Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
EM Innkastið - Færi í súginn og þörf á Krísuvíkurleið 14.07.2022
Aftur varð niðurstaðan 1-1 jafntefli, núna gegn Ítalíu. Ísland þarf að komast Krísuvíkurleiðina ef sæti í úrslitakeppninni á að nást. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbarnum fræga í Crewe og gera upp leikinn og skoða möguleika Íslands. Í lok þáttarins er svo farið yfir víðan völl og rætt um Evópuleiki og Lengjudeildina.
EM Innkastið - Að duga eða drepast í Manchester 13.07.2022
Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu, er heiðursgestur EM Innkastsins að þessu sinni. Hann ræðir við Elvar, Steinke og Gumma um komandi leik gegn Ítalíu, sífelldar ferðir hans og Eggerts ljósmyndara til Manchester og hverju má búast við í leiknum á morgun. Hver fer á vítapunktinn ef við fáum víti? Í lok þáttar er farið um víðan völl og meðal rætt um skoðunarferð til Liverpool, Kristal Mána...
Heimavöllurinn: Klúður gegn Belgíu, næst eru rassskelltir Ítalar og 100 leikja Fanndís Friðriksdóttir 12.07.2022
Í boði Landsbankans, Orku Náttúrunnar, Dominos og Heklu er fyrsti leikur Íslands á EM gerður upp með Báru Kristbjörgu knattspyrnusérfræðing ásamt því að fara yfir einstaklingsframmistöður og möguleika Íslands í riðlinum. Við heyrðum einnig í Fanndísi Friðriksdóttir sem hefur farið á öll stórmót Íslands hingað til og er einn af þeim Íslendingum sem hefur tekist að skora mark á stórmóti í knattspyrn...
Ástríðan - 11. umferð - Tímabilið hálfnað en engar línur að skýrast 12.07.2022
Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust síðla kvölds og ræddu stóru málin í 2. og 3. deild karla. Tímabilið er hálfnað og margt í gangi. Þjálfaraskipti, félagaskipti, lið að snúa genginu við í báðar áttir og spennan magnast upp!-Njarðvík óstöðvandi.-Ægir með yfirburði í toppslagnum.-Fjarðabyggðarhöllin er ekkert til að grínast með.-Hvaða annað lið æt...
EM Innkastið - Leikur sem átti að vinnast 10.07.2022
EM Innkastið er sent út beint frá Englandi þar sem Evrópumót kvennalandsliða fer fram. Fréttamenn Fótbolta.net ræða málin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbar íslenska fjölmiðlahótelsins. Í þessum öðrum þætti er 1-1 jafnteflisleikurinn gegn Belgíu gerður upp. Ísland fékk heldur betur tækifæri á að taka öll stigin en það gekk ekki upp. Hvernig líta möguleikarn...
Heimavöllurinn á EM: Troðfullt í leikhúsi draumanna og veislan loks hafin 08.07.2022
Það er enskt þema á Heimavellinum í dag. EM í Englandi er hafið og leitað var til tveggja enskra sérfræðinga til að fara yfir málin. Þeir Nik Chamberlain og Jamie Brassington, aðal- og markmannsþjálfari Þróttar, mættu og ræddu EM, England, Ísland og í raun allt milli himins og jarðar. Gáfu meðal annars nokkur góð ferðaráð enda fjölmargir stuðningsmenn íslenska landsliðsins á leið til Englands að s...
EM Innkastið - McLeigubíll, lífið í Crewe og byrjunarlið Íslands 07.07.2022
EM Innkastið er sent út beint frá Englandi þar sem Evrópumót kvennalandsliða fer fram. Fréttamenn Fótbolta.net ræða málin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbar íslenska fjölmiðlahótelsins. Í þessum fyrsta þætti ræða þeir um lífið í Crewe þar sem bækistöðvar íslenska liðsins eru, stóru fréttirnar í breskum stjórnmálum, velja leigubílstjóra sem mann dagsins, far...
Ástríðan - 9. og 10. umferð - Tvöföld yfirferð í báðum deildum 07.07.2022
Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Óskar Smári og Sverrir Mar mættu og fóru yfir tvöfalda umferð í báðum deildum. Toppbarátta og fallbarátta báðum megin og spenna að færast í leikana. Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
Heimavöllurinn á EM: D fyrir drama, dauðariðil, dreka eða drauma? 06.07.2022
Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM sem hefst í dag! Nú er komið að því að skoða D-riðilinn en það er riðillinn sem að stelpurnar okkar leika í ásamt Belgíu, Ítalíu og Frakklandi. Þær Lilja Dögg Valþórsdóttir og Ingunn Haraldsdóttir mættu í stúdíóið og fóru yfir málin.
Heimavöllurinn á EM: Ver Wiegman titilinn? Öll augu á Hegerberg í endurkomunni 05.07.2022
Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! Knattspyrnukonurnar Ingunn Haraldsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mættu og fóru yfir A-riðil mótsins. Í honum leika gestgjafarnir í Englandi, Austurríki, Noregur og nýliðar Norður-Írlands.
Innkastið - Dómarinn kann ekki reglurnar og KR fjarlægist bestu liðin 05.07.2022
Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke eru í Innkasti vikunnar. Með þeim er Runólfur Trausti Þórhallsson, KR-ingur og íþróttafréttamaður á Vísi. Rætt er um hörmulega dómgæslu en frábæra frammistöðu Víkings í Malmö og svo farið yfir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Einnig er Lengjudeildarhornið á sínum stað.
Sara er komin aftur - Fyrirliðinn fer yfir síðastliðin tvö ár 05.07.2022
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, setti sér það markmið þegar hún var barnshafandi á síðasta ári að spila fyrir Ísland á Evrópumótinu. Hún er núna mætt ári síðar til Þýskalands þar sem hún hefur tekið þátt í undirbúningi fyrir mótið. Það eru núna fimm dagar í fyrsta leik Íslands á mótinu og settist fyrirliðinn niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýsk...
Miðverðirnir fá sviðsljósið - Glódís og Guðrún í spjalli fyrir EM 04.07.2022
Miðverðir fá ekki alltaf þá athygli sem þeir eiga skilið, en að þessu sinni fá þeir sviðsljósið hjá okkur. Glódís Perla Viggósdóttir og Guðrún Arnardóttir, tveir af miðvörðum íslenska landsliðsins, settust niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýskaland og fóru um víðan völl á tæpum hálftíma. Glódís og Guðrún hafa leikið afskaplega vel saman í hjarta varnarinnar hjá landsliðin...
Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn, Bjarki Már og DSJ 02.07.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 2. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór ræða um Bestu deildina, leik KR og Víkings og pælingar um félagaskiptagluggann. Einnig er farið yfir Lengjudeildina, dráttinn í Mjólkurbikarnum og Evrópuleikina framundan. Í seinni hlutanum er rætt við leikgreinandann Bjarka Má Ólafsson sem er kominn í nýtt starf og Davíð Snorra Jónasson þjálfara U21 landsliðsins.
Saga aðstoðarþjálfarans - Frá KF Nörd á Evrópumótið í Englandi 02.07.2022
Viltu kynnast aðstoðarþjálfara landsliðsins betur? Þá er óhætt að mæla með hlustun á þessum þætti. Ásmundur Haraldsson var svokölluð barnastjarna í KR en fór svo í háskólanám til Bandaríkjanna þar sem hann varð mikill Kani. Hann bjóst ekki við því að koma aftur heim en endaði nú á því að gera það. Ásmundur var senter á sínum leikmannaferli og var einu sinni markakóngur 3. deildar. Fljótlega beindi...
Heimavöllurinn á EM: Kempur og töfrakonur í C-riðli 29.06.2022
Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! "Svíarnir" Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Björn Sigurbjörnsson tóku vel á móti Mist Rúnarsdóttur á Selfossi og fóru yfir C-riðil mótsins. Þar munu mætast Holland, Svíþjóð, Sviss og Portúgal.
Innkastið - Bikarspjall á bílaplani 29.06.2022
Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins eru að baki og Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke skella sér út í sólina á bílaplaninu á Krókhálsi, gera upp leikina og skoða helstu tíðindin í íslenska fótboltanum. Fernukóngur kom inn af bekknum í Kórnum, vítahlaðborð á Akureyri, Eiður Smári vann fyrsta sigurinn, Cupset í Þorlákshöfn, KR lenti í kröppum dansi, framlengt á Framvelli, Gísli Eyjólfs skoraði...
Ástríðan - 8. umferð - Luka rekinn eftir sigurleik, þrennur og misjafnt gengi 28.06.2022
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir áttundu umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis:Reynir S. vinnur sinn fyrsta leik, sækja þrjá spánverja en reka svo þjálfarann. Njarðvík með gamla og góða pökkun. Þróttur R að koma bakdyramegin í baráttuna. Völsungur fékk sitt víti. ÍH með 3 í röð eftir að Arnar Sigþórs fór að brosa. Augnablik virðir stigið á Humarhátíðinni. Káram...
Heimavöllurinn: Flikk flakk og hreint lak í Eistlandi 28.06.2022
Dominos, Hekla og Orka Náttúrunnar bjóða upp á landsliðssamba á Heimavellinum. Þær Auður Scheving og Sólveig Larsen eru nýmættar til landsins eftir ferð með U23 landsliðinu til Eistlands þar sem þær sóttu góðan sigur ásamt liðsfélögunum. Þær mættu í gott spjall um landsliðsverkefnið, EM á Englandi, ævintýrin í yngri flokkunum, lánið í Mosó og margt fleira.
Útvarpsþátturinn - Euro-Vikes, Besta liðið og Lengjudeildin 25.06.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 25. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað er um Víking í Meistaradeildinni og Haraldur Haraldsson framkvæmdastjóri félagsins fer yfir möguleika Íslands á að endurheimta fjórða Evrópusætið. Sérstakt Bestu deildar uppgjör þar sem valið er úrvalslið deildarinnar hingað til, besti leikmaðurinn og besti þjálfarinn. Hvaða leikmenn hafa verið mestu vonb...
Heimavöllurinn á EM: B&B fara yfir rosalegan B-riðil 22.06.2022
Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! Mist rúllaði á Selfoss og hitti þar fyrir þjálfarana Björn Sigurbjörnsson og Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttir og saman fóru þau yfir B-riðil mótsins þar sem Danmörk, Finnland, Spánn og Þýskaland munu takast á.
Innkastið - Ísak býr til mörk og Valur tengir saman sigra 21.06.2022
Innkastið. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í þættinum að þessu sinni. Víkingar með Meistaradeildarsýningu gegn Levadia Tallinn, Valsmenn tengja saman sigra, Leiknir og ÍBV eiga á hættu að missa af lestinni, Eiður Smári byrjaði á jafntefli við erfiðar veðuraðstæður, Fram vígði nýjan völl, markverðir gerðu mistök, himininn er blár og Ísak býr til mörk og KR safnar jafnteflum.
Ástríðan - 7. umferð - Arnar Halls hættir fyrir úrslitaleiki og toppbaráttan í 3. deild svakaleg 21.06.2022
Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og hinn síveiki Óskar Smári settust niður og fóru yfir sjöttu umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis: ÍR fyrsta liðið til að tapa fyrir KFA og Arnar Halls hætti fyrir stærstu leikina, Ægismenn fengu á sig þrjú mörk en unnu þó, Njarðvík með endurkomu gegn Völsungi í 6 stiga leik, flóðgáttir opnuðust hjá Víkingi Ó, Kári og ÍH með tvo í röð, Víðir ýktasta jojo...
Útvarpsþátturinn - Hannes, Besta-deildin og Lengjudeildin 18.06.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 18. júní. Umsjón: Tómas Þór og Sverrir Mar.
Innkastið - Óli Jó rekinn og fyrsta tap Blika 17.06.2022
Það var margt að ræða í Innkastinu þessa aðfaranótt föstudags. Heil umferð í Bestu deildinni, brottrekstur og fyrsta tap toppliðsins. Fjögur jafntefli, Víkingssigur, Valssigur og þrjú mörk í uppbótartíma. Þeir Sverrir Mar Smárason og Baldvin Már Borgarsson fóru yfir hlutina með Sæbirni Steinke.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.