Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
HM hringborðið - Þeir bestu leika til úrslita 14.12.2022
Undanúrslitin á HM í Katar eru gerð upp við HM hringborðið. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðverinu með tvo góða gesti: Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðs Íslands er HM sérfræðingur okkar og Óðinn Svan Óðinsson, frétta- og íþróttafréttamaður RÚV, er einnig við hringborðið. Heimsmeistararnir lögðu Marokkómenn sem geta þó borið höfuðið afskaplega hátt. Messi hefur verið besti maður mót...
HM hringborðið - Englendingar komnir heim og Ronaldo grét 12.12.2022
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fara yfir allt það helsta frá HM í Katar. Lukkan var með Frökkum sem sendu Englendinga heim, Southgate íhugar að hætta, Ronaldo grét þegar draumurinn varð að engu, spænski dómarinn er líka farinn heim, Marokkó heillar heimsbyggðina, hverjir skipta um lið eftir HM?, þjálfarahræringarnar, spáð í undanúrslitin og fleira.
Útvarpsþátturinn - HM með smassbræðrum, Arnór og ÓMK 10.12.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 10. desember. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Gunni Birgis og Tommi Steindórs við HM hringborðið. Rætt er um sturlunina í fyrstu tveimur leikjum 8-liða úrslitanna og hitað upp fyrir framhaldið. Í seinni hluta þáttarins er rætt við Arnór Sigurðsson og Óttar Magnús Karlsson kemur í heimsókn.
HM hringborðið - Karnival í Katar og Spánn fær ekki að vera með 06.12.2022
Það er ekki töluð vitleysan við HM hringborðið. Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar og Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins eru sérfræðingar Elvars Geirs. Portúgal fór á kostum með Ronaldo í kælinum, Marokkómenn sendu hugmyndasnauða Spánverja heim, Brasilía blæs í danssýningu og Króatar elska langa leiki. Rætt um alla leiki 16-liða úrslita HM og komandi leikir í 8-liða úrslitum...
HM hringborðið - Hey Jude og töframáttur Messi og Mbappe 04.12.2022
Fjögur lið eru komin í 8-liða úrslitin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn gera upp fyrstu fjóra leiki 16-liða úrslitanna. Vængbakverðir Hollands fóru illa með Bandaríkin, Messi leiddi Argentínu áfram en Ástralía getur borið höfuðið hátt, Mbappe var magnaður fyrir Frakka og Jude Bellingham heillaði í sigri Englands gegn Senegal.
Útvarpsþátturinn - Þeir bestu, verstu og skemmtilegustu á HM 03.12.2022
Elvar Geir og Tómas Þór gera upp riðlakeppni HM í útvarpsþætti vikunnar, velja úrvalsliðið til þessa, mestu vonbrigðin og skemmtilegustu karakterana. Sérfræðingur þáttarins, Kristján Atli Ragnarsson, spáir í viðureignir 16-liða úrslitanna. Fjallað er um vonbrigði Þýskalands. Sæbjörn Steinke ræðir við Guðmund Hreiðarsson, markvarðaþjálfara Jamaíku og sérfræðing um þýska fótboltann. Í lok þáttarins...
Svava kom djúpt úr frystinum og stóð uppi sem tvöfaldur meistari 02.12.2022
Svava Rós Guðmundsdóttir hefur átt viðburðaríkt ár, hún skipti um félag í upphafi árs, vann tvo titla með Brann í Noregi og fór með landsliðinu á EM í sumar. Seinni hluta síðasta árs var Svava ekki á góðum stað, föst í liði þar sem þjálfarinn ætlaði sér ekki að spila henni. Svava ræðir tímann hjá Bordeaux; síðustu mánuðina, viðskilnaðinn og skiptin í Brann, tímann sinn í Noregi til þessa, fagnið s...
HM hringborðið - Danmörk heim með skottið á milli lappanna 30.11.2022
Þá er fjórum riðlum á HM í Katar lokið. Tveir riðlar kláruðust í dag og vantaði ekki dramatíkina í þá fjóra leiki sem voru spilaðir. Danir eru farnir heim, Frakkar töpuðu óvænt, Messi og félagar kláruðu sitt og það gerðist næstum því að lið færi áfram á háttvísisstigum. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke fara yfir leiki dagsins í HM hringborðinu ásamt því að ræða við góða gesti. Hringt er til...
HM hringborðið - Glæstar vonir og súr vonbrigði: Magnús Már kryfur það helsta 29.11.2022
Tveimur riðlum á HM er lokið, hvað varðar leikjafjölda er mótið rúmlega hálfnað og það er margt í spilunum. Nýjar stjörnur verða til, glæstar vonir og súr vonbrigði. Elvar Geir og Guðmundur Aðalsteinn eru við HM hringborðið og sérstakur gestasérfræðingur er Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar og fyrrum ritstjóri Fotbolti.net. Farið er yfir leiki síðustu tveggja daga og skoðað hvað er fram...
HM hringborðið - Betri er full krukka en tóm 27.11.2022
Á morgun er lokadagurinn í 2. umferð riðlakeppninnar. Við hringborðið í dag var farið yfir leiki helgarinnar þar sem spilað var í C,D, E og F riðli. Það er mikil spenna í öllum riðlunum og einungis ein þjóð komin áfram í 16-liða úrslit. Sæbjörn Steinke fékk Framarana Guðmund Magnússon og Óskar Smára Haraldsson með sér í yfirferðina. Meðal efnis: Niclas Füllkrug, Belgar í brasi, Messi steig upp, Fr...
Útvarpsþátturinn - Mestu vonbrigði HM og fréttir vikunnar 25.11.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í óvenjulegri útgáfu þessa vikuna. Hann er sendur út frá Mývatni. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir gang mála á HM í Katar og þá eru fótboltafréttir vikunnar á sínum stað. Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu að þessu sinni.
HM hringborðið - Yfirferð með Davíð Snorra: Stór lið strax undir pressu 22.11.2022
HM er farið á fulla ferð og við hringborðið er farið yfir allt það helsta sem hefur gerst á mótinu til þessa. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða mótið með góðum gesti. Sérfræðingur þáttarins er Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins. Davíð starfaði sem leikgreinandi hjá íslenska landsliðinu á HM 2018. Meðal efnis: Heimsmeistararnir byrja á sigri, óvæntustu úrslit HM sögunnar, Danir ekker...
Útvarpsþátturinn - Ronaldo, HM og Kaggi Más 19.11.2022
Útvarpsþátturinn 19. nóvember 2022. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór. Rætt um Ronaldo málið við Tryggva Pál Tryggvason, fréttamann og sérfræðing um Manchester United. Í kjölfarið er farið yfir helstu fréttir. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV ræðir um HM utan og innan vallar og Sævar Sævarsson kynnir bók sína um Kjartan Másson sem er nýkomin út.
HM hringborðið - Dauðariðlarnir þar sem allt getur gerst 17.11.2022
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn skoða F, G og H riðla heimsmeistaramótsins og helstu fréttir. Arnar Þór Viðarsson gefur innsýn í belgíska liðið og Aksentije Milisic í það serbneska.
HM hringborðið - Innistæða fyrir danskri bjartsýni 16.11.2022
Við höldum áfram að hita upp fyrir HM í Katar. Í þættinum að þessu sinni skoða Elvar Geir og Sæbjörn Steinke riðla C, D og E. Freyr Alexandersson þjálfari Lyngby er á línunni og gefur innsýn í danska landsliðið.
Enski boltinn - Tekur upp hanskann fyrir Ronaldo 14.11.2022
Cristiano Ronaldo er á allra vörum í dag eftir viðtal sem hann fór í hjá umdeilda fjölmiðlamanninum Piers Morgan. „99 prósent af stuðningsmönnum Man Utd munu standa með Erik Ten Hag, sem sýnir í raun hversu illa Ronaldo kom að málunum. Þetta eitt prósent mun styðja Ronaldo er Rio (Ferdinand), Roy (Keane) og Patrice (Evra)," sagði Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, í gær. Það má segja a...
Útvarpsþátturinn - Sævar Péturs, fréttir vikunnar og enski boltinn 13.11.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. nóvember. Tómas Þór og Benedikt Bóas stýrðu þættinum að þessu sinni. Í fyrsta hlutanum kom Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA í heimsókn en hann var í bænum að semja við leikmenn og segir frá því og uppgangi félagsins og vinnunni á bakvið hann. Um miðjan þátt var fari yfir helstu fótboltafréttirnar hér á landi og þar var af nægu að taka. Í síð...
HM hringborðið - Innsýn í lið Katar og fer England áfram? 11.11.2022
Það eru níu dagar í HM, þetta er að bresta á! Í dag fóru Gummi og Steinke yfir A- og B-riðla með Arnari Laufdal, fréttamanni. Hollendingar eru líklegastir til að vinna A-riðil en gætu heimamenn í Katar komið á óvart með því að fara áfram? Rætt var við Bjarka Má Ólafsson, fyrrum leikgreinanda Al Arabi í Katar, til að fá innsýn í lið heimamanna. Þá var einnig rætt um B-riðil og þá sérstaklega um Eng...
HM hringborðið - Fyrsti Íslendingurinn sem komst á stærsta sviðið 08.11.2022
Aron Jóhannsson varð fyrsti Íslendingurinn til að spila á HM þegar hann fór með Bandaríkjunum til Brasilíu árið 2014.Það eru núna tólf dagar í HM í Katar og fékk undirritaður því Aron í áhugavert spjall í dag. Hann ræðir ákvörðunina að spila fyrir bandaríska landsliðið frekar en það íslenska, upplifunina að spila á HM í Brasilíu og mótið sem framundan er. Bandaríkin eru með spennandi lið núna og s...
Adda fer yfir glæstan feril - Einn sigursælasti leikmaður sögunnar 07.11.2022
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir er einn sigursælasti leikmaður í sögu íslenska boltans. Hún ákvað að leggja skóna á hilluna eftir síðustu leiktíð en hún endaði á því að verða bæði Íslands- og bikarmeistari með Val. Í þessu hlaðvarpi ræðir Adda við undirritaðan um stórkostlegan feril sinn þar sem hún vann fjölda titla með bæði Stjörnunni og Val. Þá lék hún einnig fyrir íslenska landsliðið. Adda ræð...
Enski boltinn - Hæhæ tvíeykið gerir upp stórleikinn 07.11.2022
Það var skemmtileg helgi í ensku úrvalsdeildinni, og þá var sunnudagurinn sérstaklega áhugaverður. Hæhæ tvíeykið, Helgi Jean Claessen og Hjálmar Örn Jóhannsson, gera upp helgina og þá aðallega stórleik Liverpool og Tottenham en þeir eru stuðningsmenn þessara tveggja liða; Helgi heldur með Liverpool og Hjálmar með Tottenham. Skemmtileg saga af Grétari Rafni Steinssyni, sem er núna háttsettur hjá To...
Útvarpsþátturinn - Boltafréttir, Arsenal og Danni Hafsteins 05.11.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. nóvember. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir helstu fótboltafréttirnar. Sæbjörn Steinke er með þeim og sett saman líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sádi-Arabíu. Þá er helgin í enska boltanum skoðuð. Arsenal er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og Daníel Geir Moritz velur fimm uppáhalds leikmenn sína í Arsenal frá upphafi. Einnig er spilað viðtal se...
Siggi Höskulds gerir upp tíma sinn í Breiðholtinu 04.11.2022
Sigurður Heiðar Höskuldsson, nýráðinn aðstoðarþjálfari Vals og fyrrum aðalþjálfari Leiknis í Breiðholti, mætti á skrifstofu Fótbolta.net í dag í mjög gott spjall. Hann fór þar yfir árin hjá Leikni og þá sérstaklega tímabilið í sumar þar sem Leiknir þurfti að sætta sig við fall eftir erfiða úrslitakeppni. Hann fer yfir ýmis mál. Þá fer hann yfir framhaldið með Val og af hverju hann ákvað að taka þa...
Valgeir Lunddal: Maður stefnir alltaf hátt en þetta toppar allt 01.11.2022
Valgeir Lunddal Friðriksson varð sænskur meistari með Häcken á sunnudag þegar liðið vann 0-4 sigur á Gautaborg í næstsíðustu umferð Allsvenskan. Häcken endaði í 12. sæti deildarinnar í fyrra og stekkur því upp um ellefu sæti milli tímabila. Valgeir hefur átt gott tímabil, komið við sögu í langflestum leikja Häcken, lagt upp þrjú mörk og bæði spilað sem hægri og vinstri bakverði. Hálftíma viðtal vi...
Enski boltinn - Kaninn keypti sér tíma á Anfield 31.10.2022
Það var nóg um að ræða í Enski boltinn þennan mánudaginn. Heil umferð var leikin í ensku úrvalsdeildinni á laugardag og sunnudag. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Fram, kom í heimsókn og ræddi um vandræði Liverpool við Gumma og Steinke. Einnig var Mate Dalmay, þjálfari körfuboltaliðs Hauka, með fyrsta hálftímann í þættinum og lét ýmislegt flakka. Ásamt því að vandræði Liverpool voru ræd...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.