Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Innkastið - Sá besti gestur í lokaþætti ársins 31.10.2022

Lokaþáttur Innkastsins þetta árið. Gestur er Ísak Snær Þorvaldsson en Fotbolti.net valdi hann besta leikmann tímabilsins. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke ræddu við Ísak, gerðu upp tímabilið og horfðu fram veginn.

Útvarpsþátturinn - Íslenskar fréttir og enska hringborðið 29.10.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 29. október. Farið er yfir íslenskar fréttir og svo er enska hringborðið dregið fram og meðal annars opinberað val á liði tímabilsins hingað til. Elvar Geir, Tómas Þór og Kristján Atli í fiskabúrinu.

Enski boltinn - Getur ekki verið mikið verra en Gerrard 25.10.2022

Það var leikið í ensku úrvalsdeildinni um helgina og litu nokkur óvænt úrslit dagsins ljós. Stærst var það að nýliðar Nottingham Forest lögðu Liverpool. Það voru meiðslavandræði hjá Liverpool sem höfðu mikil áhrif. Gummi og Steinke fara vel yfir umferðina; rætt er um óvæntan sigur Forest, stórleik Chelsea og Manchester United, ferð á Tottenham Hotspur Stadium og margt fleira. Þá er rætt um Unai Em...

Innkastið - Gummi girnist gullskóinn 25.10.2022

Guðmundur Magnússon, sóknarmaður Fram, er sérstakur gestur Innkastsins þessa vikuna. Ef Gummi skorar gegn Keflavík í lokaumferð Bestu deildarinnar á laugardaginn verður gullskórinn hans. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Gummi Magg fara yfir 26. umferð Bestu deildarinnar og Sæbjörn velur einnig besta leikmann hvers liðs í sumar og einnig mestu vonbrigðin. Þá er auðvitað rætt við Gumma um árangur hans...

Útvarpsþátturinn - Besta deildin innan og utan vallar 22.10.2022

Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon gera upp Bestu deildina jafnt innan vallar sem utan í útvarpsþætti vikunnar. Lokahóf deildarinnar var haldið í hljóðverinu og opinberað val Fótbolta.net á liði ársins, leikmanni ársins, efnilegasta leikmanninum, besta þjálfaranum og besta dómaranum. Í seinni hlutanum ræðir Tómas við Birgi Jóhannsson og Björn Þór Ingason frá ÍTF um deildina. Meðal annars...

Enski boltinn - Að telja sig vera stærri en félagið 21.10.2022

Það er svo mikið í gangi í ensku úrvalsdeildinni að ekki er annað hægt en að bjóða upp á annan þátt af Enska boltanum þessa vikuna. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fara yfir tíðindamikla viku þar sem Cristiano Ronaldo var settur í skammarkrókinn og Steven Gerrard var rekinn. Farið er yfir þessar risafréttir, úrslit helgarinnar og leikir helgarinnar skoðaðir.

Enski boltinn - Í draumalandi Laufdalsins 17.10.2022

Það er frábær umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni þar sem stórleikur Liverpool og Manchester City stóð upp úr. Gummi og Steinke fóru yfir umferðina með Arnari Laufdal, þáttastjórnanda Ungstirnanna. Síðustu sjö dagar hafa verið ansi góðir hjá Laufdalnum; Breiðablik varð Íslandsmeistari, Liverpool vann Man City og hann fór á árshátíð. Eitt er víst eftir þennan leik Liverpool og Man City: Darwin N...

Innkastið - Leikurinn þar sem bæði liðin töpuðu 17.10.2022

Allt stefnir í að Leiknir og ÍA leiðist hönd í hönd niður í Lengjudeildina eftir 2-2 jafntefli liðanna í Breiðholtinu á Laugardag. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Guðmundur Aðalsteinn og Sverrir Mar gera upp 25. umferð Bestu deildarinnar og ræða helstu fréttapunkta deildarinnar.

Útvarpsþátturinn - Ómar Ingi og helstu boltamálin 15.10.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. október. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum og með þeim í þættinum er Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK. Rætt er um fréttir vikunnar; heimaleikjabann Víkings, þjálfarahræringar, Íslandsmeistaratitil Breiðabliks, tap kvennalandsliðsins og næstu leiki í Bestu deildinni. Þá gerir Ómar upp tímabil HK. Einnig koemur enski...

Enski boltinn - Víður völlur og sameiginlegt byrjunarlið 14.10.2022

Það var farið um víðan völl þegar Gummi og Steinke settust niður á skrifstofu Fótbolta.net í dag. Farið var yfir umferðina í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór um síðustu helgi og umferðina sem hefst í kvöld. Einnig var farið yfir Meistaradeildina, Evrópudeildina og Sambandsdeildina en það var spilað í öllum þessum keppnum núna í vikunni. Liverpool og Manchester City eigast við í stórleik helgarin...

Innkastið - Blikar krýndir bestir í sófanum og FH greip líflínu 11.10.2022

Til hamingju Breiðablik! Kópavogsliðið er orðið Íslandsmeistari. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fara yfir liðna umferð í Bestu deildinni og heyra í góðum mönnum. Viktor Karl Einarsson, miðjumaður og Íslandsmeistari, er á línunni. Í seinni hlutanum er fjallað um neðri deildina og svakalega mikilvægan sigur FH gegn Leikni í fallbaráttuslagnum. Þá er Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, á línunni...

Útvarpsþátturinn - Harka og hræringar í fallbaráttunni í Bestu 08.10.2022

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það eru sviptingar og spenna í harðri fallbaráttu Bestu deildarinnar. Eiður Smári steig til hliðar og Siggi Höskulds tekst á við nýjar áskorarnir eftir tímabilið. Sérfræðingur þáttarins, Rafn Markús Vilbergsson, spáir í spilin fyrir sex stiga fallbaráttuslag FH og Leiknis. Enski boltinn. Stórleikur...

Kristján Guðmundsson - Hvernig náði Stjarnan Evrópusæti? 06.10.2022

Stjarnan endaði í 2. sæti Bestu deildar kvenna á liðnu tímabili. Liðið verður því í forkeppni Meistaradeildarinnar á komandi tímabili. Liðið vann fimm af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni og gerði tvö jafntefli. Kristján Guðmundsson var að klára sitt fjórða tímabil sem þjálfari liðsins og ræddi hann við Fótbolta.net í dag. Kristján fór yfir markmiðasetninguna, tvískiptinguna á tímabilinu, brey...

Innkastið - Læti í Laugardal og sparkað í liggjandi mann 04.10.2022

Víkingur vann FH í framlengdum bikarúrslitaleik og fyrstu fjórir leikirnir eftir tvískiptingu Bestu deildarinnar eru að baki. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir það helsta sem er í gangi í íslenska boltanum í Innkasti vikunnar. Meðal efnis: Lætin í Laugardalnum, Haddi byrjar á sigri fyrir norðan, Blikar miklu betri en Stjörnumenn, sparkað í liggjandi Skagamenn og Fram tók fernuna g...

Ástríðan - Uppgjör í 3. deildinni - Fulltrúar toppliða og viðurkenningar 04.10.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu í heimsókn góða fulltrúa frá toppliðunum tveimur. Bjarki Flóvent frá Sindra og svo kom Balvin Borgarsson fyrir hönd Dalvíkur. Þeir mættu í spjall þar sem farið var yfir tímabil liðanna í ár, framhaldið og fleira. Bjarki Flóvent fór yfir...

Enski boltinn - Ótrúlegur viðsnúningur og sjokkerandi á Etihad 03.10.2022

9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór að mestu fram á laugardag og sunnudag. Skagamaðurinn Albert Hafsteinsson og Keflvíkingurinn Kristinn Guðbrandsson fóru yfir það helsta með Sæbirni Steinke. Arsenal er áfram á toppnum og Manchester City fylgir í kjölfarið. Þeir Albert og Kiddi eru Arsenal menn og var vel farið yfir þeirra sigur á nágrönnunum. Er Arsenal eina liðið sem getur barist við City? Áf...

Heimavöllurinn: Besta eftirpartýið 03.10.2022

Keppni í Bestu deildinni er lokið þetta tímabilið og því ekki um annað að ræða en að gera mótið almennilega upp í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar. Þau Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Ingunn Haraldsdóttir mættu í gott spjall og fóru ítarlega yfir sumarið ásamt Mist Rúnarsdóttur.

Útvarpsþátturinn - Ísland, DKÓ, Besta og enski 01.10.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 1. október. Elvar Geir og Benedikt Bóas halda um stýrið og skoða allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Meðal annars er rýnt í landsleiki Íslands, jafnteflið í Tirana og þennan hörkuleik hjá U21 liðinu í Tékklandi. Landsliðsmaðurinn Davíð Kristján Ólafsson er á línunni. Farið er yfir fréttir og slúður, rætt um bikarúrslitaleikinn, spáð í spilin...

Ástríðan - Uppgjör í 2. deildinni - Gestir frá toppliðum og lið ársins 30.09.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Óskar Smári fengu í heimsókn góða gesti frá toppliðunum tveimur. Guðmundur Axel frá Þrótti R. og Maggi Matt frá Njarðvík mættu í spjall þar sem farið var yfir tímabil liðanna í ár, framhaldið og fleira. Guðmundur Axel svaraði fyrir gagnrýni Ástríðunnar und...

Heimavöllurinn: Fram flaug upp í fyrstu, hverjar fara í Evrópureisu? 27.09.2022

Keppni í 2. deild kvenna er lokið og ljóst er að Fram stendur uppi sem sigurvegari. Þjálfarar liðsins, þau Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson eru gestir Heimavallarins að þessu sinni en þau ræða sumarið og deildina sem hefur aldrei verið betri. Þá rýna gestirnir einnig í Meistaradeildarbaráttuna sem er framundan. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Orku Náttúrunnar, Heklu og Dominos.

Útvarpsþátturinn - Stóru fréttirnar að norðan, landsliðin og bestir í Bestu 24.09.2022

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Risafréttirnar frá Akureyri eru fyrst á dagskrá. Arnar Grétarsson er hættur sem þjálfari KA og Hallgrímur Jónasson gerði þriggja ára samning. Örvar Arnarsson ræðir um landsleikinn gegn Venesúla, U21 landsleikurinn er til umfjöllunar, farið yfir kosningu á bestu leikmönnunum í Bestu, leigubílasögur úr íslenska boltanum og England er fall...

Ástríðan - 22. umferð - Síðasta yfirferð sumarsins 21.09.2022

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Trúðarnir þrír komu saman og fóru yfir síðustu umferðina auk þess sem að umræðan færðist yfir í tímabilið sem heild. Meðal umræðuefnis:- Haukar enda í 9.sæti, ekki 10.- Bikarinn á loft á Höfn- Jarðtenging Sverris fyrir Kormák/Hvöt- Markakóngarnir- Síðasti leikur nokkurra...

Davíð Þór Ásbjörnsson - Fimmti heilahristingurinn fyllti mælinn 20.09.2022

Davíð Þór Ásbjörnsson þurfti að leggja skóna á hilluna fyrir rúmlega ári síðan, þá 29 ára gamall. Hann ræddi við Fótbolta.net í dag. Davíð fékk heilahristing í fimmta sinn á ferlinum í leik með Kórdrengjum gegn ÍBV og fann að það væri nóg komið.

Innkastið - Titillinn á hraðleið í Kópavog og FH í fallsæti 19.09.2022

22. umferð Bestu deildarinnar fór fram um helgina. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn ræða um leikina. Stjarnan batt enda á taphrinuna og sendi FH í fallsæti, Leiknir vann botnslaginn og það er uppgjafartónn á Akranesi, Íslandsmeistaratitillinn er á hraðleið í Kópavoginn, Kjartan Henry settur út úr hóp hjá KR, KA að gera frábæra hluti, Eyjamenn sogast aftur niður og það var handbo...

Útvarpsþátturinn - Landsliðin, Jamaíka, Besta og enski 17.09.2022

Útvarpsþátturinn 17. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Landsliðsverkefnin og hóparnir í brennidepli, U21 landsliðið á leið í umspil og A-landsliðið í mögulegan úrslitaleik í Albaníu. Heimir er kominn til Jamaíku, verið að tvískipta Bestu deildinn og Gunanr Ormslev ræðir um enska boltinn.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.