Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Enski boltinn - Vantar nýjan þjálfara og drulla mönnum burt 17.01.2022
Umferðinni í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær, átta leikir af tíu fóru fram - tveimur var frestað út af svolitlu. Sæbjörn Steinke fékk þá Arnór Gauta Ragnarsson og Sigurð Gísla Bond Snorrason til að gera upp helgina með sér og ræða stóru málin. Benítez var látinn fara frá Everton, Manchester United tapaði niður tveggja marka forskoti, Manchester City vann stórleikinn, Liverpool kláraði Brentford o...
Útvarpsþátturinn - Enska hringborðið og Pálmi Rafn 15.01.2022
Elvar Geir og Benedikt Bóas sjá um útvarpsþátt vikunnar. Hringt er í Pálma Rafn Pálmason spilandi íþróttastjóra KR og Kristján Atli Ragnarsson mætir við enska hringborðið í annað fjórðungsuppgjör. Allt það helsta úr enska boltanum. Einnig er rætt um íslenska fótboltalandsliðið og gerð heiðarleg en misheppnuð tilraun til að hafa handboltahorn.
Ungstirnin - Football Manager Special 14.01.2022
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir eru ekki bara tveir í þættinum að þessu sinni en góðvinur þeirra Kristinn Helgi Jónsson er einnig. Aðalumræðuefnið í þessum þætti er fótboltaleikurinn vinsæli Football Manager og er rætt f...
Ítalski boltinn - Íslendingar á suðrænum slóðum 13.01.2022
Íslendingar eignuðust nýjan leikmann í Serie A um nýliðna helgi þegar Bjarki Steinn Bjarkason kom inná fyrir Venezia gegn AC Milan. Nú er útlit fyrir að hann sé á leið á láni suður á bóginn til Catanzaro. Fiorentina er búið að finna arftaka Dusan Vlahovic sem er á útleið, en um er að ræða gamla hetju úr ítalska boltanum. Leik Internazionale og Juventus í ofurbikarnum lauk með hótunum um barsmíðar.
Fantabrögð - No Salah, Macintosh molar og klippikort 10.01.2022
Aron og Gylfi stigu villtan dans í hljóðverinu þar sem þeir fóru óvenju langt út fyrir efnið. Það kom ekki að sök, einhvers staðar innan um þennan 65 mínútna hafsjó orða má heyra umræðu um Fantasy. Chelsea á skrítið prógram framundan. Baugarnir &aac...
Útvarpsþátturinn - Boltafréttir og breytt Íslandsmót 08.01.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 8. janúar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í boltanum. Sæbjörn Steinke er með þeim í þættinum. Farið er yfir innlendar og erlendar fréttir. Þórir Hákonarson fer yfir leikjafyrirkomulag Íslandsdeildarinnar og breytt umhverfi íslenska boltans.
Heimavöllurinn - NÝÁRSBOMBAN: Hápunktar ársins og góðir gestir 07.01.2022
Nýtt fótboltaár er hafið og spennandi tímar framundan. Nú þegar árið 2021 er liðið og rúmlega það er við hæfi að líta aðeins til baka yfir það helsta sem gerðist á liðnu ári og auðvitað að velta fyrir sér hvað nýtt fótboltaár ber í skauti sér. Heimavöllurinn fær til sín geggjaða gesti. Landsliðskonurnar Berglind Rós Ágústsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir mæta í sett ásamt hinni einu sönnu Helenu...
Enski boltinn - 'Clear and obvious' Arsenal á uppleið 04.01.2022
Enski boltinn snýr aftur á nýju ári og var umferðin um liðna helgi gerð upp í dag. Átta leikir fóru fram en tveimur leikjum var frestað vegna smita. Það var Fylkisþema í þættinum því þeir Egill Sigfússon og Kristján Gylfi Guðmundsson voru gestir Sæbjarnar Steinke - báðir gestirnir þjálfarar hjá Fylki. Farið var yfir vafaatriðin í leik Arsenal og Manchester City, önnur stór atvik umferðarinnar og r...
Enski boltinn - Óskiljanleg úrslit í hátíðartörn 29.12.2021
Hlaðvarpsþátturinn Enski boltinn og útvarpsþátturinn Fótbolti.net sameinast í þætti þar sem rætt er um hátíðartörnina í enska boltanum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir málin. Stuðningsfólk Liverpool og Manchester United er svekkt eftir úrslit vikunnar en Leicester kom gríðarlega á óvart með sigri í gær. United var heppið að ná stigi gegn Newcastle. Falla norðanmenn? Manchester Cit...
Heimavöllurinn: Rússíbanaár hjá Svíþjóðarmeistaranum 28.12.2021
Guðrún Arnardóttir er gestur í jólaþætti Heimavallarins. Guðrún varð sænskur meistari með stjörnuprýddu liði Rosengård í haust eftir að hafa verið keypt til liðsins frá Djurgarden á miðju tímabili. Hún fer yfir frábært fótboltaár og rúmlega það með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
Fantabrögð - Frestunarárátta 22.12.2021
Gunni og Heiðmar gerðu upp "umferð" 18 í Fantasy Premier League. En enska úrvalsdeildin er haldin frestunaráráttu þessa dagana og það bitnar heldur betur á Fantasy liðunum okkar. Mjög erfitt er að reikna út hvaða leikir verða spilaðir og þ.a.l. hvar er möguleiki á stigum. Heiðmar og Gunni fóru yfir þessa fjögurra leikja umferð og reyndu að giska á hvað gerist næst. - 1,3 milljón spilarar keyptu Ol...
Ungstirnin - Tveir af okkar efnilegustu í hátíðarþætti 22.12.2021
Ungstirnin eru í hátíðarskapi og fá til sín tvo af efnilegustu leikmönnum Íslands. Gestir þáttarins eru unglingalandsliðsmennirnir Kristian Hlynsson og Orri Steinn Óskarsson sem báðir eru sautján ára, fæddir 2004. Kristan er í herbúðum Ajax og skoraði á dögunum sitt fyrsta mark fyrir aðallið félagsins. Orri er hjá FCK í Danmörku þar sem hann hefur raðað inn mörkum fyrir unglingaliðið og verið orða...
Útvarpsþátturinn - Jóla- og áramótakæfan 2021 18.12.2021
Hinn árlegi uppgjörsþáttur á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Benni Bóas gera upp fótboltaárið 2021, bæði hér heima og erlendis. Veitt eru verðlaun í fjölmörgum flokkum. Frekari orð eru óþörf! Gleðilega hátíð!
Enski boltinn - Máni og Steini Halldórs um Leeds og Man City 17.12.2021
Sjö leikir fóru fram í liðinni umferð, þremur leikjum var frestað. Fjölmiðlamaðurinn Máni Pétursson er mikill Leedsari og landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson er stuðningsmaður City. Hluti þáttarins fór í að ræða þessi tvö lið og svo farið yfir þá leiki sem voru spilaðir. Það er Sæbjörn Steinke sem stýrir þættinum. Þátturinn er í boði Domino's.
Fantabrögð - Fantasy Pandemic League 13.12.2021
Gylfi Tryggvason gaf sér tíma til að mæta í sitt eigið podcast eftir að hafa mátt þola háðsglósur á netinu í vikunni. Hann og Aron fóru yfir stóru málin í umferð 16 og það sem er framundan í Fantasy heimum. - Er Maddison í forgangi? - Hvernig er best að f&...
Enski boltinn - Víti eða ekki víti? 13.12.2021
Vítaumferðin mikla fór fram um helgina og voru vítadómarnir fyrirferðamiklir í þætti dagsins. Þeir Eiður Ben Eiríksson, þjálfari Þróttar Vogum, og Gunnar Gunnarsson, leikmaður Fram, fóru yfir málin með Sæbirni Steinke. Eiður var með kenningu um drættina hjá UEFA og Gunnar þurfti að taka það á sig að hrósa leikmanni United. Eiður átti þá samlíkingu dagsins sem tengdist vítaspyrnu Liverpool. Þátturi...
Útvarpsþátturinn - Freysi, Eyjar og Emil Páls 11.12.2021
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 11. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir helstu fótboltafréttir vikunnar og hringt til Kóngsins Lyngby og spjallað við Frey Alexandersson en komið er vetrarhlé í dönsku deildinni. Rætt er við Daníel Geir Moritz, eiganda ÍBV. Vestmannaeyingar hafa verið að styrkja sig og þá stefna þeir á að leggja gervigras á heimavöll sinn. Gestur þáttarins er...
Ástríðan á aðventunni - Hvað er að frétta? 11.12.2021
Strákarnir í Ástríðunni, Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári, hittust og spjölluðu um allt sem tengist 2. og 3. deild karla í fótbolta og það sem tengist þeim ekki neitt. Meðal umræðuefna voru öll helstu félagaskipti liða í deildunum, þjálfaramál, sameining Leiknis F. og Fjarðabyggðar, óeining í Kormáki/Hvöt og hvaða lið eru ný í deildunum. Einnig tilkynntu þeir Bola-Mann Ársins í ástríðunni...
Ítalski boltinn - Langi armur laganna og lið ársins hingað til 09.12.2021
Lögreglan hefur á undanförnum dögum heimsótt bæði forseta Sampdoria og höfuðstöðvar Juventus. Hvers vegna? Roma tapar illa gegn Internazionale sem er allt í einu orðið líklegasta liðið til að vinna titilinn og Íslendingaliðið Venezia tapar illa í Veneto-nágrannaslagnu eftir að hafa komist 3-0 yfir. Þetta og fleira í ítalska boltanum, þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila. Ítalski bolti...
Fantabrögð - Þú sagðir ekki Ólsen! 08.12.2021
Aron, Gunni og Heiðmar gerðu upp 15. umferðina í Fantasy Premier League. Aron var dapur, Gunni var með dólg og Heiðmar skipti einum Tottenham manni út fyrir annan. Strákarnir fengu flóð af spurningum, rýndu í lið Manchester United, reyndu að skera úr um besta kostinn á miðju Man. City og reyndu að...
Enski boltinn - Lundúnarþema og baráttan um fimmta sætið 07.12.2021
Fimmtánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina, umferðin kláraðist með leik Everton og Arsenal í gær. Guðmundur Gunnar Guðmundsson er stuðningsmaður Arsenal, Ingimar Helgi Finnsson er stuðningsmaður Tottenham og Tómas Steindórsson er stuðningsmaður West Ham. Farið var yfir umferðina, Antonio Conte og þurrkur Harry Kane komu við sögu, verðmiðinn á Jarrod Bowen og Declan Rice og loks...
Útvarpsþátturinn - Ferðalag til Englands, Jón Daði og Víkingar 04.12.2021
Útvarpsþátturinn 4. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fréttir vikunnar, ferðasaga úr enska boltanum, Jón Daði Böðvarsson í viðtali og Gunnlaugur Jónsson ræðir um sjónvarpsþættina Víkingar.
Heimavöllurinn: Bílstjórasætið í árslok, best í Barca og bolti til breytinga 01.12.2021
Íslenska landsliðið er í bílstjórasætinu í undankeppni HM eftir stóran útisigur á Kýpur – en þjóðin vildi fleiri mörk. Gullknötturinn var afhentur í þriðja skipti í kvennaflokki og fór til Barcelona. Þá var haldið hér á landi alþjóðlegt fótboltamót sem snerist um svo margt annað en bara fótbolta, Global Goals World Cup. Gestir okkar í dag eru fyrrverandi og núverandi knattspyrnukonurnar Guðrún Val...
Fantabrögð - Hvað á að gera í umferð 14? 30.11.2021
Þáttur vikunnar af Fantabrögðum var eingöngu skipaður Íslandsmeisturum í Fantasy, því það voru Gunni og Heiðmar sem tækluðu umferð 13. Þeir áttu ekki góðar umferðir af ýmsum ástæðum en fóru yfir allt það helsta, m.a. Marcos Alonso, Diogo Jota, h...
Enski boltinn - Svefntruflanir og Ronaldo á bekknum 29.11.2021
Níu leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Leik Burnley og Tottenham var frestað. Félagarnir Jóhann Már Helgason og Orri Freyr Rúnarsson fara yfir umferðina, Sæbjörn Steinke stýrir þættinum. Byrjað er á viðureign Arsenal og Newcastle og þaðan unnið sig í gegnum umferðina þar til kemur að lokaleiknum, stórleik Chelsea og Manchester United. Jói er Chelsea maður og Orri er United maður...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.