Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Enski boltinn - Norðrið gegn suðrinu í stjörnuleik 14.09.2022

Gummi og Steinke settust niður í dag og tóku upp aukaþátt af Enski boltinn hlaðvarpinu. Það hefur ekkert verið spilað í ensku úrvalsdeildinni upp á síðkastið út af virðingu við drottninguna. Það má samt deila um það hversu mikil virðing það sé að spila bara ekki og hvort hún hefði viljað það. Í þættinum var aðallega rætt um skemmtilega hugmynd sem Todd Boehly, eigandi Chelsea, henti fram í gær um...

Ástríðan - 21. umferð - Allt klárt í öllum deildum, afsökunarbeiðni og rýnt í gamla spá 14.09.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Skytturnar þrjár mættar til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 21.umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis: - Víðismenn tapa tveimur í röð á heimavelli- Dalvík og Sindri tryggja sér sæti í 2.deild- Þjálfarinn byrjaði fyrir Kormák/Hvöt- Maggi Matt átti að fá...

Heimavöllurinn: Lifandi hliðarlína, lopapeysur og úrslitaleikur hjá topp 2 13.09.2022

Þegar ein umferð er eftir af Lengjudeildinni er ljóst hvaða lið fara upp og hver fara niður. María Dögg Jóhannesdóttir og Telma Hjaltalín, fulltrúar Tindastóls og FH, sem hafa þegar tryggt sér sæti í efstu deild að ári mæta á Heimavöllinn og fara yfir sumarið. Þær hita líka upp fyrir lokaumferðina en í henni mætast einmitt toppliðin tvö og berjast um sigur í deildinni. Þátturinn er sjálfsögðu í bo...

Innkastið - Draumaumferð KA, glataðir Valsarar og Stjarnan í frjálsu falli 12.09.2022

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Innkastinu eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. KA nálgast Evrópu, Víkingar á flugi, tíu Leiknismenn unnu glataða Valsara, Gummi Magg með tvö í Eyjum, Stjarnan í frjálsu falli og Skagamenn leiddir til slátrunar í Krikanum. Næsta umferð er skoðuð, vangaveltur um þjálfaramál. Er Gamla bandið að mæta aftur? Sverrir Örn kemur með skýrslu úr Keflaví...

Útvarpsþátturinn - Bestir í Lengju, fréttir vikunnar og stjóraskipti Chelsea 10.09.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. september. Umsjón: Elvar Geir og Sæbjörn Steinke. Hjammi ræðir um frestunina á Englandi, opinberað er lið ársins í Lengjudeildinni, farið yfir fréttir vikunnar og næstu umferð í Bestu deildinni, kvennalandsleikurinn ber á góma, rætt um Evrópufótboltann og Stefán Marteinn skoðar stjóraskiptin óvæntu hjá Chelsea.

Innkastið - Níu eða tíu fingur og eitt stykki Beershot 06.09.2022

S-in þrjú, Sæbjörn Steinke, Sigurður Orri og Sverrir Mar gerðu upp 20. umferðina í Bestu deildinni. Rætt var ítarlega um alla sex leikina og fréttir tengdar liðunum. Umferðin var mjög góð fyrir Breiðablik sem styrkti stöðu sína á toppnum. Næstu fimm lið í deildinni töpuðu öll stigum. Á Akranesi voru lagðir út þrír fjarkar og FH nýtti ekki víti sín. KA er á leið í sjö leikja úrslitakeppni og margt...

Ástríðan - 20. umferð - Dalvíkingur dæmir hjá Dalvík og Þróttur í Lengjudeildina 06.09.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Allir mættir til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 20.umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis: - Víðismenn dottnir úr baráttunni í 3.deild- Tvo leiki í röð dæmir Dalvíkingur leik hjá Dalvík- Meintir fordómar á Höfn- Var Baddi Borgars fat shameaður?- Þróttu...

Enski boltinn - Velkomnir úr draumalandinu og flókið draumalið 05.09.2022

Þeir Sæbjörn Steinke og Aksentije Milisic fara yfir sjöttu umferðina í ensku úrvalsdeildinni. Það urðu nokkur ansi athyglisverð úrslit um helgina og mörg vafaatriði sem hægt var að tala um. Man Utd vann sinn fjórða leik í röð þegar liðið lagði topplið Arsenal, Liverpool tapaði stigum í fjórða leiknum á tímabilinu, City náði ekki að leggja Villa og Chelsea var stálheppið að vinna. Brighton heldur s...

Útvarpsþátturinn - Gósentíð í íslenska og enska 03.09.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. september. Það er allt í gangi í boltanum og nóg að fara yfir við hringborðið. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Orri Freyr rýna í undanúrslitaleikina áhugaverðu i bikarnum sem fram fóru í vikunni. Víkingur og FH munu mætast í úrslitum. Hitað er upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni. Fjallað er um enska boltann, gluggakaupin og Kristján Atli gerir upp Ev...

Heimavöllurinn: Mætum og klárum dauðafærið! 01.09.2022

FH-konur hafa verið á flugi og leika í Bestu deildinni að ári. Valskonur svífa vængjum þöndum og eru á leið til Prag. Eru stelpurnar okkar á leiðinni á HM? Það gæti skýrst á næstu dögum. Fyrrum landsliðskonurnar og legendin, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir, fara yfir allt saman á Heimavellinum. Auðvitað í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Ástríðan - 19. umferð - Hart barist á báðum endum í 3.deild, fáum við fallbaráttu í 2.deild? 31.08.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 19.umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis: - Ofsaleg toppbarátta í 3.deild- ÍH og Vængir opnuðu fallbaráttuna- Kári Péturs og Andri Júl að lauma sér í markakónginn- Höttur/huginn er...

Innkastið - Uppgjör á slóðum séra Friðriks 29.08.2022

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp 19. umferðina í Bestu deildinni og ræða helstu fréttir tengdar deildinni. Þátturinn var tekinn upp á Hlíðarenda, strax eftir 1-1 jafntefli Vals og Fram. Völsurum mistókst að henda sér í alvöru Evrópubaráttu, Víkingar unnu KA í leikjum sem var fullur af umdeildum atvikum, Atli Jónasson fékk á sig fjögur gegn Breiðabliki, ÍA elskar að spilar í Keflavík...

Enski boltinn - Salah pirrar marga, Nallarar missa sig og óvænt verkefni 29.08.2022

Gummi og Steinke settust niður í dag og fóru yfir fjórðu umferðina í ensku úrvalsdeildinni í hlaðvarpinu Enski boltinn. Það var margt áhugavert sem átti sér stað í umferðinni sem var um helgina. Man Utd er hægt og rólega að hrökkva í gang, Liverpool svaraði með flugeldasýningu, Brighton er á flugi, Chelsea vann einum færri, Haaland í stuði, Nallarar í skýjunum, Tottenham er vél sem mallar og Gerra...

Útvarpsþátturinn - Besta, Dagur Dan og enski 27.08.2022

Útvarpsþátturinn laugardaginn 27. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt um Bestu deildina og val á úrvalsliði umferða 10-18 opinberað. Guðmundur Steinarsson ræður um Vaduz í Sambandsdeildini. Dagur Dan Þórhallsson leikmaður Breiðabliks og U21 landsliðsins er gestur og Tryggvi Páll Tryggvason ræðir við Tom um Man Utd og enska boltann.

Heimavöllurinn: París kallar, bestar í 2/3 og bikartryllingur 25.08.2022

Það er þéttsetið á Heimavellinum þessi misserin enda nóg um að vera. Landsliðskonurnar okkar eru að ganga til liðs við stórlið á meginlandinu, landsliðshópurinn er klár fyrir lokasprettinn á leiðinni á HM og bikarúrslitaleikurinn fer fram á laugardag. Þá er einnig nóg um að vera í öllum deildum hérlendis og komið að því að tilkynna um bestu leikmenn í öðrum þriðjungi Bestu deildarinnar. Gestir þát...

Ástríðan - 17. og 18. umferð í 3. deild - Nú byrjar ballið og megi besta liðið vinna 25.08.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spilaðar voru 17. og 18. umferð í 3. deildinni. Meðal umræðuefnis: - Ofsaleg toppbarátta- ÍH eru að bjarga sér annað árið í röð- KFG að kólna- Brotlentir Vængir- Stigasöfnun ElliðaHlustaðu í spila...

Enski boltinn - Man Utd fyrir ofan Liverpool, bíddu ha? 23.08.2022

Það var farið vel yfir stórleik gærdagsins í hlaðvarpinu um Enska boltann í dag. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke settust niður með litlu flugvélinni, Ingimar Helga Finnssyni, og fóru yfir þriðju umferðina. Þá var hringt í Atla Má Steinarsson, einn harðasta stuðningsmann Liverpool, og fór hann yfir málin hjá sínu félagi sem hefur farið illa af stað. Þetta eru tæplega 100 mínútur af umræ...

Innkastið - Upprisan á botninum og vígsla KA 23.08.2022

Átjánda umferð Bestu deildarinnar var vægast sagt tíðindamikil. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Sverrir Mar gera umferðina upp. Öll þrjú neðstu lið deildarinnar unnu, jafnteflin reynast Víkingum dýr, Blikar sýndu fagmennsku í dal draumanna og KA heldur sér á sigurbraut. Tvö bestu lið Lengjudeildarinnar mætast í kvöld og Njarðvíkingar eru komnir upp úr 2. deildinni.

Ástríðan - 17. og 18. umferð í 2. deild - Njarðvík í Lengjuna og deildin er búin, eða hvað? 23.08.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 17. og 18. umferð í 2. deildinni. Meðal umræðuefnis: - Njarðvík spiluðu í Valstreyjum og tryggðu sig upp- Ægismönnum fatast flugið- Magni eiga möguleika en samt ekki- Reynismenn fallnir...

Útvarpsþátturinn - Læti í Kórnum, enskur stórleikur og Danijel Djuric 20.08.2022

Af nægu að taka í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór á sínum stað. Farið er yfir íslensku fótboltavikuna og Mjólkurbikarinn; lætin í Kórnum og leikinn stórskemmtilega milli Víkings og KR, auk þess sem næsta umferð Bestu deildarinnar er skoðuð. Kristján Atli Ragnarsson rýnir í komandi stórleik Manchester United og Liverpool sem verður á mánudagskvöldið. Nýjasta stjar...

Ungstirnin - Transfer Special 19.08.2022

Í þessum þætti er fjallað um þau ungstirni sem hafa verið að byrja vel í ensku úrvalsdeildinni, ungstirnaliðið FC Nordsjælland situr á toppi dönsku úrvaldsdeildarinnar, ungstirni á ferð og flugi um alla Evrópu að skipta um félög, Football Manager og svo margt margt fleira. Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Um...

Heimavöllurinn: Sokkuðu spánna og eru efstar, ráðgátur og 3x ON í 2. deild 17.08.2022

Það er stútfullur Heimavöllur í dag. Línur eru aldeilis að skýrast í efstu deild og nú liggur fyrir að Meistaradeildarliðin Breiðablik og Valur mætast í bikarúrslitum. Það er ein umferð eftir af fyrri hluta 2. deildar og gríðarleg spenna framundan þar. Arnar Páll Garðarsson, þjálfari KR, er gestur þáttarins og rýnir með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur í 2. deildina og allt hitt sem um er að...

Ungstirnin - ÍAS & GBN úr Garðabæ 17.08.2022

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson. Eftir langt sumarfrí þáttarins fjalla drengirnir um Mathys Tel (2005 / Bayern Munchen) sem var nýlega keyptur frá Rennes á 20 milljónir evra, sem og Charlie McNiell (2003 / Man Utd) sem á yfir 600 mörk fyrir...

Enski boltinn - Sumir gengu of langt 16.08.2022

Annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar er lokið og er það ljóst að Íslendingar eru svo sannarlega blóðheitir þegar kemur að enska boltanum. Það var mikill hiti í mönnum og sumir fóru yfir strikið. Bæði er hægt að tala um leikmenn og stuðningsmenn í samhengi við það. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke, fréttamenn á Fótbolta.net, settust niður í dag með Stefáni Marteini Ólafssyni, stuðningsman...

Innkastið - Hnífjafn toppslagur og ójafnt stríð 16.08.2022

17. umferð Bestu deildarinnar gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke í hljóðveri. Þreytt topplið gerðu jafntefli, vígið ógurlega í Úlfarsárdal, trúleysi hjá Breiðhyltingum, varabakvörðurinn í KR, mögnuð sóknarsýning Vals, handbragð Hemma Hreiðars er komið á ÍBV, þrotið hjá FH og Nökkvi er heitasti leikmaður deildarinnar. Einnig er Lengjudeildarhorn.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.