Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Íslenski boltinn - Valsskellur gegn ÍA, gluggavikan og nýtt útlit landsliðsins 04.07.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór gerðu upp óvæntan skell Vals gegn ÍA í Pepsi Max-deildinni. Tómas var á vellinum. Fjallað var um gluggatíðindi vikunnar. Einnig var rætt um nýtt landsliðsmerki Íslands og treyjuna frá Puma. Stefán Gunnarsson. markaðsstjóri KSÍ, var á línunni.

Ástríðan - Leikir og gluggadagsskipti í 2. og 3. deild undir smásjánni 02.07.2020

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þættinum að þessu sinni er fjallað um það sem gerðist í 2. umferð og leikmannaskipti frá gluggadeginum í 2. og 3. deild skoðuð. Þáttastjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi.

Boltinn á Norðurlandi: Sama uppskrift hjá Þór og Íslandsmeistari kom í heimsókn 01.07.2020

Í sjötta þætti Boltans á Norðurlandi er rætt um leiki síðustu helgar og frestanirnar á þeim leikjum sem ekki fóru fram. Þórsarar héldu áfram að harka inn sigra á meðan uppskeran var engin í 2. deild. Stólarnir létu vængina hrapa, eins og einn ágætur maður orðaði það, punktur hjá kvennaliðinu og þrjú stig af sex mögulegum hjá Hömrunum. Gestur þáttarins er Ólafur Jóhann Magnússon fyrrum Íslandsmeist...

Enska Innkastið - Kampakátir Liverpool menn 01.07.2020

Liverpool tryggði sér enska meistaratitilinn í fyrsta skipti í 30 ár í síðustu viku.

Fantabrögð - Hið villta spil 30.06.2020

Strákarnir í Fantabrögðum fundu stund milli stríða og fóru yfir stöðuna í íslenska og enska boltanum. Fyrsta góða umferðin í Eyjabitanum leit dagsins ljós þar sem m.a. voru skoraðar tvær þrennur. Aron tók Wildcard, bæði í draumaliðsdeildum Eyjabita og 50 skills, en þó með misgóðum árangri. Gylfi hélt tryggð við Fylkismenn sem gaf vel. Manchester United líta vel út og spurning hvort þetta sé ekki t...

Innkastið - Óttar og vafasamur boltakrakki stálu senunni 29.06.2020

Allir leikir 3. umferðar Pepsi Max-deildarinnar eru skoðaðir í Innkastinu... allir nema Stjarnan - KA. Elvar Geir, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson eru í þættinum að þessu sinni. Meðal efnis: Óttar maður umferðarinnar, boltakrakki í sviðsljósinu, FH fékk skell, Grótta vill ekki skora, ferli Helga Vals líklega lokið, Blikar á sigurbraut, Pepsi Max í skimun, Lalli ósáttur, Valur með yfirlýsin...

Liverpool gleði - Kristján Atli gerir upp tímabilið 27.06.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um Liverpool, kom í heimsókn og gerði upp tímabilið hjá Liverpool. Hann valdi besta leikmanninn, besta leikinn, verstu stundina og skoðaði hvar liðið gæti bætt sig fyrir næsta tímabil. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.

Íslenski boltinn - Smit í Pepsi Max og Viktor Karl gestur 27.06.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um fréttir vikunnar í íslenska boltanum og dráttinn í Mjólkurbikarnum. Víðir Reynisson, öryggisfulltrúi íslensku þjóðarinnar, var á línunni í upphafi og ræddi um kórónaveirusmitin í Pepsi Max-deildunum. Hangir Íslandsmótið á bláþræði? 41:30 Viktor Karl Einarsson, leikmaður Breiðabliks, mætti svo í þáttinn í mjög skemmtilegt spja...

Boltinn á Norðurlandi: Matareitrun og öflugir Magnamenn 26.06.2020

Fimmti þáttur í hlaðvarpsþáttaröðinni Boltinn á Norðurlandi var tekinn upp á föstudag. Hver þáttur er sjálfstætt framhald af fyrri þáttum. Rætt um dómgæsluna á Norðurlandi, bikarvikuna, stórtap Þór/KA og matareitrun sem leikmenn KF fengu fyrir síðasta deildarleik. Dagskráin: Matareitrun og dómgæsla mín: 0-9 KA: 9-14 Stólar: 14-19 Þór/KA: 19-24 Magni: 24-42 Þór: 42-56 Næstu leikir og aðrar umræður:...

Heimavöllurinn - Hlín machine, Þróttur þorir og KR í bullandi brasi 25.06.2020

Nú hafa þrjár umferðir verið spilaðar í Pepsi Max deild kvenna og ýmislegt áhugavert átt sér stað. Deildin er til umræðu í nýjasta þætti Heimavallarins en Berglind Hrund Jónasdóttir, fyrrum markvörður Stjörnunnar, og Steinunn Sigurjónsdóttir knattspyrnuþjálfari mæta í stúdíó og ræða við Mist Rúnarsdóttur um gang mála.

Heimavöllurinn - Börnin á skotskónum og fjögur sáu rautt 23.06.2020

Keppni er hafin í Lengju- og 2. deild og þær deildir verða í flóðljósunum á Heimavellinum í dag. Þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fara yfir allt það helsta úr fyrstu umferðum Íslandsmótanna og rýna þar að auki í spá þjálfara og fyrirliða fyrir 2. deildina.

Enska Innkastið - Man Utd á uppleið og Íslandstenging Lloris 23.06.2020

Enski boltinn er farinn aftur á fleygiferð eftir hlé vegna kórónaveiru faraldursins. Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson eru gestir vikunnar í Innkastinu. Meðal efnis: Leiðinlegur Liverpool leikur, Man Utd á uppleið, staða Gylfa hjá Everton, óvænt Íslandstenging Lloris, Áhorfendahljóð, innistæðulaus Guendouzi, glórulaus borði Burnley stuðningsmanns, Alli o...

Ástríðan - Rýnt í það sem gerðist í fyrstu umferð í 2. og 3. deild 23.06.2020

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þættinum er að þessu sinni farið yfir það sem gerðist í fyrstu umferð í 2. og 3. deild. Þáttastjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi.

Fantabrögð - Enski fer aftur af stað - misjafnt gengi í íslenska 22.06.2020

Enski boltinn fór aftur af stað 17 júní og fyrsta Fantasy umferðin í þessari endurkomu klárast með leik Manchester City og Burnley. Strákarnir í Fantabrögðum nenntu þó ekki að bíða eftir honum enda mikið að gerast í íslenska boltanum sem þurfti að ræða,...

Boltinn á Norðurlandi: Þrír sigrar á Þórsvelli og KA þéttir 22.06.2020

Þrír heimasigrar unnust á Þórsvelli um helgina. Svekkjandi hjá Stólunum og rýr uppskera í 2. deild. KA fékk stig gegn Víkingi og brekka hjá Samherjum. Dagskráin: KA mín 1-16. Þór mín 16-33. Magni mín 33-38. Þór/KA mín 38-50. KF mín 50-59. Tindastóll mín 59-65. Völsungur mín 65-68. Hamrarnir mín 68-70. Dalvík/Reynir 70-73. Samherjar 73-75.

Innkastið - Hvað gerðist eiginlega á Meistaravöllum? 21.06.2020

Í Innkastinu í er farið yfir alla leiki 2. umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir Magnússon, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson stóðu vaktina um helgina. Meðal efnis: Vörusvik hjá Víkingum, sól á Akureyri, Engin vandræði hjá Valsmönnum, skýrsla eftir mögnuð úrslit í Vesturbænum, mikilvægi Finns, frábærir HK-ingar, hark hjá Blikum, Halldór Orri gengur í gegnum endurnýjun lífdaga, yfirburð...

Útvarpsþátturinn - Enski boltinn, Pepsi Max og Lengjudeildin 20.06.2020

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fótboltamálin og ræddu um enska boltann, Lengjudeildina og Pepsi Max-deild karla. Í upphafi: Enski boltinn 11:30 Tryggvi Páll Tryggvason, sérfræðingur um Manchester United. 29:00 Farið yfir upphaf Lengjudeildarinnar. Baldvin Már Borgarsson var á línunni. 50:45 Pepsi Max-deildin: Hitað upp fyrir 2. umferð. 60:00 Sindri Snær Mag...

Fantabrögð - Þjóðhátíð! 17.06.2020

Fantabrögð taka sér ekki frí á 17. júní, enda er alltof margt sem þarf að fara yfir! Íslenski boltinn fór af stað um helgina og strákarnir stikluðu á því helsta sem gerðist í draumaliðsdeildum Eyjabita og 50 skills. -Ofmátum við Ágúst Hlynsson? -Berglind Bj...

Boltinn á Norðurlandi: Maraþonleikir og skellur á Skaganum 16.06.2020

Farið yfir 2. umferðina í bikarnum, vítaspyrnukeppnir og Þór/KA byrjar á fljúgandi starti. Dagskráin: Mín 1-25: Völsungur - Þór Mín 25-54 KF - Magni Mín 54-64 Þór/KA - Stjarnan Mín 64-68 Krókurinn Mín 68-76 ÍA-KA Mín 76-80 Umræða um Dr. Petar og leikirnir framundan. PS. Músinni var hent eftir upptöku, amateur-hour hjá þeim þýska.

Ástríðan - Uppgjör eftir 2. umferð bikarsins 16.06.2020

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Önnur umferð Mjólkurbikarsins fór fram um liðna helgi og í þættinum að þessu sinni er farið yfir það sem gekk á. Þáttarstjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum að þessu sinni er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi.

Innkastið - Þjálfaraskúrkur og Víkingavonbrigði 15.06.2020

Seinni hluti af uppgjöri 1. umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Tómas Þór og Ingólfur Sigurðsson eru með Elvari að þessu sinni. Farið er yfir leikina tvo sem voru í kvöld. Stjarnan vann dramatískan sigur gegn Fylki og nýliðar Fjölnis náðu í stig á útivelli gegn Víkingi Reykjavík. Meðal efnis: Þjálfarinn sá rautt, sautján ára hetja Stjörnunnar, vonbrigðaframmistaða Víkinga, Fjölnir ekki fallbyssufóður...

Innkastið - Mikill gæðamunur og meiðslahrina 14.06.2020

Fyrri hluti af uppgjöri 1. umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már skoða fjóra fyrstu leiki sumarsins. Meðal efnis: KR vann opnunarleikinn, Óskar Örn heldur áfram að þagga niður efasemdarraddir, meiðslarugl KA, karakter á Skaganum, markvarðamistök í Kórnum, gæðamunur í Kópavoginum.

Upphitunarþáttur Lengjudeildar karla - Öll liðin skoðuð 13.06.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir Lengjudeild karla sem fer af stað næsta föstudag. Sérfræðingarnir Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon skoða öll liðin tólf og spá fyrir um lokastöðu.

Hitað upp fyrir fyrstu umferð Pepsi Max og bikarinn skoðaður 13.06.2020

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar og skoða helstu fréttir úr deildinni. Einnig er rætt um Mjólkurbikarinn en 2. umferð er í fullum gangi.

Heimavöllurinn - Fyrirpartý fyrir Maxið 11.06.2020

Keppni í Pepsi Max deildinni hefst annað kvöld og í dag höldum við fyrirpartý á Heimavellinum. Þau Baldvin Már Borgarsson og Halla Margrét Hinriksdóttir kíkja í heimsókn og fara yfir allt það helsta með Mist Rúnarsdóttur.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.