Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Íslenski boltinn - Staða Arnars, KR í sóttkví og drama í Ólafsvík 22.08.2020
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. ágúst. Tómas Þór Þórðarson var sendur í sóttkví rétt fyrir þátt eftir frægt morgunverðahlaðborð á Hótel Rangá en Elvar Geir Magnússon fékk góða menn í hljóðverið! Runólfur Trausti íþróttafréttamaður á Vísi og Rafn Markús Vilbergsson, fyrrum þjálfari Njarðvíkur, voru með við hringborðið og farið var yfir vikuna í íslenska boltanum. T...
Heimavöllurinn - Sonný safe hands, 42 dagar í sóttkví og stuð á Eyjafjölskyldunni 21.08.2020
Það er nóg um að vera hérlendis sem og erlendis um þessar mundir. Framundan eru risa leikir í Meistaradeild Evrópu og Pepsi Max-deildin okkar rúllar áfram með hnökrum.
Ástríðan - 2. og 3. deild komnar aftur á fleygiferð 21.08.2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Þeir fjalla um 2. og 3. deild karla en þessar deildir eru aftur komnar á fulla ferð eftir hlé sem var gert vegna kórónaveirufaraldursins og n&...
Boltinn á Norðurlandi: Gleði og samstaða í 603 - Brekkustrákar skora ekkert 20.08.2020
Loksins loksins! Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke fóru yfir síðustu leikina fyrir hlé og þá leiki sem hafa farið fram á undanfarinni viku. Nóg var um að ræða: Engin markaskorun hjá KA, Þórsarar með endurkomu og öflugan sigur og sama gamla hjá Magna. KF getur ekkert gegn Víði, Völsungur vann sinn fyrsta leik en svo ekki söguna meir og 'same shit different day' hjá D/R. Þór/...
Fantabrögð - FPL opnar aftur! 18.08.2020
Það var nóg að ræða í Fantabrögðum - íslenski boltinn kominn aftur af stað og þá þarf að hressa uppá liðin sín. Strákarnir fóru yfir það helsta í draumaliðsdeildum Eyjabita og 50skills og aðallega þá hvað fór úrskeiðis.
Innkastið - Flautumörk, leiðindi í KA leikjum og formleysi í Grindavík 17.08.2020
Innkastið snýr aftur eftir veiruhlé! Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis eru í þættinum í dag og fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Pepsi Max-deildin og Lengjudeildin eru til umræðu. Meðal efnis: Dramatískur Stjörnusigur, Brynjólfur kom sér á blað, Arnar Gunnlaugs sá rautt, Ingvar vonbrigði, Fjölnismenn eiga enga von, leiðindi á Hlíðarenda, flautuvíti á Skaganum, Gunni giskar og Leng...
Meistaradeildin - Barcelona í skelfilegum málum 15.08.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðmundur Benediktsson hefur áhyggjur af málum hjá Barcelona. Hann lýsti ótrúlegum 8-2 sigurleik Bayern München gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Rætt var við Gumma Ben í útvarpsþættinum Fótbolti.net á...
Íslenski boltinn - FH sendir skilaboð og áhugaverð ummæli Óla 15.08.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Úlfur Blandon ræða um íslenska boltann. Pepsi Max-deildin er í aðalhlutverki og leikir gærkvöldsins krufnir ásamt því að komandi leikir eru skoðaðir. Far...
Ítalski boltinn - Björn Már gerir upp liðið tímabil í A-deildinni 14.08.2020
Björn Már Ólafsson, helsti sérfræðingur Íslendinga um ítalska boltann, gerir upp tímabilið 2019-20 í ítölsku A-deildinni. Í þessum þætti ræðir Elvar Geir við Björn Má um þetta sérstaka tímabil þar sem heimsfaraldurinn hafði mikil áh...
Heimavöllurinn - Gunnhildur Yrsa er mætt aftur í íslenska boltann 14.08.2020
Það ríkir gleði á Heimavellinum eftir að heilbrigðisráðherra og KSÍ gáfu grænt ljós á að Íslandsmótið í knattspyrnu gæti haldið áfram að rúlla. Framundan er því mikið líf og fjör.
Ungstirnin - Fyrsti þáttur: Andri Fannar gestur 13.08.2020
Ungstirnin er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Þáttastjórnendur eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti er fjallað um Ozan Kabak (Schalke), Ryan Gravenberch (Ajax) og Sebastiano Esposito (Inter) en talið er að þessir strákar eigi mjög bjarta framtíð. Þá kom Andri Fannar Baldursson, leikmað...
Útvarpsþátturinn - Óvissan hjá íslenskum félögum og landsliðinu 08.08.2020
Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þann 8. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór fjölluðu um óvissuástandið í íslenska boltanum við Pál Kristjánsson, formann KR, og Frey Alexandersson, aðstoðarlandsliðsþjálfara. Einnig var rætt um Meistaradeild Evrópu. Dagskráin: 04:30 Meistaradeild Evrópu 18:45 Umræða um veiruástandið í íslenska boltanum 33:30 Viðtal við Pál Kristjánsson 59:30 Viðtal við Fre...
Ástríðan - Þriðjungsuppgjör og hitamál 06.08.2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þrátt fyrir að boltinn sé stopp um þessar mundir þá heldur Ástríðan áfram á fullri ferð. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Þeir fjalla um 2. og 3. deild karla og í þætti dagsins er sérstakt þriðjungsuppgjör í báðum deildum. Valdi eru fimm bestu leikmenn í hvorri deild það sem af er tímabili. Þá eru f...
Fantabrögð - Sá besti á landinu gerði upp enska tímabilið 04.08.2020
Gunnar Björn Ólafsson, stigahæsti leikmaður Fantasy Premier League á Íslandi tímabilið 2019-2020, kom í heimsókn til Arons og Gylfa og fór yfir hvernig maður verður Íslandsmeistari í FPL. Hann deildi öllum sínum leyndarmálum, svo sem hvenær hann spilar hinu villta spili (e. wildcard),...
Íslenski boltinn í limbói vegna veirunnar - Klárum þetta mót! 01.08.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Aftur er komið upp óvissuástand í íslenska fótboltanum vegna kórónaveirufaraldursins. Þórir Hákonarson, sérfræðingur þáttarins, fór yfir stöðu mála og rætt var um viðbrögð f&o...
Bikaryfirferð - ÍBV og Fram að gera gott mót 01.08.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Benni Bóas og Gísli Þorkels stýrðu skútunni. Ingólfur Sigurðsson mætti í heimsókn og fór yfir bikarleiki vikunnar, 16-liða úrslitin. Eftir dráttinn í 8-liða úrslt er ljóst að þa&e...
Heimavöllurinn - Uppgjör á fyrsta þriðjungi Lengjudeildarinnar 31.07.2020
Þáttur dagsins er tileinkaður fyrsta þriðjungi Lengjudeildarinnar. Knattspyrnuþjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Gylfi Tryggvason mæta í heimsókn og kryfja málin til mergjar ásamt Mist Rúnarsdóttur. Hvernig eru liðin að standast væntingar? Hvaða leikmenn og þjálfarar hafa skarað fram úr og hvaða lið hefur valdið mestum vonbrigðum?
Boltinn á Norðurlandi: Milo skákaði Deano, fyrsta stigið, múrað fyrir og sex á sig 30.07.2020
Það var aldeilis nóg um að vera síðastliðinn sunnudag þegar leikið var í efstu fjórum deildum Íslandsmóts karla. KA gerði jafntefli gegn Íslandmeisturunum, Þór steinlá gegn Fram, Magni náði í sitt fyrsta stig og KF vann gegn Selfossi. Dagskrá í tímaröð: Pepsi Max, Lengjan, 2. deild, 3. deild 4. deild, tímabær sigur Þór/KA og óvænt tap Tindastóls Næstu leikir, skilaboð frá KSÍ. Umsjónarmenn: Aksent...
Ástríðan - Allt það helsta í 2. og 3. deild með góðum gesti 29.07.2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Þeir fjalla um liðnar umferðir í 2. og 3. deild karla en þar hefur verið mikið leikjaálag að undanförnu og nóg að ræða. Dómgæslan hefur verið í umræðunni. Með þeim í þættinum í dag er Maggi Hödd, Magnús Haukur Harðarson, fótboltaáhugamaður og fyrrum þjálfari Vængja J...
Sandra María: Þakklát fyrir að fá að upplifa drauminn 28.07.2020
Sandra María Jessen skrifaði nýverið undir nýjan eins árs samning við Bayer Leverkusen og mun hún því leika með liðinu á komandi leiktíð í þýsku Bundesliga. Sandra gekk í raðir félagsins í janúar í fyrra og hafði nokkrum árið áður verið að láni hjá félaginu.
Heimavöllurinn - Sif Atla, Svíþjóð og mikið Maxað 28.07.2020
Sif Atladóttir, landsliðskona, mætir í boltaspjall á Heimavellinum í dag. Hún fer yfir gang mála í sænsku deildinni og pælir í Pepsi Max með þáttastýru. Það varð aldeilis sprenging í uppgjöri toppliðanna í síðustu viku og pakkinn frá miðri deild og niður er sögulega þéttur. Ný Hekla er valin og við opinberum hvaða leikmaður var kosin best eftir fyrsta þriðjung Íslandsmótsins.
Innkastið - Sóknarsýning Blika og sterk KA gleraugu 28.07.2020
Fjallað um fjöruga níundu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson eru í Innkastinu að þessu sinni. Þátturinn er í boði White Fox, það besta í bransanum og vinsældirnar eru eftir því. Meðal efnis: Blikar með sýningu í fyrri hálfleik, KA gleraugun, Fylkismenn koma til baka, góð ferð Vals í Grafarvog, Lennon bjargar FH, Gunni giskar, bikarinn framundan, Leng...
Fantabrögð - Uppgjör á enska tímabilinu 27.07.2020
Þá er hinu langa og sögulega tímabili 2019/2020 lokið í enska boltanum og þar með einnig Fantasy Premier League. Aron kom endurnærður úr sumarfríi og gerði upp tímabilið með Gylfa sem var þó heldur svekktur eftir erfiðan vetur. Hvað gekk upp - og það sem meira máli skiptir...
Boltinn á Norðurlandi: Addi heldur hreinu, úttekt á Grillvelli og grannaslagir gerðir upp 25.07.2020
Í þætti kvöldsins fengu þeir Aci og Sæbjörn fyrrum varamarkvörðinn, Egil Sigfússon, sem gest. Egill sagði frá sínum ferli og valdi meðal annars þrjá bestu varamannabekki landsins. Farið var ítarlega yfir nágrannaslagina tvo, heimaleik Samherja í dag, Þór/KA - Fylki og útileik KA í Kaplakrika. Dagskráin: Sögustund 1-7 (mín), KA 7-27, Þór - Magni 27-46, Völsungur - KF 46-60, Dalvík/Reynir 60-67. Tin...
Enski boltinn - Lið ársins valið og lokaumferðin skoðuð 25.07.2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fengu Kristján Atla Ragnarsson, sérfræðing um enska boltann, í heimsókn. Kristján skoðaði lokaumferðina. Fer Manchester United í Meistaradeildina? Þá valdi Kristján lið ársins í deildinni.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.