Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Útvarpsþátturinn - Rangnick og Peningar 27.11.2021
Útvarpsþátturinn 27. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar. Tryggvi Páll Tryggvason, fréttamaður og sérfræðingur um Manchester United, ræðir um komu Ralf Rangnick á Old Trafford. Björn Berg Gunnarsson ræðir um Peninga. Hann var að gefa út bók fyrir jólabókaflóðið og í spjalli við hann er meðal annars talað um peningana í kringum boltann, Ronaldo, HM í Katar og fleira.
Ungstirnin x Róbert Orri 27.11.2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Arnar Laufdal kemur með mjög spennandi slúðurpakka um unga og efnilega leikmenn á Íslandi þar sem stórar fréttir líta dagsins ljós. Drengirnir fjalla um Victor Kristiansen (FCK) sem er enn einn spenn...
Fantabrögð - Bakvarðasveitin og vinnueftirlitið 23.11.2021
Fantasy snýst um bakverði. Bakverði og aftur bakverði. Ásgeir og Aron mættu í stúdíóið og ræddu það sem skiptir máli í Fantasy í dag - varnarmenn. Ásgeir viðurkenndi að hafa brotið vinnureglur og Aron tók hálfan þáttinn í að þylja upp s...
Enski boltinn - Keflvískt bakvarðauppgjör 22.11.2021
Tólfta umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina. Sæbjörn Steinke fékk Keflvíkingana Ástbjörn Þórðason og Rúnar Þór Sigurgeirsson með sér til að fara yfir umferðina. Ástbjörn er stuðningsmaður Liverpool og Rúnar er stuðningsmaður Arsenal. Hvaða lið endar í topp fjórum? Getur Norwich haldið sér uppi? Reece James eða Trent Alexander-Arnold og margt fleira. Í gær kom út aukaþáttur þar sem e...
Enski extra - Ole ekki lengur við stýrið 21.11.2021
Ole Gunnar Solskjær var látinn taka pokann sinn í morgun eftir tæp þrjú ár í starfi hjá Manchester United. Fótbolti.net ákvað að taka aukaþátt þar sem rætt var um Manchester United. BÁN teymið; þeir Sæbjörn Steinke, Aksentije Milisic og Egill Sigfússon ræddu um United. Hver tekur við? Af hverju var Ole einn látinn fara? Af hverju ekki fyrr? Hver á að taka við? Síðasti naglinn í kistuna og margt fl...
Útvarpsþátturinn - Stóru málin í íslenska og enska boltanum 20.11.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. nóvember. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Benedikt Bóas fara yfir það helsta í boltanum. Leikmannaskipti, íslenska landsliðið, undankeppni HM, stjóramálin í enska og fleira til umfjöllunar. Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ er í viðtali, Kristján Atli ræðir um enska boltann, Þóroddur Hjaltalín um dómaramál og Sævar Pétursson um afreksþjálfun á Íslandi.
Birkir Már - Farið yfir ferilinn með Vindinum 17.11.2021
Birkir Már Sævarsson lagði landsliðsskóna á hilluna á sunnudag. Birkir Már lék 103 landsleiki og fór með íslenska liðinu á tvö stórmót. Hann var fastamaður í liðinu um árabil. Birkir fer yfir ferilinn með landsliðinu, aðallega gullaldarárin, og ferilinn til þessa með landsliðinu. Það var Sæbjörn Steinke sem ræddi við Birki.
Heimavöllurinn: Skólapúsl, framfarir og ævintýri í Meistaradeild 15.11.2021
Landsliðskonurnar Agla María Albertsdóttir og Telma Ívarsdóttir eru gestir Heimavallarins að þessu sinni. Þær standa í ströngu með Breiðabliki í Meistaradeild Evrópu og A-landsliðinu okkar sem ætlar sér á HM. Knattspyrnukonurnar öflugu fara yfir allt það helsta í haustprógramminu og margt fleira.
Fantabrögð - Megi landsliðin öll rotna 13.11.2021
Eftir áralanga dvöl í óbyggðunum mættust stálin stinn í dag þegar Gunni og Gylfi, umdeilanlega þeir bestu í bransanum, fóru yfir 11. umferð og margt annað. Lífið er lag sem þeir sungu saman tveir. Eins og alltaf. Dýrir varnarmenn eru betri en dýrir miðjumenn. Arsenal eru bestir. A...
Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Jón Rúnar og fótboltafréttir 13.11.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. nóvember. Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs og fyrrum starfsmaður KSÍ, gerir upp landsleikinn gegn Rúmenum og horfir til framtíðar. Jón Rúnar Halldórsson, stjórnarmaður í ÍTF, er gestur þáttarins. Rætt er við hann um breytingar á íslensku deildinni, sjónvarpssamninga og fleira tengt íslenska boltanum. Þá fara Elvar Geir og Tómas Þór yfir fótbolta...
Enski boltinn - Talandi um endastöð og stefnuleysi 09.11.2021
Það er komið landsleikjafrí í ensku úrvalsdeildinni. Tólfta umferðin fór fram um helgina og var farið yfir það helsta. Manchester City rústaði grönnum sínum í United, en þó einungis með tveimur mörkum. Liverpool lá gegn West Ham og tveir stjórar voru reknir. Hverjir taka við Norwich og Aston Villa? Þeir Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans á Símanum og þjálfarinn Óskar Smári Haraldsson fór...
Davíð Snorri: Þegar dugnaðurinn er á hreinu þá koma gæðin líka 08.11.2021
Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins valdi í síðustu viku hóp fyrir tvo leiki sem framundan eru. Ísland mætir Liectenstein næsta föstudag og Grikklandi þriðjudaginn 16. nóvember. Báðir leikirnir eru liður í undankeppni EM 2023. Davíð var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddi um komandi leiki og riðil Íslands.
Fótboltafréttir vikunnar - Landsliðsval og leikmannaskipti 05.11.2021
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Byrjað er að ræða landsliðsvalið og síðustu tvo leikina í undankeppni HM. Magnús Már velur byrjunarlið Íslands úr hópnum sem opinberaður var í vikunni. Annað til umræðu: Pétur Theodór slítur krossbandið í þriðja sinn, sóknarmannaleit Breiðabliks, Aron Jó í Val, staða Hannesar, óvæntustu...
Ítalski boltinn - Juventus í æfingabúðum og Bjarki Steinn með nýjan samning 03.11.2021
Í þætti vikunnar verður farið yfir vandræðaganginn í Juventus sem endaði á því að liðið var sent í æfingabúðir. Bjarki Steinn skrifaði undir nýjan samning hjá Venezia, hvernig lítur framhaldið út hjá honum? Sampdoria saknar Claudio Ranieri og toppbar&aa...
Ungstirnin x Garðabær 03.11.2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir fjalla um Luka Sucic (Salzburg) sem er enn einn spennandi leikma&et...
Fantabrögð - Salah slakar á og #SkáldaFPL 02.11.2021
Það kom að því. Mo Salah skoraði ekki. En lagði þó upp mark svo það voru ekki 100% vonbrigði hjá þeim metfjölda sem setti bandið á hann í þessari umferð. Aron og Gunni mættu í stúdíóið yfir leik Wolves og Everton og fóru yfir það helsta...
Enski boltinn - Nuno sparkað, Ramsdale lygasagan og kraftaverk Moyes 01.11.2021
Tíundu umferðinni í enska boltanum lýkur í kvöld með viðureign Wolves og Everton. Þeir Andri Geir Gunnarsson úr hlaðvarpsþættinum Steve Dagskrá og Arnar Laufdal Arnarsson, annar af umsjónarmönnunum Ungstirnanna, ræddu um það helsta í umferðinni. Í upphafi þáttar var hringt í Ingimar Helga Finnsson, stuðningsmann Tottenham, og farið yfir tíðindi dagsins. Andri er stuðningsmaður Barcelona og var spæ...
Útvarpsþátturinn - Enska hringborðið og Aron Þrándar 30.10.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 30. október. Enska úrvalsdeildin er í aðalhlutverki í þætti vikunnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Kristján Atli og Tryggvi Páll ræða um gang mála og valið er úrvalslið fyrsta fjórðungs. Staða Ole Gunnar Solskjær og &thor...
Heimavöllurinn: Óvæntar frammistöður og sex blá stig í HM töskuna 27.10.2021
Landsliðsveisla á Heimavellinum þegar Margrét Magnúsdóttir þjálfari og Sæbjörn Þór fréttamaður á Fótbolti.net mættu í hús í dag. Ísland vann tvo mikilvæga sigra í undankeppni HM á síðustu viku. Gríðarlega mikilvægur sigur gegn Tékkum og skyldusigur gegn Kýpur.
Fantabrögð - 9. umferð - Að gera sér dagamun 26.10.2021
Aron og Ásgeir mættu glaðir í stúdíóið, enda voru þeir báðir með Salah sem fyrirliða í liðinni umferð. Einhverjir þáttastjórnendur forfölluðust í kjölfarið á ákvörðunum sínum, en bekkjabræður fóru yfir það hel...
Enski boltinn - Íslandsmeistarar rýndu í stöðu Solskjær 25.10.2021
Níundu umferðinni í enska boltanum lauk í gær með stórleik Manchester United og Liverpool. Íslandsmeistararnir Júlíus Magnússon og Eiður Ben Eiríksson fóru yfir umferðina og ræddu málin með Sæbirni Steinke. Eins og flestir vita lauk leiknum með risasigri Liverpool og var rýnt í leikinn og stöðu Ole Gunnar Solskjær hjá United. Júlli fór á Emirates og fór yfir málin hjá Arsenal og þá var aðeins skoð...
Útvarpsþátturinn - Bak við tjöldin hjá meisturunum og enski 23.10.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 23. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur: Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs Víkings. Farið er yfir leiðina að tvennunni, stefnu félagsins, hæðir og lægðir meðan Heimir hefur starfað bak við tjöldin, r&aacu...
Fantabrögð - Uppgjör á 8. umferð 20.10.2021
Þáttur vikunnar er mættur. Ásgeir og Heiðmar fóru yfir allt það helsta í umferðinni og spáðu í spilin fyrir komandi umferðir. Þurfa leikmenn á borð við Ronaldo, Benhrama og Jota að víkja fyrir Vardy, Son eða Toney? Er Lukaku að upplifa kulnun í starfi? Er Salah á m&...
Ungstirnin - Tchouameni, Babadi, FM og Wirtz 20.10.2021
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir fjalla um Aurélien Tchouaméni (Mónakó) sem hefur verið orðaður við Chelsea og Real Madrid og Isaac Babadi (PSV) sem er talinn vera mesta efnið úr PSV akademíunni síðan Memphis Depay. Meðal...
Enski boltinn - Salah, tap Man Utd og allt um eigendaskiptin 19.10.2021
Áttunda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina og er komið að því að gera upp umferðina. Sæbjörn Steinke fékk þá Jón Júlíus Karlsson og Jóhann Má Helgason til að fara yfir stóru málin. Jón Júlíus er mikill Newcastle maður og Jóhann er harður stuðningsmaður Chelsea. Farið var yfir eigendaskipti Newcastle, tap Manchester United gegn Leicester og annað markvert. Hlarðvarpsþátturinn Enski...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.