Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Miðjan - Augnabliks fíflalæti og fyndnar sögur 13.05.2020
Í lok ársins 1981 var knattspyrnufélagið Augnablik stofnað en lið þeirra vakti mikla athygli næstu árin fyrir almenn fíflalæti og uppákomur. Fræg er til dæmis sagan af því þegar reynt var að stofna félagið hjá ÍSÍ. Jón Orri Guðmundsson og Andrés Pétursson rifja upp gamla tíma í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Stofnað í lok ársins 1981 - Ekki allir sáttir við stofn...
Niðurtalningin - Maggi Bö og skemmtilegustu vellirnir 12.05.2020
Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Þáttur dagsins hefst á fótboltafréttayfirliti og svo er rætt við Magnús Val Böðvarsson, vallarstjóra KR, um vallarmálin á Íslandi. Hann velur skemmtilegustu velli landsins og er settur í létta sp...
Ástríðan - Sumarið framundan í 2. og 3. deild 11.05.2020
Það styttist óðum í fótboltasumarið og því er tímabært að setjast niður og ræða neðri deildirnar. Að þessu sinni var athyglin á 2. og 3. deild. Baldvin Már Borgarsson, aðstoðarþjálfari Ægis, og Óskar Smári Haraldsson, leikmaður Tindastóls, þekkja deildirnar betur en flestir og voru fengnir til þess að koma með áhugaverða umræðupunkta. Ingólfur Sigurðsson stýrði umræðunum. Meðal efnis: - Bikarkeppn...
Atli Sigurjóns um hæðir og lægðir - „Var erfitt að mótivera sig" 09.05.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Atli Sigurjónsson, leikmaður Íslandsmeistara KR, kom í hljóðver í skemmtilegt spjall. Atli var hreinskilinn þegar hann horfði til baka á ferilinn og viðurkennir að metnaður sinn fyrir íslenska fótboltanum hafi ekki verið nægilega mikill þegar hann sá drauma um atvinnumennsku erlendis hverfa. Honum líður gríðarlega vel hjá KR og sér sig ekki snúa aftur til Ak...
Ótímabær spá fyrir Pepsi Max byggð á sandi - Blaut tuska fyrir Fjölni 09.05.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fóru yfir nýja ótímabæra spá fyrir Pepsi Max-deildina. Spá sem er byggð á sandi! Í klippunni er einnig viðtal við Ásmund Arnarsson, þjálfara Fjölnis. Grafarvogsliðið missti fyrirliða sinn þegar Bergsveinn Ólafsson tilkynnti að hann væri ekki lengur með áhuga fyrir fótbolta og lagði skóna óvænt á hilluna.
Miðjan - Bjarnólfur var til í að koma nakinn fram fyrir frægðina 06.05.2020
Bjarnólfur Lárusson var tilbúinn að gera allt fyrir frægðina, meðal annars að koma nakinn fram. Hann var atvinnumaður í Englandi og Skotlandi en sneri svo heim og þótti óheiðarlegur leikmaður sem fékk ótal spjalda. Hann var líka lengi Íslandsmethafi í kúluvarpi. Bjarnólfur er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net. Meðal efnis: - Stofnaði ráðgjafafyritæki í haust - Hluthafi í...
Heimavöllurinn: Varamaður úr KR keyptur fyrir metupphæð í Hruninu 02.05.2020
Anna Björk Kristjánsdóttir var leggjalangur framherji í yngri flokkunum. Þegar hún var 18 ára gömul var hún ennþá varamaður í KR og hafði einungis spilað 11 leiki í efstu deild. Hún gekk í gegnum mikinn missi sumarið 2008 sem hafði mikil áhrif á hennar næstu skref. Máni Pétursson sannfærir hana um að koma í miðlungslið Stjörnunnar og hún endar á því að spila 168 leiki fyrir Stjörnuna, vera goðsögn...
Útvarpsþátturinn - Þórsarar og Magni Grenivík 01.05.2020
Seinni hluti af norðurferð útvarpsþáttarins Fótbolti.net, Halló Akureyri! Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas heimsækja 1. deildarfélögin Þór og Magna í þessum seinni hluta. Rætt er við Pál Viðar Gíslason þjálfara Þórs og formanninn Óðinn Svan Óðinsson. Þá var Heimir Ásgeirsson, Eyjabitakóngur og Magnamaður, heimsóttur í nýtt vallarhús Magna á Grenivík.
Útvarpsþátturinn - Halló Akureyri! Heimsókn til KA 30.04.2020
Fyrri hluti af norðurferð útvarpsþáttarins Fótbolti.net, Halló Akureyri! Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas heimsækja KA í þessum fyrri hluta en seinni hlutinn kemur inn á morgun. Rætt er við Hallgrím Jónasson, spilandi aðstoðarþjálfara KA, og framkvæmdastjóra félagsins, Sævar Pétursson. Þá var sagt frá því hvernig dreifa á leikjum fyrstu umferðar Pepsi Max-deildarinnar og rætt um fréttirnar a...
Fantabrögð - Draumaliðsdeild Eyjabita - upphitunarþáttur 29.04.2020
Draumaliðsdeild Fótbolti.net og Eyjabita er farin af stað, en stefnt er að því að Pepsi Max deild karla hefjist 13. júní. Eins og undanfarin ár velur fólk 15 leikmenn úr liðunum 12 og má mest hafa 3 leikmenn úr hverju liði. Leikmenn kosta á bilinu 4 til 12 milljónir króna en þjálfarar hafa 100 milljónir til að kaupa leikmenn. Þeir Fantabragðabræður Aron og Gylfi fóru yfir málin og opinberuðu sitt...
Fótbolta Quiz Þorkels - Lokakeppnin 29.04.2020
Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er sjöundi miðvikudagurinn í samkomubanni og sjöunda og síðasta spurningakeppni Þorkels, í bili að minnsta kosti, er komin í loftið. Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði...
Miðjan - Gummi Torfa valdi fótboltaferil fram yfir tónlistina 27.04.2020
Guðmundur Torfason var í hljómsveitum með Mezzoforte strákunum og hefði getað orðið næsti Björgvin Halldórsson en valdi farsælan fótboltaferil framyfir það. Hann heillaði meðal annars Sir Alex Ferguson þegar hann skoraði þrjú, eða fjögur, mörk í sama leiknum á Old Trafford. Gummi Torfa fór yfir ferilinn í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Uppvaxtarárin í Vestmannaey...
Heimavöllurinn - Tilbúin í sitt tuttugasta tímabil 24.04.2020
Heimavöllurinn er laus úr sóttkví og það er nóg um að vera í þætti dagsins. Leikjahæsti leikmaður Pepsi Max, landsliðskonan og Íslandsmeistarinn Sandra Sigurðardóttir, er á leið inn í sitt tuttugasta tímabil og kíkir í heimsókn. Hildur Antonsdóttir opinberar hvaða andstæðingar hafa reynst henni erfiðastir og þeir erlendu leikmenn sem hafa skarað fram úr hérlendis eru til umræðu.
Sumargleði útvarpsþáttarins - Boltahringborð 23.04.2020
Boltahringborðið er dregið fram í þriðja sinn í samkomubanninu. Nú er sérstök sumargleði í tilefni dagsins. Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Benedikt Bóas eru við hringborðið. Hver og einn kemur með sitt umræðuefni að borðinu, umræðuefni sem tengjast íslenska boltanum, enska boltanum og heimsfótboltanum. Einnig var rætt um áhugaverðar niðurstöður á fundi UEFA sem fram fór fyrr um daginn.
Fótbolta Quiz Þorkels - Sjötta keppnin 22.04.2020
Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er sjötti miðvikudagurinn í samkomubanni og sjötta spurningakeppni Þorkels af sjö er komin í loftið. Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.
Miðjan - Damir upplifði mikið heimilisofbeldi 21.04.2020
Damir Muminovic lenti ungur í því að faðir hans yfirgaf fjölskylduna og hefur ekki átt neitt samband við hann síðan. Hann upplifði mikið heimilisofbeldi á sínum yngri árum og leitaði mikið í djamm. Í gegnum fótboltann náði hann svo góðri reglu á lífinu. Damir segir sögu sína í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net í dag. Ekkert barn á að þurfa að þola ofbeldi eða verða vitni að ofbeldi. Allt o...
Útvarpsþátturinn - Bjarni Jó og Andri Fannar 16.04.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í hlaðvarpsformi meðan samkomubann gildir. Elvar Geir og Tómas Þór fengu ansi ólíka en skemmtilega gesti þessa vikuna. Fyrri gesturinn er reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vestra. Rætt var við Bjarna um það hvernig komandi Íslandsmót geti farið fram og einnig voru rifjaðir upp gamlir tímar. 44:00 - Seinni gestur þáttarins er svo einn mest spennandi fótbolt...
Fótbolta Quiz Þorkels - Keppni fimm 15.04.2020
Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er fimmti miðvikudagurinn í samkomubanni og fimmta spurningakeppni Þorkels af sjö er komin í loftið. Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.
Miðjan - Guðmundur Mete: Æskuvinur Zlatan um Malmö, Keflavík og fleira 14.04.2020
Guðmundur Viðar Mete flutti ungur að árum til Malmö með fjölskyldu sinni og varð strax vinur Zlatan Ibrahimovic. Saman fóru þeir upp í aðallið Malmö en eftir að leiðir skyldu héldu þeir alltaf vinskap. Guðmundur Viðar kom svo heim til Íslands og spilaði með frábæru liði Keflavíkur í nokkur ár sem átti í hatrammri baráttu við ÍA. Guðmundur Viðar Mete segir sögu sína í podcastþættinum Miðjan hér á F...
Útvarpsþátturinn - Stóru málin við páskahringborðið 08.04.2020
Boltahringborðið í síðasta mánuði vakti mjög góð viðbrögð og í útvarpsþætti vikunnar er leikurinn endurtekinn. Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Benedikt Bóas eru við hringborðið. Hver og einn kemur með sitt umræðuefni að borðinu, umræðuefni sem tengjast íslenska boltanum, enska boltanum og heimsfótboltanum.
Fótbolta Quiz Þorkels - Keppni fjögur 08.04.2020
Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er fjórði miðvikudagurinn í samkomubanni og fjórða spurningakeppni Þorkels því komin í loftið. Tilvalið að halda fjölskyldukeppni um páskana! Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt o...
Miðjan - Stefán Logi: Strokubarnið sem samdi við Bayern Munchen 07.04.2020
Stefán Logi Magnússon strauk að heiman 13 ára gamall og lýst var eftir honum í blöðunum. Rúmlega þremur árum síðar var hann orðinn atvinnumaður hjá Bayern Munchen. Ferillinn hans var þó eins og jójó því næstu árin var hann atvinnumaður en kom heim og spilaði í 2. og 3. deild áður en ferillinn fór á flug að nýju og hann varð atvinnumaður og landsliðsmarkvörður Íslands. Stefán Logi er gestur í podca...
Útvarpsþátturinn - Farið yfir málin með Hannesi og Begga Ólafs 02.04.2020
Útvarpsþátturinn er aðeins í hlaðvarpsformi á meðan á samkomubanni stendur. Gestir í þætti vikunnar eru Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður og leikmaður Vals og Bergsveinn Ólafsson fyrirliði Fjölnis. Elvar Geir og Tómas Þór áttu áhugaverðar umræður við þá félaga um ýmis mál tengd boltanum og í lok þáttarins var svo farið yfir fréttir vikunnar.
Fótbolta Quiz Þorkels - Þriðja keppnin 01.04.2020
Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er þriðji miðvikudagurinn í samkomubanni og þriðja spurningakeppni Þorkels því k...
Heimavöllurinn - Topp 6, útgöngubannið og besta lið Íslands 01.04.2020
Það er smekkfullur þáttur á Heimavellinum í dag. Þátturinn er með óhefðbundnu sniði enda önnur þáttastýran föst í einangrun og hin í vinnunni. Þær láta það þó ekki stöðva sig á tækniöld. Fara yfir málin og heyra hljóðið í þeim Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur, Helenu Ólafsdóttur og Margréti Láru Viðarsdóttur sem eiga það auðvitað sameiginlegt að vera með markanef og hafa leikið fyrir Íslands hönd.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.