Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fagnaði þegar hann sá 'missed call' frá Arnari 15.03.2023
Sævar Atli Magnússon fékk að vita á mánudaginn að hann yrði í landsliðshópnum fyrir komandi landsleiki í undankeppni EM. Þetta er í fyrsta sinn sem Sævar er í A-landsliðshóp þegar um keppnisleiki er að ræða, en hann spilaði sína fyrstu landsleiki í janúar. Hann var þá kallaður inn í hópinn eftir að upprunalegi hópurinn hafði verið tilkynntur. Hann hefur að undanförnu spilað vel í Danmörku, skoraði...
Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Bestu deildina 2023 14.03.2023
Það eru 6 vikur í að flautað verði til leiks í Bestu deild kvenna og komið að því að opinbera ótímabæra spá Heimavallarins þetta árið. Þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta og fara yfir spánna ásamt Mist Rúnarsdóttur.
Innkastið - Byrjað á bardaga í Bosníu 14.03.2023
Í næstu viku hefur Ísland leik í undankeppni EM þegar leikið verður gegn Bosníu/Hersegóvínu í borginni Zenica. Ejub Purisevic er frá Bosníu og er sérstakur gestur í Innkastinu. Hann ræðir við Elvar Geir og Sæbjörn Steinke um komandi leik. Íslenska liðið og það bosníska eru til umræðu og rýnt í möguleikana. Auk þessara liða eru Portúgal, Slóvakía, Liechtenstein og Lúxemborg í riðlinum en tvö efstu...
Enski boltinn - Sættir sig við að Arsenal verði meistari 13.03.2023
Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu símtal á Suðurlandið til Ingimars Helga Finnssonar, litlu flugvélarinnar, til þess að ræða leiki helgarinnar í enska boltanum. Litla flugvélin er að glíma við veiruna skæðu og náði því að fylgjast vel með boltanum um helgina. Tottenham-menn fögnuðu óvæntu tapi Liverpool, Arsenal rann svo sannarlega ekki á bananahýði og Manchester United olli vonb...
Að halda lífi eða halda áfram í fótbolta 13.03.2023
Emil Pálsson þurfti að leggja skóna á hilluna í fyrra eftir að hafa farið í hjartastopp á æfingu með FH. Þetta var í annað sinn á stuttum tíma þar sem Emil fór í hjartastopp í fótbolta. Emil mætti í dag á skrifstofu Fótbolta.net, fór yfir feril sinn og hvernig hann endaði. „Þetta fer eftir því hvernig maður horfir á hlutina. Ég þurfti að horfa á þetta þannig að ég væri að velja á milli þess að ver...
Útvarpsþátturinn - Síðasta ótímabæra og vangaveltur um landsliðið 11.03.2023
Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig fara yfir síðustu ótímabæru spánna fyrir Bestu deildina. Það styttist í lykilleik gegn Bosníu. Leikmenn Íslands eru heitir í aðdraganda landsleikja, verður Albert valinn? Þá er Lineker málið skoðað og erlendar fréttir. Útvarpsþátturinn 11. mars.
Enski boltinn - Frosið í helvíti 10.03.2023
Ólafur Þór Jóelsson, þáttastjórnandi GameTíví, var á línunni frá Kóngsins Köben í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn. Þar ræddi hann um vandamál Tottenham sem núna hrannast upp. Tími Antonio Conte virðist á enda hjá félaginu en hver á þá að taka við stjórnartaumunum? Rætt var við Óla um leikinn gegn AC Milan, frammistöðu Oliver Skipp, viðtalið við Richarlison, framtíð Harry Kane og margt fleira. Anna...
Enski boltinn - Vandræðaleg uppgjöf 06.03.2023
Liverpool vann sögulegan risasigur gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Til þess að ræða leikinn og aðra leiki helgarinnar fékk Sæbjörn Steinke Framarana Óskar Smára Haraldsson og Guðmund Magnússon. Af hverju vann Liverpool 7-0? Rætt um varnarmanninn Antony, fyrirliðann Bruno Fernandes, fluggírinn hjá Liverpool og uppgjöf gestanna á Anfield í gær. Daginn áður vann Arsenal frábæran endur...
Útvarpsþátturinn - Horft til Bosníu og Heimir Guðjóns gestur 04.03.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 4. mars. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Farið yfir fréttirnar í íslenska boltanum, úrslit vikunnar í Lengjubikarnum og rætt um komandi undankeppni EM hjá íslenska landsliðinu sem mætir Bosníu síðar í þessum mánuði. Heimir Guðjónsson þjálfari FH er gestur og ræðir um komandi tímabil í Bestu deildinni. Þá er hitað upp fyrir Liverpool - Man Utd.
Enski boltinn - Ferðasaga og ansi langsóttur Íslandsvinur 02.03.2023
Það var farið yfir FA-bikarinn, ensku úrvalsdeildina og margt fleira í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Sæbjörn Þór Steinke er mættur aftur heim eftir glæsiferð til Englands. Hann sagði ferðasögu í þættinum þar sem hann og Guðmundur Aðalsteinn fóru yfir málin. Rætt var um úrslitin í FA-bikarnum í gær, þar á meðal óvæntan sigur Grimsby gegn Southampton. Markaskorari Grimsby, Gavan Holohan í leiknum...
Enski boltinn - Engin vitleysa töluð hjá Djuric bræðrum 27.02.2023
Fótboltabræðurnir Danijel Dejan og Nikola Dejan Djuric eru gestir í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni. Þeir settust niður með Guðmundi Aðalsteini á þessu mánudagskvöldi og fóru yfir helgina í enska boltanum. Það var nóg að ræða, þá helst úrslitaleikur enska deildabikarsins í gær. Danijel er stuðningsmaður Chelsea en hann er tilbúinn að styðja við bakið á Graham Potter þrátt fyrir slakt geng...
Útvarpsþátturinn - Ótímabæra Lengjuspáin 25.02.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 25. febrúar. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir leikina í Lengjubikarnum og burðarefni þáttarins er ótímabær spá fyrir Lengjudeildina. Sigurður Heiðar Höskuldsson, aðstoðarþjálfari Vals, er sérstakur sérfræðingur og skoðar öll lið deildarinnar. Í lok þáttarins er aðeins skoðað hvað er í gangi í enska boltanum um helgina.
Enski boltinn - Allt blómstrar á Old Trafford og þarfagreining á Anfield 24.02.2023
Það er feikilega mikið í gangi í boltanum og því er hér mættur þriðji þátturinn af Enska boltanum þessa vikuna. Elvar Geir og Guðmundur Aðalsteinn fengu Magnús Hauk Harðarson til sín til að skoða málin. Rýnt í Evrópuleiki vikunnar og hitað upp fyrir leiki helgarinnar, þar á meðal úrslitaleik Manchester United og Newcastle í deildabikarnum. Magnús er stuðningsmaður Liverpool og skoðar það sem hann...
Heimavöllurinn - Túr, bros og takkaskór 23.02.2023
Kynin er líffræðilega ólík en lengst af hefur lítið tillit verið tekið til þess er kemur að þjálfun í íþróttum. Flestar íþróttarannsóknir hafa verið miðaðar að körlum og íþróttabúnaður að mestu hannaður fyrir karllíkamann. Þetta er þó að breytast og mikil vitundarvakning er að eiga sér stað. Þema Heimavallarins að þessu sinni er þjálfun kvenna og gestir þáttarins sérfræðingar á því sviði. Það eru...
Enski boltinn - Liverpool niðurlægt og Katar eða Ratcliffe? 22.02.2023
Manchester United og Liverpool voru aðallega til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Liverpool tapaði 2-5 fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni í gær. Ótrúlegur leikur en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu í Atla Má Steinarsson, fjölmiðlamann, til að ræða leikinn og tímabilið hjá Liverpool. Þá hringdu þeir einnig í Tryggva Pál Tryggvason, fréttamann á Stöð 2 og Vísi, til að...
Júlli Magg: Snerist frá þeirri hugsun á lokametrunum 21.02.2023
Júlíus Magnússon samdi við norska félagið Fredrikstad í lok síðasta mánaðar. Júlíus var fyrirliði Víkings á síðasta tímabili og var í algjöru lykilhlutverki í liðinu sem endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar og vann bikarmeistaratitil. Hann er 24 ára djúpur miðjumaður sem lék með Víkingi í fjögur tímabil eftir að hafa komið heim frá hollenska félaginu Heerenveen þar sem hann lék með unglingaliðum og...
Ægismenn fá allt aðra áskorun - Upp um deild í febrúar 20.02.2023
Að félag komist upp um deild á Íslandi í febrúar er fáheyrður atburður, en það gerðist síðasta laugardag þegar KSÍ staðfesti að Kórdrengir yrðu ekki með í sumar. Ægir, sem lenti í þriðja sæti 2. deildar á síðasta tímabili, mun spila í Lengjudeildinni en þetta hafði líka áhrif í öðrum deildum. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni þar sem Ægir spilar í næst efstu deild en félagið náði sínum besta árangr...
Enski boltinn - Möguleg meistaraheppni 20.02.2023
Tíðindamikil helgi í ensku úrvalsdeildinni er gerð upp í hlaðvarpsþættinum enski boltinn. Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Tómas Þór í þættinum að þessu sinni. Allt sem Ten Hag snertir virðist breytast í gull, Tottenham komið í Meistaradeildarsæti, Arsenal er aftur skellihlæjandi á toppnum, City fór illa með færin og Newcastle fór illa að ráði sínu gegn Liverpool.
Útvarpsþátturinn - Rúnar Páll, Kórdrengir kveðja og ársþingið 18.02.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 18. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis mætir, farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og Þórir Hákonarson skoðar komandi ársþing KSÍ. Þingið verður kannski áhugaverðara en útlit var fyrir í fyrstu.
Enski boltinn - Ekki bara tveir hestar, heldur þrír 17.02.2023
Það er frábær fótboltavika að baki þar sem hæst stóð stórleikur Arsenal og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Titilbaráttan er galopin en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fengu Jón Kaldal, stuðningsmann Arsenal, til að fara yfir stórleikinn. Jón er á þeirri skoðun að titilbaráttan sé ekki tveggja hesta kapphlaup, heldur sé um þrjá hesta að ræða. Í þættinum var jafnframt farið yfir...
Enski boltinn - Vanhæfir í VAR-herberginu 14.02.2023
Það var nokkuð mikið rætt um dómaramistök í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fengu Magnús Val Böðvarsson til að fara yfir umferðina um liðna helgi. Maggi Bö, eins og hann er ávallt kallaður, er dómari, vallarstjóri og stuðningsmaður Crystal Palace. Stuðningsmenn Arsenal, Chelsea og Brighton geta verið ansi reiðir út í dómarastéttina eftir þessa umferð. A...
Útvarpsþátturinn - Rúnar Kristins og áhugaverð leikmannakaup 11.02.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar, enskar og íslenskar. Rætt um stóru fréttirnaf af Manchester City, tíðindi á íslenska leikmannamarkaðnum, undirbúningsleiki og Rafn Markús Vilbergsson segir okkur frá áhugaverðum leikmanni sem Njarðvík var að fá frá Malasíu. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari KR. Rætt er...
Enski boltinn - Eldræða frá Mána en áhyggjurnar litlar hjá City 10.02.2023
Það er boðið upp á veisluþátt af Enski boltinn hlaðvarpinu á þessum ágæta föstudegi. Byrjað er á því að hringja í Þorkel Mána Pétursson, stuðningsmann Leeds. Hann fer vel yfir málin hjá sínum mönnum en hann er ekki sáttur með allt sem hefur verið í gangi þar. Leeds gerði 2-2 jafntefli gegn Manchester United í miðri viku og er farið vel yfir þann leik í þættinum. Svo er hringt í Magnús Ingvason, st...
Atli Hrafn: Stefnir alltaf hærra en þar sem þú ert 09.02.2023
Atli Hrafn Andrason er uppalinn KR-ingur sem farið hefur víða á sínum ferli þrátt fyrir ungan aldur. Atli er 24 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem skrifaði undir hjá HK í desember. Hann varð Íslandsmeistari með 3. flokki KR árið 2014 og samdi við Fulham sumarið 2016. Hann var á Englandi í tvö og hálft ár. Næsta stopp var Víkingur, svo Breiðablik, næst ÍBV og loks HK. Atli lék á sínum tíma 25 leiki...
Enski boltinn - Staðan hjá Liverpool mikið áhyggjuefni 06.02.2023
Það gengur hvorki né rekur hjá Liverpool þessa stundina. Liðið tapaði 3-0 gegn Úlfunum um helgina. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fengu Hallgrím Indriðason, fréttamann á RÚV, til að fara yfir stöðuna hjá félaginu en hún er áhyggjuefni. Einnig er rætt um aðra leiki helgarinnar en tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar töpuðu bæði um helgina. Þá er rætt um það að deildin saki Manchester...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.