Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Pepsi Max upphitun og uppgjör fyrsta þriðjungs Lengjudeildarinnar 25.07.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir 9. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Þá er lengjudeildarhringborðið dregið fram. Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon skoða fyrsta þriðjung Lengjudeildarinnar og velja besta leikmanninn og besta þjálfarann í þriðjungnum.
Innkastið - Titringur í Breiðabliki og Stjarnan getur unnið mótið 23.07.2020
Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig eru með ykkur í Innkastinu eftir áttundu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Þátturinn er sendur út frá Meistaravöllum, heimavelli KR, og er í boði White Fox, það besta í bransanum og vinsældirnar eru eftir því. Meðal efnis: Pablo bestur í fyrsta þriðjungi, Breiðablik í vandræðum, baráttuandi HK, vonbrigðisjafntefli hjá KR og FH, flott byrjun Arnars Grétars, Stjarnan s...
Fantabrögð - Enski að klárast og spenna á Íslandi 22.07.2020
00:00 - Fantasy Premier League 32:22 - 50skills (Pepsi Max kvenna) 1:11:43 - Eyjabitinn (Pepsi Max karla) Eftir vasklega framgöngu í síðasta þætti sneru Arnór Gauti og Kristófer Máni aftur í hljóðverið og ræddu málin á meðan Aron er að klára lengstu hringferð sögunnar. Þess má geta að strákarnir keyrðu hringinn í kringum landið á tveimur dögum síðustu helgi og voru mættir ferskir í þátt. Hver verð...
Boltinn á Norðurlandi: Gary pirraður - Addi og dyravörðurinn unnu sigur 22.07.2020
Leikir unfanfarna daga hjá liðunum á Norðurlandi skoðaðir. Leikir Þór, KA og KF skoðaðir vel og aðeins rætt um hina leikina og pælingar tengdar þeim. KA vann sinn fyrsta leik í deildinni, Þórsarar gerðu jafntefli og Magni missti niður forystu. Áfram er uppskeran lítil í 2. deild en Tindastóll náði í gott stig á útivelli og Samherjar halda áfram á góðu skriði. Kvennalið Tindastóls er á toppi Lengju...
Heimavöllurinn: Dramatík í Pepsi Max og upphitun fyrir stórleik kvöldsins 21.07.2020
Það er nóg að gera á Heimavellinum í dag. Gestir þáttarins eru fyrrum knattspyrnukonurnar Sóley Guðmundsdóttir og Berglind Hrund. Síðasta umferð Pepsi Max deildarinnar er gerð upp ásamt því að hita upp fyrir stórleik Breiðabliks og Vals í kvöld. Meðal efnis: -Dramatísk Pepsí Max umferð -Maika'i leikmaður vikunnar - Reif sitt lið í gang -Bestu leikmenn 1.-6. umferða -Pottþétt Hekla -Upphitun fyrir...
Enska Innkastið - Man Utd og Chelsea þema 21.07.2020
Undanúrslitin í enska bikarnum fóru fram um liðna helgi og í þessari viku eru framundan lokaleikirnir í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Man Utd og útvarpsmaður á Rás 2, eru gestir vikunnar í enska Innkastinu. Meðal efnis: David De Gea, leikmannakaup sumarsins, varnarvandræði, einkunnagjöf stjóranna, niðursveifla Leicester,...
Ástríðan - Pakkfullur þáttur eftir viðburðaríka helgi 20.07.2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Þeir fjalla um liðnar umferðir í 2. og 3. deild karla en það er viðburðarík helgi að baki. Kórdrengir styrktu stöðu sína enn frekar á toppi 2. deildar og það eru Reynismenn sem eru áfram númer eitt í 3. deildinni.
Innkastið - Brynjólfur til Færeyja og KR best á Íslandi 19.07.2020
Innkastið eftir 7. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir umferðina með Elvari Geir Magnússyni. Meðal efnis: Val á besta leikmanni fyrsta þriðjungs, Rýr uppskera Breiðabliks, mikilvægur sigur Vals, Víkingar rúlla yfir Í...
Útvarpsþátturinn - Þjálfarahræringar og Guðlaugur Victor 18.07.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 18. júlí. Elvar Geir Magnússon, Baldvin Már Borgarsson og Magnús Már Einarsson fjölluðu um íslenska fótboltann. Í fyrri hlutanum var fjallað ítarlega um Pepsi Max-deildina og Lengjudeildina, einnig lítillega um 2. deildina. Rýnt var í þjálfarahræringarnar. Í seinni hlutanum er Guðlaugur Victor Pálsson landsliðsmaður í viðtali og einnig Valdimar Svavarsson...
Boltinn á Norðurlandi: Sævar Péturs ræðir þjálfaraskipti KA og Greifavöllinn 17.07.2020
Sæbjörn settist niður með Sævar Péturssyni, framkvæmdastjóri, og spurði hann út í þjálfaraskipti meistaraflokks KA en samstarfinu var slitið við Óla Stefán Flóventsson, nú fyrrum þjálfara liðsins, í vikunni. Við liði KA tók Arnar Grétarsson og stýrir hann liðinu í fyrsta sinn á morgun þegar KA mætir Gróttu á heimavelli. Sævar svaraði spurningum um þjálfaraskiptin og einnig spurningum um stefnu KA...
Boltinn á Norðurlandi: Fram á þriðjudagskvöld 15.07.2020
Þeir Sæbjörn Þór og Aci fóru yfir leikina undanfarna daga. Þór/KA fór áfram í Mjólkurbikarnum en annars var uppskeran slöpp á Norðurlandi, einungis fimm stig af 27 mögulegum. Það var Tindastóll sem hélt upp í heiðrinum með sigri og Samherjar ásamt KA fengu stig á heimavelli. Dagskráin: KA 1-16 (mín), Þór 16-23, Magni 23-34, 2. deild 34-48 Tindastóll kk 48-51, Samherjar 51-55, Mjólkurbikar kvenna 5...
Fantabrögð - Hægðir og lægðir 14.07.2020
00:00 - Eyjabitinn 45:14 - 50skills 1:07:30 - Premier League Það voru hægðir og lægðir í þessari viku hjá Fantasy leikmönnum. Lítið um hæðir. Kristófer Máni og Arnór Gauti, varamenn Fantabragða, mættu til Gylfa í stúdíóið á meðan Aron er í sum...
Innkastið - Fylkir kemur öllum á óvart og óvæntur brottrekstur 13.07.2020
Í þessu Innkasti er farið yfir sjöttu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson skoða leikina og helstu fréttapunktana. Lengjudeildin er einnig til umræðu. Meðal efnis: Skagamenn skora mörkin, dýrkeypt markvarðamistök, vonbrigði á Hlíðarenda, góðir KR-ingar, Fylkismenn koma öllum á óvart, andleysi í FH, KA í vandræðum, þjálfari Ólafsvíkur rekinn, efri hluti...
Ástríðan - Fjörug fimmta umferð í 2. og 3. deild 13.07.2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Kórdrengir tróna á toppi 2. deildar og það eru Reynismenn sem eru númer eitt í 3. deildinni. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Í þætti vikunnar fara þ...
Stjarnan snýr aftur í Pepsi Max - Eyjó Héðins kominn úr sóttkví 11.07.2020
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977. Eyjólfur Héðinsson, leikmaður Stjörnunnar, mætti í heimsókn en hann er nýlaus úr sóttkví eins og stærsti hluti leikmannahóps Garðabæjarliðsins. Stjarnan mætir aftur til leiks í Pepsi Max-deildinni &aa...
Íslenski boltinn - Rasismi í 4. deild og Pepsi Max upphitun 11.07.2020
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um kynþáttafordóma í 4. deild og hituðu upp fyrir 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar.
Boltinn á Norðurlandi: Afmælissigrar hjá Blö og yfirburðir KF - Dapurt hjá Þór, KA og Magna 10.07.2020
Í þættinum fara þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson yfir leikina í miðri viku. Bæði lið Tindastóls sigruðu sína leiki, KF heldur sínu taki á Dalvík/Reyni og Völsungur fékk sitt fyrsta stig. Síðustu leikir voru ekki góðir fyrir Þór, KA og Magna og er staðan skoðuð. Skýrsla úr leikjunum hjá Þór og KA ásamt leiknum á Dalvík. Dagskráin Dalvíkurvöllur: (mín) 0-26, Völsungur: 26-28 Tindast...
Enska Innkastið - Bjartsýnir stuðningsmenn Arsenal 10.07.2020
Það er Arsenal þema í enska innkastinu að þessu sinni en skytturnar hafa verið á góðu flugi að undanförnu. Gestir þáttarins eru Arsenal stuðningsmennirnir Jón Kaldal og Engilbert Aron Kristjánsson.
Innkastið - KA í brekku og öftustu menn gefa mörk á silfurfati 09.07.2020
Innkastið fjallar um leiki 5. umferðar Pepsi Max-deildar karla og einnig er farið yfir 4. umferðina í Lengjudeildinni. Elvar Geir, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fara yfir málin í þætti dagsins. Meðal efnis: Óskar Hrafn pirraður eftir jafntefli gegn FH, stefnir í spennandi toppbaráttu, Vængbrotnir Víkingar í veseni gegn Val, Grótta opnar flóðgáttir, Valgeir sýndi gæði sín gegn ÍA, næstu t...
Ástríðan - Þétt spilað í 2. og 3. deild 09.07.2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þórarinn Jónas Ásgeirsson, aðstoðarþjálfari Hauka, er gestur í Ástríðunni að þessu sinni. Þáttastjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum er Sverrir M...
Heimavöllurinn - Hreint HK-lak, 14 ára Lengjuskorari og Maxarar losna úr kví 09.07.2020
Boltinn rúllar í öllum deildum og knattspyrnuþjálfararnir Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Steinunn Sigurjónsdóttir mæta á Heimavöllinn í dag og fara yfir gang mál ásamt þáttastýrum. Þær renna yfir stöðuna í deildunum þremur, fara yfir helstu fréttir og kaffistofuspjallmola og benda hlustendum á leikmenn sem lofa góðu í Maxinu svo eitthvað sé nefnt.
Fantabrögð - Fastir liðir eins og venjulega 07.07.2020
Fantasy Premier League heldur áfram og Manchester United leikmenn eru heldur betur að gera það gott. Bruno Fernandes, Martial, Rashford og Greenwood skipta stigunum á milli sín í að því er virðist hverjum leik og nú er þetta bara spurning um hvaða þrjá af þessum þú ætlar að hafa í þínu liði. Manchester City eiga frábæra leikjadagskrá framundan en fóru illa að ráði sínu gegn Southampton og töpuðu 1...
Boltinn á Norðurlandi: Ísinn brotinn í 2. deild en dimmt yfir austan Akureyrar 06.07.2020
Í þættinum er farið yfir leikina átta hjá liðunum fyrir norðan sem leiknir voru fyrir helgi og um helgina. Fjórir sigrar unnust, eitt jafntefli og þrjú töp. Þórsarar eru með fullt hús, fyrstu sigrarnir í 2. deild og KA fékk stig á Greifavelli. Magni og Völsungur eru án stiga á meðan Samherjar rétta skútuna við. Dagskráin: KA: 0-23 (mín), Þór: 23-38, Magni: 38-45 KF: 45-60, Dalvík/Reynir: 60-64, Vö...
Innkastið - Vanstilltir dómarar og völlur sem ræður úrslitum 06.07.2020
Það var líf og fjör í leikjum helgarinnar í Pepsi Max-deildinni. Elvar Geir, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fara yfir alla leikina í Innkastinu. Meðal efnis: Víkingar sáu rautt, vanstilltir dómarar, Greifavöllurinn áfram í umræðunni, Lengjudeildarbragur yfir leik Gróttu og HK...
Lengjuhringborðið - Mjög áhugaverð byrjun á skemmtilegri deild 04.07.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fengu sérfræðinga þáttarins um Lengjudeildina í heimsókn þegar einum leik var ólokið í 3. umferð. Úlfur Blandon og Rafn Markús Vilbergsson mættu í hljóðver og fóru yfir gang mála og hvað við höfum lært í byrjun móts.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.