Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Útvarpsþátturinn - Barist um bikar og landsliðsuppgjör 14.10.2021

Útvarpsþátturinn Fotbolti.net er í hlaðvarpsformi þessa vikuna þar sem umsjónarmenn hafa öðrum hnöppum að hneppa á hefðbundnum útsendingartíma. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Skagamaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Sverrir Mar Smárason er með þeim í þættinum. Það er vel við hæfi enda er bikarúrslitaleikur Víkings og ÍA framundan á laugardaginn. Í þæt...

Glataður þjóðarleikvangur og yfirtaka Sádi-Arabíu á Newcastle 09.10.2021

Seinni hluti útvarpsþáttarins 9. október. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, ræðir við Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað um möguleika á því að fá nýjan þjóðarleikvang og einnig um stóru fréttirnar úr enska boltanum en Newcastle er nú með ríkustu eigendur í bransanum.

Landsliðsumræða - Tómlegur völlur og döpur úrslit 09.10.2021

Fyrri hluti útvarpsþáttarins 9. október. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már gera upp 1-1 jafnteflisleikinn gegn Armeníu. HM-draumurinn er algjörlega dauður og sárafáir mættu á Laugardalsvöll. Slakt lið Armena fékk stig gegn Íslandi en Ísak Bergmann varð yngsti markaskorari landsliðsins frá upphafi. Farið er yfir frammistöðu leikmanna og framhaldið. Einnig er rætt um komandi bikarúrslitaleik Víkin...

Fantabrögð - Afsakið (landsleikja)hlé 08.10.2021

Umferð 7 var versta umferðin í Fantasy það sem af er tímabili. Meðalskorið var einungis 38 stig og þó Fantabræður hafi flestir verið yfir því þá er ekki hægt að segja að þeir hafi riðið feitum hesti. Aron og Heiðmar gerðu upp umferðina og fóru yfir allt &thorn...

Ítalski boltinn - Emil snýr aftur og fimm bestu í deildinni valdir 08.10.2021

Emil Hallfreðsson er genginn til liðs við Virtus Verona, en hvaða lið er þetta eiginlega? Íslensku miðverðirnir eru farnir að byrja leiki, hinn tónelski Mourinho vill fá að stjórna tónlistinni og svo verða valdir í þættinum fimm bestu leikmenn deildarinnar í fyrstu sjö umferðunum. &I...

Heimavöllurinn: PEPSI MAX UPPGJÖR 2021 07.10.2021

Það er loksins komið að því. Pepsí Max uppgjörið 2021. Sæbjörn Þór og Helga Katrín fréttaritarar Fótbolta.net mættu í partýið og fara yfir allt það helsta í sumar.

Vanda Sig er sest í formannsstólinn - Ætlar að koma KSÍ úr krísunni 07.10.2021

Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net heimsótti Vöndu Sigurgeirsdóttur á skrifstofu hennar í Laugardalnum. Vanda er tekin við sem formaður KSÍ og er fyrsta konan sem tekur við formennsku í aðildarfélagi hjá UEFA. Í viðtalinu ræðir hún um tiltektina sem framundan er, hvort hún sé komin til að vera, gagnrýni í Podcöstum, stuðningsyfirlýsingu við Arnar, traust framkvæmdastjórans, ímynd KSÍ, yfi...

Heimavöllurinn: Allt um Íslandsmeistaratitilinn með Mist Edvards og Ásdísi Karen 05.10.2021

Valur er Íslandsmeistari árið 2021. Það var því kominn tími á að fá að vita allt um leiðina að titlinum og eru Íslandsmeistararnir Mist Edvarsdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir gestir Heimavallarins. Hulda Mýrdal, Sæbjörn Þór og Helga Katrín fóru yfir málin með Íslandsmeisturunum.

Enski boltinn - Systurnar fóru yfir sviðið 05.10.2021

Um helgina fór fram síðasta umferðin í ensku úrvalsdeildinni fyrir landsleikjahlé. Sæbjörn Steinke ræddi við systurnar Ástu Eir og Kristínu Dís Árnadætur um leiki umferðarinnar. Farið var yfir liðsvalið hjá Solskjær, viðbrögð Ronaldo, Werner kominn á blað og stórkostlegur lokaleikur í umferðinni. Watford rak þjálfarann, Brentford að byrja vel og hvort liðið er meira spennandi Brighton eða Arsenal.

Meistaradeildarupphitun: Leikur gegn PSG á morgun 05.10.2021

Á morgun mætir Breiðablik franska stórliðinu PSG í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Af því tilefni ræddi Sæbjörn Steinke við systurnar Ástu Eir og Kristínu Dís Árnadætur en þær eru einmitt leikmenn Breiðabliks. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli annað kvöld. - Mættu PSG fyrir tveimur árum - Þakklæti til starfsfólks Breiðabliks - Nýju leikmennirnir - Þjálfarabreytingar - Hvernig er að vera með sys...

Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Arnar Grétars og Pepsi Max 02.10.2021

Það var nóg að ræða í útvarpsþætti vikunnar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir fótboltafréttirnar, rætt um landsliðið og Pepsi Max-deildina. Tómas Þór fer yfir laglausar hetjur íslenska boltans. Gestur þáttarins: Arnar Grétarss...

Heimavöllurinn Extra: Margrét Lára velur topp 5 sem komu skemmtilega á óvart 01.10.2021

Brakandi blíða á Heimavellinum í dag. Pepsí uppgjör nálgast óðfluga á Heimavellinum. Til að hita upp fyrir þá veislu fengum við Margréti Láru til að segja okkur betur frá Íslandsmeistaraliði Vals, spá í Bikarúrslitin og velja topp fimm leikmenn sem komu henni skemmtilega á óvart í deildinni í sumar.

Ástríðan - Uppgjörsþáttur 3. deildar 30.09.2021

Sverrir Mar fékk til sín gesti úr liðunum sem enduðu í tveimur efstu sætum deildarinnar og fór yfir sumarið. Þorkell Þráinsson, fyrirliði Ægis, og Brynjar Þorri, leikmaður Hattar/Hugins mættu, fóru yfir deildina í heild, sín lið og eigin frammistöðu. Lið Ársins var sömuleiðis tilkynnt í boði Jako Sport auk bestu manna. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tr...

Fantabrögð - Ronaldo út? Lukaku inn? 29.09.2021

Ásgeir, Gunni og Snorri hittustu í stúdíóinu og gerðu upp 6. umferðina í FPL. Helstu umræðuefni: - Á að wildcarda núna? - Á maður að selja Ronaldo fyrir Lukaku? Er það jafn augljóst og allir vilja meina? - Triple Chelsea vörn? - Hvað gerum við við Luke Shaw og Jota? Fantab...

Ástríðan - Uppgjörsþáttur 2. deildar 27.09.2021

Sverrir Mar fékk til sín gestir úr liðunum sem enduðu í 1. og 2.sæti deildarinnar og fór yfir sumarið. Samúel Már úr KV og Unnar Ari úr Þrótti Vogum, sem báðir voru valdir í lið ársins af fyrirliðum og þjálfurum, fóru yfir deildina í heild, sín lið og eigin frammistöðu. Lið Ársins var sömuleiðis tilkynnt í boði ICE nikótínpúða. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Ne...

Innkastið - Lokahóf eftir magnað tímabil 27.09.2021

Það er komið að síðasta Innkasti tímabilsins! Elvar Geir Magnússon, Íslandsmeistarinn Tómas Þór Þórðarson og Skagamaðurinn Sverrir Mar Smárason eru í hljóðverinu og halda sérstakt lokahóf. Víkingar eru Íslandsmeistarar og Tómas fagnaði rækilega á laugardagskvöldinu, HK féll úr deildinni á meðan ÍA bjargaði sér á ótrúlegan hátt. Farið er yfir alla leikina og þá er lið ársins opinberað, þjálfari árs...

Ungstirnin - Kristall á línunni og næstu Haaland og Neymar 27.09.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Kristall Máni Ingason leikmaður Víkinga var á línunni og ræddu drengirnir um tímabilið sem var að klárast en Kristall og Víkingar urðu Íslandsmeistarar á laugardaginn. Drengirnir fjölluðu um Benjamin...

Fótboltapólitíkin - Aukaþing framundan 25.09.2021

Aukaþing KSÍ fer fram laug­ar­dag­inn 2. októ­ber næst­kom­andi en þar verður ný bráðabirgðastjórn og nýr bráðabirgðaformaður kos­in. Þingið fer fram á Hilt­on Reykja­vík Nordica-hót­el­inu á Suður­lands­braut. Frestur til að skila inn framboðum er til miðnættis í kvöld. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Þóri Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóra KSÍ og sérfræðing útvarpsþáttarins í fótboltapólitíki...

Elvar og Tom skoða lokaumferðina í Pepsi Max 24.09.2021

Það er mikil spenna fyrir lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar. Víkingur eða Breiðablik verður Íslandsmeistari og hörð barátta er um að forðast það að falla með Fylki. Auk þess er spenna í baráttunni um þriðja sætið sem gæti gefið þátttökurétt í Evrópukeppni, ef Víkingur mun vinna bikarinn. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoða leikina í lokaumferðinni. Þetta er upptaka fyrir útvarpsþátti...

Ítalski boltinn - Íslendingur á toppnum og fótbolti spilaður á Formúlu 1 braut 24.09.2021

Íslendingur trónir á toppnum í Íslendingadeildinni Serie B með fullt hús stiga. Bandarískum eigendum fjölgar enn á Ítalíu. Hjátrú skilaði nýliðum sínum fyrstu stigum í efstu deild og Juventus er hægt og rólega að ná vopnum sínum á nýjan leik.

Heimavöllurinn: Sáttabolli í Wolfsburg, framtíðin og lið ársins í 2. deild 24.09.2021

Landsleikurinn gegn Hollandi, framtíðin og 2. deild eiga hug og hjörtu Heimavallarins að þessu sinni. Knattspyrnuþjálfarinn Margrét Magnúsdóttir mætir og fer yfir allt það helsta ásamt þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Rýnt verður í landsleikinn og Margrét tippar á nokkrar framtíðartsjörnur. Þá verður farið yfir lið og leikmenn ársins í 2. deild en þjálfarar og fyrirliðar félaga í deildinni...

Fantabrögð - Chelsea mun aldrei aftur fá á sig mark 22.09.2021

Aron, Ásgeir og Gylfi mættu í dag að henda boltum á milli. Að selja eða ekki selja? Það er efinn. Þrjár sterkustu varnir deildarinnar halda áfram að hala inn stigum. Salah er besti Fantasy leikmaðurinn um þessar mundir. Adama Traore er það ekki. Bara alls ekki. Meðal umræðuefnis í dag er hvaða Chelsea varnarmaður er bestur, hvaða leikkerfi er best, hvernig á maður að spila Ronaldo/Lukaku leikinn o...

Enski boltinn - Umferðin skoðuð og horft Fram á við 21.09.2021

Enski boltinn er snúinn aftur eftir leyfi. Sæbjörn Steinke fékk til sín tvo Framara og var farið vel yfir umferðina um helgina og áhugaverðir leikmenn teknir fyrir. Spjallið er ítarlegt en fyrir þá sem vilja alls ekki hlusta á Indriða Áka Þorláksson og Gunnar Gunnarsson tala um gott tímabil með Fram geta spólað fram á 13. mínútu og hlustað á spjall um enska frá þeim tímapunkti.

Aðeins meiri ástríða - Gunnar Heiðar Þorvaldsson 21.09.2021

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfara KFS, til sín í spjall. KFS fengu 4 stig úr fyrstu 8 leikjum sumarsins áður en allt snérist við og endaði liðið í 6. sæti deildarinnar með 34 stig, 7 stigum frá 2. sæti. Meðal annars ræða þeir við Gunnar Heiðar um leikstíl og uppbyggingu liðsins, hvernig gekk að halda trúnni á verkefnið, upphafið á þjálfaraferli Gunnars Heiðars...

Heimavöllurinn: Lokahóf Lengjunnar og appelsínugul viðvörun 21.09.2021

Það er farið að hausta og komið að því að gera upp Lengjudeildina. Úrvalslið deildarinnar verður opinberað en það er valið af þjálfurum og fyrirliðum. Þá verður farið yfir ýmislegt eftirtektar- og eftirminnilegt frá fótboltasumrinu. Það verður gert ásamt sigurreifum gestum úr deildinni. Þeim Rebekku Sverrisdóttur sem vann deildina með KR og Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur sem gat ekki hætt að sk...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.