Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Innkastið - Yfirferð að loknum Ofursunnudegi 13.09.2020

Það var tíðindamikill Ofursunnudagur í Pepsi Max-deildinni. Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig fara yfir leiki dagsins og helstu umræðuefnin. Einnig er Lengjudeildin skoðuð. Meðal umræðuefna: Gjafmildir Blikar, gaman í Krikanum, alvöru lokasprettur Stjörnumanna, Valur 2020 eins og KR 2019 og augljósasta bakhrinding í heimi.

Útvarpsþátturinn - Íslenski, landsliðið og Eggert Gunnþór 12.09.2020

Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þann 12. september. Elvar Geir og Tómas Þór voru á sínum stað. Í upphafi: Íslenski boltinn. Mjólkurbikarleikir vikunnar og ofursunnudagur framundan í Pepsi Max. 32:00 Landsliðsuppgjör. Freyr Alexandersson aðstoðarlandslandsliðsþjálfari á línunni. 67:30 Gestur þáttarins. Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH.

Boltinn á Norðurlandi: Leikur sumarsins, útstimplun og óskráður samningur 10.09.2020

Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson fóru yfir þá leiki sem fram hafa farið síðan þeir ræddu málin síðast. 2. deild karla var í sviðsljósinu og sérstaklega stórskemmtilegur leikur D/R gegn Völsungi í gær. KF er í öruggum málum og vann granna sína í enn eitt skiptið. Baráttan er hins vegar blóðug á botninum. Þórsarar stimpluðu sig rækilega úr toppbaráttunni í Lengjunni og Magni á gífur...

Heimavöllurinn: Sjóðheitir nýliðar og allt í steik í neðri hlutanum 10.09.2020

Landsliðið okkar fær loksins að spreyta sig eftir alltof langa covid pásu. Framundan eru risa leikir gegn Lettlandi og Svíþjóð og leikmannahópurinn sem tekur þátt í þeim verkefnum var kynntur í dag.

Enski boltinn - Nær Liverpool að verja titilinn? 10.09.2020

Enska úrvalsdeildin hefst á laugardaginn og Fótbolti.net heldur áfram upphitun sinni fyrir mótið. Einar Matthías Kristjánsson, Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson, stuðningsmenn Liverpool af kop.is, kíktu í spjall fyrir tímabilið. Meðal efnis: Thiago Alcantara, fá leikmannakaup, æfingaóður Klopp, nýr vara vinstri bakvörður, nýtt leikkerfi?, Keita gæti komið inn í liðið, of lítil samkepp...

Fantabrögð - Stund sannleikans 09.09.2020

Gylfi Tryggvason sneri aftur í byrjunarliðið hjá Fantabrögðum og gaf upp sitt lið fyrir fyrstu umferð í Fantasy Premier League. Strákarnir ræddu allt sem þú þarft að vita fyrir nýtt tímabil í enska boltanum, m.a. nýja leikmenn Chelsea og mikilvægustu breytinguna á Fantasy leik...

Enski boltinn - Breytt staða hjá Arsenal 09.09.2020

Enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi og Fótbolti.net heldur áfram upphitun sinni fyrir mótið. Einar Guðnason, aðstoðarþjálfari Víkings R, og Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, komu og ræddu um lið Arsenal.

Ástríðan - Agaleysi og lið forðast toppbaráttu 09.09.2020

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Boðið er upp á langan og veglegan þátt að þessu sinni þar sem málin eru skoðuð í 2. og 3. deild.

Ungstirnin - Óþekk ungstirni og fleiri efnilegir í enska 08.09.2020

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Þáttastjórnendur eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þriðja þætti er fjallað um Alessandro Bastoni (Inter), Romario Baró (Porto) og Filip Stevanovic (Partizan). Rætt er um ævintýri Mason Greenwood og Phil Foden hér á Íslandi. Þá er haldið áfram að s...

Enski boltinn - Tottenham menn hafa trú á Mourinho 07.09.2020

Enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi og Fótbolti.net heldur áfram upphitun sinni fyrir mótið. Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson kíktu í spjall og ræddu komandi tímabil. Meðal efnis: Amazon þættirnir, bjartsýni eftir erfiða tíma, trú á Mourinho, lítið til í buddunni, vesen í vinstri bakverði, sókndjarfur Doherty, Fantasy, Alli vantar pláss, gríðarlegt...

Innkastið - Tapað fyrir Englandi á vítapunktinum 05.09.2020

Eftir landsleik Íslands og Englands í Þjóðadeildinni, 0-1 tapið svekkjandi, fóru Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson yfir leikinn. Rætt var um allt það helsta og farið yfir frammistöðu einstakra leikmanna. Einnig var rýnt í fra...

Enski boltinn - Chelsea blæs í herlúðra 05.09.2020

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 5. september. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson halda um stjórnartaumana og Jóhann Már Helgason, sérfræðingur um Chelsea, var með þeim. Enska úrvalsdeildin fer aftur af stað um næstu helgi og nóg hefur verið í gangi hjá Chelsea, liðið hefur verið hrikalega öflugt á leikmannamarkaðnum og keypt nýjar stjörnur.

Íslenski boltinn - Leikmannahræringar og spennandi einvígi 05.09.2020

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 5. september. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson halda um stjórnartaumana og sérfræðingurinn Úlfur Blandon var með þeim. Meðal umræðuefna: Fréttirnar úr Pepsi Max-deildinni, Evrópumöguleikar KR, komandi leikir í Lengjudeildinni og landsleikirnir. Þá settu Tómas og Úlfur saman úrvalslið fyrir Pepsi Max. Hvort liðið er sterkara?

Aðeins meiri ástríða - Ingimar Elí og Atli Gunnar 04.09.2020

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þessum hliðarþætti koma góðir gestir og ræða um lífið í neðri deildunum. Gestir þáttarins eru Ingimar Elí Hlynsson, aðstoðarþjálfari ÍA, og Atli Gunnar Guðmundsson, markvörður Fjölnis. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason.

Fantabrögð - Upphitun fyrir enska tímabilið 01.09.2020

Gylfi Tryggvason lá undir feldi að þessu sinni að stilla upp liði og til að fylla hans skarð fékk Aron til leiks ríkjandi Íslandsmeistara í Fantasy Premier League, Gunnar Björn Ólafsson. Saman fóru þeir yfir lið Gunnars og spáðu í spilin fyrir komandi leiktíð. - Hvað gerir Che...

Ástríðan - Leikjaflóðið í 2. og 3. deild heldur áfram 31.08.2020

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Sverrir Mar Smárason heldur einn um stjórnartaumana að þessu sinni en hann fékk öflugan liðsstyrk sér við hlið. Alexander Már Þorláksson mætti og fór með honum yfir sviðið. Farið er yfir leikina í 2. og 3. deild síðustu vikuna.

Boltinn á Norðurlandi: Hringt í útsendara og samningum rift 30.08.2020

BÁN hringdi á sunnudagskvöldi í þá Anton Frey Jónsson og Egil Sigfússon og fóru þeir Aci og Sæbjörn yfir Lengjudeildina og KA með séfræðingunum að sunnan. Staðan: Þór/KA þarf að horfa á liðin fyrir neðan, Þórsarar horfa upp fyrir sig, líflína hjá Magna og KF búið að halda sér uppi. Völsungur fallið en D/R vann lykilsigur. Samherji og Tindastóll karlamegin keppa að litlu á meðan Stólastelpur horfa...

Innkastið - Pepsi Max og Lengjan með Gunna samloku 30.08.2020

Elvar Geir og Gunni Birgis stýrðu Innkastinu og fengu sérstakan heiðursgest í þáttinn; Gunnar Sigurðarson. Gunni samloka fór meðal annars yfir vindasamt tímabil hjá hans mönnum í Víkingi Ólafsvík og valdi skemmtilegustu og verstu velli landsins. Í þættinum er farið yfir le...

Allt í Messi hjá Barcelona - Einar Örn skoðar málin 29.08.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það nötrar allt og skelfur bak við tjöldin hjá stórliði Barcelona. Kallað er eftir því að forseti félagsins segi af sér og Lionel Messi vill fara. Eða hvað? Vill hann fara? Einar Örn Jónsson íþróttafr&ea...

Helmingsuppgjör Pepsi Max með Arnari Halls 29.08.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór stýrðu uppgjöri fyrri helmings Pepsi Max-deildarinnar. Sérfræðingur þáttarins er þjálfarinn og leikgreinandinn Arnar Hallsson sem hefur verið með pistla á Fótbolta.net á tímabilinu þar sem hann rýnir dýpra í leiki deildarinnar. Hann kom með nýja vinkla í umræðuna. Einnig var opinberað úrvalslið fyrri helmings deildarinnar.

Innkastið - 80% á Val og KR að stimpla sig út 26.08.2020

Allir meðlimir Innkastsins sem ekki eru í sóttkví voru samankomnir á Ölveri í Glæsibæ og fóru yfir helstu málin. Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig gerðu upp fjóra leiki í Pepsi Max-deildinni en burðarleikurinn var stórleikur KR og Vals á Meistaravöllum sem endaði 4-5. Eð...

Ástríðan - Yfirferð yfir leiki síðustu helgar 25.08.2020

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Farið var yfir leiki helgarinnar í 2. og 3. deild. Áfram halda vandræði Völsungs og Bondhornið var kynnt til leiks

Ungstirnin - Efnilegir í enska og Víkingar í heimsókn 24.08.2020

Ungstirnin er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Þáttastjórnendur eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum öðrum þætti er fjallað um Eduardo Camavinga (Stade Rennais), Calvin Stengz (AZ Alkmaar) og Marco Kana (Anderlecht). Skoðað er hvaða efnilegu leikmenn gætu brotist inn í aðallið sinna félaga og...

Innkastið - Þeir bestu í Pepsi Max og úrvalslið Lengjudeildarinnar 24.08.2020

Fyrra Innkast vikunnar. Elvar Geir Magnússon, Ingólfur Sigurðsson og Baldvin Már Borgarsson eru í hljóðverinu að þessu sinni. Farið er yfir leiki helgarinnar í Pepsi Max-deild karla og þeir velja besta markvörðinn, varnarmanninn, miðjumanninn og sóknarmanninn í deildinni. Þá er síðasta umferð Lengjudeildarinnar gerð upp og úrvalslið fyrri hlutans opinberað. Innkastið er í boði White Fox.

Launaþak er bylting í enska boltanum 22.08.2020

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. ágúst. Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka, kom í þáttinn og fræddi fólk um launaþakið sem hefur verið tekið upp í C- og D-deildum enska boltans. Þessar nýju reglur eru by...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.