Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fantabrögð - Ollie-ðandi frammistaða 06.10.2020
Ollie hornið var langt að þessu sinni, enda opnaði Ollie Watkins markareikning sinn með þrennu gegn Englandsmeisturum Liverpool. Ekkert við þetta gufuruglaða tímabil meikar sens og þessi umferð í enska boltanum og FPL staðfesti það endanlega. Son var ekki meiddur, heldur fullfrískur og refsaði grimmilega þeim sem seldu hann - aftur! Wolves líta ekki vel út og West Ham eru skyndilega eitt heitasta...
Enski boltinn - Galin úrslit degi fyrir gluggadag 05.10.2020
Ótrúleg úrslit litu dagsins ljós í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Í dag er síðan gluggadagurinn og mörg lið í leit að liðsstyrk. Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, eru í skýjunum eftir 6-1 útisigur á Manchester United. Þeir félagar mættu í heimsókn og ræddu helgina í enska boltanum og gluggdaginn.
Innkastið - Mátti ekki mæta í viðtal og allt í hnút í Evrópubaráttu 05.10.2020
Í Innkastinu er fjallað um sunnudagsumferðina í Pepsi Max-deildinni, spennuna fyrir lokaumferðir Lengjudeildarinnar og einnig um komandi landsleik Íslands og Rúmeníu. Elvar Geir Magnússon, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fara yfir málin. Allt í boði White Fox! Meðal efnis: Andlit White Fox í deild...
Ítalski boltinn - Sérstakur upphitunarþáttur 04.10.2020
Loksins er kominn hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goð...
Útvarpsþátturinn - Boltahringborð, VAR og xG 03.10.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. október. Sérfræðingarnir Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon ræða um allt það helsta í íslenska boltanum, leiki og fréttir tengdar Pepsi Max-deild karla og Lengjudeildinni. Tómas Þór og Elvar Geir ræða um landsliðshópinn og komandi leik gegn Rúmeníu. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dómari var á línunni en VAR verður notað í fyrsta sinn formlega í kep...
Heimavöllurinn: Lengjufjör - Sögulegt á Króknum og Kef stoppar stutt 02.10.2020
Það er allt á suðupunkti í boltanum en í dag fær Lengjudeildin sviðsljósið á Heimavellinum. Nú er ljóst að Tindastóll og Keflavík fara upp um deild á meðan það fellur í hlut Fjölnis og Völsungs að falla. Knattspyrnuþjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson mæta í sett og skoða Lengjusumarið til þessa.
Fantabrögð - Ólýsanleg martröð 01.10.2020
Einhverntímann var manni kennt að það væri bannað að sparka í liggjandi mann. En Fantasy Premier League virðist ekki hafa kynnt sér þá reglu og lætur mann nú hafa það óþvegið viku eftir viku. Eins og kom fram í síðasta þætti þá tóku allir 3 stj...
Ástríðan - Yfirferð vikunnar í 2. og 3. deild 30.09.2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Farið er yfir allt það helsta í 2. og 3. deild karla. Leikirnir skoðaðir og fréttir sagðar.
Ungstirnin - Alex Þór og nýtt ungstirni Juventus 30.09.2020
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum fimmta þætti er fjallað um Sergino Dest (Barcelona), Dejan Kulusevski (Juventus) og Michaël Cuisance (Bayern). Þá kemur Alex Þór Hauksson, fyrirliði Stjörnunnar, í heimsókn og er rætt um all...
Boltinn á Norðurlandi: Æðri máttarvöld aðstoðuðu Magnamenn - Dramatík á Húsavík 29.09.2020
Farið yfir úrslit helgarinnar og kvöldins í kvöld. Einnig var aðeins rýnt í næstu leiki. Magni, Völsungur og Þór/KA með frábæra sigra. Stutt í titilinn hjá Tindastóli og óvænt markaflóð hjá KA. Víti eða ekki víti á Þórsvelli? Kormákur/Hvöt leikur úrslitaleik á morgun gegn ÍH. Rætt var við þá Anton Frey Jónsson um Magna og Egil Sigfússon um KA.
Innkastið - Mörg risastór atvik og rauð spjöld 27.09.2020
Innkastið fer yfir sunnudagsumferðina í Pepsi Max-deildinni og fer einnig yfir Lengjudeildina. Allt í boði White Fox! Elvar Geir, Ingó Sig og Gunni Birgis höfðu um nóg að ræða. Það er grimm Evrópubarátta, nóg af rauðum spjöldum og stórum atvikum. Haustlægðirnar herja á m&o...
Útvarpsþátturinn - Leikstílar í Pepsi Max og óverðskuldaður sigur Man Utd 26.09.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. september. Elvar Geir og Tómas Þór gera upp síðustu umferð í Pepsi Max, ræða helstu fréttapunktana og opinbera úrvalslið og besta leikmann umferðarinnar. Þá er farið yfir niðurstöðuna í vali á besta leikmanni annars þriðjungs. Breki Logason, fyrrum fréttastjóri, er harður stuðningsmaður Vals og er á línunni en Valsmenn eru búnir að stinga af í...
Ástríðan - Umdeilt bann og umtalað viðtal 26.09.2020
Loksins er kominn nýr þáttur af Ástríðunni! Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason en þeir skoða baráttuna í 2. og 3. deild karla. Það hefur nóg ge...
Boltinn á Norðurlandi: Til hamingju Tindastóll - Endurtekið efni og Völsungsvon 25.09.2020
Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson fóru yfir síðustu tvær vikurnar í boltanum á Norðurlandi. Endurtekið efni hjá KA - stefnir í met. Frægi lygni sjórinn hjá Þór, KF og Tindastóli, lífróður hjá Magna, D/R og Völsungi. Fjórir úrslitaleikir framundan hjá Þór/KA og Tindastóll í fyrsta sinn komið með lið í efstu deild. Hafa samband: saebjorn@fotbolti.net
Fantabrögð - Wild(card) boys 24.09.2020
2. umferðin í Fantasy Premier League þetta tímabilið sýndi okkur heldur betur hvað þessi leikur getur verið grimmur. Hún kenndi okkur hvað þolinmæði getur verið mikilvæg í þessum leik og spilarar sem héldu tryggð við leikmenn eins og Kane, Son og Mane eftir 1. umferð uppskár...
Heimavöllurinn: Sara jafnar leikjametið og ungar gripu gæsina 24.09.2020
Það var mikið um dýrðir í Laugardalnum í vikunni. Landsliðið okkar bætti 4 mikilvægum stigum í safnið og stefnir ótrautt til Englands. Ungu stelpurnar gripu gæsina og landsliðsfyrirliðinn jafnaði leikjametið.
Ungstirnin - Efnilegir í þýska og Adam Páls gestur 23.09.2020
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Þáttastjórnendur í þessum fjórða þætti eru Arnar Laufdal Arnarsson og Eysteinn Þorri Björgvinsson. Í þættinum er fjallað um Jamal Musiala (Bayern Munchen), Youssoufa Moukoko (Dortmund) og Giovanni Reyna (Dortmund). Drengirnir ræddu um 12 unga leikmenn í Pepsi-Max deildinni og...
Enski boltinn - Markaregn og Liverpool á flugi 22.09.2020
44 mörk voru skoruð í 2. umferðinni í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Gunnar Ormslev og Hlynur Valsson, lýsendur hjá Síminn Sport, kíktu í heimsókn í höfuðstöðvar Fótbolta.net í dag. og fóru yfir leiki helgarinnar.
Innkastið - Vonbrigðin eru víða 21.09.2020
Elvar Geir, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fjalla um Pepsi Max-deildina og Lengjudeildina. Það var hellingur af leikjum á dagskrá þennan mánudaginn og voru þeir til umfjöllunar í þættinum. Einnig var opinberað val á bestu mönnum annars þriðjungs Lengjudeildarinnar og fjórir leikm...
Útvarpsþátturinn - Þjálfarar Pepsi Max fá einkunnir og vandræði íslenskra liða í Evrópu 19.09.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 19. september 2020. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Í upphafi: Rætt var um Pepsi Max-deildina og þjálfara fengu einkunnir. 59:00 Þorlákur Árnason ræddi um erfiðleika íslenskra liða í Evrópu og hvað er til ráða. 80:00 Enski boltinn. Jón Kaldal var á línunni um Arsenal.
Enski boltinn - Mun Manchester City ná titlinum aftur? 17.09.2020
Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi en Manchester City hefur leik á mánudaginn þegar liðið mætir Wolves á útivelli. Þórgnýr Einar Albertsson og Starri Reynisson stuðningsmenn Manchester City, kíktu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um koma...
Fantabrögð - Salibagate og Salah = Geit 15.09.2020
Fantabrögð gerðu upp fyrstu umferðina á nýju tímabili í Fantasy. Þáttastjórnendur áttu ágætis umferðir en einn þó alveg sérstaklega góða. Chelsea sigraði Brighton þrátt fyrir ósannfærandi frammistöðu og Jimenez er stöðugasti fantasy leikmaðurinn. Aron þurfti að senda frá sér formlega yfirlýsingu í stóra Saliba-málinu og rýnt var í liðið hans og reynt að laga vandamálin. Vertu með í head-to-head de...
Passion league - Úrslitakeppnin framundan í 4. deildinni 15.09.2020
Riðlakeppni 4. deildarinnar lauk um helgina og framundan er sjálf úrslitakeppnin. Fyrri leikirnir í 8-liða úrslitum eru á dagskrá á laugardaginn. Magnús Valur Böðvarsson, sérfræðingur um 4. deildina, og Axel Örn Sæmundsson, þjálfari Bjarnarins, kíktu í hljóðver Fótbolta.net í dag og ræddu komandi úrslitakeppni.
Enski boltinn - Heldur uppgangur Manchester United áfram? 15.09.2020
Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi en Manchester United hefur leik næstkomandi laugardag gegn Crystal Palace. Andri Geir Gunnarsson og Jóhann Skúli Jónsson, stuðningsmenn Manchester United, kíktu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um komandi tímabil hjá United sem og helstu tíðindi helgarinnar í enska boltanum. Meðal efnis: Meiri bjartsýni fyrir stórleiki, síðasti séns hjá f...
Ástríðan - 2. og 3. deild með góðum gesti að austan 14.09.2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Með þeim að þessu sinni er góður gestur, Helgi Steinar Jónsson sem þekkir fótboltann á austurlandi út í gegn. Farið er yfir allt það helsta í 2. og 3. deild karla.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.