Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Ástríðan - Úrvalslið fyrri umferða deildanna tilkynnt 22.07.2021
Farið var yfir 12. umferð í 2. og 3. deild ásamt því sem úrvalslið úr umferð 1-11 voru tilkynnt úr hvorri deild fyrir sig. Sverrir og Gylfi voru mættir í stúdíóið eins og venjulega og fóru yfir stöðutöflurnar. Þvílíkt toppbarátta í bá&e...
Heimavöllurinn - Boltaspjall með Báru 22.07.2021
Heimavöllurinn fær til sín gamlan og góðan gest. Knattspyrnuþjálfarinn og boltaspekúlantinn Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir mætir til okkar eftir útlegð í Svíþjóð þar sem hún hefur þjálfað unglingalið Kristianstad undanfarið tæpt ár. Bára fer yfir þjálfaralífið og sænska boltann áður en hún segir sínar skoðanir á íslenska boltanum sem hefur verið aldeilis fjörugur þetta sumarið.
Innkastið - Raggi lokar hringnum og Stjörnuhrap í Breiðholti 20.07.2021
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson í Innkasti vikunnar. Fjallað er um 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar og ýmislegt fleira. Meðal efnis: Endurkoma Ragga Sig í Árbæinn, Leiknir slær stigamet sitt, þungt yfir Stjörnumönnum, frábær innkoma Kwame Quee, dauðafæri fóru forgörðum í Hafnarfirði, jafntefli á Meistaravöllum, slakir HK-ingar, óvænt úrslit á Skaganum, leikmaður u...
Gummi Ben um EM og spennandi Pepsi Max umferð 17.07.2021
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 17. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Guðmundur Benediktsson mætti og ræddi um Evrópumótið og komandi umferð í Pepsi Max-deildinni þar sem áhugaverðir leikir eru framundan. Stórleikur umferðarinnar er viðureign KR og Breiðabliks. Áhugaverðar umræður.
Boltavikan - Evrópa, Lengjudeildin og Davíð Smári á línunni 17.07.2021
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 17. júlí. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræða um Evrópuleikina hjá íslensku liðunum og einnig um 12. umferð Lengjudeildarinnar. Baldvin Már Borgarsson var á leik Grindavíkur og Þórs og þá er Dav&iacut...
Innkastið - Skelfilegir Skagamenn og FH daðrar við fallsæti 14.07.2021
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson í Innkasti vikunnar. Það er af nægu að taka enda fullt í gangi í íslenska boltanum. Meðal efnis: Leikir vikunnar í Pepsi Max-deildinni, nauðsynlegur sigur Fylkis, KA fatast flugið, leiðinlegur leikur í Kórnum, Víkingur misstígur sig gegn liðum í neðri hlutanum, Skelfilegir Skagamenn, heimavöllur Leiknis heldur áfram að gefa, FH daðra...
Ástríðan - Fyrri hluta deildanna lokið 14.07.2021
Þá er fyrri hluta 2. og 3. deildar lokið og spennan er gífurleg á mörgum vígstöðvum. Toppliðin voru mörg hver að missa óvænt stig um helgina, liðin halda áfram að styrkja sig og jafnvel skipta um þjálfara á misumdeildan hátt. Ástríðan er í boði Bola,...
EM alls staðar - Ítalía tók fótboltann með sér 12.07.2021
EM lauk í gær þegar Ítalía vann sigur á Englandi í úrslitaleik eftir vítaspyrnukeppni. Sæbjörn Steinke fékk þá Benedikt Bóas Hinriksson og Tómas Þór Þórðarson með sér og var farið yfir það helsta í leiknum. Hvers vegna var Saka látinn taka fimmta vítið? Þá var einnig horft í keppnina í heild, samanburður á Júmbó og Sóma og annað sniðugt.
Útvarpsþátturinn - EM Hjammi, Theodór Elmar og Kjartan Henry 10.07.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. júlí. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór. Hjálmar Örn Jóhannsson, Hjammi, mætir og ræðir um úrslitaleik EM alls staðar, leik Englands og Ítalíu sem fram fer á sunnudagskvöld. Hjammi er sannfærður um að fótboltinn sé á leið heim. KR-ingarnir Kjartan Henry Finnbogason og Theodór Elmar Bjarnason mæta í þáttinn en þeir eru sameinaðir á ný í Vesturbænum...
Ungstirnin - Spennandi leikmenn, EM og íslenska U19 deildin 10.07.2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti fjölluðu drengirnir um Illya Zabarnyi (2002 / Dinamo Kíev) sem hefur mikið verið orðaður við Chelsea og Michael Olise (2001 / Crystal Palace) en hann gekk til liðs við Crystal Palace á...
Heimavöllurinn: Leið Karólínu og Alexöndru frá Hafnarfirði til Þýskalands 09.07.2021
Landsliðskonurnar Alexandra Jóhannsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru gestir Heimavallarins. Þær eru aðeins tvítugar en eru báðar komnar í stórlið í þýsku úrvalsdeildinni. Þær ólust upp í FH og Haukum og voru báðar komnar snemma í stór hlutverk í sínum liðum. Árið 2018 tóku þær báðar stökkið yfir í Breiðablik, slógu í gegn og æfa núna á hverjum degi með þýskum landsliðsvélum í einni bestu...
Ástríðan - Óskar Smári mætti og reif kjaft 07.07.2021
Óskar Smári kom sem heiðursgestur á sinn gamla heimavöll og fór yfir stöðuna. Það var því ekki að spyrja að því - þessi þáttur fór langt yfir öll tímamörk. Þróttur Vogum og Njarðvík eru komin í toppsætin sem þeim var sp&aacu...
Innkastið - Úrvalslið 1-11 og einn af leikjum ársins 06.07.2021
11. umferð Pepsi Max-deildarinnar og 10. umferð Lengjudeildarinnar eru gerðar upp í Innkastinu að þessu sinni. Gunnar Birgisson er mættur aftur eftir smá hlé. Elvar Geir spjallar við hann og Sæbjörn Steinke. Meðal annars er opinberað úrvalslið fyrri helmings Pepsi Max-deildarinnar og Gunni giskar snýr aftur.
Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Ítalía á EM 03.07.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 3. júlí. Farið yfir síðustu umferð í Lengjudeildinni og tíðindi úr Pepsi Max-deildinni. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, var á línunni frá Akureyri. Rætt var um sölu KA á Brynjari Inga, Da...
Ástríðan - 2. deild special 02.07.2021
Sverrir og Gylfi fóru yfir málin eins og venjulega. Í þetta sinn var sérstaklega farið yfir 2. deildina þar sem engin umferð fór fram í 3. deild á milli þátta. Hins vegar ræddu þeir í lokin helstu fréttir úr 3. deild.
EM alls staðar - Fótboltinn gæti vel komið heim 01.07.2021
Sextán liða úrslitum EM alls staðar er lokið og eftir standa átta þjóðir. England sló út Þýskaland, heimsmeistararnir eru úr leik og ríkjandi Evrópumeistarar sömuleiðis. Sæbjörn Steinke ræðir um EM með tveimur góðum gestum. Þeir Eiður Ben Eiríksson og Tómas Þór Þórðarson mættu og ræddu um EM en auk þess var í upphafi þáttar aðeins rýnt í nýja stjóra Everton og Tottenham.
Íslenski boltinn í faðmi Sambandsdeildarinnar 01.07.2021
Sérstakur aukaþáttur þar sem fjallað er um fjármál og fótbolta. Rætt er um íslensk félagslið í Evrópukeppnum. Elvar Geir spjallar við Birgi Jóhannsson framkvæmdastjóra ÍTF og Björn Berg Gunnarsson deildarstjóra Greiningar Íslandsbanka. Fjallað er um þessa nýju Sambandsdeild, C-deildar Evrópukeppnina, sem hefur verið sett á laggirnar og möguleika íslenskra félagsliða á tekjum með tilkomu hennar. Hv...
Ástríðan - Mörg lið að styrkja sig í glugganum 30.06.2021
Sverrir og Gylfi fóru yfir málin eins og venjulega. Áfram halda nýliðarnir að stríða 2. deildinni og KV situr á toppi deildarinnar á meðan botnliðin tvö eru að falla dýpra og dýpra í mýrina. Í 3. deild voru óvæntustu úrslit Íslandsmótins í sumar...
Innkastið - Blikar berjast um titilinn og falldraugur fluttur í Kórinn 29.06.2021
Innkastið eftir 10. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig fara yfir allt það helsta. Meðal efnis: Leiknir fyrsta liðið til að vinna Víking, Skagamenn missa niður forystu, Ungstirni með sigurmark á Meistaravöllum, Valur missti af stigum, dramatískur slagur um Kópavog, tíu leikmenn KA jöfnuðu gegn FH. Einnig er rætt um Lengjudeildina. Eru þjálfarasæti að hitna hratt þar?
Útvarpsþátturinn - Pepsi Max og Lengjan með Úlfi 26.06.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Skoðuð er tíunda umferð Pepsi Max-deildarinnar. Hvaða leikmenn hafa verið að valda vonbrigðum og hverjir hafa komið á óvart í sumar? Fjallað er vel um Lengjudeildina. Hverjir eru bestu miðjumenn deildarinnar og hverjir bestu sóknarmennirnir? Þá er opinberað hvaða leikmaður var...
EM alls staðar - Nú hefst mótið fyrir alvöru 25.06.2021
Riðlakeppni EM alls staðar er að baki og nú hefst mótið fyrir alvöru. Sextán liða úrslitin eru að fara af stað og mesta spennan er fyrir leik Englands og Þýskalands. Sæbjörn Steinke ræðir um EM með tveimur góðum gestum, Valsararnir Einar Örn Jónsson íþróttaf...
Ungstirnin - Heimsókn frá Keflavík 25.06.2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum nýjasta þætti fjölluðu drengirnir um Abdul Fatawu Issahaku sem hefur verið orðaður við Liverpool og Leverkusen. Drengirnir fjölluðu einnig um Riccardo Calafiori, ný vonarstjarna Róma á Ítalí...
Ástríðan - Af hverju eru engin gæði í 3. deildinni!? 25.06.2021
Sverrir og Gylfi hittust seint í þetta sinn en gæðin voru til staðar, annað en í 3. deildinni. Af hverju geta liðin ekkert? Spennan er að magnast upp í 2. deildinni þar sem nýliðarnir eru báðir komnir á toppinn og mætast í næstu umferð! Ástríðan er í boði Bola...
Innkastið - Logi látinn fjúka og víti fara forgörðum 21.06.2021
Pepsi Max-deildin er loksins farin að finna taktinn aftur og Innkastið mætir eftir smá frí. Í þætti kvöldsins er farið yfir níundu umferð deildarinnar. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson skoða leiki umferðarinnar. Meðal efnis: Stórleikur kvöldsins, þjálfaraskiptin í Krikanum, embættisferð Hannesar norður, vítaklúður, skelfileg mistök Skagamarkvarðar, Stjarnan vaknar,...
Patrik fór taplaus í gegnum tímabilið og upp með þremur liðum 21.06.2021
Patrik Sigurður Gunnarsson er samningsbundinn Brentford á Englandi en lék á liðinni leiktíð með Viborg og Silkeborg á láni í Danmörku. Bæði Viborg og Silkeborg komust upp úr dönsku B-deildinni í vetur og leika því í efstu deild á komandi leiktíð. Patrik var hjá Viborg fyrir áramót og Silkeborg eftir áramót. Hann náði því merkilega afreki að fara taplaus í gegnum allt tímabilið. Brentford, liðið se...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.