Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Innkastið - Lokasprettur sem er bannaður börnum 20.09.2021

Velkomin með okkur í Innkastið þegar aðeins sjö leikir eru eftir af Pepsi Max-deildinni. Um næstu helgi verður lokaumferðin og gera má ráð fyrir svakalegri spennu. Elvar Geir Magnússon, Ingólfur Sigurðsson og Sverrir Mar Smárason fara yfir allt það helsta á svakalegum sunnudegi í Pepsi Max-deildinni. Meðal efnis: Vítaklúðrin og dramatíkin, dómarar í sviðsljósinu, handrit Kára og Sölva, Fylkir fékk...

Ástríðan - Síðasta yfirferð sumarsins 20.09.2021

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar sem jafnframt voru þeir síðustu í ár. KV og Völsungur unnu bæði sína leiki en KV fylgja Vogunum upp í Lengjudeild. Ægismenn fara upp úr 3.deild á fleiri skoruðum mörkum og ÍH heldur sér í deildinni á markatölu. Tindastóll og Einherji fallin niður í 4.deild. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma...

Útvarpsþátturinn - Lengjudeildarverðlaun og íslenskt slúður 18.09.2021

Útvarpsþátturinn 18. september. Elvar Geir, Tómas Þór og Úlfur Blandon fara yfir íslenska boltann. Farið er yfir Lengjudeildarverðlaunin og rætt um slúðrið í íslenska boltanum, Mjólkurbikarinn og komandi umferð í Pepsi Max. Besti leikmaður Lengjudeildarinnar er á línunni.

Ítalski boltinn - Leigumorðinginn kann að rífa í gikkinn og Juventus enn í vandræðum 17.09.2021

Szczesny kostar Juventus stig, leigumorðinginn Ballardini þorir að rífa í gikkinn og Serbarnir tveir gefa Fiorentina von um bjarta framtíð með blóm í haga. Pisa fer vel af stað í Íslendingadeildinni Serie B og Alberto Gilardino kennir Óttari Magnúsi markaskorun í einni af fallegustu borgum Ítalíu. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er ums...

Fantabrögð - Rembingur í Ronaldo og sjóðandi Salah 15.09.2021

Fyrir þá sem misstu af því er Ronaldo byrjaður aftur að leika knattspyrnu fyrir Manchester United. Hann er flottur strákur og skoraði tvö mörk. Salah og Mané eru smábörn en skoruðu báðir. Hvaða áhrif hefur Ronaldo á menn eins og Greenwood og Pogba? Hvað gerum við þegar bestu var...

Ástríðan - Húsavík nötraði og Höttur/Huginn tryggði sig upp 14.09.2021

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar. Húsavík nötraði úr spennu þegar Völsungur og KV skildu jöfn. Stressið tók yfir hjá Njarðvík. Spennan fyrir lokaumferðina er rosaleg. Höttur/Huginn tryggði sér toppsætið &ia...

Innkastið - Öll spjót beinast að Heimi og Skagamenn sleppa 13.09.2021

Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig eru í Innkasti vikunnar. Leikir helgarinnar í Pepsi Max-deildinni eru gerðir upp og einnig er Lengjudeildin, 2. deild og Mjólkurbikarinn til umræðu. Breiðablik vann 3-0 sigur gegn Val og Víkingar unnu auðveldan sigur gegn HK. Tómas er búinn að reikna það &uacut...

Útvarpsþátturinn - Þjálfarahræringar í Lengjudeildinni 11.09.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. september. Í þættinum: Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar í Vogum, er á línunni en liðið er komið upp í Lengjudeildina. Rafn Mar...

Heimavöllurinn: Blikar skrifa söguna og Lengjan réðist við lokaflaut 10.09.2021

Það var aldeilis dramatískt fótboltakvöld í gær. Blikar skrifuðu söguna þegar þær skutu sér áfam í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, fyrstar íslenskra liða. Úrslitin réðust uppbótartíma Lengjudeildarinnar. Afturelding fylgir KR upp í efstu deild og hlutskipti Gróttu og ÍA varð að falla. Úrslitaleikur 2. deildar er framundan, sem og lokaumferð Pepsi Max-deilar. Heimavöllurinn fer yfir þetta allt sa...

Innkastið - Löng og ströng leið upp fjallið aftur 08.09.2021

Eitt stig af níu mögulegum var niðurstaðan úr þungum landsleikjaglugga Íslands. Eftir 0-4 tap gegn Þýskalandi fóru Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Gunnar Birgisson yfir leikinn og landsleikjagluggann. Því miður var ekki nægilega mikið jákvætt hægt að taka úr þessum glugga. Einnig er rætt um U21 landsliðið og Gunni giskar á spennandi umferð í Pepsi Max-deildinni.

Ástríðan - Þróttur Vogum spilar í Lengjudeild 2022 07.09.2021

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar. Kári og Fjarðabyggð eru staðfest fallin og Þróttur Vogum eru komnir upp úr 2. deild. Lokaumferðirnar í 3. deild verða MAGNAÐAR bæði á toppi og botni. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Fantabrögð - Þeir bestu halda ekki með Arsenal 06.09.2021

Þeir bestu, Dr. Gunni og Hemson, mættu í hljóðverið. Þeir fóru yfir góð ráð sem hjálpa Fantasy stjórum að verða bestir. Öll bestu hlaðvörpin einkennast af góðu jafnvægi. Þess vegna ræstum við Aron úr fæðingarorlofi. Hann mætti í gífurlegu hormónaójafnvægi sem nýbakaður faðir en fyrst og fremst sem stuðningsmaður Arsenal. Fór þar yfir marga leikmenn Arsenal sem hlustendur geta sleppt því að kaupa....

Ungstirnin - U21 landsliðið í eldlínunni 06.09.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti er fjallað um Gavi (Barcelona) og...

Útvarpsþátturinn - Landsliðsumræða með Bjarna Guðjóns 04.09.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 4. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Bjarni Guðjónsson, framkvæmdastjóri KR, er gestur. Rætt er um landsleikinn gegn Rúmeníu og komandi leiki. Fréttamannafundur Arnars Þórs Viðarssonar var í beinni. Þá er rætt um íslenska boltann og Magnús Valur Böðvarsson var á línunni.

Heimavöllurinn: Dauðafæri á Kópavogsvelli, Miedema mætir og miðvarðamergð 03.09.2021

Það er nóg um að vera í boltanum núna þegar deildarkeppnirnar hér heima eru að klárast, Blikar eru í dauðafæri í Meistaradeildinni og það er landsleikur framundan. Heimavöllurinn fær til sín góða gesti til að fara yfir þetta allt saman en það eru knattspyrnuþjálfarinn Aníta Lísa Svansdóttir og íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson.

Ástríðan - Stefnir allt í svakalegar lokaumferðir 31.08.2021

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar. Augnablik tapar og tapar á meðan allt er grænt hjá KFS. Völsungur gerir sig meira og meira gildandi í toppbaráttunni í 2.deild. Hvaða lið fara upp? Hvaða lið fara niður? Þetta og margt fleira var rætt í stútfullum þætti Ástríðunnar. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í sp...

Enski boltinn - Utanríkisráðherra í fótboltaspjalli 30.08.2021

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, og Ágúst Reynir Þorsteinsson, eigandi Bombay Bazaar eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum Enski Boltinn. Guðlaugur Þór er stuðningsmaður Liverpool og Ágúst heldur með Chelsea. Þessi lið áttust við í stórleik helgarinnar og enduðu leikar með jafntefli. Þátturinn er langt boltaspjalli þar sem er rætt um stórleikinn og aðra leiki helgarinnar í ens...

Innkastið - Kraumar í Laugardal, Fylkiskrísa og Blikar óstöðvandi 30.08.2021

Innkast vikunnar. Fjallað er um hreinsunina hjá KSÍ, 19. umferð Pepsi Max-deildarinnar og einnig litið í Lengjudeildina og 2. deildina. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson eru í þætti dagsins. Meðal efnis: Kallað eftir stjórnarskiptum hjá KS&...

Útvarpsþátturinn - Spjótin beinast að KSÍ og Ronaldo rauður á ný 28.08.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. ágúst. Íþróttafréttamenn fara yfir fótboltafréttir vikunnar og af nægu er að taka. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Henry Birgir Gunnarsson í þætti vikunnar. Spjótin beinast að forystu KSÍ sem verst alvarlegum ásökunum, áhugaverður landsliðshópur var kynntur í vikunni og andrúmsloftið á fréttamannafundinum var óhefðbundið, fram...

Ítalski boltinn - Ljótur skilnaður Juventus og Ronaldos og upphitun fyrir kvennaboltann 27.08.2021

Farið er yfir yfirvofandi ljótan skilnað Juventus og Ronaldo, fyrsta umferðin í Serie A er gerð upp og hitað er upp fyrir ítalska kvennaboltann þar sem við Íslendingar munum eiga að minnsta kosti tvo fulltrúa í vetur. Ítalski boltinn - þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Ástríðan x Óskar Smári - Lítið eftir, mikil spenna 26.08.2021

Óskar Smári mætti í hljóðverið þar sem farið var yfir málin. Lokaspretturinn er framundan í 2. og 3. deild. Farið var yfir ýmsar ráðgátur, eins og Hauka og Tindastól. Hvers vegna er allt í rugli hjá þeim? Hvað ætla þau að gera til að laga þetta? Hv...

Fantabrögð - 2. umferð gerð upp - Antonio á þessa deild 25.08.2021

Antonio er kóngurinn og það er ekkert meira um það að segja. Ódýrir miðjumenn gera Lukaku að freistingu sem erfitt verður að standast. Sætasta stelpan á ballinu mætir alltaf seint á ballið. Hið villta spil á ekki að virkja núna. Hlutirnir eru ekki allir eins og þeir sýnast....

Kafað dýpra í landsliðsvalið með þjálfaranum 25.08.2021

A-landsliðshópurinn fyrir komandi í verkefni var tilkynntur í dag. Karlalandsliðið er á leið í þrjá leiki í undankeppni HM. Allir verða þeir leiknir á heimavelli. Eftir að hópurinn var tilkynntur og eftir fréttamannafund gaf landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson sér tíma í að ræða við Fótbolta.net um valið og verkefnið. Arnar var spurður út í einstaka leikmenn og hvernig honum líst á komandi ver...

Enski boltinn - Chelsea á siglingu en Arsenal ekki 24.08.2021

Það var stórleikur í ensku úrvalsdeildinni síðasta sunnudag. Chelsea fór með sigur af hólmi gegn Arsenal. Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, og Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Þeir köfuðu djúpt í stórleikinn og ræddu einnig um aðra leiki í annarri umferð deildarinnar.

Innkastið - Albert Brynjar og brjáluð barátta um þann stóra 24.08.2021

18. umferð Pepsi Max-deildarinnar gerð upp og einnig rætt um Lengjudeildina. Sérstakur gestur þáttarins er Albert Brynjar Ingason, sóknarmaður Kórdrengja. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Albert Brynjar fara yfir leikina og fréttir sem eru tengdar þeim. Víkingar sýndu magnaða frammistöðu gegn Val og opnuðu titilbaráttuna í Pepsi Max-deildinni upp á gátt. Breiðablik vann KA og getur farið á toppinn á...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.