Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ástríðan - 16. umferð - 3. deildin er ótrúleg en allt að skýrast í 2. deild 16.08.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í átakinu Preppbarinn. Tveggja manna teymi sem enginn getur skaðað mætti til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 16. umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis: - Loksins eitthvað jákvætt úr Breiðholtinu- KFS á besta runninu síðustu 7 leiki- Njarðvík jafnar sig- Kormákur/hvöt öruggir og skila mögulega le...

Útvarpsþátturinn - Liðin sem hafa breytt leiknum 13.08.2022

Elvar Geir og Benedikt Bóas stýra þætti vikunnar. Aðalumræðuefnið eru lið Víkings og Breiðabliks sem staðið hafa í ströngu á öllum vígstöðvum. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, ræðir um árangur þeirra í Evrópu frá sjónarhorni þjálfarans. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, þar á meðal bannið á Arnar Grétarsson, og Sverrir Örn Einarsson stuðningsmaður Víkings spjallar um viðureignin...

Heimavöllurinn: Svakalegur seinni á Samsung, ótrúlegt XG á Akureyri og línulaust í Dalnum 10.08.2022

Fréttararitar Fótbolta.net, þau Alexandra Bía, Guðmundur Aðalsteinn og Sigríður Dröfn mæta til leiks á vel mönnuðum Heimavelli dagsins og fara yfir síðustu umferð í Bestu-deildinni og skoða stöðu mála í neðri deildunum. Að sjálfsögðu í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Ástríðan - 15. umferð - Njarðvík tapar, botnliðin vinna og Virðing í Vestmannaeyjum 10.08.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í átakinu Preppbarinn. Bræðurnir þrír, Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 15. umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis:- Viðtalið við Arnar Halls og svör við því.- Virðing í Vestmannaeyjum- Úlfur fer og Njarðvík tapar- Blönduósvígið er fallið- Kári P...

Innkastið - Bestu liðin hiksta og FHallbaráttan harðnar 09.08.2022

Elvar Geir heldur um stýrið í Innkastinu eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Með honum í þættinum eru Skagamaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Sverrir Mar Smárason og FH-ingurinn og fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson. Topplið Breiðabliks fékk óvænta útreið í Garðabæ, Fram skoraði umdeilt jöfnunarmark gegn Víkingi, Fallfnykurinn eykst í Hafnarfirði, Nökkvi heldur áfram á flugi, Atli Sigurjón...

Enski boltinn - Nýtt mót en sama gamla Man Utd 08.08.2022

Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi og var svo sannarlega fjör í fyrstu umferð. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke, fréttamenn á Fótbolta.net, setjast niður í stúdíó og ræða um fyrstu umferðina sem er að baki. Þá er hringt í Halldór Marteinsson, sem er mikill stuðningsmaður Manchester United. Rætt er við hann um tapið gegn Brighton í gær og nýjar vendingar á leikmannamarkaðnum en talað e...

Útvarpsþátturinn - Íslenska fótboltavikan og enskt hringborð 06.08.2022

Elvar Geir, Sverrir Mar og Kristján Atli í útvarpsþætti vikunnar. Fyrri klukkutíminn fer í íslenska boltann og umræðu um leiki vikunnar en sá seinni í enska hringborðið þar sem nýtt tímabil er skoðað.

Enski boltinn - Löngu kominn tími á málm hjá Tottenham 05.08.2022

Enska úrvalsdeildin hefst í kvöld með leik Crystal Palace og Arsenal á Selhurst Park. Síðustu daga höfum við verið að hita upp fyrir þessa frábæru skemmtun sem er framundan. Í dag mættu tveir grjótharðir Tottenham menn á skrifstofu Fótbolta.net, Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson (litla flugvélin). Það ríkir bjartsýni fyrir tímbilinu hjá Spurs og núna er kominn tími á að taka málm. Rætt va...

Enski boltinn - Bergmann bræður rýna í Man Utd 05.08.2022

Fótbolti.net heldur áfram að hita upp fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni sem hefst um helgina. Þátturinn er tekinn upp á Akureyri. nánar tiltekið í KA heimilinu. Sæbjörn ræðir við þá bræður Hallgrím Mar og Hrannar Björn sem eru miklir Man Utd stuðningsmenn. Rætt er um nýja stjórann Erik ten Hag, leikmannamál og almennt spáð í spilin.

Enski boltinn - Chelsea aldrei neðar en í þriðja sæti 03.08.2022

Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst núna á föstudaginn. Í dag er sérstakur Chelsea þáttur. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Stefáni Marteini Ólafssyni og Damir Muminovic, sem eru báðir grjótharðir Chelsea menn. Rætt er um síðustu tímabil, sumargluggann, undirbúningstímabilið og tímabilið sem er framundan. Hver á að skora mörkin fyrir Chelsea á þessari leiktíð?

Barcelona á gjörgæslu en hættir ekki að kaupa - Hvað er í gangi? 03.08.2022

Barcelona er með skuldir upp á 1,3 milljarð evra en hefur samt einhvern veginn tekist að kaupa leikmenn fyrir mikið meira en 100 milljónir evra í sumar. Þetta sögufræga félag hefur tekið vafasamar ákvarðanir á síðustu árum og kórónuveirufaraldurinn lék þá grátt. Þrátt fyrir þessa slæma stöðu á ekki að leggjast niður, það á að spýta í lófana. En hvernig hefur félagið tök á því? Og er það virkilega...

Enski boltinn - Tekur City þann þriðja í röð? 02.08.2022

Enska úrvalsdeildin fer af stað á föstudaginn. Fótbolti.net hefur síðustu daga verið að hita upp fyrir deildina og mun halda því áfram fram að fyrsta leik. Við spáum í deildina og heyrum í stuðningsmönnum. Þá mæta stuðningsmenn liðanna í topp sex í hlaðvarpsþætti þar sem þeir ræða um sitt lið og tímabilið sem er framundan. Í dag - í þriðju útgáfunni fyrir komandi leiktíð - er sérstakur Manchester...

Útvarpsþátturinn - Íslensk yfirferð og enski nálgast 30.07.2022

Útvarpsþátturinn í verslunarmannahelgargír laugardaginn 30. júli. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í íslenska boltanum. Breiðablik og Víkingur í Sambandsdeildinni og félagaskiptaglugginn eru til umræðu. Enska úrvalsdeildin er handan við hornið. Við hverju má búast? Tryggvi Páll ræðir um Man Utd. Arnar Daði í beinni frá Eyjum og Þórir Hákonar fer yfir peningamál og fleira.

Ástríðan - 2. deildar special - 13. og 14. umferð 29.07.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE. Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust og ræddu stóru málin í 2. deild karla. Farið yfir tvær umferðir, félagaskipti og hvaða lið eru að snúa genginu við í báðar áttir. Top3 og bottom3 spá með Acan.is. Línur eru við það að skýrast og spennan að magnast. Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Ástríðan - 3. deildar special - 13. og 14. umferð 29.07.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE. Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust og ræddu stóru málin í 3. deild karla.  Farið yfir tvær umferðir, félagaskipti og hvaða lið eru að snúa genginu við í báðar áttir. Top3 og bottom3 spá með Acan.is. Línur eru við það að skýrast og spennan að magnast. Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Enski boltinn - Liverpool samfélagið aldrei verið veikara 28.07.2022

Enska úrvalsdeildin fer af stað um næstu helgi, veislan er að fara að byrja aftur. Fótbolti.net mun næstu daga hita upp fyrir deildina, til að mynda með sérstökum hlaðvörpum þar stuðningsmenn liðanna í topp sex fá að láta ljós sitt skína. Í dag er sérstakur Liverpool þáttur. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Sóla Hólm, formanni samfélagsins, og fjölmiðlamanninum Atla Má Steinarssyni. Rætt var...

Enski boltinn - Arsenal upphitun með Skagafrændum 27.07.2022

Það styttist í að enska úrvalsdeildin fari af stað og í tilefni af því er Fótbolti.net byrjaður að hita upp fyrir komandi tímabil. Í dag var sérstakur Arsenal þáttur. Sæbjörn Steinke ræddi við þá Albert Hafsteinsson og Lúðvík Gunnarsson og var farið yfir sumargluggann hjá Arsenal. Spáð var í spilin fyrir komandi tímabil, hvar þyrfti helst að styrkja liðið, hver eru markmiðin og ýmislegt fleira.

Innkastið - Niðurlægingar á heimavöllum, rauð spjöld og formannspistill 26.07.2022

Innkastið þegar aðeins einum leik er ólokið í 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir heldur um stjórnartaumana að nýju, Sæbjörn Steinke er nýkominn af Meistaravöllum og hinn ástríðufulli Óskar Smári Haraldsson er með þeim í þættinum. ÍA og Leiknir töpuðu á niðurlægjandi hátt á heimavöllum, Fram er í gírnum, ÍBV komið með tvo sigra í röð en geymir stjörnur á bekknum, rauð spjöld fór á loft, Brei...

Heimavöllurinn á EM: Fjögur fræknu berjast um titilinn 25.07.2022

Það er örstutt eftir af stórskemmtilegu EM í Englandi og spennan er óbærileg. Þær Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir litu við á Heimavellinum og fóru yfir mótið til þessa og spáðu fyrir um framhaldið. Það er einnig nóg um að vera í neðri deildunum hér heima og Besta deildin fer aftur af stað í vikunni. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Útvarpsþátturinn - Öflug Evrópuúrslit, Besta deildin og Lengjan 23.07.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 23. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Úlfur Blandon fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Sambandsdeildin, Besta deildin og Lengjudeildin til umfjöllunar. Ennig er rætt við Jón Sveinsson, þjálfara Fram. Farið er yfir öll helstu tíðindin úr íslenska boltanum, ýmsar vangaveltur og einhverjir slúðurmolar fá að fjúka.

Innkastið - Miklar hræringar og vesen í Vesturbæ 20.07.2022

Ungstirni fótboltafréttamennskunnar, Arnar Laufdal, stýrir Innkastinu að þessu sinni. Með honum í þættinum er Eysteinn Þorri Björgvinsson og Andri Már 'Nablinn' Eggertsson, íþróttafréttamaður á Sýn. Aðalumræðuefnið er Besta deildin og 13. umferð hennar. Farið er yfir hræringarnar hjá Val og FH, vesenið í Vesturbænum, Evrópuleikina, Lengjudeildina og fleira. Þátturinn er í boði White Fox, refurinn...

Á kaffihúsi í Svíþjóð með Brynjari Birni - Frá Lengjudeildinni í Superettan 20.07.2022

Brynjar Björn Gunnarsson tók við liði Örgryte í Svíþjóð í maí. Hann hafði þess áður verið aðalþjálfari HK en skipti um lið þegar bara 2 leikir voru búnir af mótinu hér heima. Þetta hefur verið erfitt tímabil hjá Örgryte þar sem þeim var spáð góðu gengi fyrir mót en sitja nú í fallsæti. Haraldur Örn Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, settist niður með Brynjari á kaffihúsi í Gautaborg og spjallað...

Ástríðan - 12. umferð - Ólsarar vakna en þungt ský yfir Grafarvogi 20.07.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Óskar Smári og Sverrir Mar mættu og fóru yfir 12. umferð í báðum deildum. - Ólafsvík með sigur en Ægismenn sleppa með skrekkinn- Líf í Magnamönnum en Njarðvík hangir á lyginni- Munu Haukar blanda sér í toppinn?- Talið upp hvaða Káramenn vantaði- Mörg töp í röð hjá Vængjum og ÍH- Víðismönnum fannst létt að spila á HöfnHlustaðu í spilaranum hér, í P...

EM Innkastið - Markmiðið náðist ekki en þjóðin er stolt 19.07.2022

Sjötta og síðasta EM Innkastið þetta sumarið. Ísland er úr leik og komið að kveðjustund á hótelbarnum í Crewe. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn eru komnir "heim" til Crewe eftir tveggja daga sólarlandaferð til Rotherham. Leikurinn við Frakkland er gerður upp, farið yfir leikdaginn, byrjunarliðið óvænta, einkunnir Íslands, alla 1-1 leiki ferðarinnar og það áhugaverðasta úr viðtöl...

EM Innkastið - Eyjastemning í Rotherham 17.07.2022

EM Innkastið er sent út frá sveitinni að þessu sinni, rétt fyrir utan Rotherham. Elvar, Steinke og Gummi (stundum kallaður Gvendur) eru á sínum stað en sérstakur heiðursgestur er Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttakona á Stöð 2. Það er Eyjaþema í þættinum þar sem hitað er upp fyrir lokaleik riðilsins, leikinn erfiða gegn Frakklandi. Í þættinum er rætt um Rotherham, New York völlinn, einræði...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.