Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Útvarpsþátturinn - Ótímabær spá fyrir Bestu og Heimir Guðjóns 26.02.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977, 26. febrúar. Elvar Geir og Tómas Þór opinbera uppfærða spá fyrir Bestu deildina 2022. Það eru nokkrar áhugaverðar breytingar frá síðustu spá! Gestur þáttarins er Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals. Í þættinum er einnig rætt um enska boltann og ársþing KSÍ.
Ungstirnin - Nýr meðlimur og verðandi stórstjörnur 25.02.2022
34. þátturinn af Ungstirnunum er mættur. Kristinn Helgi Jónsson er nýjr meðlimur í tveggja manna teymi þáttarins en hann og Arnar Laufdal eru nú umsjónarmenn. Í þessum þætti er Savio sem er að ganga til liðs við Manchester City kynntur. Einnig er fjallað um Gabriel Carvalho nýjasta leikmann Atletico Madrid og svo Brenden Aaronson hjá RB Salzburgs sem mun 100% taka næsta skref í sumar og ganga til...
Fantabrögð - Þreföld ánægja og spilataktík 25.02.2022
<p>Aron og Gunni gerðu upp umferð 26 fyrir leik Arsenal og Wolves. Salah skilaði heldur betur sem þrefaldur fyrirliði hjá þorra þjóðarinnar í Fantasy samfélaginu með þá 84 stig. Burnley vann tvo leiki og hélt hreinu.</p><p>Aðallega ræddu þeir samt hvað á að ger...
Ítalski boltinn - Meistaratitill fæst gefins 25.02.2022
Toppliðin halda áfram að misstíga sig í hnífjafnri toppbaráttu. Mourinho lætur dómara finna fyrir syndum feðranna og er kominn í bann. Bandaríska innrásin heldur áfram og stuðningsmenn Cagliari og Napoli hata hvora aðra af undarlegum ástæðum. Silvio Berlusconi fagnar marki í &Iac...
Besta deildin - En er þetta Besta nafnið? 24.02.2022
Efstu deildir karla og kvenna hafa fengið nafnið Besta deildin. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslensks Toppfótbolta í Bæjarbíói í dag. Í tilefni fundarins er hér aukaþáttur í hlaðvarpsformi af útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tómas Þór og Elvar Geir ræða um kynningarfundinn, útlitið og nafnið á deildinni og sigurskjöldinn. Þá er rætt við Björn Þór Ingason, markaðsstjóra ÍTF, um þá undirbúningsvinnu...
Lesendur spyrja - Vanda og Sævar í formannsbaráttu 23.02.2022
Á laugardaginn verður ársþing KSÍ haldið á Ásvöllum í Hafnarfirði. Það verður kosið kosið til formanns en Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ákvað að taka slaginn og bjóða sig fram á móti Vöndu Sigurgeirsdóttur. Fótbolti.net gaf lesendum kost á því að senda inn spurningar á Sævar og Vöndu og setti svo saman lista með tólf spurningum. Við þökkum öllum þeim sem sendu inn spurningar og þó einhverj...
Enski boltinn - Tveir af skemmtilegri leikjum vetrarins 22.02.2022
Það var létt yfir mönnum í þætti dagsins. Þeir Ísak Máni Wium og Tómas Steindórsson sátu með Sæbirni Steinke og þá var Ingimar Helgi Finnsson á línunni, reif upp tólið á Tenerife. Ísak er stuðningsmaður Manchester United, Tómas heldur með West Ham og Ingimar er Tottenham-megin í lífinu. Rætt var um leiki umferðarinnar og aðeins spáð í leiki Liverpool, Man Utd og Chelsea í miðri viku. Hversu góður...
Útvarpsþátturinn - Nýir tímar í íslenska boltanum 19.02.2022
Útvarpsþátturinn 19. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í upphafi þáttar er yfirferð yfir Lengjubikarinn og fréttir úr íslenska boltanum. Gestir þáttarins eru Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF og Þórir Hákonarson íþróttastjóri og sérfræðingur þáttarins. Rætt er um nýja samninga í íslenska boltanum, peningastreymi og komandi ársþing. Þeir spá jöfnum og spennandi formannskosningum. Í lok...
Heimavöllurinn: Kemur alltaf einhver kona til að hleypa vindlareyknum út 19.02.2022
Gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þær Ingunn Haraldsdóttir og Katrín Ómarsdóttir. Ingunn er nýkomin heim úr atvinnumennsku í Grikklandi og Katrín er orðin aðstoðarþjálfari Hauka. Stelpurnar okkar byrja á sigri í fyrsta leik á She Believes Cup og Dagný setti þar hraðamarkamet. Árið 2022 erum við enn að verða vitni að ótrúlegum atvikum en Þróttarar fengu engan bikar afhentan kvöldið sem þær u...
Ítalski boltinn - Íslenskt vor í lofti og ljótir söngvar í Bergamo 17.02.2022
AC Milan fór á toppinn og miðað við leikjaprógramið framundan fara þeir ekki þaðan í bráð. Nýr Íslendingur var í hóp hjá Venezia og Björn Már skoðar hvaða ungu Íslendingar eru líklegastir til að fá tækifærið í Serie A næ...
Enski boltinn - Tvær umferðir og Meistaradeild 17.02.2022
Það er loksins komið að því, tvær síðustu umferðir í ensku úrvalsdeildinni gerðar upp og leikir vikunnar í Meistaradeildinni. Þeir Arnar Laufdal Arnarsson og Egill Sigfússon ræddu málin með Sæbirni Steinke. Þrír sigrar hjá Liverpool, þrír sigrar hjá Man City en ekki gekk eins vel hjá Man Utd og Tottenham. Þá var hringt í Þórodd Hjaltalín Jr. og hann spurður út í tvöfalda gula spjaldið á Gabriel Ma...
Fantabrögð - Triple captain time 17.02.2022
Aron, Heiðmar og Ásgeir hittust og ræddu umferð 25 í Fantasy sem "réðist" á síðustu sekúndu. Strákarnir skoðuðu risavaxna umferð 26 og ræddu möguleikana sem flestir velta fyrir sér eins og Triple captain á Salah, Bench boost, Free Hit og hvað þetta allt heitir nú....
Útvarpsþátturinn - Íslensk lið styrkja sig og enski boltinn aftur á fulla ferð 12.02.2022
Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþætti vikunnar. Farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og heyrt í Rúnari Kristinssyni þjálfara KR og Hólmari Erni Eyjólfssyni sem er kominn heim úr atvinnumennskunni og samdi við Val. Enski boltinn er einnig til umfjöllunar en Sæbjörn Steinke er nýkominn til landsins eftir rannsóknarleiðangur til Englands þar sem hann skellti sér á þrjá leiki.
Fantabrögð - Fantabrögð x Lélega Fantasy Podcastið 11.02.2022
Fantabrögð og Lélega Fantasy podcastið tóku höndum saman þessa vikuna og voru með sameiginlegan þátt. Fjórmenningarnir fóru yfir stigin sín, planið framundan, möguleg Wildcard lið og fleira. Annað sem kom fram í þættinum: - Hver væri hvað í hinu podcastinu? - Á hv...
Ítalski boltinn - Aukaspyrnutvenna og titilbaráttan galopnast 10.02.2022
AC Milan vann óvæntan sigur í Derby della Madonnina og galopnaði titilbaráttuna. Dusan Vlahovic skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Juventus. Simone Verdi stóð undir nafn sem aukaspyrnusérfræðingur deildarinnar og botnbaráttan harðnar enn. Ítalski boltinn - þar sem Íslendingum finnst skemmtile...
Sævar fer gegn Vöndu: Sér fram á tvísýna baráttu 07.02.2022
Það verður kosningabarátta um formannssæti KSÍ á ársþingi sambandsins þann 26. febrúar. Í dag tilkynnti Sævar Pétursson að hann hefði ákveðið að taka slaginn og bjóða sig fram gegn Vöndu Sigurgeirsdóttur. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke slógu &aac...
Útvarpsþátturinn - Fótboltafréttir, Andri Rúnar og Vanda 05.02.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. febrúar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Formannsslagurinn, undirbúningstímabilið, þjálfaramál, enski boltinn og fleira koma við sögu. Sóknarmaðurinn Andri Rúnar Bjarnason kemur í þáttinn en hann er mættur aftur úr atvinnumennskunni erlendis og ætlar sér stóra hluti með ÍBV í sumar. Þá er Vanda Sigurgeirsdóttir formað...
Ítalski boltinn - Loftbrúin til Ítalíu stendur enn og glugginn gerður upp 01.02.2022
Félagsskiptagluggi ítölsku liðanna gerður upp með einkunnagjöf. Albert Guðmundsson fetar í fótspor langafa síns í Serie A. Litríkur forseti Palermo fellur frá en skilur eftir sig ótrúlega sögu. Óttar Magnús yfirgefur Siena þar sem allt er í vafasamri upplausn og ungir &Ia...
Fantabrögð - Tilfinningalegt uppgjör 01.02.2022
Aron og Gunni hittust og reyndu að setja tilfinningar sínar í garð Watford leikmanna í orð. Það var erfitt, en einhver þarf að gera þetta. Strákarnir tóku fyrir spurningar hlustenda, veltu fyrir sér hverja þeir myndu kaupa á Wildcardi og hvernig næstu umferðir myndu spilast. Fantabrögð e...
Enski boltinn - Gluggayfirferð með BÁN-bræðrum 01.02.2022
Félagaskiptaglugganum á Englandi var skellt í lás klukkan 23:00 í gærkvöldi og voru sum félög að græja síðustu skiptin í blálok gluggans. Pierre-Emerick Aubameyang, Aaron Ramsey, Dele All, Donny van de Beek og fleiri öflugir skiptu um félag í gær. Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon ræða málin við Sæbjörn Steinke (BÁN-bræður). Farið er yfir félögin í ensku úrvalsdeildinni, rætt um skipti Alb...
Útvarpsþátturinn - Þjálfarahræringar, Damir og glugginn 29.01.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 29. janúar. Umsjón: Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas. Rætt er um fréttir vikunnar, þjálfaraleit ÍA, formannsslag KSÍ og fleira. Eggert Ingólfur Herbertsson, formaður ÍA, er á línunni og einnig Sæbjörn Steinke sem horfði á Stjörnuna vinna Breiðablik í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins. Gestur þáttarins er Damir Muminovic, varnarmaður Breiðablik...
Enski boltinn - Átti markið að standa? 26.01.2022
23. umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um helgina og loksins fóru allir leikir fram! Þeir Magnús Þór Jónsson (Liverpool) og Birgir Ólafsson (Tottenham) fara yfir það helsta með Sæbirni Steinke. Tottenham þarf að bakka Conte upp, Liverpool þyrfti að fá miðjumann, West Ham olli vonbrigðum, City missteig sig, mark dæmt af Kane en ekki af Uxanum, sautján endursýningar, Hodgson kominn aftur, all...
Heimavöllurinn: Atvinnukonurnar okkar, landsliðshópar og vetrarveisla í efstu deild 25.01.2022
Bára Kristbjörg aðstoðarþjálfari Selfoss og Aníta Lísa þjálfari Fram eru gestir Heimavallarins. Við förum yfir U23 og U19 ára landsliðshópana sem voru tilkynntir í síðustu viku ásamt því að rýna í stöðu nýrra atvinnukvenna erlendis. Við fáum einnig innsýn inn í hugarheim og vinnu þjálfara hjá gestum þáttarins. Það eru einnig 3 mánuðir í að Íslandsmótið verði flautað í gang. Við gátum ekki sleppt g...
Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra spáin 2022 22.01.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. janúar. Algjörlega ótímabær spá fyrir Íslandsmótið 2022. Elvar Geir, Tómas Þór og Sverrir Mar ræða um öll liðin tólf í Íslandsdeildinni, Hverjir eru komnir og farnir og hverjir verða bestir næsta sumar?
Fantabrögð - Bruno Fernandes Special 20.01.2022
Ásgeir og Hemson tóku upp þátt yfir leik Brentford og Man Utd þar sem Hemson gat varla einbeitt sér, verandi með bandið á Bruno. - Á meðan Salah tekur frí frá Fantasy, þá stíga gömlu kanónurnar upp á móti. Bruno, Kane, De Bruyne mennirnir. - Er Aston Villa liðið til...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.