursæll, bæði Íslandsmeistari og svo bikarmeistari í Belgíu og Þýskalandi en var líka sakaður um mútur og átti í útistöðum við landsliðsþjálfara Íslands. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með l...
Áratugarlið efstu deildar - Samantekt 16.03.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hélt upp á tíu ára afmæli sitt á X977 á síðasta ári með því að velja úrvalslið áratugarins í efstu deild á Íslandi, 2009-2019. Heyrt var í öllum leikmönnum liðsins og þjálfari valinn fyrir þetta magnaða lið. Hér er samantektarþáttur þar sem spiluð eru brot úr viðtölum við þessa fræknu kappa sem komust í þetta magnaða lið. Liðið: Gunnleifur Gunnleifsson; Pétur Viðarsso...
Útvarpsþátturinn - Fjárhagsáhyggjur í fótboltaheiminum 14.03.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður hlaðvarpsþátturinn Fótbolti.net á meðan samkomubann er í gangi. Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka og fótboltaáhugamaður, er gestur þáttarins. Björn ræðir meðal annars ræða um hvaða...
Innkastið - Kóróna rænir fótboltanum og lægð hjá Liverpool 12.03.2020
Evrópu-Innkastið býður upp á sérstakan aukaþátt þessa vikuna. Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Magnús Már Einarsson ræða um áhrif heimsfaraldursins á fótboltann. Þá fara þeir yfir leiki vikunnar í Meistaradeildinni og komandi leiki (vonandi) í ensku úrvalsdeildinni.
Fantabrögð - 29. Umferð - Rússíbanareiðir 11.03.2020
29. umferðin í Fantasy Premier League var ekki sú besta. Allavega ekki fyrir okkur sem settum allt traust á leikmenn sem áttu að eiga tvöfalda umferð, því hún varð það svo alls ekki eftir að frestuðum leik Manchester City og Arsenal var frestað aftur. Gamlar hetjur síðan fyrr í vetur eins og John Lundstram og Jamie Vardy sneru aftur með bombur en Harvey Barnes var stigahæstur í umferðinni með 19 s...
Miðjan - Tómas Ingi Tómasson fer yfir ferilinn 11.03.2020
Tómas Ingi Tómasson fór víða á fótboltaferlinum, var eini atvinnumaður Íslands í Austur Þýskalandi og náði flottum árangri hér á landi sem ytra. Eftir ferilinn breytti hann leiknum í fótboltaumfjöllun í sjónvarpi og fór svo í þjálfarastörf. Undanfarin ár hefur hann átt í erfiðri baráttu við heilsuna. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Þátturinn í dag er í boði Boðleiða...
Innkastið - Tómar stúkur, rauð Manchester og feðgar á ferð 09.03.2020
Það er tíðindamikil helgi að baki í Evrópufótboltanum. Enski boltinn er að vanda í aðalhlutverki í þættinum en Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Magnús Már Einarsson fóru yfir allt það helsta. Meðal efnis: Leikið fyrir luktum dyrum, United á ré...
Heimavöllurinn - Varnarsinnuð vonbrigði 08.03.2020
Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir taka stöðuna á boltanum ásamt Lilju Dögg Valþórsdóttur í nýjasta þætti Heimavallarins. Landsliðin eru áberandi í þætti dagsins en bæði A-landsliðið og U19 eru stödd á Spáni þar sem þau taka þátt í æfingamótum og undirbúa sig fyrir krefjandi verkefni. Þá er einnig farið yfir helstu fréttir og boðið upp á nokkra slúðurmola.
Nýr formaður KR og hans bakgrunnur og hugmyndafræði 07.03.2020
Páll Kristjánsson var á dögunum kjörinn nýr formaður knattspyrnudeildar KR. Páll mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og sagði frá sínum bakgrunni og hugmyndafræði í boltanum.
Ótímabæra spáin fyrir Pepsi Max - Breytingar á toppnum 07.03.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Ný ótímabær spá fyrir Pepsi Max-deildina! Ingólfur Sigurðsson mætti í hljóðver og renndi yfir ótímabæra spá fyrir Pepsi Max með Elvari og Tómasi.
Miðjan - Rauði Baróninn á mannamáli 04.03.2020
Garðar Örn Hinriksson eða Rauði Baróninn eins og hann er oft kallaður er einn besti dómari sem hefur dæmt hér á landi. Hann hefur þó komið víða við, hefur gert það gott í tónlist, leikið í bíómynd og rekið slúðurvef. Hann glímir í dag við Parkinson sjúkdóminn og hefur vakið athygli fyrir pistlaskrif um fótbolta. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Dómarar...
Fantabrögð - 28. Umferð - VAR Gylfi rangstæður? 03.03.2020
Hörmung. Það er 28. umferðin í einu orði. Hörmung. Alltof margir góðkunningjar Fantabragða annað hvort spiluðu ekki eða byrjuðu á bekk og má þar nefna Jamie Vardy, Danny Ings og Joe Gomez. Liverpool tapaði sínum fyrsta leik í vetur, fjögur lið áttu ekki leik og þetta gerði m.a. að verkum að þessi umferð var sú langlélegasta í vetur og var meðalskor spilara 26 stig. Liðsmenn Fantabragða áttu ólíku...
Innkastið - Liverpool lendir á vegg og Pep lyftir bikar 01.03.2020
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru mættir með nýtt Evrópu-Innkast sent út beint frá höfuðborginni. Í þættinum er farið yfir El Clasico og úrslitaleik enska deildabikarsins. Óvænt úrslit í ensku úrvalsdeildinni, dónaskapur í Þýskalandi og veira herjar á Evrópuboltann.
Ótímabæra 1. deildarspáin og fréttir vikunnar 29.02.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas fengu Baldvin Már Borgarsson, sérfræðing um 1. deildina, til að setja saman ótímabæra spá fyrir keppni sumarsins. Þá var farið yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum, burst Breiðabliks gegn Í...
Helgi Sig og verkefnið í Vestmannaeyjum 29.02.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Helgi Sigurðsson, þjálfari ÍBV, var gestur þáttarins og ræddi um verkefni hans framundan í Vestmannaeyjum. Leikmannamál, viðskilnaðurinn við Fylki, Gary Martin, blómvöndurinn, kórónaveiran og fleira kom við sögu &iac...
Helgin í Evrópuboltanum - Tómas heimsótti Everton 29.02.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir það sem er í boði um helgina í Evrópufótboltanum. Þá kom Tómas með ferðasögu en hann heimsótti Everton í vikunni og spjallaði við Gylfa Sigurðsson, Grétar Rafn Steinsson og fleiri.
Fantabrögð - 27. umferð - Bruno mætir á svæðið 25.02.2020
27. umferðin í Fantasy Premier League var sannkölluð hauskúpuumferð framan af, en rættist úr eftir því sem á leið og flestir spilarar náðu að tína inn nokkur stig þegar Liverpool vann West Ham 3-2. Bruno Fernandes sýndi frammistöðu sem réttlætir kaup á honum, meðan Everton bræðurnir Calwert-Lewin og Richarlison skoruðu báðir. Framundan er 28. umferðin þar sem 4 lið "hvíla". Hvað gerir maður þá? Er...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.