Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Útvarpsþátturinn - Pálmi Rafn, Stefán Pálsson og EM 20.06.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 19. júní. Umsjón: Tómas Þór og Benedikt Bóas.

Ástríðan - Ekki lenda manni fleiri í Ástríðudeildunum! 17.06.2021

Gylfi og Sverrir hittust á ný og fóru yfir eina umferð í 2. deild karla og tvær umferðir í 3. deild. Nýliðar sitja á toppi 2. deildar sem er jafn gufurugluð og áður. Hvorki Kári né Fjarðabyggð þorðu að vinna botnslaginn. Í 3. deildinni fékk toppliðið skell á meðan allt gengur á afturfótunum hjá ÍH og KFS sem mætast í næsta leik! Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna....

Heimavöllurinn: Írskir dagar og þriðjungsuppgjör á Maxinu 16.06.2021

Ísland spilaði loksins heimaleiki undir stjórn Steina og sótti tvo sigra í vináttuleikjunum gegn Írum. Leikirnir eru til umræðu ásamt fyrsta þriðjungi Pepsi Max-deildarinnar en ótrúlegir hlutir hafa átt sér stað í umferðum 1-6. Gestir Heimavallarins að þessu sinni eru knattspyrnuþjálfarinn Aníta Lísa Svansdóttir og íþróttafréttamaðurinn Sæbjörn Þór Steinke.

Útvarpsþátturinn - EM með Gumma Ben og íslenski boltinn 12.06.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Guðmundur Benediktsson er gestur og rætt ítarlega um EM alls staðar. Einnig er fjallað er um Pepsi Max-deildina, Lengjudeildina og landsliðið. Meðal annars er opinberað hvaða leikmaðu...

Ungstirnin - Framtíðarmenn á evrópskum stórmótum 09.06.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þættinum að þessu sinni velja þeir sérstakt úrvalslið Evrópumóts U21 landsliða en Þýskaland vann Portúgal í úrslitaleik á sunnudag. Þá skoða þeir efnilega leikmenn sem verða á EM alls staðar. Fjall...

Ástríðan - Hvaða lið verða eiginlega í toppbaráttu? 09.06.2021

Þáttastjórnandi Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason, fékk til sín Stefán Birgi Jóhannesson, fyrrum leikmann Njarðvíkur sem er í tímabundnu fríi frá æfingum. Saman fóru þeir yfir 5.umferð í 2. og 3. deild karla. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

EM alls staðar - Upphitunarþáttur fyrir fótboltaveisluna 07.06.2021

Evrópumót landsliða fer af stað á föstudaginn og lýkur með úrslitaleik á Wembley þann 11. júlí. Mótið átti upphaflega að fara fram í fyrra en var frestað vegna heimsfaraldursins. Í þessum sérstaka upphitunarþætti fer Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net, yfir riðlana og rætt er um þá keppni sem framundan er. Sérfræðingar eru Eiður Ben Eiríksson, aðstoðarþjálfari kvennaliðs Vals, og Benedikt B...

Útvarpsþátturinn - Freysi og öll helstu fótboltamálin 05.06.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 5. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins: Freyr Alexandersson. Í upphafi þáttar er fjallað um landsleikinn gegn Færeyjum, svo kemur Freyr Alexandersson og ræðir meðal annars um mánuði sína í Katar. Hvaða skref tekur Freyr næst á þjálfaraferlinum? Einnig er rætt um Pepsi Max-deildina, EM landsliða og fimmtu umferð Lengjudeildarinnar.

Heimavöllurinn: Írarnir koma, U19 í þjálfaraleit og bikarblaður 04.06.2021

Sem fyrr er nóg að ræða á Heimavellinum. A-landsliðið okkar mætir Írum í tvígang á Laugardalsvelli og U19 landsliðið er að verða þjálfaralaust. Þá er bikarinn kominn á fleygiferð og eftir skemmtileg 16-liða úrslit er ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum. Gestir þáttarins eru þær Björk Björnsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir.

Ástríðan - Yfirferð yfir 4. umferð - Línur að skýrast? 01.06.2021

Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu 3. umferð í 2. og 3. deild karla. Í 2.deild tóku Njarðvík og Leiknir fásk sína fyrstu sigra, áfram tapa Kári og Fjarðabyggð, Völlarar kláruðu norðurlandsslaginn og hammer time í vogunum. Í 3.deild unnu Einherji sinn fyrsta sigur, KFG og ÍH voru undir í rokbaráttu, Sindri vinnur heima og Augnablik gerir jafnt...

Innkastið - Heitt í hamsi í Pepsi Max og ljótt orð í landsleik 31.05.2021

Fótboltahelgin er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis fara yfir málin. Rætt er um leikina þrjá í Pepsi Max-deildinni í gær og einnig um þrjá leiki í Lengjudeildinni. Þá er fjallað um 2-1 tap Íslands gegn Mexíkó aðfaranótt sunnudags og í lokin um sigur Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Ítalski boltinn - Uppgjörsþáttur tímabilsins 31.05.2021

Lið ársins í Serie-A er valið og farið yfir flókinn þjálfarakapal sem verið er að leggja. Þá ætlar Björn Már líka að finna ný lið handa þeim Íslendingum sem eru ekki að spila nægilega mikið. Hvers vegna réðst faðir Gianluca Scamaccas inn á æfingasvæði Roma vopnaður járnröri? Leikstíl hvaða þjálfara má líka við Barolo rauðvín? Banter-era byrjunarlið Internazionale. Þetta og fleira í uppgjörsþætti í...

Enski boltinn með Evrópuívafi - Lið ársins og Meistaradeildin 29.05.2021

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 29. maí. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Valur Gunnarsson. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, gerir upp tímabilið í úrvalsdeildinni og velur lið ársins. Þá er rætt um tap Manchester United í Evrópudeildinni og hitað upp fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Íslenski boltinn - Rok í Lengjudeildinni og þeir bestu aftast 29.05.2021

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 29. maí. Elvar Geir Magnússon, Valur Gunnarsson markvarðaþjálfari og sérfræðingurinn Rafn Markús Vilbergsson ræða um íslenska boltann. Lengjudeildin er aðalumræðuefni þáttarins en þrír leikir fóru fram á föstudagskvöld. Þeir áttu upphaflega að vera fimm en tveimur var frestað vegna veðurs. Valur velur þrjá bestu markverði deildarinnar og Rabbi...

Heimavöllurinn: Stórslys á Hlíðarenda og toppliðið lætur verkin tala 28.05.2021

Þetta sumar fer stórkostlega af stað og Heimavöllurinn fer yfir svakalega 5.umferð í Pepsi Max deildinni. Gestir þáttarins eru Rún Friðriksdóttir fyrrverandi leikmaður Hauka og Margrét Sveinsdóttir þjálfari ÍR.

Ástríðan - Uppbótartíminn reyndist mönnum erfiður 26.05.2021

Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu 3. umferð í 2. og 3. deild karla. Það er vellíðan í Vogunum en frústrasjón á Fáskrúðsfirði. Óvænt lið á toppnum í báðum deildum. Lands...

Innkastið - Heitt sæti í Hafnarfirði og Toddi á röngum stað á röngum tíma 25.05.2021

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Meðal efnis: Frækinn Leiknissigur, sæti Loga hitnar, KR misstígur sig, tíðindamikill leikur á Akranesi, Toddi í stöðu sem hann vildi aldrei vera í, frábær uppskera Vals, KA svaraði, Lengjudeildarhornið....

Ungstirnin - Kolbeinn Þórðarson gestur þáttarins 25.05.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Farið var yfir hvaða ungu leikmenn voru að standa sig í efstu fimm deildum Evrópu, hvaða ungstirni eru á leið á EM alls staðar sem og ýmislegt fleira. Kolbeinn Þórðarson leikmaður Lommel í Belgíu var...

Enski boltinn - Dramatík og uppgjör á tímabilinu 24.05.2021

Það var dramatík í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar sem fór fram í gær. Jóhann Már Helagson, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, kíktu í heimsókn í dag og gerðu tímabilið upp í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn." Meðal efnis: Stress hjá Chelsea, Leicester getur kennt sjálfum sér um, Liverpool hrökk í gang, kveðjuleikur Mata?, mikilvægi Maguire, spen...

Útvarpsþátturinn - Íslenskt boltahlaðborð með Gulla Jóns 22.05.2021

Það voru alls tíu leikir í Pepsi Max-deildinni og Lengjudeildinni á dagskrá í gær og útvarpsþátturinn Fótbolti.net gerir þá upp. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur þáttarins er Gunnlaugur Jónsson sem hefur verið á vellinum fyrir Stöð 2 Sport í Pepsi Max-deildinni. Leikir fimmtu umferðar eru skoðaðir með honum. Þá er farið yfir leiki Lengjudeildarinnar og einnig rætt um einn sérstakasta...

Fantabrögð - Hitað upp fyrir lokaumferðina með Hemson 20.05.2021

Það dugði ekkert minna fyrir lokaumferðina á þessu tímabili í Fantasy en að fá spilara sem á möguleika á toppsætinu til að koma og ræða málin. Heiðmar Eyjólfsson, með liðið Hemson, er sem stendur í 10. sæti, 22 stigum á eftir toppsætinu. Hann, Aron, Gylfi og Gunni skoðuðu síðustu leikina, hvaða lið hafa að einhverju að keppa og hvaða leikmenn gætu verið sniðugir til að græða nokkur sæti í þinni ei...

Enski boltinn - Mun Man Utd klófesta Kane? 20.05.2021

Enska úrvalsdeildin klárast um helgina en næstsíðasta umferðin fór fram í gæro g í fyrradag. Jóhann Skúli Jónsson og Gunnar Ormslev fóru yfir málin í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag.

Ástríðan - Farið yfir 2. umferð - Sterku liðin tapa stigum 18.05.2021

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.

Innkastið - Stóru málin í Pepsi Max með Gunna samloku 17.05.2021

Elvar Geir og Gunni Birgis stýrðu Innkastinu eftir 4. umferð Pepsi Max-deildarinnar og fengu heiðursgest í þáttinn; Gunnar Sigurðarson. Rætt er við Gunna samloku um leiki umferðarinnar og upphaf mótsins. Meðal efnis: Augnablik ársins í deildinni hingað til, Valsmenn vinna, viðbúið jafntefli á Skaganum, Road runner í Krikanum, KA áfram á flugi, vonbrigðabyrjun grænna í Kópavogi, Víkingar léku á als...

Fantabrögð - Guðmundur Felixson dömur okkar og herrar 17.05.2021

Guðmundur Felixson mætti í stúdíóið sem gestur til Arons, Gunna og Gylfa. Það gerist ekki mikið stærra. Hann deildi frábærum ráðum og truflaði alla línulega dagskrá sem Fantabræður hafa getið sér gott orð fyrir. Tvær umferðir eru eftir, nú er þa&et...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.