Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Gunnhildur Yrsa er mætt heim - Kom ekkert annað til greina 05.02.2023
Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er komin aftur heim til Íslands eftir langa dvöl í atvinnumennsku. Hún bjóst aldrei við því að verða atvinnukona í fótbolta eftir að hafa slitið krossband tvisvar. Það gerðist svo í þriðja sinn eftir að hún fór til Noregs frá Stjörnunni. En hún hélt alltaf áfram og endaði á því að leika í tíu ár erlendis, fyrst í Noregi og svo í Bandaríkjunum. Hún á þá að...
Útvarpsþátturinn - Ótímabæra spáin og Óli Kristjáns 04.02.2023
Íslenski boltinn er í aðalhlutverki í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikunar. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson opinbera nýja ótímabæra spá fyrir Bestu deildina. Ólafur Kristjánsson, yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki, mætir í þáttinn og ræðir um starf sitt í Kópavoginum, íslenska leikmannamarkaðinn og fleira.
Orri Steinn: Þá hefði ég hlegið í andlitið á þér 02.02.2023
Orri Steinn Óskarsson er einn mest spennandi ungi framherji í Danmörku. Hann hefur verið á mála hjá FC Kaupmannahöfn frá því hann yfirgaf Gróttu eftir tímabilið 2019. Þegar Orri hugsar til baka til tímabilsins 2019 þá hugsar hann um lagið sem heyrist í byrjun klippunnar. Orri raðaði inn mörkum fyrir U17 og U19 ára lið FCK og steig sín fyrstu skref með aðalliðinu á síðasta ári. Hann kom inn á í lok...
Enski boltinn - Boðið upp á bombu klukkutíma fyrir gluggalok 02.02.2023
Tímabil Newcastle og janúarglugginn var það sem var helst til umræðu í hlaðvarpinu Enski boltinn á þessum fimmtudegi. Félagaskiptaglugginn lokaði síðasta sunnudag og það er óhætt að segja að félög í ensku úrvalsdeildinni hafi misst sig í gleðinni þegar kom að því að kaupa leikmenn. Þá aðallega Todd Boehly, eigandi Chelsea. Hann ákvað að gera Enzo Fernandez að dýrasta leikmanni í sögu enska boltans...
Enski boltinn - Óvænt skipti og slúðursögur fyrir gluggadag 30.01.2023
Á morgun er gluggadagur og það er nóg af slúðursögum í gangi er viðkemur félögum í ensku úrvalsdeildinni. Fer Moises Caicedo til Arsenal? Fer Enzo Fernandez til Chelsea? Liverpool og Manchester United eru róleg og þá er Manchester City að selja Joao Cancelo. Nóg að gerast eins, en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fara yfir allt það helsta í þessum þætti af Enski boltinn hlaðvarpinu. Þá...
Útvarpsþátturinn - Uppgjör með Kristjáni Atla á fyrri hluta ensku úrvalsdeildarinnar 28.01.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 28. janúar. Tómas Þór Þórðarson stýrir þættinum einn að þessu sinni en Elvar Geir er á Englandi. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um um enska boltann er með Tómasi í stúdíóinu og fer yfir fyrri hlutann í ensku úrvalsdeildinni sem er núna loksins hálfnuð.
Björn Már fer yfir Juventus málið 25.01.2023
Á föstudag bárust þær risastóru fréttir að fimmtán stig voru dregin af ítalska stórliðinu Juventus. Félagið er undir rannsókn vegna alvarlegra fjársvika þar sem svindlað hefur verið í bókhaldi og leikmönnum greitt svart. Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann og einn af umsjónarmönnum hlaðvarpsþáttarins Punktur og Basta, ræddi við Sæbjörn Steinke um málið. Enn eru margir lausir endar...
Enski boltinn - Landsbyggðin talar um hugarfarsskrímsli 24.01.2023
Mikið var rætt um sigur Arsenal á Manchester United í þætti dagsins og orðin mentality monsters notuð til að lýsa Arsenal liðinu. Ingimar Helgi Finnsson var á línunni og ræddi um Tottenham og Óskar Smári Haraldsson gasaði um sína menn í Liverpool. Arsenal er með fimm stiga forskot og á leik til góða, en tvær innbyrðisviðrueignir eru eftir við City. Hvort liðið verður meistari? Nær Tottenham Meista...
Útvarpsþátturinn - Adam Páls, íslensk tíðindi og Arsenal fær rödd 21.01.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. janúar. Elvar Geir, Benedikt Bóas, Kári Kongó og nýjasti leikmaður Vals, Adam Pálsson, í hljóðveri. Fréttir úr íslenska boltanum, Arsenal er á toppnum í enska, Newcastle í Meistaradeildarbaráttu og þá er Arnar Daði sérfræðingur í beinni frá Gautaborg í handboltahorninu.
Heimavöllurinn - Bleikir fílar, samstaða og Sara sigrar 20.01.2023
Ár er síðan Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna voru endurvakin og þau hafa haft í nægu að snúast. Á Heimavöllinn eru mættar þær Anna Þorsteinsdóttir, forseti samtakanna, og Rebekka Sverrisdóttir, nýliði í stjórn. Þær fara yfir málin sem hafa verið veigamest á þessu fyrsta starfsári og rýna í það hvar gera má betur hvað varðar umgjörð um knattspyrnu kvenna. Þetta gera þær að sjálfsögðu í boði Dominos...
Enski boltinn - London er rauð og það er Manchester líka 16.01.2023
Það er nóg um að ræða í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í dag. Það voru tveir mjög svo áhugaverðir nágrannaslagir um helgina. Manchester United og Arsenal stóðu uppi sem sigurvegarar í þessum tveimur leikjum eru gestir dagsins Albert Hafsteinsson og Magnús Ingi Þórðarson, leikmenn Fram. Albert heldur með Arsenal og Magnús er stuðningsmaður United. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fara y...
Arnar gerir upp janúarverkefnið - „Viljum ekki vera lið sem er fyrirsjáanlegt" 16.01.2023
Ísland lék tvo vináttuleiki í janúar, fyrri leikurinn var gegn Eistlandi og sá seinni var gegn Svíþjóð. Leikið var í Portúgal, fyrri leikurinn endaði með jafntefli en seinni leikurinn tapaðist. Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson ræddi við Sæbjörn Steinke og voru leikirnir gerðir upp. Rætt var um leikkerfi, leikmenn sem heilluðu, seinni vítaspyrnuna gegn Eistlandi og ýmislegt annað. Arnar segi...
Útvarpsþátturinn - Janúarverkefni Íslands og viðburðarík fréttavika í Bestu 14.01.2023
Það er tíðindamikil vika að baki í boltanum, bæði hér heima og erlendis. Í útvarpsþættinum Fótbolti.net fara Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke yfir allt það helsta. Janúarverkefni íslenska landsliðsins, ótrúleg úrslit í Reykjavíkurmótinu, leikmannahræringar í Bestu deildinni og enski boltann koma við sögu. Í handboltahorninu er hringt til Svíþjóðar og púlsinn tekinn á Henry Birgi Gunnarssyn...
Enski boltinn - Krísuástandið hjá Chelsea krufið til mergjar 13.01.2023
Í dag fá Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke góðan gest í hlaðvarpsþáttinn Enski boltinn. Stefán Marteinn Ólafsson mætti á skrifstofuna og fór yfir það hvað í ósköpunum væri í gangi hjá Chelsea þessa stundina. Chelsea tapaði fyrir Fulham í gær og það er krísuástand á Brunni um þessar mundir. Graham Potter, stjóri liðsins, virðist sigraður og staða hans er auðvitað rædd ásamt ýmsu öðru. Þá...
Freysi um Söru Björk: Draumur fyrir alla þjálfara 13.01.2023
Í morgun tilkynnti Sara Björk Gunnarsdóttir að landsliðsskórnir væru komnir á hilluna eftir sextán ára feril. Hún fór á fjögur stórmót, lék 145 landsleiki og skoraði 24 landsliðsmörk á sínum ferli. Á árunum 2013-2018 lék hún undir stjórn Freys Alexanderssonar í landsliðinu. Freyr er í dag þjálfari Lyngby í Danmörku og ræddi við Fótbolta.net um Söru Björk í kjölfar tíðindanna í dag. Freyr gerði Sör...
Heimavöllurinn: Lífstíðarbönn eftir að viðbjóðurinn vall upp úr skýrslunni 12.01.2023
Heimavöllurinn er klár í nýtt fótboltaár og ýmsar vendingar hafa þegar orðið í boltanum á nýju ári. Stórtíðindi af lífstíðarbönnum fjögurra þjálfara úr Bandarísku úrvalsdeildinni hafa vakið mikla athygli en gríðarlega stór rannsókn var nýlega gerð á ofbeldi og ofbeldismenningu í deildinni. Daði Rafnsson þekkir vel til í bandaríska boltanum og mætir til að fara yfir málin. Auðvitað í boði Dominos,...
Enski boltinn - Hvað er að hjá Liverpool og hvað gerir Boehly? 09.01.2023
Þeir Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke ræddu það helsta í enska boltanum í dag. Farið var yfir umferðina í síðustu viku og rætt um bikarhelgina. Það er bras á Liverpool, Chelsea og Everton þessa dagana og spilamennska liðanna voru til umræðu. Á Chelsea að láta Potter fara? Hvað er að hjá Liverpool og hefur Darwin Nunez valdið vonbrigðum? Er Rooney lausnin fyrir Everton? Þá var rætt um það he...
Útvarpsþátturinn - Flóttinn frá Keflavík og ótímabæra spáin 07.01.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 7. janúar. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson. Gestur er Sigurður Garðarsson, formaður Keflavíkur, sem svarar fyrir sögur um að fjárhagserfiðleikar herji á félagið. Lið Keflavíkur hefur misst marga lykilmenn frá síðasta tímabili og stuðningsmenn hafa áhyggjur. Þá er farið yfir fyrstu ótímabæru spá Bestu deildarinnar 2023. Farið er yfir hv...
Enski boltinn - Er þetta í alvöru að fara að gerast? 02.01.2023
Langt síðan síðast. Enski boltinn snýr aftur í dag úr HM-pásu og stuttu jólafríi. Enska úrvalsdeildin er komin aftur á fleygiferð og er spilað mjög þétt um þessar mundir. Tvær umferðir fóru fram á milli jóla og nýárs. Svo er leikur í kvöld þegar Liverpool og Brentford mætast. Er Arsenal í alvöru að fara að vinna þessa deild? Hringt var í Gunnar Birgisson, íþróttafréttamann og harðan stuðningsmann...
Útvarpsþátturinn - Áramótakæfan 2022 31.12.2022
Elvar Geir, Tómas og Benedikt Bóas gera upp fótboltaárið 2022 og veita verðlaun í ýmsum flokkum. Hilmar Jökull á línunni, Bjarki Már Elísson handboltahetja er heiðursgestur og Röddin mætir í lokin. Flugeldasýning og stuð þar sem gleðin er í fararbroddi. Takk kærlega fyrir hlustunina á árinu!
Heimavöllurinn: Áramótabomban 2022 29.12.2022
Heimavöllurinn snýr aftur eftir haustpásu og nú er komið að því að gera upp fótboltaárið sem er að líða. Reynsluboltarnir og kempurnar Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Helena Ólafsdóttir og Kristrún Lilja Daðadóttir mæta í sett og fara yfir árið með Mist Rúnarsdóttur. Þátturinn er sem fyrr í boði Orku Náttúrunnar, Dominos og Heklu.
Elísabet leyfir smábænum að dreyma - Hvað tekur svo næst við? 29.12.2022
Elísabet Gunnarsdóttir er einn besti fótboltaþjálfari sem hefur komið frá Íslandi, það er óhætt að fullyrða það. Hún hefur frá því í janúar árið 2009 þjálfað Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hefur náð mjög svo eftirtektarverðum árangri. Þar áður gerði hún Val að besta liði landsins, mögulega var það besta lið Íslandssögunnar. Í þessum hlaðvarpsþætti fer Elísabet yfir byrjunina á þjálfaraferlinum...
HM hringborðið - Allt í efsta stigi á mótinu hans Messi 18.12.2022
Síðasta HM hringborðið! Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Laufdal gera upp stórkostlegan úrslitaleik HM. Lionel Messi lyfti heimsmeistarabikarnum eftir sigur Argentínu í hreint rosalegum úrslitaleik, skemmtilegasta úrslitaleik sögunnar. Rætt er um leikinn, þetta svakalega argentínska lið, Guðmundur velur sitt úrvalslið mótsins og Arnar fimm bestu ungstirni mótsins.
Útvarpsþátturinn - Úrvalslið HM og Birkir Már um Messi og Mbappe 17.12.2022
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 17. desember. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðveri X977 á Suðurlandsbraut og Tómas Þór beintengdur frá hljóðveri DR í Kóngsins Kaupmannahöfn. Hitað er upp fyrir úrslitaleik HM, úrvalslið mótsins valið, HM leikmenn sendir í ensku úrvalsdeildina og Birkir Már Sævarsson er á línunni. Birkir Már þekkir það að mæta bæði Argentínu og Frakklandi. Hvort er e...
Arnar útskýrir landsliðsvalið - Einn í viðbót valinn 16.12.2022
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tilkynnti í dag 22 leikmenn sem verða í landsliðshópnum í janúar þegar spilað verður við Svíþjóð og Eistlandi á Algarve í Portúgal. Tveir nýliðar eru í hópnum, það eru þeir Aron Bjarnason og Nökkvi Þeyr Þórisson. Aron Sigurðarson er þá í hópnum í fyrsta sinn síðan í janúar 2018. Fótbolti.net ræddi við landsliðsþjálfarann í dag og spurði han...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.