Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Enski boltinn - Risasumar Arsenal og lygilegt mark Alisson 17.05.2021

Jón Kaldal og Engilbert Aron Kristjánsson, stuðningsmenn Arsenal, eru gestir vikunnar Bikarsigur Leicester, dramatískt sigurmark Alisson og margt fleira er einnig til umræðu. Meðal efnis: Öskubuskubragur Leicester, eigandi Leicester flottur, Tielamans gerði eins og á YouTube, Alisson eins og lax, Liverpool líklegir í Meistaradeildina, vonbrigði Everton, vonarstjörnur fá tækifæri, versta tímabil Ar...

Útvarpsþátturinn - Pepsi Max, Lengja og enski 15.05.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað er upp fyrir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni og Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, er á línunni. Kristján Atli Ragnarsson skoðar enska boltann og Rafn Mark&uacute...

BÁN: Sjö stig og sjö mörk skoruð - Aron og GÖ á línunni 14.05.2021

Egill Sigfússon var sérstakur gestur í Boltanum á Norðurlandi á fimmtudagskvöld. Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Steinke fóru yfir það helsta með Agli. KA og Þór unnu en Þór/KA og Tindastóll töpuðu. Farið var vel yfir sigur KA á Dalvíkurvelli, tveir vítadómar, glórulaus tækling og einkunnagjöf á leikmenn KA. Þórsarar unnu 4-1 í Boganum og strákarnir heyrðu í Ólafi Aroni sem þótti eiga góðan leik...

Innkastið - Stemningstækling sem fór úrskeiðis 13.05.2021

Markaregn, rauð spjöld, skellir og ljót meiðsli. Innkastið er með ykkur eftir þriðju umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig fara yfir umferðina. Meðal efnis: Mikkelsen með þrennu, þungskýjað í Garðabæ, enn og aftur fá andstæðingar FH rautt í fyrr...

Fantabrögð - Gylfi gefur góð ráð 13.05.2021

Fantabrögð fundi tíma til að taka upp þátt þegar 2 leikjum var ólokið í 35. umferð. Þrefalda umferðin hjá Manchester United fór ekki alveg eins og fantasy þjálfarar höfðu vonað. Ole róteraði liðinu nánast alveg milli leikja 1 og 2 og Greenwood var sá eini sem...

Ungstirnin - Ungir og efnilegir í Pepsi Max 12.05.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Aðal umræðuefnið í þessum þætti er...

Heimavöllurinn: Lygileg úrslit og 2. deild af stað 12.05.2021

Það voru heldur betur óvænt úrslit í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar og nóg að ræða á kaffistofum landsins. Úrslitin í 1. umferð Lengjudeildarinnar voru ekki síður óvænt og nú bíðum við spennt eftir að keppni hefjist í 2. deild. Heimavöllurinn fær góðkunningjann Brynju Dögg Sigurpálsdóttur í heimsókn, fer yfir leiki liðinnar viku og tekur lokaupphitun fyrir 2. deildina sem fer af stað í kvöld.

Ástríðan - Fyrsta umferð gerð upp í 2. og 3. deild 10.05.2021

Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu komandi sumar. Ástríðudeildirnar fóru af stað um helgina og var 1. umferð gerð upp. Meðal annars var rætt um leikstjóra á Kópavogsvelli, húsnæðismál á Austurla...

Enski boltinn - Stór sumargluggi hjá Liverpool 10.05.2021

Það er Liverpool þema í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni. Einar Matthías Kristjánsson, Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson frá kop.is mættu í þátt dagsins og fóru yfir málefni Liverpool sem og aðra leiki helgarinnar. Meðal efnis: Liverpool þarf mann í hverja línu, Firmino skorar ekki lengur, stórt sumar framundan á félagaskiptamarkaðinum, varnarmennirnir færast aftar í r...

Innkastið - Drama á lokamínútum og Toddi tapar 09.05.2021

Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig gera upp 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Ekkert lið er með fullt hús og allir eru komnir á blað! Meðal efnis: Rautt í stórleiknum, stórskemmtun í Breiðholti, hreinskilinn Arnar virðir stigið, stemning í Kórnum, KA vill flytja á Dalvík, hringt í vin í Keflavík, Stjarnan í limbói, Gunni giskar, hátt spennustig í Mosó og Vestri rúllar yfir Selfyssinga.

BÁN: Fyrsti útisigur á KR í 40 ár - Afi reiður og Bjössi sýslumannssonur 09.05.2021

Boltinn á Norðurlandi er mjög þéttur þenann sunnudaginn, fimm símtöl, púlsinn tekinn á Húsavík og staðan á Króknum krufin. Þeir Egill Sigfússon, Anton Freyr Jónsson, Nikola Dejan Djuric, Jóhann Kristinn Gunnarsson og Óskar Smári Haraldsson fóru yfir það helsta í þessu öllu saman. Yfirvaraskegg og Bjössi sýslumannssonr komu við sögu. KA, KF, Völsungur, Dalvík/Reynir og Þór/KA unnu sigra, Tindastóll...

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Atli Viðar 08.05.2021

Íslenski boltinn í tæplega tvo tíma. Atli Viðar Björnsson er sérstakur gestur þáttarins. Rætt er um Pepsi Max-deildina og farið ítarlega yfir sigur KA gegn KR og fréttir vikunnar. Guðmundur Andri gekk í raðir Vals og Finnur Tómas kom heim í KR. Rúnar Páll er hættur sem &...

Heimavöllurinn: Power í Pepsi og Lengjudeildin byrjar! 06.05.2021

Fótboltasumarið er byrjað og það með látum! Heimavöllurinn fylgist spenntur með og fer yfir fyrstu umferðina í Pepsi Max og hitar upp fyrir Lengjudeildina sem hefst á morgun. Gestir þáttarins að þessu sinni eru knattspyrnuþjálfararnir Margrét Sveinsdóttir og Steinunn Sigurjónsdóttir.

Fantabrögð - Þreföld þristamús! 05.05.2021

Frestun á leik Manchester United og Liverpool gerði það að verkum að þessi umferð fór fyrir ofan garð og neðan. Harry Kane var langvinsælasti fyrirliðinn en honum tókst að safna heilum tveimur stigum gegn stálstrákunum frá Sheffield. Aron og Gunni mættu í stúdíóið t...

Ástríðan - Premier League leikmaður í Vogana og upphitun fyrir 1. umferð 04.05.2021

Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu komandi sumar. Farið var yfir 1. umferð í 2. og 3.deild. Helstu félagaskipti voru skoðuð og meðal annars sprengja úr Vogunum! Létt spá fyrir leikina og hvað verður um Einherja? Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.

Enski boltinn - Allt tryllt á Old Trafford 03.05.2021

Lætin á Old Trafford og leikir helgarinnar í enska boltanum voru til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður á RÚV, og Hlynur Valsson, lýsandi hjá Símanum, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Meðal efnis: Bálreiðir stuðningsmenn, hliðin opnuðust, hvað gerist í sumar?, stjóraskipti Chelsea skipta sköpun, Tuchel notar hópinn vel, svalur Zidane, skjálft...

BÁN: Addi með belti og axlabönd og Hanski hélt hreinu 02.05.2021

Boltinn á Norðurlandi ræddi það helsta sem gerðist um helgina. KA byrjaði með flugeldasýningu, Þór lagði Magna og mikil dramatík á Dalvík. Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Steinke fóru yfir stóru málin og heyrðu í Egga Fúsa. Spáð í spilin og rýnt til gagns. Þátturinn er í boði Kaffid.is, PSA og Vamos.

Innkastið - Nýr leikur en sömu úrslit þegar Rúnar mætir Óskari 02.05.2021

Uppgjör 1. umferðar Pepsi Max-deildar karla í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis fara yfir leikina. Domino's Pizza býður upp á þáttinn. Meðal efnis: KR vinnur alltaf Blika, Sölvi langbestur í Víkinni, skýrsla úr leiðinlegum leik í Kórnum, magnaður markvö...

Heimavöllurinn: Lúxus fyrirpartý fyrir Pepsí Max 01.05.2021

Fótboltasumarið 2021 er að hefjast og spennan er óbærileg. Aníta Lísa knattspyrnuþjálfari og Karólína Jack leikmaður Fylkis mæta á Heimavöllinn í lokaupphitun fyrir Pepsí Max deildina. Við heyrum einnig í Báru Kristbjörgu sem fer yfir draumaliðið sitt og rýnir í deildina.

Útvarpsþátturinn - Lengjuspáin og opnunarleikurinn krufinn 01.05.2021

Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur þáttarins: Rafn Markús Vilbergsson. Opnunarleikur Pepsi Max-deildarinnar, leikur Vals og ÍA, er krufinn og farið yfir helstu fréttir varðandi deildina. Burðarefni þáttarins er þó spá Lengjudeildarinnar, fjallað er um öll liðin tólf.

Binni og Grímsi í KA-Special - „Sterkasta KA-liðið by a mile" 30.04.2021

Sæbjörn Steinke ræddi við þá Brynjar Inga Bjarnason og Hallgrím Mar Steingrímsson leikmenn KA í sérstökum upphitunarþætti fyrir mót. KA mætir HK í fyrsta leik sínum á morgun og ljóst að KA vill vera í baráttunni um eitthvað stærra og meira en undanfarin ár. Þátturinn var tekinn upp í Podcast Stúdíói Akureyrar.

Fantabrögð - Fantabrögð x Hemson 29.04.2021

Það vantaði bæði Gylfa og Gunna þessa vikuna og því brá Aron á það ráð að fá gest sem hefur gengið ansi vel á þessu tímabili í Fantasy, sjálfan Heiðmar Eyjólfsson sem er langefstur Íslendinga og númer 6 í heiminum. Þeir ræddu gen...

Innkastið - Púlsinn tekinn fyrir fyrstu umferð 28.04.2021

Innkastið er með léttan upphitunarþátt fyrir 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar þar sem Elvar Geir og Magnús Már taka púlsinn á góðum mönnum. - Jóhannes Karl Guðjónsson ræðir um sumarið framundan hjá ÍA en liðið á opnunarleikinn gegn Val á föstudag. - Tryggvi Hrafn Haraldsson, sóknarmaður Vals, ræðir um meiðslin sem hann hlaut í æfingaleik nýlega. - Gunnar Birgisson ræðir um fréttir vikunnar og gisk...

Enski boltinn - Martraðarsumar framundan 27.04.2021

Tottenham tapaði gegn Manchester City í enska deildabikarnum um helgina og bið félagsins eftir bikar lengist. Stjóraskipti Tottenham, úrslitaleikurinn og staðan almennt í enska boltanum var til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, voru gestir þáttarins í dag. Meðal efnis: Martraðarsumar framundan, Reykjalundur,...

Innkastið x Ástríðan - Lögreglumál og Púskas verðlaunasjálfsmark 26.04.2021

Mjólkurbikarinn er farinn af stað en aðeins einn leikur er eftir í 1. umferðinni. Í þessum sérstaka bikarþætti sameinast Innkastið og Ástríðan í yfirferð um bikarleiki helgarinnar. Elvar Geir, Sverrir Mar og Ingó Sig eru í hljóðveri. Meðal efnis: Lögreglan kölluð til, Púskas verðlaunasjálfsmark, Hjörtur á skotskónum, Svavar Elliði og félagar í Gullfálkanum brotlentu, Baldvin fékk rautt og vígslule...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.