Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Innkastið - Bruno slær í gegn og versta VAR helgin 24.02.2020

Evrópu-Innkastið er mætt á svæðið eftir leiki helgarinnar en Magnús Már Einarsson var umsjónarmaður þáttarins að þessu sinni. Jóhann Skúli Jónsson, stuðnigsmaður Manchester United, og Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, mættu og fóru yfir öll helstu tíðindin á Englandi og í stærstu deildum Evrópu. Meðal efnis: Ný hetja á Old Trafford, Evrópudeildin er leið Man Utd í Meistaradeild, frábær...

Kári klár í slaginn - Gestur vikunnar í útvarpsþættinum 22.02.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Gestur þáttarins er Kári Árnason, landsliðsmaður og leikmaður Víkings. Það er rúmlega mánuður í umspilsleikinn mikilvæga gegn Rúmeníu en sigurliðið mun leika gegn Ungverjalandi eða Búlgaríu ytra, hreinan úrslitaleik um sæti á EM 2020.

Útvarpsþátturinn í heild - 22. febrúar 22.02.2020

Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net 22. febrúar 2020. Tómas Þór og Benedikt Bóas stóðu vaktina. Þeir ræddu um helstu fótboltafréttir vikunnar og spjölluðu við umboðsmanninn Cesare Marchetti um málefni Harðar Inga Gunnarssonar. Gestur þáttarins var Kár...

Heimavöllurinn - Íslenskur undirbúningsvetur hefst með látum 20.02.2020

Heimavöllurinn er mættur aftur, öflugri sem aldrei fyrr. Í þætti dagsins er farið um víðan völl enda nóg um að vera í boltanum. Knattspyrnuþjálfarinn Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir er gestur þeirra Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur að þessu sinni og fara þær saman yfir það sem af er undirbúningstímabilinu, ræða nýjasta landsliðsvalið og taka stöðuna á atvinnukonunum okkar svo fáeint sé nefnt.

Fantabrögð - 26. umferð - Frestun og frústrasjón 20.02.2020

26. umferð einkenndist af óreiðu þar sem langt var á milli leikja vegna vetrarfrís. Það sauð á strákunum sem treystu Aguero fyrir fyrirliðabandinu. Enn einu sinni brást það. Nicolas Pepe minnti á sig með 17 stig. Styttist í takmarkaða umferð (blank gameweek) og nú þarf að fara að gera ráðstafanir. Hverju þarf að huga að? Hvað á að gera við Son? Er Man Utd vörnin vöknuð?

Miðjan - Atli Jónasson um áföll, agabrot og fleira 19.02.2020

Það stefndi lengi í að Atli Jónasson yrði framtíðar markvörður KR en á leiðinni kom ýmislegt uppá sem varð á endanum til þess að hann spilaði bara einn leik í efstudeild. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunar á Fótbolta.net í dag.

Innkastið - VAR fellur með Man Utd og Arsenal fer með himinskautum 17.02.2020

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru mættir með Evrópu-Innkastið þessa vikuna. Ýtt var á upptöku strax eftir leik Chelsea og Manchester United og leikurinn gerður upp. Lampard hættur að vera töff, Wan-Bissaka í Allir geta dansað, bannið hjá Manchester City, svakaleg frammistaða Arsenal, fallfnykur Villa, skemmtilegasta lið Championship, Immobile og gjörsamlega fáránleg undanþága í La Lig...

KSÍ merkið umdeilda og bestu og verstu vellirnir 15.02.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Í byrjun: Jón Kári Eldon fer yfir nýja KSÍ merkið sem hefur fengið mikla gagnrýni. 14:00 Elvar og Tómas opinbera niðurstöðu í vali áhorfenda á bestu og verstu völlum Pepsi Max-deildarinnar. 39:00 Viktor Bjarki, aðstoðarþjálfari HK, í viðtali.

Fótboltapólitíkin - Taprekstur KSÍ stórt áhyggjuefni 15.02.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, ræddi við Elvar og Tómas um komandi ársþing KSÍ og helstu málin sem þar verða rædd. Í gær var ársreikningur KSÍ opinberaður en 50 millj&oacute...

Man City í tveggja ára bann - Hvað gerist næst? 15.02.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas ræddu um tveggja ára bannið sem Manchester City var dæmt í fyrir að brjóta fjárhagsreglur. Manchester City var í gær dæmt í bann frá Evrópukeppnum í fótbolta næstu tvö keppnistímabil, og sektað um 30 milljónir evra. Refsingin er fyrir brot á reglum um fjárhagslega háttvísi. Forráðamenn City eru vonsviknir yfir ákvörðun UEFA, þó hún komi þeim e...

Miðjan - Jón Páll frá Pacman Pizza til Ólafsvíkur 12.02.2020

Jón Páll Pálmason hefur þjálfað meistaraflokkslið í tíu ár þrátt fyrir að vera aðeins 37 ára gamall en hann tók við Víkingi Ólafsvík í vetur af Ejub Purisevic sem hafði stýrt liðinu síðan í upphafi aldarinnar. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunar á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Þjálfaði tónlistarmanninn Auður - Fannst hann hafa brugðist þegar Orri féll fyrir eigin hendi - Glímdi sjálfur v...

Gummi Tóta og leiðin til New York 08.02.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðmundur Þórarinsson var búinn að pakka takkaskónum og kassagítarnum og var á leið til Tyrklands þegar málin tóku óvænta stefnu. Hann samdi nýlega við New York City. Gummi Tóta fór yfir aðdragandann að þessum félagaskiptum og sagði meðal annars frá áhuga liðs í ítölsku A-deildinni. Þá ræddi hann um efasemdarraddir þess efnis að hann sé í fótboltanum af heil...

Siggi Raggi og líflegur tími með landslið Kína og Íslands 08.02.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari karlaliðs Keflavíkur, kom í heimsókn og ræddi meðal annars um tíma sinn sem landsliðsþjálfari kvennaliða Kína og Íslands. Óhætt er að segja að Siggi Raggi hafi átt líflegan þjálfaraferil þar sem ýmislegt hefru gengið á og hann þurft að takast á við nýjar áskoranir.

Íslenski boltinn - Áhugaverður leikmaður fer norður 08.02.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir tíðindi vikunnar í íslenska boltanum og spjölluðu við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, um aðstöðuleysi fyrir norðan og nýjan áhugaverðan leikmann.

Miðjan - Ragna Lóa: Vakna þú mín þyrnirós 05.02.2020

Ragna Lóa Stefánsdóttir hefur komið víða í fótboltaheiminum, var frábær fótboltakona og landsliðskona, lenti í hræðilegum meiðslum en varð síðar footballers wife í Englandi. Í dag er hún aðstoðarþjálfari KR. Hún er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjunni. Meðal efnis: - Engir yngri flokkar en var í hverfisliði með Óla Þórðar og Sigga Jóns - Tók við þjálfun meistaraflokks ÍA tvítug - Þjálfaði La...

Fantabrögð - 25. umferð - Kaup og Salah 03.02.2020

Skelfingarumferð dundi yfir þá sem höfðu bandið ekki á Salah. Agüero gat ekkert. Sterling getur ekkert. Dularfullt mannshvarf í Leicester. Eina sem er öruggt í þessum heimi er að Sheffield heldur hreinu. Stigahæstir í þessari umferð í Budweiser deildinni voru þeir Kristján Breiðfj&...

Innkastið - Draumur að Liverpool tryggi titilinn á Goodison Park 03.02.2020

Það var Liverpool þema í Evrópu Innkastinu að þessu sinni en þeir Sigursteinn Brynjólfsson, Einar Matthías Kristjánsson og Magnús Þór Jónsson frá kop.is kíktu í heimsókn og ræddu við Magnús Má Einarsson. Mikil umræða var um topplið Liverpool og aðra leiki helgarinnar á Englandi auk þess sem kíkt var á stærstu deildir Evrópu.

Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Pepsi Max-deildina 01.02.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór komu með fyrstu ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi Max-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þeir skoðuðu félagaskiptin í vetur og felldu dóma! Þá völdu þeir þá leikmenn sem þeir eru spenntastir fyrir að fylgjast með á þessu ári.

Í beinni frá Katar - Staða mála hjá Heimi og Aroni 01.02.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas ræddu stuttlega um gervigrasið í Egilshöll og félagaskipti Odion Ighalo til Manchester United. Svo var Mitch Freeley, íþróttafréttamaður beIN SPORTS í Katar á línunni. Illa hefur gengið hjá Al-Arabi, liði Heims Hallgrímssonar og Arons Einars Gunnarssonar, að undanförnu. Hverjar eru væntingarnar hjá Al-Arabi og hvernig er staða Heimis? Mitch sv...

Innkastið - Menn í svörtu sem ofsækja Woodward 29.01.2020

Elvar og Daníel tóku Evrópu-Innkast með frjálsri aðferð. Hverjir eru mennirnir sem réðust að heimili Ed Woodward? Elvar fór ofan í málið. Kobe Bryant minnst, Liverpool á leið í frí, bikardráttur, mestu vonbrigði tímabilsins, kaupin sem gætu átt sér stað og ýmislegt fleira í þættinum að þessu sinni.

Miðjan - Mikki um endurkomu í þjálfun með Njarðvík 29.01.2020

Mikael Nikuláson hefur vakið athygli í podcastþættinum Dr. Football undanfarin misseri. Hann tók við þjálfun 2. deildar liðs Njarðvíkur í haust eftir 10 ára fjarveru úr þjálfun. Hann er gestur í podcastþættinum Miðjunni þessa vikuna. Meðal efnis: - Hætti í fótbolta í fjögur ár til að djamma og vinna í tískubransanum - Stoltur af endurkomu í frábært Fylkis lið - Útihlaupin hjá Óla Þórðar - Fyrstu á...

Útvarpsþátturinn - Tveir mánuðir í umspilsleikinn 25.01.2020

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 25. janúar. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu um íslenska landsliðið, nú þegar tveir mánuðir eru í undanúrslitaleikinn gegn Rúmeníu í umspilinu fyrir EM. Þeir ræddu ítarleg...

Fantabrögð - 24. umferð - Manísk umferð 24.01.2020

Það var sannkölluð jarðarfararstemning í upptökuverinu í kvöld. Bragðarefirnir kröfðust þess að fá umfjöllun um umferðina STRAX. Fyrirliði þáttarins, Gylfi, ræsti Tind með sér sem gestastjórnanda um miðja nótt til að gera upp umferðina. Helst ber þar að nefna ákvörðun margra sem verður rifjuð upp næstu 10 árin, þ.e. að gefa Sadio Mané þrefalt fyrirliðaband. Mané. Vardy. GT. Allir þessir háklassa s...

Miðjan - Davíð Smári um Kórdrengjaævintýrið 22.01.2020

Davíð Smári Lamude, er gestur í hlaðvarpsþættinum Miðjunni að þessu sinni. Hann er þjálfari Kórdrengja sem hafa spilað 3 ár í deildarkeppni hér á landi og hafa farið upp um deild síðustu 2 ár. Þeir spila því í 2. deildinni í sumar. Meðal efnis: - Yfirlýsing um að vinna 2. deildina í haust - Afhverju hætti Ingvar Kale - Hver verður í markinu í sumar - Hvernig er félagið fjármagnað - Þurftu að neita...

Fantabrögð - 23. umferð - Upphitun fyrir tvöfalda umferð 20.01.2020

Laugardagurinn í 23. umferð var ekkert minna en hræðilegur. Þrátt fyrir að átta leikir væru á dagskrá ströggluðu Fantasy spilarar við að ná tveggja stafa tölu - ekki fyrir einstaka leikmenn heldur fyrir allt liðið í heild. Liverpool bjargaði því sem bjargað varð en meira var það ekki. En við horfum björtum augum til framtíðar þar sem næsta umferð hefst strax á morgun! Næst á dagskrá er 24. umferði...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.